Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Blaðsíða 30
30 Líkamsrækt Hugum að heilsunni 1. grein: Hvaða líkamsæfingar henta þínum persónuleika? í líkamsrækt, hvaða nafni sem hún nefnist, erum við að liðka og þjálfa annars htið eða ónotaða vöðva. Sum- ir vilja losna við aukakíló en allir eru aö sækjast eftir bættri heilsu og hreysti. Markmið allra er að líða betur og verða afslappaðri á eftir, auka þol og þrek og verða ánægðari með sjálfan sig á annan hátt. Því er mikilvægt að velja sér hk- amsrækt við hæfi þegar farið er af stað. Æfingarnar verða aö henta lífsstíl viðkomandi og ásigkomulagi. Sá athafnamikli... sem vinnur mjög „stressandi" starf og hefur mikið aö gera í frítímanum, kann yfirleitt best við sig þegar adrenalínið er sem mest í blóöinu. Fólk í þessum hópi vill kapp og læti og er um að gera að nota þessa orku og spennu í líf og fjör þegar komið er að líkamsræktinni. Eftir erfiðan vinnudag hentar þessu fólki frekar aö fá útrás í ein- hverri keppnisíþrótt eða aerobic, þar sem mikið er hamast, heldur en að slaka á í sundlaugunum ef það á annað borð vill góða hreyfingu. Slök- un í heita pottinum eða i gufunni er svo góð að æfmgunum loknum. Ef svo gífurlega'mikið er að gera að fólk komist alls ekki frá þennan daginn til neinna íþróttaiðkana má benda á að með aukinni hreyfingu eykst út- haldið til muna og því getur kortérs göngutúr mitt í stritinu verið góður. Þeir „stressuðu“ ættu samt endi- lega, og ekki síður en þeir óstres- suðu, að stunda heilsurækt af ein- hverju tagi. Eftir hreyfinguna slaka líkaminn og sáhn vel á. Næg og góð hreyfing er reyndar eitthvert besta meöalið við of miklu álagi og alltaf má finna tíma til þess að komast frá. Oftar en ekki er það viljinn sem ræð- ur og svo er bara að gera það að vana. Sá einmana... sem er heimavinnandi, umgengst mjög fátt fólk á vinnustað eða lifir á einhvern hátt fábrotnu lífi getur bætt sér upp rólegheitin og félags- legu þörfina í heilsuræktinni. Þessi manneskja ætti endilega að drífa sig í leikfimi þar sem sami hóp- urinn kemur til með að hittast næstu vikurnar - eða vera iðin við að hringja í kunningjana og fá þá með í.eitthvert trimm. Hver einasti maður verður að um- gangast fólk utan fjölskyldunnar á hverjum degi og er því tilvahö að fara út fyrir veggi heimilisins í lík- amsrækt til þess. Svo er bara að velja hreyfinguna eða æfingarnar sem henta viðkom- andi. Gaman getur verið að prófa einhveija nýja og spennandi tegund heilsuræktar til að fá virkilega til- breytingu í lífið. Félagsveran Svipað gildir um manninn sem vill alltaf vera að kynnast nýju fólki. Honum hentar betur að sækja heilsuræktirnar eða sundlaugarnar þar sem fuht er af fólki en að fara ein'n út að hlaupa eða hjóla. Þessi byrjar gjarnan á því að spyrja starfs- fólk heilsuræktarstöðvanna eða þjálfarann margra spurninga og vill blanda geði viö sem flesta. Upplagt er fyrir þennan að ganga í eitthvert íþróttafélag eða til dæmis golfklúbbinn og þannig er víst að ný nöfn bætast í kunningjasímaskrána - og hreyfingin fylgir líka. Listamaðurinn/„anti- sportistinn" er farinn að skilja hversu mikilvægt er að stunda einhverja líkamsrækt og er til í að fara að gera eitthvað í málunum. Hann vill gjarnan komast burt frá hávaðanum í bænum, krökkunum eða öðru. Ganga út fyrir bæinn er líklega besta heilsuræktin fyrir þá sem telj- ast til þessa hóps; jafnvel líka jóga, hjólreiöar eða sund. Þeir ættu varla annað eftir en til dæmis að sprikla og öskra við taktfasta háa tónlist fyr- ir framan hóp fólks í aerobic og því er ekki hægt að benda þeim á þvílíkt „hjartastyrkingarmeðal“. Þó gæti heimsókn á heilsuræktar- stööina einmitt verið hápunktur dagsins hjá þessu fólki, ekki síst eftir einveru heilan dag við teikniborðið. Líkamsrækt Rósa Guðbjartsdóttir Það fer heilmikið eftir persónuleika þínum og hvers eðlis starf þitt er hvern- ig líkamsrækt hentar þér best. Þeir sem eru í „stressandi“ starfi ættu gjarn- an að fá útrás í einhverri keppnisíþrótt, eins og veggjatennis eða öðrum „spaða-íþróttum“, að loknum vinnudegi. Þannig getur reynst auöveldara að slaka vel á á eftir. Athyglisvert um megrun Þeir sem eru sífellt i megrun eiga erfiðara með aö losna viö aukakíló- in en þeir sem fara í megrun í fyrsta sinn eða sjaldan. Þetta eru niður- stöður rannsóknar dr. Kellys Brownell, sálfræðings við liáskól- ann- í Pennsylvaniu. Tilraunina gerði hann fyrst á rottum. Þær voru látnar éta óhófiega mikið í nokkra daga þangað til þær urðu alltof þungar. Þá vpru þær settar á léttan matarkúr. í fyrsta matar- kúrnum voru þær aðeins 21 dag að ná eðlilegri þyngd aftur en þegar sama tilraunin var gerð á sömu rottunum í annað sinn tók það þær 46 daga að ná kjörþyngdinni. Eftir aðra raegrunina voru þær líka langtum sneggri aö komast aftur i yfirvigtarflokkinn en eftir fyrri megrunina. Rotturnar bættu fleiri kflóumviösigáskemmritimaeftir Megrunarkúrar, sem lofa þetta seinni megrunina og þurftu færri eða hitt mörgum kilóum burt á hitaeiningar tfl þess en eftir fyrri nokkrum dögum, eru varasamlr. megrunina. Þvi oftar sem farið er Því oftar sem fólk fer í snögga í megrun því auðvelaara virðist megrun þeim mun auðveldara vera að bæta á sig kflóum. Líkam- reynist því að bæta vlð sig kilóun- inn sættir sig ekkí við þess háttar um aftur og alltaf verður eriiðara jójó sem sífelld raegrun er fyrir afla aö losa sig við aukakílóín í næsta líkamsstarfsemina. „Það sama skipti. virðist eiga við um mannfólkið," segir dr. Brownefl. „Þeir sem vilja losa sig við aukakflóin til frambúð- venjur og lífsstíl ef þess þarf. Þetta ar verða að gera það á löngum tíma gerist ekki á einu bretti ef árangur- og þá með því aö breyta um matar- inn á að veröa varanlegur." Gætum okkar á gufunni Gufu- og sánaböð eru mjög vinsæl. Afslöppun í heitum nuddpotti telja en gufuböð sem oft leiða til svima Ekki síst þykja þau eftirsóknarverð bresku læknarnir langtum öruggari og höfuðverkjar. til að flatmaga í að loknum æfingum. Frændur okkar Finnar alast upp við gufuna frá blautu bamsbeini og þyk- ir hún góð og gfld við hvaða tilefni sem er. Enginn fer á þær slóðir án þess að bregða sér í ekta finnskt gufubað. Hvað sem því líður verður fólk, sem fer sjaldan í þess háttar böö, að hafa allan varann á og einnig þeir sem hafa ekki stundað gufuna í langan tíma. Þeir sem hyggjast gera gufubaðið að fóstum lið í heilsurækt- inni ættu að fara sér hægt. Fimm mínútna dvöl í gufunni í hvert: skipti fyrstu vikurnar er meira en nóg. Svo getur fólk lengt tímann örlítið eftir því sem það treystir sér tfl. í breska læknatímaritinu British Medical Jo- umal kemur reyndar fram að áhrif gufubaða hafa aldrei verið rannsök- uð. Hingað til hefur þótt eftirsóknar- vert að svitna þessi ósköp í gufunni og losa þannig líkamann við úr- gangssvita. í góðri trú hefur fólk líka stundað gufuböð tfl að slaka á eftir æfingar og þá til að losna við harð- sperrur. í breska læknatímaritinu er Wns vegar bent á að eftir erfiöar æfingar, þar sem fólk hefur jafnvel svitnað mikiö, séu gufuböð varasöm. Líkaminn hefur fengið næga áreynslu og svitnað nóg við æfing- amar og ætti fremur skflið heitt bað. Breskir læknar vilja að fólk vari sig á gufubaði og segja að mörgum henti betur að slaka á í heitu baði eða potti eftir líkamsæfingar. Áhrif gufubaða á heilsufar segja þeir ekki sönnuð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.