Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Page 36
mi srasMím’ae; ,?s wroAasAOTiáa *52 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBÉR 1988. Knattspy ma unglinga DV . — - —,j,—.—^— —^ Hér eru Valsmenn að skora sigurmarkið í leik gegn Vikingi í keppni A-liða 6. flokks í riðlakeppni haustmóts KRR. Leiknum lauk með sigri Vals, 2-1. Það er Jón Brynjarsson, sóknarmaðurinn snjalli í Val, sem fylgir hér fast eftir markskoti. Markvörður Vikinga, Hilmar Hafsteinsson, fórnar höndum og getur lítið aðhafst. Annars átti Hilmar frábæran leik í markinu. Varnarmaðurinn knái í Víkingi, Finnur Bjarnason, reynir hvað hann getur til að bjarga eins og góðum varnarmanni sæmir og átti góða tilraun en allt kom fyrir ekki - inn fór boltinn. DV-mynd HH Næstu leikir í haustmótinu Laugardagur 17. sept. 3. fl. A-lið Þróttur-Fram kl. 10.00 á GGR-velli 3. fl. A-liö KR-Valur kl. 11.40 GGR-velli 3. fl. A-lið Leiknir-Fylkir kl. 16.00 GGR-velli 3. fl. B-lið Fram-KR kl. 17.40 GGR-velli 4. fl. A-lið 1. riðill Fram-Leiknir kl. 11.00 Framvelli 4. fl. A-lið 1. riðill Víkingur-KR kl. 11.00 Víkingsv. 4. fl. A-lið 2. riðill Fylkir-Þróttur kl. 11.00 Fylkisv. 4. fl. A-lið 2. riðill Valur-ÍR kl. 11.00 Valsv. Sunnudagur 18. sepL 2. fl. Víkingur-Þróttur kl. 16.00 á GGR-velli 3. fl: B-liö Valur-Fylkir kl. 11.00 GGR-velli 4. fl. B-Iið, 1. riðill Víkingur-Valur kl. 11.00 Vikingsv. 4. fl. B-liö, 2. riðill Fylkir-Fram kl. 11.00 Fylkisv. Mánudagur 19. sept. 2. fl. Fylkir—IR kl. 19.00 á GGR-velli 2. fl. Leiknir-KR kl. 21.00 á GGR-velli Þriöjudagur 20. sept. 2. fl. Fram-Valur kl. 19.00 á GGR-velli Laugardagur 24. sept. 4. fl., A-lið, úrslit Lið nr. 1 í R1 og R2 kl. 11.00 á GGR-velli 5. flokkur: Atli Þór Samúelsson í B-liði Þórs, Akureyri, er frábær markvörður Laugardaginn 3. sept. misritaðist nafn hins snjalla markvarðar B-liðs 5. fl. Þórs, Ak. Hann heitir Atli Þór Samúelsson. Bakvörðurinn, sem kemur honum til hjálpar, heitir Elv- ar Óskarsson. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Textinn var með mynd frá úrslitaleik Þórs og Stjörnunnar í íslandsmótinu. Stjarn- an vann samanlagt 5-2 en Þórsarar unnu leik B-liða, 2-1. -HH Fjórir efnilegir í knattspymuskóla KSÍ - unglingasíða DV brá sér austur að Laugarvatni á dögunum Gunnar Gunnarsson, IR: ,,Það er alveg stórkostlegt að kynnast öllum þessum góðu strákum. Þetta er allt öðruvísi en maður á að venjast. Þjálf- arinn er frábær og kennslan eftir því •^góð.“ Arnar Arnarsson, Fram: „Þessi tími í skólanum er búinn að vera okkur mjög lærdómsríkur. Maður fer að hugsa öðruvísi. Æfmgarnar eru einnig mun erfiðari en ég bjóst við en mjög skemmtilegar. Skólinn stuölar að bættri knattspyrnu; það held ég að sé alveg klárt.“ Benedikt Ketilsson, Breiðabliki: . „Þetta er búið að vera þrælskemmti- legur tími og andinn alveg frábær og þjálfunin einnig. Erindin, sem voru haldin hér um daginn, voru og mjög athyglisverð. Sérstaka athygh mina vakti umfjöllunin um næring- arfræðina og veit ég að flestir strá- kanna ætla að breyta þar um. Eg ætla í það minnsta að gera það.“ Kári Steinn Reynisson, ÍA: „Hér eru mun strangari æfmgar en maður hefur vanist og kann ég bara vel við það því það er alltaf gott að kynnast einhverju nýju í þeim efnum. Þessi tími í skólanum hefur verið mér mik- il skemmtun og maður lítur einhvem veginn öðrum augum á hlutina en áður.“ -HH Þessir fjórir leikmenn framtíðarinnar áttu ekki nógu sterk orð yfir veru sína í skólanum því svör þeirra vóru öll á sama veg: „Þetta er alveg stórkostlegt." Myndin er af drengjum úr 4. fl., verðandi drengjalandsliðsmönnum. Frá vinstri: Gunnar Gunnarsson, ÍR, Arnar Arnarsson, Fram, Benedikt Ketilsson, Breiðabliki, og Kári Steinn Reynis- son, ÍA. í stuttu máli höfðu þeir þetta að segja. Haustmót 3. flokks: „Vorum yfir í marktækifærum" - sagöi Sigurður Helgason, þjálfari KR Framarar báru enn einu sinni sig- urorð af KR, nú í leik hðanna í haust- móti KRR. Alls hafa liðin leikið fjóra leiki á leiktímanum og hafa Framar- ar sigrað í þeim öllum. KR-ingar börðust mjög vel í þessum leik og hefðu átt að uppskera mörk en það fór á annan veg. Þegar tækifæri buð- ust hafriaði boltinn utan rammans, nú eða að Friðrik Þorsteinsson í marki Fram varði af snilld. „Mínir menn voru yfir í marktækifærum en heppnin var okkur ekki hliðholl að þessu sinni,“ sagði Sigurður Helga- son, hinn litríki þjálfari KR-inga, eft- ir leikinn. KR-ingar fengu sín tækifæri í leiknum en það verður að nýta þau. Það hefur einmitt einkennt leik KR- inga í sumar að þeir hafa náð mjög vel saman úti á velli en þegar reka hefur átt endahnútinn á sóknirnar hefur allt farið úrskeiðis. KR-liðið er skipað góðum einstakhngum og hefði sómt sér vel í úrslitakeppni íslands- mótsins. En það verður að skora mörk til að ná slíku takmarki. Framarar tefla fram góðum 3. fl. í ár og hefur frammistaða þeirra verið frábær á leikárinu. í fyrrnefndum leik skoraði hinn marksækni Ríkarð- ur Daðason fyrsta mark Framara með illverjandi skalla. Seinna mark Fram gerði Þorsteinn Bender sem stýrði boltanum í netið eftir fyrirgjöf frá Ríkarði. Bæði mörkin voru gerð í fyrri hálfleik. Leikur liðanna var fjörugur og skemmthegur og hefði örugglega færst líf í tuskurnar hefði KR-ingum tekist að minnka muninn í upphafi síðari hálfleiks. -HH Umsjón: Halldór Halldórsson Stuðlum að aukinni kennslu í yngri flokkum Sú spurning hvarflar oft að manni hvort kröfur um sigur séu of hávær- ar, bæði hjá þjálfurum og öðrum leið- beinendum unglingaflokka. Auðvit- að mæta lið til leiks til að ná sem bestum árangri og þá er náttúrlega lokatakmarkið að sigra. Það eru margar leiðir færar til þess að fá'leik- menn til að gera sitt besta. Slíkar kröfur sínkt og heilagt trufla mjög þann veigamikla þátt sem kennsla í knatttspyrnu er. Það er nefnilega svo að með aukinni kennslu er stuðlað mest og best að auknum sigurlíkum. Fari hinir ungu leikmenn th leiks með því hugarfari að reyna að útfæra leikinn eftir þeim skUningi sem þeir leggja 1 hann og þá 1 gegnum kennslu sem þeir hafa fengið hjá sínum þjálfara eru hlut- irnir svo sannarlega í lagi. Auðvitað verður ákveðin barátta að vera fyrir hendi. Eitt er þó víst: óþarft er að hvetja unga leikmenn í þeim efnum um of því baráttugleðin er þeim oftast meðfædd. Það hlýtur að vera betri leið að fylla unglinginn því sjálfstrausti, sem hverjum er nauðsynlegt, gegn- um kunnáttu og þekkingu á við- fangsefninu og að leikmenn viti hvernig bregðast skal við í hinum ýmsu stöðum sem upp kunna að koma. Slík vinnubrögð stuðla beint og óbeint að sigri og sem mest er um vert, auka þroska leikmannsins. Auðvitað er alltaf hægt að tapa orr- ustum. En slík kennsla skilar bestum árangri þegar tillengri tíma er litið. Hin aðferðin, að hafa einungis bar- áttuna að léiðarljósi, getur lukkast af og tU. En hvað ef hún bregst síð- an? Þá gerir hinn ungi leikmaður sér grein fyrir því að kunnáttan hafði að mestu byggst á baráttu. Að vera unglingaþjálfari er mikið ábyrgðarhlutverk því að hann er að gefa leikmönnum framtíðarinnar grunntóninn. Sá tónn skiptir afar miklu máli í þessu öllu saman. -HH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.