Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Page 57
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988.
73
A&næli
Þórey Einarsdóttir
Þórey Einarsdóttir, frá Skógamesi
á Litla-Árskógssandi, er hundrað
ára á morgun, sunnudag.
Þórey fæddist í Stóra-Gerði í Hörg-
árdal, dóttir hjónanna Einars Jóns-
sonar og Rósu Loftsdóttur. Hún ólst
upp á Hömrum við Akureyri en bjó
einnig hjá frændfólki sínu í Löngu-
hlíð í Hörgárdal. Þórey átti sjö
systkini, þar af tvö hálfsyst-
kini.
Þórey er tvígift. Fyrri maður
/
hennar var Snorri Halldórsson, f.
18. október 1889 d. 15. júlí 1943, lækn-
ir á Breióabólsstað á Síðu. Þeirra
synir eru Snorri Páll, f. 22. maí 1919,
hjartalæknir á Landspítalanum,
kvæntur Karolínu Vogfjörð og eiga
þau tvö börn; Halldór, f. 9.
apríl 1923, bílasali, kvæntur Krist-
ínu Magnús Guðbjömsdóttur.
Halldór á þrjú börn. Þórey og Snorri
skildu.
Þórey bjó um tíma hjá Jóni bróður
sínum í Kálfsskinni á Árskógs-
strönd en giftist svo seinni manni
sínum, Jóni Kristjánssyni, útgerð-
armanni frá Hellu á Árskógsströnd.
Þau hjónin bjuggu í Litla-Árskógi
fyrst en fluttu svo og áttu lengst af
heima á Skógarnesi á Litla-
Árskógssandi. Börn Jóns og Þóreyj-
ar eru tvíburasysturnar Svanhvít
og Sóley, f. 22. júní 1931, og Rósa
Guðrún, f. 4. maí 1933. Svanhvít er
starfsmaður Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri og á einn son. Sóley
er gift Hilmari Magnússyni offset-
prentara og eiga þau 7 börn. Rósa
Guðrún er gift Halldóri Brynjari
Ragnarssyni húsasmið og eiga þau
7 börn.
Barnabörn Þóreyjar eru 20 og
barnabarnabörn 23.
Undanfarin ár hefur Þórey dvalið
hjá dóttur sinni, Rósu Guðrúnu, og
Halldóri, eiginmanni hennar, á
Hjalteyri.
Þórey Einarsdóttir
Bára Helgadóttir
Bára Helgadóttir, Hlíðarvegi 14,
Ytri-Njarðvík, er íimmtug í dag,
laugardag.
Bára er fædd í Vík í Mýrdal og
ólst þar upp til 15 ára aldurs. Hún
flutti þá í Ytri-Njarðvík með foreld-
rum sínum, Helga Helgasyni, f. 29
júní d. 6. okt. 1985, smið og Jóhönnu
Halldórsdóttur, f. 24. ágúst 1909 d.
15. feb. 1969.
Bára vann í fimm ár á Sjúkrahúsi
Keflavíkur og síðastliðin sjö ár á
Keflavíkurflugvelli. Jafnframt hef-
ur Bára starfað hjá Veisluþjón-
ustunni í Keflavík í 10 ár.
Bára er virk í félagsmálastarfi.
Hún gekk í Kvenfélagið í Njarðvík
15 ára gömul og sat í stjórn þess í
nokkur ár. Hún er einn stofnenda
Styrktarfélags aldraðra og hefur
verið í stjóm félagsins í mörg ár.
Þá hefur Bára starfað í deild Rauða
krossins á Suðurnesjum, meðal
annars að öldrunarmálum, og verið
í stjórn deildarinnar.
Börn Báru eru Jóhanna Guörún,
f. 2. ágúst 1956; Helgi Guðjón, f. 4.
október 1958; Árni, f. 20. desember
1962; Áslaugur Stefán, f. 5. mars
1964; Arnar, f. 11. september 1965;
Guðlaug, f. 25. febrúar 1968. Bára á
sjö barnaböm og það áttunda er á
leiðinni.
Báraásexbræður.
Á afmælisdaginn verður Bára að
heiman.
Bára Helgadóttir
Wilhelm Jónsson Solheim
Wilhelm Jónsson Solheim er sjötíu
og fimm ára á morgun, sunnudag.
Wilhelm er fæddur og uppalinn á
ísafirði, sonur Jóns Halldórs Jó-
hannessonar frá Arnardal og Híran-
íu Guðrúnar Sæmundsdóttur. Þau
eru bæði látin en bæði systkini Wil-
helms eru á lífi.
Wilhelm vann í fiskvinnu á
ísafirði og einnig í niðursuðuverk-
smiðju Böövars Sveinbjarnarsonar.
Wilhelm ferðaðist mikið þegar hann
var ungur. Hann fór á skátamót í
Ungverjalandi árið 1933 og ári síöar
heimsótti hann Sovétríkin.
Wilhelm kvæntist Margréti Júl-
íusdóttur frá Bíldudal en hún lést
tveim árum eftir að þau giftu sig.
Wilhelm bjó um skeiö í Reykjavík
og kvæntist Laufeyju Einarsdóttur
enhúnerlátin.
Wilhelm flutti til Noregs árið 1964
og bjó þar í 24 ár. Hann starfaði í
járnsmiðju og við marmarasteypu
og fékk norskan ríkisborgararétt
árið 1972. Árið 1984 kom Wilhelm
heim aftur og hefur sótt um íslensk-
an ríkisborgararétt. Hann bjó um
tveggja ára skeið í Einholti lOc á
Akureyri en býr núna á dvalar-
heimili aldraðra í Skjaldarvík.
Wilhelm á tvo syni: Grétar, f. 15.
júní 1943, er verkstjóri hjá Eimskip,
kvæntur og á þrjá syni; Gunnar, f.
26. nóvember 1948, er kvæntur og á
tvö börn.
Ólafur
Ólafur Þ. Hallgrímsson, prestur á
Mælifelli, er fimmtugur í dag. Ólaf-
ur Þór er fæddur á Arnheiðarstöð-
um í Fljótsdal og var kennari í
Fljótsdalsskólahverfi 1956-1958.
Hann lauk kennaraprófi 1962 og var
kennari í Barnaskóla Garðahrepps
1963- 1964, Reykdælaskólahverfi
1964- 1966 og Hallormsstað 1966-
1975. Ólafur lauk guðfræðiprófi frá
HÍ1981 og var prestur í Bólstaðar-
hlíðarprestakalli 1981-1983 og á
Mælifelli frá 1983. Hann var í stjórn
Bindindisfélags KÍ1960-1961, Sam-
bands bindindisfélaga í skólum
1960-1962 og SUS1962-1964. Ólafur
kvæntist 29. júlí 1962, Þórhildi Sig-
urðardóttur, f. 27. apríl 1944. foreldr-
ar hennar eru Siguröur Guttorms-
son, b. á Hallormsstað, og kona
hans, Arnþrúður Gunnlaugsdóttir.
Skildu 1974. Börn Ólafs og Þórhildar
eru Sigurður Örn, f. 30. mars 1961,
(kjörsonur hans), Páll, f. 1. júní 1964,
Laufey, f. 7. mars 1966 og Egill, f. 21.
apríl 1967. Ólafur kvæntist 28. okt-
óber 1984 Steinunni Ólafsdóttur, f.
27. maí 1944, uppeldisfræðingi. For-
eldrar hennar eru Ólafur Einarsson,
verslunarmaður í Rvík, og kona
hans Guörún Júlíusdóttir. Börn Ól-
afs og Steinunnar eru Guðfinna, f.
31. janúar 1982 og Gunnhildur, f. 19.
júlí 1984. Bræður Ólafs eru Helgi, f.
11. júní 1935, náttúrufræðingur,
Agnar, f. 20. júní 1940, íslenskufræö-
ingur, Guðrún Margrét, f. 27. maí
1948, húsmóðir á Akureyri, og Guö-
steinn, f. 7. mars 1945, b. á Teigabóli.
Foreldrar Ólafs eru Hallgrímur
Helgason, f. 29. ágúst 1909, b. á Drop-
Þ. Hallgnmsson
laugarstöðum í Fljótsdal, og kona
hans, Laufey Ólafsdóttir, f. 31. maí
1912. Hallgrímur er sonur Helga, b.
á Refsmýri í Fellum, Hallgrímsson-
ar, b. á Birnufelli, bróðir Gísla, fóö-
ur Benedikts frá Hofteigi og Sigurð-
ar, prests á Söndum, fóður Jóns tón-
listarmanns. Hallgrímur var sonur
Helga, b. á Geirúlfsstöðum, bróður
Guðrúnar, ömmu Gunnars Gunn-
arssonar rithöfundar. Helgi var son-
ur Hallgríms, skálds á Stóra-Sand-
felli, Ásmundssonar, bróður Ind-
riða, afa skáldanna Jóns og Páls
Ólafssona. Móðir Hallgríms á
Birnufelli var Margrét Sigurðar-
dóttir, b. á Mýrum í Skriðdal, Ei-
ríkssonar, af Njarðvíkurættinni, og
konu hans, Ólafar Sigurðardóttur,
af Pamfílsættinni. Móðir Hallgríms
á Droplaugarstöðum var Agnes
Pálsdóttir, b. á Fossi á Síðu, Þor-
steinssonar. Móöir Páls var Agnes
Sveinsdóttir, b. á Fossi á Síðu, Stein-
grímssonar og konu hans, Ragn-
hildar Oddsdóttur, systur Guðríðar,
langömmu Jóhannesar Kjarvals.
Móðir Agnesar var Margrét Ólafs-
dóttir, systir Þuríðar, langömmu
Odds Björnssonar leikritahöfundar.
Laufey er dóttir Ólafs, b. í Hólti í
Fellahreppi, Jónssonar, b. á
Skeggjastööum, Ólafssonar, af
Melaættinni. Móðir Ólafs var Berg-
ljót Sigurðardóttir, b. í Geitagerði,
Pálssonar og konu hans, Þorbjargar
Jónsdóttur, vefara á Skjöldólfsstöð-
um, Þorsteinssonar, ættfoður Vef-
araættarinnar. Móðir Laufeyjar var
Guðlaug, systir Halldóru,
langömmu Hrafns Gunnlaugssonar.
Ólafur Þ. Hallgrimsson
Guðlaug var dóttir Sigurðar, b. í
Kolsstaðagerði, Guttormssonar,
stúdents á Arnheiðarstöðum, Vig-
fússonar, prests á Valþjófsstað,
Ormssonar, langafa Ingunnar, móð-
ur Þorsteins Gíslasonar skálds. Vig-
fús var einnig langafi Vigfúsar,
langafa Hjörleifs Guttormssonar.
Móðir Sigurðar var Halldóra Jóns-
dóttir vefari, systir Þorbjargar.
Móðir Guölaugar var Guðríður Ei-
ríksdóttir, b. á Hafursá, Arasonar
og konu hans, Þóru Árnadóttur, b.
á Kappeyri, Stefánssonar, b. í Sand-
felli, Magnússonar, ættfóður Sand-
fellsættarinnar. Móðir Árna var
Guðrún Erlendsdóttir, b. á Ásunn-
arstöðum Bjarnasonar, ættfóður
Ásunnarstaðaættarinnar.
Ólafur verður heima á afmælis-
daginn.
Til hamingju með daginn
85 ára Magnea Garðarsdóttir, Skaröshlíð 23C, Akureyri. Jakob Valdimarsson,
Guðlaug Stefánsdóttir, Skipasundi 43, Reykjavík. Löngufit 18, Garðabæ. Haukur Haraldsson, Reykjaheiðarvegi 4, Húsavík.
80 ára Lára Vilhelmsdóttir, Ægisgötu 4, Ólafsfirði. Eiríkur Runólfsson, Eyrargötu 5, Eyrarbakka.
Sigurjens Halldórsson, Svínaskógi, Fellsstrandarhreppi.
75 ára 50 ára
Baldur Óli Jónsson, Hafnarbraut 8, Neskaupstað. Anna Sigurbjörnsdóttir, Heiðarbraut 1, Blönduósi. Þuríður Sigurjónsdóttir, Miðvangi 14, Hafnarfirði. Magnús Jónsson, Suðurgötu 12, Keflavík. Ólína Daníelsdóttir, Engihlíð 14, Reykjavík. Guðrún Ólína Valdimarsdóttir, Hafnarstræti 17, Akureyri. Sigríður Adda Ingvarsdóttir, Brekkubraut 28, Akranesi. 40 ára Sigurður Þórarinsson, Ystaseli 9, Reykjavík.
70 ára Trausti Gunnarsson, Glaðheimum 4, Reykjavík. Björgvin Halldórsson, Suðurgarði 5, Keflavík.. Sigrún ívarsdóttir, Kárastíg 8, Hofsósi. Kristján Páll Þórhallsson, Seiðakvísl 11, Reykjavík. Magnús F. Óskarsson, Ferjubakka 10, Reykjavík. Jóhann Þ. Bjarnason, Bergstaðastræti 45, Reykjavík.
Þórhildur Þórarinsdóttir, Engihjalla 3, Kópavogi. Steingerður Kristjánsdóttir, Sólvangi, Grýtubakkahreppi. Svala Sigurðardóttir, Nýlendu I, Miðneshreppi.
60 ára
Olga Jóna Pétursdóttir, Rekagranda 4, Reykjavík. Manfreð Jóhannesson, Hverfisgötu 32D, Reykjavík.
Til hamingju með
morgundaginn
85 ára
Tryggvi Jóhannesson,
Fremri-Fitjum, Fremri-Torfu-
staðahreppi.
Hólmfríður Stefánsdóttir,
Norðurgötu 42, Akureyri,
80 ára
Axel Vatnsdal Pálsson,
Lundeyri, Akureyri.
ÞorkeÚ J. Sigurðsson,
Fellsmúla 11, Reykjavík.
75 ára
Theodór Jóhannesson,
Suöurlandsbraut, Klapparholti I,
Reykjavík.
70 ára
Oddný Þorvaldsdóttir,
Skólavegi 33, Búöahreppi.
Stefanía J. Ingimarsdóttir,
Ási, Presthólahreppi.
60 ára
Hallvarður Kristjánsson,
Þingvöllum, Helgafellssveit.
Kristin Jóhannesdóttir,
HjaUavegi 64, Reykjavík.
50 ára
Rósa Stefánsdóttir,
Reykjum II, Lýtingsstaðahreppi.
Hrafnhildm' Ágústsdóttir,
Hólabergi 4, Reykjavík.
Gestur Sigurgeirsson,
Unufelli 50, Reykjavík.
40 ára
Guðlaug N. Ólafsdóttir,
Lindarflöt 36, Garöabæ.
Anna Birna Ragnarsdóttir,
Austurbergi 36, Reykjavík.
Eyjólfur Sveinsson,
Fomósi 14, Sauðárkróki.
Jón Bergsson,
Víðigrund 61, Kópavogi.
Jónas Guðmundsson,
Hjallabraut 41, Hafnarfirði.
Jóhannes S. Ólafsson,
Bjarkargrund 8, Akranesi.
Birgir Finnbogason,
Noröurvangi 14, Hafnarfiröi.
Arnþrúður Bergsdóttir,
Vikurgötu 1, Stykkishólmi.
Þóra Björg Þorsteinsdóttir,
Ystamói, Haganeshreppi.