Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Blaðsíða 10
10
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988.
Breiðsíðan
Heimsbikarkeppni Stöðvar 2 í skák:
Sextán sterkustu skák-
menn heims keppa um
tæpar fimm milljónir
„Undirbúningur hefur staðið í allt
sumar, enda mikið í húfi,“ sagði Þor-
steinn Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri heimsbikarkeppni Stöðvar 2 í
skák, er hann var spurður um undir-
búning þessarar miklu keppni.
„Sextán sterkustu skákmenn heims
koma hingað til lands í lok mánaðar-
ins. Við ætlum að sjá til þess að þeir
eigi hér ánægjulega daga,“ sagði Þor-
steinn.
Einnig höfum við verið aö innrétta
Borgarleikhúsið nýja þar sem keppn-
in fer fram, smíða svið og palla. Þá
er verið að koma fyrir nýtískulegum
tölvuútbúnaði sem er eins og menn
sáu á skákmótinu í St. John þar sem
Jóhann Hjartarson vann Kortsnoj.
Teflt verður á sérstökum tölvuborð-
um sem eru með skynjunarfletum.
Taflmennirnir eru venjulegir gn þeg-
ar þeir eru færðir á borðinu birtist
leikurinn samstundis á stórum
tölvuskjá. Þar geta menn séð alla þá
hreyfingu sem verður á borðunum,"
sagði Þorsteinn.
Það er Stöð 2 sem kostar skákmótiö
en þaö er stærsta skákmót sem hald-
ið hefur verið hér á landi og væntan-
lega það dýrasta. „Þar sem mótiö er
mjög dýrt höfum við leitað eftir
styrkjum hjá ýmsum aðilum og erum
að vinna í því. Heildarverðmæti
vinninga eru eitt hundrað þúsund
dalir. Fyrsti vinningur er tuttugu
þúsund dalir, annar fimmtán þúsund
og síðan fara þeir lækkandi. Það er
ljóst aö hér er til mikils að vinna,
enda sterkir menn. Það verður t.d.
mjög skemmtilegt að sjá núverandi
heimsmeistara, Karpov, í leik,“ sagði
Þorsteinn.
Aðeins tveir íslendingar taka þátt
í mótinu, Jóhann Hjartarson, sem
hefur rétt til að leika þar sem hann
hefur náð nægilega mörgum ELO-
stigum, og Margeir Pétursson, sem
er sérstaklega boðinn af Stöð 2. Mar-
geir er bæði íslandsmeistari og Norð-
urlandameistari í skák. í tilefni móts-
ins koma hingað fiölmargir erlendir
gestir, bæði fréttamenn og aðrir. Þor-
steinn sagði að mjög margar fyrir-
spurnir heföu borist frá skákmönn-
um sem ekki keppa á mótinu en hann
sagðist ekki vita ennþá hveijir þeirra
koma.
„Það er ljóst að gestirnir verða fiöl-
margir og við höfum komið upp mjög
góðri aðstöðu fyrir þá í Borgarleik-
húsinu. Þar er hringtorg, þar sem
menn geta skoðað stöðuna og verið
í hringiðunni, og veitingabúð.“
Skákmótið veröur sett á Hótel ís-
landi að kvöldi 2. október og hefst
þann þriðja. Teflt verður alla daga
milli klukkan 17 og 23. Mófinu lýkur
26. októbefi Það ætti því að vera líf-
legt í Reykjavík í næsta mánuði.
-ELA
Þorsteinn Þorsteinsson skólastjóri og fyrrum forseti Skáksambands íslands
er framkvæmdastjóri skákmóts Stöðvar 2 og hefur í nógu að snúast þessa
dagana. Mótið hefst um mánaðamótin.
Þú ert 2000 krónum rí kari!
Þessir busar úr Ármúlaskóla voru á leið í Viðey fyrir fáum dögum þar sem haldin var hátíðleg busavígsla. Hún fór að öllu leyti vel fram og enginn
þurfti að kvarta yfir illri meðferð. Busarnir voru ánægðir með daginn og að öllum likindum minnast þeir hans með ánægju í stað reiði. Það er tilefni
til að verðlauna einn úr hópnum. Sá sem hefur fengið hring um höfuð sér á inni tvö þúsund krónur og má vitja peninganna hér á helgarblaði
DV, Þverholti 11. -ELA/ DV-mynd Brynjar Gauti
Ástarmálin hjá fræga fólkinu eru
fljót að taka breytingum. Við
höfðum ekki fyrr sagt frá ham-
ingjusömu hjónabandi þeirra
Janniku Björling og Björn Borg
en nýjar fréttir bárust af skiln-
aði. Nú er sambandi þeirra lokið
og Borg lætur sjá sig hvar sem
er með ítölsku poppsöngkonunni
Loredana. Þau viðurkenna að
loksins hafi þau fundið ástina og
ekkert geti í framtíöinni stíað
þeim í sundur. Já, þannig er nú
það...
Og að sjálfsögðu berast eimfig
sögur af Janniku sem nú sést æ
oftar með ungum herramanni,
Carl Johan Lindgren að nafni.
Sviinn sá er dökkur yfirlitum og
síðhærður. Annars heyrum viö
að Jannika hugsi sér nú að halda
áfram skólagöngu en hún hætti
námi eftir grunnskóla.
Heirasraeistarinn í hnefaleikum,
Mike Tyson, er heldur ekki við
eina fiölina felldur í kvennamál- .
um. Þó hann hafi kvænst leik-
konunni Robin fyrir rúmu hálfu
ári hefur hann ekki sagt skilið
við fyrrverandi vinkonu sína,
LaToya Jackson. Þau kynntust
fyrir tveimur árum og hafa alla
tíð síðan verið miklir vinir. Það
þolir Robin ekki ognú hefur hún
sett manni sínum úrslitakosti:
Annaöhvort hættir þú aö hitta
LaToya eða ég er farin. Þannig
gen'gur þaö nú fyrir sig í henni
Ameríku..,
Ein ríkasta kona heims, Christ-
ina Onassis, hefur verið í strangri
megrun undanfarið og mátti víst
við því. Hún hefur nú enn einu
sinni náð sér í elskhuga og má
vel vera aö það hafi verið ástæöa
megrunarinnar. Hins vegar taldi
eitt siúðurblaðiö, sem birti þessa
mynd hér að ofan, að aumingja
Christina hefði gleymt að setja
mallakútinn í megrun. Hvaö
finnst ykkur?