Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Side 31
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988.
31
Tilraunir með tölvustýrðar talæfingar í Japan:
Heymarlausir geta
séð rétt mál
- á tölvuskjánum birtast myndir af hljóðum
Heyraarlaust fólk eöa mjög heyrn-
arskert, sem lært hefur að tala, ber
orðin oft óskýrt fram vegna þess að
það heyrir ekki hvar því mistekst.
Þetta kann að breytast á næstunni
því fundið hefur verið upp tölvufor-
rit sem breytir orðum í myndir.
Við þessar tölvustýrðu talæfingar
breytast töluð orð í myndir á tölvu-
skjánum. Á skjánum birtast einnig
upplýsingar um lengd hljóða, hæð
þeirra og rétta stöðu tungunnar.
Við notkun á tölvukerfinu eru
skynjarar festir við nef, kjálka og
háls þess sem talar. Skynjararnir
nema hljóðin og mæla titringinn sem
verður á talfærunum. Hljóðin birtast
á skjánum eins og þau eru sögð og
til samanburðar birtast upplýsingar
um réttan framburð.
Þannig geta þeir sem tala með að-
stoð tölvunnar, séð hvar þeim verður
á í messunni og æft sig í að ná réttum
hljóðum. Orðaforöi tölvunnar er
geymdur á venjulegum disklingi og
ætti að vera þýðanlegur á hvaða
tungumál sem er.
Myndirnar, sem birtast á skjánum,
eru einkum fyrir ólæs hörn. Þegar
Fundið hefur verið upp tölvuforrit sem breytir orðum i myndir.
þau nefna einhvem hiut birtist mynd
hans á skjánum. Þeir sem lengra eru
komnir geta nýtt sér upplýsingarnar
um hljóðfræðina.
Það er japanska rafeindafyrirtækið
Matsushita sem hefur þróað þetta
tölvuforrit í samvinnu við yfirvöld í
Japan. Þegar er farið aö nota þessa
tækni í Japan og ráðgert er að hefja
útflutning áður en langt um líður.
Molar
Sovétmenn
búa til
veirusíu
Sovéskum líffræðingum við
rannsóknarstofnunina í Dubna,
utan við Moskvu, hefur tekist að
búa til síu sem nær veirum betur
úr vökva en áður hefur veriö hægt.
Sian er búin til með því að skjóta
rafeindum á þynnu úr sérstöku af-
brigði af plasti. Við það koma
örsmá göt á þynnuna.
Síur af þessari gerð eru þegar
notaðar til að hreinsa vatn og einn-
ig bóluefni. Sovétmenn segja að
með þessari tækni megi búa til
bóluefni sem eru 10 til 20 sinnum
áhrifameiri en þau bóluefni sem
nú eru á markaönum.
Enn finnast merki um fengitima Vasasjónvörpin eru þegar ordin
vasasjónvörp
Rafeindafyrirtæki keppa nú hart
um sölu á vasasjónvörpum með
litaskjá. Hjá Sony er því haldið
fram að þeir hafi forystuna. Frá því
fyrirtæki kemur innan skamms á
markaðinn fullkomið vasasjón-
fyrir litrayndir.
Hjá Casio er því haldið fram aö
vasasjónvarp, sem það fyrirtæki
setti á markaðinn fyrir um tveimur
gefi nýja tækinu frá Sony
ekkert eftir. Tæknin við litaskjáinn
er sú sama en þaö er ekki fyrr en
Sony hefur frurasýnt sitt tæki að
hægt er að bera árangurinn saman.
Það era ekki bara dýrin sem
ganga í gegnum fengitíma því í lífi
mannanna eru enn merki um slíkt
tímabil, Líffræðingar segja að þessi
tími sé síðari hluta sumars og á
haustin.
Á forsögulegum tímum var fengi-
tími mannanna meira áberandi. Þá
skipti það miklu að böm fæddust
að vorinu til aö ná þroska yfir
sumarið. Lifslikur harna, sem
fæddust á öðrum tímum, vora
miklu minni.
Enn er þaö svo að flest börn fæð-
ast að vorinu en fæst að haustinu
og fyrri hluta vetrar. Þó hefur þeim
börnum íjölgaö á síðari árum sem
fæðast um mánaðamótin septemb-
er/október en þá eru niu mánuðir
liðnii- frá jólum.
meðai manna.
að veruleika.
Læknar hafa tO þessá talið að
fyrstu einkenni eyðni komi fram í
útbrotum á húð um leið og sjúkl-
ingamir taka að grennast óeðh-
lega. Nýjustu rannsóknir sýna að
þetta er ekki rétt því að það er
: hjar taö sem fy rst veröur fyrir barð-
inu á eyðniveirunni.
Þá hefur einnig komiö í Ijós að
eyðniveiran ræðst gegn taugakerf-
inu áöur en ytri einkenni koma í
Ijós. Þetta hefur leitt til þess aö
sumir læknar telja að menn, sem
hafa smitast af eyðni, séu ekki
hæfir til að aka bílum.
Þeir hafa mælt með að eyðniprófs
sé krafist við útgáfu ökuskírteinis.
Þessi nýja rannsókn á áhrifum
eyðninnar var gerð við háskólann
í Kaliforníu.
Vísindi
I verstu veðrum eru öldur nú 25% hærri en þær voru árið 1962.
Sjólag á Atlantshafi
versnar ár frá áii
Veörátta við austanvert Atlants-
haf, allt suður fyrir England, versnar
nú ár frá ári. Þetta er niðurstaða
enskra verðurfarssérfræðinga sem
fylgst hafa reglulega með ölduhæð á
þessu hafsvæði frá árinu 1962.
Á þessu tímabili hafa öldur náð því
að hækka um 25% í verstu veðrum.
Sérfræðingarnir segja að sjólagið
hafi versnað jafnt og þétt. Enn er þó
ekkert hægt að segja um hvort
ástandið á eftir aö versna á næstu
árum.
Orsök þessarar breytingar er
óþekkt. Fullyrt er að sömu aðferöir
hafi verið notaðar við mælingarnar
allar tímann þannig að talið er úti-
lokað að rekja megi breytinguna til
galla á rannsókninni. „Við vitum
hreint ekkert af hverju þetta stafar,"
er haft eftir einum af veðurfræðing-
unum.
Nákvæmustu mælingarnar eru frá
vitaskipinu Seven Stones sem liggur
undan Lands End á suðvesturodda
Englands. Mælingar þar koma heim
og saman við óreglulegri mælingar á
norðlægari slóðum. Mæhngar á
ölduhæð hófust fyrst fyrir alvöru eft-
ir síðari heimsstyrjöldina en voru
ekki gerðar reglulega fyrr en árið
1962.
Þessar. mælingar hafa sérstaka
þýðingu fyrir olíuvinnsluna í Norð-
ursjó þar sem nákvæm vitneskja um
ölduhæð er forsenda þess að hægt
sé að bora eftir olíu á sjó. Mælingarn-
ar koma einnig aö notum fyrir sjófar-
endur.
Jörðin gæti verið
ofurleiðandi segull
Fjölmargir eðhsfræðingar leggja
nú nótt við dag í leitinni að ofurleið-
andi efnum. Nokkur árangur hefur
þegar náðst með blöndu af keramik-
efnum en enn er langt í land að ofur-
leiðarar, sem ekki þurfa verulega
kælingu, hti dagsins ljós.
Þeir era líka til sem segja að ekk-
ert hafi áunnist enn þá því ofurleið-
arar séu ekki nýir heldur jafngamlir
jörðinni. Það era jarðfræðingar við
háskólann í Minnesota í Bandaríkj-
unum sem halda þessu fram. Þeir
segja að efni í iðrum jarðar geti verið
ofurleiðandi.
Hugmyndin er sú að vegna þrýst-
ing í möttli jarðar - mihi jarðskorp-
unnar og kjarnans - sé efni þar krist-
allað. Þetta efni er að öllum hkindum
eins að uppbyggingu og nýju ofur-
leiðararnir. Enginn hefur séð þetta
efni en ef ahar kenningar standast
gæti það verið ofurleiðandi.
Ofurleiðni í iörum jarðar gæti,
einnig breytt hugmyndum manna
um segulmagn jarðar. Segulmagnið
er venjulega rakið til járns í kjarna
jarðarinnar og er þá aldrei tekið með
í reikninginn að segulkraftarnir geti
borist um ofurleiðandi efni til yfir-
borðsins. Jörðin gæti þá verið ofur-
leiðandi segull, hkur þeim sem eðhs-
fræðingar gera tilraunir með í rann-
sóknarstofum.