Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Blaðsíða 26
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988. Æstir aðdáendur Morrissey tæta í sig skyrtu hetjunnar á tónleikum frá 1986. Rank: Fyrsta hljómleikaplata The Smiths komin út Það er sjaldgæft á erlendum vin- sældallstum að hljómleikaplata með vinsælli hljómsveit nái jafnmiklu gengi og stúdíóplötur hljómsveitar- innar. Undantekningin, sem sannar regluna, átti sér stað í seinustu viku þegar fyrsta hljómleikaplata bresku poppsveitarinnar The Smiths fór beint í annað sæti breska breiðskífu- listans í fyrstu útgáfuviku. Ennþá furðulegra verður þetta þegar hugs- að er til þess að núna er liðið eitt ár frá því að The Smiths hætti störfum eftir að ágreiningur kom upp á milli Morrissey og gítarleikarans Johnny Marr. Þessi nýja hljómleikaplata sem ber heitið Rank inniheldur upptökur frá tónleikum The Smiths i Kilburn í Bretlandi síðla árs 1986. Þá stóð yfir hljómleikaferöin The Queen Is Dead um Bretland og allt var í upp- sveiflu hvaö vinsældir hljómsveitar- innar varðaði. Þegar litið er til baka eru margir þeirrar skoðunar að The Smiths hafi náð listrænu hámarki með útgáfu The Queen Is Dead og hefðu betur hætt leik þá hæst stóð frekar en að halda áfram storma- sömu sambandi og gefa út plötuna Strangeways Here We Come. Hún kom út á síðasta ári og átti að verða svanasöngur sveitarinnar. Sú plata hefur ekki staðist tímans tönn jafn- vel og fyrri verk The Smiths og ber þess glögglega merki að þreyta var komin í hstrænt samstarf Morrissey og Marr. Svo virðist þó sem breskir aðdáendur The Smiths hafi gert gott betur en aö halda tryggð við hljóm- sveitina þótt goðunum hafi fipast flugið í lokin. Næsta víst er að Rank mun seljast mun betur en Strange- ways enda engin furða þar sem hún sýnir ólíkt skemmtilegri og rokkaöri hlið á The Smiths þegar hljómsveitin var upp á sitt besta. Seinustu vikur hefur sá orörómur gengið manna á milli í Bretlandi að The Smiths muni taka saman aftur. Við vonum samt að svo verði ekki því að hljómsveitin yröi aldrei annað en svipur hjá sjón, enda ber Rank öll merki þess að reka naglann í kistu The Smiths á snyrti- legri hátt en það sem þeir voru að bauka við undir lokin. Til Tunglsins með Pere Ubu: % Tónleikar í aðsigi Laugardaginn 1. október kemur bandaríska rokksveitin Pere Ubu og heldur tónleika í Tunglinu við Lækj- argötu. Óhætt er að álykta að þessir tónleikar verði með eftirminnilegu sniði þar sem Pere Ubu hefur skipað sér á bekk rokksögunnar sem ein merkasta hljómsveit seinasta ára- tugar. Ekki er tónlist Pere Ubu ís- lendingum með öllu ókunn því hinn íturvaxni söngvari þeirra, David Thomas, hefur tvívegis heimsótt okkur og haldið óborganlega tón- leika, nú síðast í haust sem leið. Þar kom hann fram með eiginkonu sinni og gaf viðstöddum örhtla innsýn í skemmtilega brenglaða heimsmynd sem dró bros fram á varir fólks um leið og skynsemi hins daglega rök- heims var snyrtilega kollvarpað eina kvöldstund. Pere Ubu var stofnuð í Cleveland í Ohio í Bandaríkjunum áriö 1976. í fyrstu gaf hljómsveitin út nokkur smáskífulög á eigin vegum áður en fyrsta breiðskífa hljómsveit- arinnar var gefm út 1978. Platan, sem nefndist The Modem Dance, er í dag talin meðal bestu platna þessara ára í bandarísku nýrokki. Á henni sam- einaði Pere Ubu rokk við borgarblús á furðulegan pg oft á tíðum ruglings- legan hátt. Úr þessu varð óvenju frumleg og skemmtileg blanda þar sem fersk lífsgleði var höfð í fyrir- rúmi. Með kostulegri söngrödd sinni gaf David Thomas tónlistinni annar- legan blæ sem á köflum skyggði næstum á kröftugan og fágaöan hljóðfæraleik hinna meðlimanna. Á næstu fjórum árum sendi hljóm- sveitin frá sér einar sex plötur. Á þessu tímabili þróaðist tónlistin smám saman úr bílskúrsuppruna sveitarinnar yfir í það sem er nefnt Avant Garde rokktónlist. Árið 1982 hætti Pere Ubu samstarfinu þar sem hljómsveitarmeðlimir höfðu meiri áhuga á sjálfstæðum tónlistarferli. David Thomas hóf merkilegan sóló- feril sem hefur leitt til útgáfu á nokkrum stórskemmtilegum plöt- um. Þar sem flestir töldu Pere Ubu heyra sögunni til vakti það mikla athygli í popppressunni þegar fréttist í byrjun þessa árs aö Pere Ubu væri tekin til starfa á ný með nýtt efni í vinnslu. í maí kom svo út fyrsta plata hljómsveitarinnar í sex ár. The Tene- ment Year heitir hún og kom tónlist- argagnrýnendum þægilega á óvart. Reiknað hafði verið með því að Pere Ubu myndi aldrei senda frá sér plötu sem gæti jafnast á við eldri meistara- verk hljómsveitarinnar hvaö fersk- leika varðar. Sú varö ekki raunin því þessi plata er umdeilanlega meö því besta sem Pere Ubu hefur sent frá sér. Tónlistin á plötunni er einnig töluvert aðgengilegri en áður og kemur þaö síður en svo að sök. Hljómsveitin er í dag skipuð svo til sömu mönnunum og þegar hún var stofnuð. David Thomas sér um söng og lúðraþyt, Allen Ravenstine sér um hljómborð og saxófón, Tony Maim- one annast bassaleik og Scott Krauss sér um trommuleik. Nýju meölim- irnir eru svo þeir Jim Jones, sem sér um gítarleik, og Chris Cutler sem annast slagverk og ýmis önnur hljóð. Pere Ubu var á tónleikaferðalagi um Evrópu fyrir skömmu og má segja að ferðin hafi verið giftusamleg því að umfjöllun gagnrýnenda um tón- leika þeirra var öll á einn veg: Pere Ubu er ein besta hljómleikasveit þessa árs. Það ætti því að vera þess virði aö kynna sér málið þegar tón- listarveislan hefst í Tunglinu 1. okt- óber en auk Pere Ubu verða tveir fulltrúar innlendrar tónsköpunar. Þar eru á ferðinni hljómsveitirnar Ham og S.H. Draumur en sú síðar- nefnda bindur enda á margra ára feril þetta kvöld með kveðjutónleik- um. David Thomas, söngvari Pere Ubu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.