Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988. Sagnaþulur Jims Henson í Sjónvarpinu: Arftakar Prúðuleikaranna John Hurt, í hlutverki sögumannsins, á tali við hundinn sinn. Það er Brian Henson, sonur Jims Henson, sem stjórn- ar hundinum. Þrátt fyrir alla tæknina eiga gamalkunnar persónur ævintýranna sinn sama- stað i Sagnaþulinum. „ímyndið ykkur kalda nótt, dimma nótt - nótt eins og þessa.“ Þannig hóf kvikmyndaleikarinn John Hurt upp raust sína í fyrsta þættinum af nýjum flokki ævintýramynda sem hófst í Sjónvarpinu í gærkvöldi. Það er eng- inn annar en Jim Henson, konungur brúðumyndanna, sem á heiðurinn af gerð þáttanna og til hös við sig hefur hann fengið bæði frægar stjörnur og annálaða fagmenn. Endurnýjun vinsældanna Henson varð heimskunnur fyrir Prúöu leikarana sem sýndir voru hér í Sjónvarpinu um árabil og eru enn á skjánum í formi teiknimyndar. Síð- ari tilraunir Hensons með brúðuleik í sjónvarpi hafa ekki tekist jafnvel. Nýi þátturinn gengur þó þar næst og hefur hann notið vaxandi vin- sælda á Englandi og víðar í Evrópu. Þættirnir, sem hér eru kallaðir Sagnaþulurinn, eru líka byggðir á gömlum evrópskum þjóðsögum og ævintýrum. Hér er því leitað til upp- runans því þessar sögur hafa verið að mótast meðal alþýðu manna um aldir. Þættirnir eru ólíkir öllu því sem Henson hefur gert áður. Hann notar tæknina meira en áður og treystir meira á myndræna útfærslu efnis- ins. Hér er því um mjög nútímalega útfærslu á gömlu efni að ræða. Greinileg áhrif eru frá ævintýra- myndum síðustu ára enda eru tölvur óspart notaðar til að skapa dularfulla stemningu. Þótt Henson breyti nokkuð um stíl þá vantar dýr og furðuverur ekki í þessar myndir frekar en aðrar hjá honum. Hann lætur hund aðstoða sögumanninn eins og hann hefur raunar gert áður í brúðumyndum. Handrit eftir háskólakennara Höfundur handritanna að þáttun- um er háskólakennari að nafni Ant- hony Minghella. Hann kenndi til skamms tíma við háskólann í Hull á Englandi en sneri sér síðan að hand- ritsgerð fyrir sjónvarp. Árið 1984 var hann verðlaunaður sem efnilegasti handritshöfundurinn í heimalandi sínu. Hann hóf samvinnu sína við Hen- son með Sagnaþulinum. Fyrir hand- ritið að fyrsta þættinum hlaut hann Emmy-verðlaunin á síðasta ári. Hann skrifaði handritin að öllum þáttunum um Sagnaþulinn. Sögumaðurinn John Hurt er einn af eftirsóttustu kvikmyndaleikurum samtímans. Nægir þar að minna á leik hans í Fílamanninum. Hann hef- ur leikið í fjölmörgum kvikmyndum og leikritum en áður hefur hann ekki komið fram við hliðina á brúðum. í Sagnaþulinum hefur John Hurt hund sér við hlið. Það er Brian Hen- son, sonur Jims Henson, sem stjórn- ar hundinum. Hann lærði list sína hjá fóður sínum eins og vænta mátti. Hann hafði þó á unglingsárunum lít- inn áhuga á brúðuleik en vann af og til að gerð þáttanna um Prúöu leikar- ana. í þáttunum koma fyrir furðuverur sem minna á ýmsar skepnur í ævintýramyndum síðari ára. Brian Henson sló fyrst í gegn í myndinni The Return to Oz. „Eg kom í prufutökur sem brúðustjórnandi," var sjálfur Kermit sem er ein af fræg- ustu sjónvarpsstjörnum sem komið hafa fram og eru þá leikarar af holdi og blóði meðtaldir. Græn brúða úr kápucfni Jim Henson hefur sagt að áhugi hans á vinnu í sjónvarpi hafi vaknað um leið og foreldrar hans fengu sér sjónvarpstæki. Hann var þá enn í menntaskóla í heimaborg sinni Was- hington. Eitt sinn auglýsti sjón- varpsstöð þar eftir mönnum sem gætu stjórnað brúðum. Henson var ekki ókunnugur þeim leik. Hann brá við og bjó til brúðu úr grænni kápu sem móðir hans átti. Hann komst þegar að með brúðuna sína. Arið 1958 bjó hann til nokkra fimm mínútna þætti fyrir sjónvarp. Þessa þætti kallaði hann Sam og félagar og fyrir þá hlaut hann Emmy-verð- launin það ár. Eftir þetta kom hann fram í ýmsum skemmtiþáttum og þróaði stíl sinn. Hann tók þátt í að gera fræðsluþættina Sesame Street þar sem persónur, sem síðar komu fram í Prúðu leikurunum, birtust í fyrsta sinn. Stóra stundin rann þó ekki upp fyrr en árið 1976 þegar hann hóf framleiðslu á Prúðu leikurunum sem urðu með allra vinsælasta skemmti- efni sem nokkru sinni hefur komiö fram. Eftir að þættirnir höfðu gengið í þrjú ár var tahð að 235 milljónir manna fylgdust með þáttunum í hverri viku. Þeir voru þá fastur liður í sjónvarpi í meira en hundrað lönd- um. -GK segir Brian. „Sem betur fer sýndu þeir mér ekki handritið þannig að ég vissi ekki að brúðan sem ég átti að stjórna var í aðalhlutverkinu. Ef ég hefði vitað það þá hefði ég orðið of taugaóstyrkur til að valda brúð- unni." Nýjasta tækni við brúðustjórn Eftir þessa mynd hefur Brian unn- ið í fullu starfi sem brúðustjórnandi. Hann notar bæði hefðbundnar að- ferðir og einnig fiarstýringar til að stjórna brúðunum. Höfði hundsins í Sagnaþulinum stjórnar hann með hægri hendi en notar þá vinstri við fiarstýringar. Leikstjóri Sagnaþulsins er Steve Barron. Hann hóf feril sinn sem kvikmyndatökumaður. Fyrsta stóra verkið sem hann tókst á við var kvik- myndin A Bridge Too Far. Þetta er glæsilega tekin stórmynd sem reynd- ar var misheppnuð að öllu öðru leyti. Barron stjórnaði líka myndavélun- um þegar fyrstu Supermanmyndim- ar voru teknar upp. Hann hefur einnig unnið að mynd- bandagerð með Michael Jackson og norska tríóinu A-Ha. Þá er rómuð frammistaða hans við upptökur á myndbandinu Moriey For Nothing með Dire Straits. Hann hefur ekki áður unniö með Henson og aldrei kvikmyndaö brúður. Frægastur þeirra sem unnu að gerö Sagnaþulsins er aö sjálfsögðu Jim Henson. Hann hefur verið einn þekktasti brúðustjómandi heimsins allt frá því hann. bjó til einfalda græna handbrúðu í líki frosks. Þetta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.