Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1988, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988.
Heimsbikarmótið í skák
Heimsbikarmótinu lokið:
Spasskyvann sína fyrstu skák
- og Kasparov varð einn efstur
Vegna taugaspénnunnar hlítir
lokaumferð skákmóra jafnan öðr-
um lögmálum en annars ráða.
Sautjánda og síðasta umferð
heimsbikarmótsins í Borgarleik-
húsinu í gær var þar engin undan-
tekning. Boris Spassky, sem
vermdi neðsta sæti fyrir umferð-
ina, gerði sér lítiö fyrir og vann
efsta mann, Alexander Beljavsky.
Er heimsmeistarinn Garrí Kasp-
arov, sem var jafn Beljavsky, sá
hvaö verða vildi, var hann fljótur
aö bjóða Júgóslavanum Nikolic
jafntefli. Þar með hlaut Kasparov
sigurlaunin óskipt.
Áhorfendur, sem voru um 1300
talsins, urðu fyrir miklum von-
brigðum er skákgarparnir yfirgáfu
sviðið hver á fætur öðrum með
jafntefli á samviskunni. Tal, sem
mun eiga við vanheilsu að stríða,
gerði 'örstutt jafntefli við Ehlvest.
Landarnir Sokolov og Jusupov
fóru að ráðum þeirra; einnig Port-
isch og Speelman og Jóhann gaf
drauminn um þriðja sætiö upp á
bátinn er hann bauð Svíanum And-
ersson jafntefli eftir 10 leiki. Það
var mikið áfall fyrir áhorfendur en
þeir áttu þó eftir að fá dágóða
skemmtan fyrir snúð sinn.
Sax vann Kortsnoj eftir tímahrak
þess síðarnefnda. Ribli tókst að
nudda skákina af Margeiri - fyrsti
sigur Ungverjans á mótinu. Hins
vegar slapp Timman með skrekk-
inn gegn Nunn sem tókst ekki að
vinna riddaraendatafl með peði
meira. Þessar skákir hurfu þó aö
mestu í skuggann vegna baráttu
efstu manna.
Jóhann í 4.-5. sæti
Kasparov haföi hvítt gegn Nikolic
og tefldi til vinnings. Er hann seild-
ist eftir „eitraða peðinu“ þótti hann
hafa mun betri færi en Nikolic gaf
ekkert eftir. Tefldi vel og þar kom
taflinu að Kasparov varð að velja
milli þess að gefa mótherjanum
þráskák, eða taka talsverða
áhættu.
Svo virtist sem heimsmeistarinn
sýndi á þessu augnabliki skák
Spasskys og Beljavskys meiri
áhuga en sinni eigin. Er hann hafði
fullvissað sig um að Spassky hefði
Skák
Jón L. Árnason
leikið vinningsleik, fannst honum
óhætt að bjóða Nikolic jafntefli.
Beljavsky varð að lokum að sætta
sig við ósigur og 2. sætið, með 10,5
vinninga. Kasparov varð einn efst-
ur meö 11 vinninga,- í þriðja sæti
varð Mikhail Tal, sem hlaut 10 v.
og Jóhann Hjartarson og Ehlvest
urðu í 4.-5. sæti með 9,5 v. Síðan
Jusupov, Sax og Timman með 9,
Speelman, Andersson og Nunn
með 8,5 v„ Sokoiov og Nikolic með
8 v„ Ribli með 7,5 v., Portisch og
Spassky meö 7 v„ Kortsnoj með 6,5
v. og Margeir rak lestina með 6 v.
„Gamla fallbyssan“
Af svip Spasskys eftir skákina
mátti ekki dæma hvort hann hefði
unnið eða tapað. Hann lét sér fátt
um finnast er honum var óskað til
hamingju með glæsilega skák.
„Þetta var gamlafallbyssan," sagði
hann mæðulega.
Beljavsky átti e.t.v. ekki skihð að
missa af efsta-sætinu eftir hetjulega
baráttu á mótinu. Á hinn bóginn
þótti vel við hæfi að falleg fléttu-
skák Spasskys ræki smiðshöggið á
sérlega skemmtilegt og vel heppn-
að mót, sem var skipuleggjendum
þess ög framkvæmdastjórn til mik-
ils sóma.
Hvítt: Boris Spassky
Svart: Alexander Bejavsky
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4
Rf6 5. Rc3
Eftirlætisafbrigði Spassky, sem
hann tefldi gegn Nikolic fyrr í mót-
inu.
5. - b5 6. Bb3 Be7 7. d3 d6 8. Rd5 Rxd5
Eftir 8. - 0-0 9. Rxe7 + Rxe7 10.
Bg5 Rg6 11. h4!? kæmi sama staða
fram og í skák Spasskys við Ni-
kolic.
9. Bxd5 Bd7 10. c3 0-0 11. d4 De8 12.
04) Hd8 13. dxe5 dxe5 14. De2 Bd6
15. Rh4 Re7 16. Bb3 c5 17. Be3 c4 18.
Bc2 Bc8?
Upphafið að ógæfu svarts. Eðli-
legra er 18. - Be6, eða 18. - Bc6 -
nú lenda svörtu mennimir í
klemmu.
19. Bb6! Hd7 20. Hfdl g6 21. b3 cxb3
22. Bxb3
Spassky hefur tekist að blása lífi
í hvítreita biskupinn á nýjan leik.
Hann á eftir að leika stórt hlut-
verk. Nú hótar hvítur 23. a4 og
opna línur sér í hag á drottningar-
væng.
22. - Ba3 23. De3 Hxdl+ 24. Hxdl
Rc6?
8 A 7 111 fXé Á Í
6 1 Á
5 Jk A
4 A &
2 A 1 A A A H '&
25. Rxg6!!
Eins og þruma úr heiöskíru lofti.
Eftir 25. Dh6 Kh8! nær svartur að
verjast.
25. - hxg6 26. Dh6 Re7?
Taugar Beljavskys bresta. Hótun
hvíts var 27. Dxg6+ o.s.frv. Skásta
vörnin er 26. - Be6 27. Hd3 (með
erfiðum hótunum) og nú 27. - Bcl
28. Dxcl Bxb3 29. axb3 De6 og reyna
að þrauka með peði minna.
27. Bc7!
Nú er engin leið aö valda peðið á
e5 sem er dýrmætt peð, því að kom-
ist biskupinn á reitinn blasir óveij-
andi mát á g7 eða h8 viö.
27. - Rf5 28. exf5
Einfaldara en 28. Dxg6+ Rg7 29.
Hd8, sem ætti þó einnig aö leiða til
vinnings.
28. - Bxf5 29. g4! Be4
Staðan er töpuð. Svarið við 29. -
Bxg4 yrði 30. Dxg6+ Kh8 31. Dh6+
Kg8 32. Dg5+ og vinnur.
30. Hel Bcl
Biskupinn á e4 var annars dauð-
ans matur, því að 30. - Bd3 (eða 30.
-Dc6)31.Bxe51eiðirbeinttiltaps.'
31. Dxcl Dc6 32. De3 Bhl 33. Dh3
Dxc7 34. Kxhl He8 35. Dh6 Dc6+ 36.
Kgl DfB 37. Hdl Dc6 38. Hd3 De4 39.
Hh3 Del+ 40. Kg2 De4+ 41. Kg3
Og Beljavsky varð að sættast á
2. sætið með því að gefast upp.
-JLÁ
Nafií 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 II 12 13 14 15 16 17 18 Alls Röð S-B
1 (iarrv Kasnarov M '/2 Vi 1 1 Vi 1 1 '/2 '/2 1 0 '/2 '/2 '/2 Vi 1 '/2 11 I 93.00
2 Alcxandcr Bcliavskv Vi a 1 Vi 1 0 '/2 «4 1 Vi '/2 Vi 1 '/2 1 0 Vi 1 10'/2 2 87,75
3 Mikhail Tal Vi 0 t '/2 '/2 Vi '/2 1 '/2 1 '/2 '/2 Vi 1 1 Vi '/2 Vi 10 3 82.25
4 .lóhann Hiarlarson 0 '/2 Vi c Vi '/2 '/2 1 '/2 Vi Vl 0 1 Vi 0 1 1 1 9'/2 4-5 77,00
5 Jaan Ehlvcsl 0 0 '/2 Vi h '/2 0 1 '/2 1 '/2 '/2 1 Vi Vi 1 Vi 1 9>/2 4-5 75,75
6 Ariur Júsúnov Vi 1 ‘/2 Vi '/2 M '/2 '/2 '/2 '/2 '/2 '/2 I) Vi '/2 1 '/2 Vi 9 6-8 76.75
7 (ivula Sax 0 Vi '/2 Vi 1 '/2 a Vi 1/, Vi Vl 1 '/2 Vi 0 '/2 1 ‘/2 9 6-8 75,00
8 Jan Timman 0 '/2 (1 0 0 '/2 Vi k '/2 ‘/2 1 1 1 Vi Vi Vi 1 I 9 6-8 70.50
9 John Nunn Vi 0 '/2 Vi '/2 '/2 Vi Vi e Vi Vi '/2 Vi. Vi l ‘/2 1 0 8'/2 9-11 70,75
10 Jonathan Sncelman Vi '/2 0 Vi 0 '/2 '/2 Vi Vi r Vi Vl '/2 1 '/2 Vi I Vi 8'/2 9-11 69.50
II Ull Andcrsson (1 ‘/2 '/2 ‘/2 '/2 Vl '/2 0 Vi '/2 1 '/2 '/i '/2 Vi Vi 1 HVi 9-11 69,25
12 Andrci Sokolov 1 '/2 '/2 1 Vi Vl 0 0 Vi '/2 0 f 0 '/2 '/2 Vi '/2 1 8 12-13 68.50
13 Prcdrau Nikolic '/2 0 Vl 0 0 1 '/2 0 '/2 '/2 '/2 1 r '/2 Vi Vi 1 '/2 8 12-13 65.00
14 Zóllan Ribli Vi Vi 0 Vi ‘/2 Vi Vi Vi ‘/2 0 Vi Vi Vi á Vi Vi 0 1 IVi 14 63.25
15 Laios Porlisch '/2 0 0 1 '/2 '/2 I Vi 0 % ‘/2 Vi '/2 '/2 Vi 0 0 7 15-16 61.50
16 Boris Snasskv Vi 1 '/2 0 0 0 Vi '/2 Vi '/2 '/2 Vi ‘/2 Vi Vi V '/2 0 7 15-16 61.25
17 Viklor Korlsnoj 0 '/2 Vi 0 Vi '/2 0 (1 0 0 '/2 Vi 0 I I '/2 K 1 (,Vi . 17 51,75
18 Marucir Pctursson Vi 0 Vi 0 0 '/2 '/2 0 1 '/2 0 0 '/2 0 1 1 0 s 6 18 50,25
Margeir Pétursson:
Þetta var harður skóli
Jóhann Hjartarson:
„Eg ákvað það í upphafi að tefla
frekar hvasst og draga þannig góðan
lærdóm af þessu móti,“ sagði Mar-
geir Pétursson en hann hafnaöi í
neðsta sæti heimsbikarmótsins þrátt
fyrir að mörgu leyti góða frammi-
stöðu. Margeir sagði að mótið hefði
verið nyög harður skóli en hann
sagðist hafa lært geysilega mikið af
þátttöku sinni og það hefði verið
mikill fengur að fá að reyna þetta.
Hann sagðist hafa orðið bjartsýnn í
upphafi mótsins eftir að honum tókst
að vinna Portisch og hann hefði
kannski fariö fullgeyst eftir það.
„Maöur er geysilega þreyttur núna
en ég á nú von á því að skáklöngun-
in verði komin aftur þegar kemur
að ólympíumótinu." Þrátt fyrir aö
Margeir hafi fengiö 6 vinninga í mót-
inu lækkar hann um 5 ELO-stig og
reiknast nú vera með 2525 stig.
-SMJ
„Fullnægjandi árangur“
Garry Kasparov:
„Eger ekki með
skákleiða"
„Auðvitað er ég ánægður með
sigurinn en hins vegar er ég ekki
ánægður með taflmennskuna. Ég
var ekki fmínu besta formi og tefldi
varla eins og heimsmeistara sæm-
ir,“ sagði Garry Kasparov, heims-
meistari í skák, en þrátt fyrir sigur-
inn f mótinu þá var hann ekki
ánægöur með frammistöðu sína.
Hann var ekki ánægður meö stöð-
una í skák sinni og Nikolic en hým-
aði mikið þegar hann sá að Bejjav-
sky var að tapa og sætti sig við jafn-
tefli. Heimsmeistarinn hlýtur því
20.000 dollara í verðlaun og af þvi
að hann er efstur þá tapar hann
engum ELO-stigum. Honum tókst
hins vegar ekki ætlunarverk sitt -
að ná stigametinu af Fischer.
- En hvaöa skýringu skyldi hann
hafa á taflmennsku sinni nú?
„Ég var bara tómur og þreyttur
og skorti allt hugmyndaflug. Mér
tókst hins vegar að sigra enda er
ég jú heirasmeistarinn í skák. Allir
ætlast til að ég vinni.“
Kasparov sagði að hann ætlaði
ekki aö tefla við Anatoly Karpov
um sovéska meistaratitilinn í des-
ember þrátt fyrir kröfu sovéskra
yflrvalda þar ura. Sagöi Kasparov
að menn yi-ðu að sætta sig við þá
ákvöröun enda væri hann oröinn
þreyttur.
- Það þýðir þó vonandi ekki að
hann sé leiður á skák.
„Nei, alls ekki, ég er hins vegar
orðinn leiöur á öUu umstanginu í
kringum skákina. Ég vona þó að
ég nái að tefla betur á næsta móti
sem verður í Barcelóna.“
Það er þó ólíklegt að Kasparov fái
svo langa hvild því án efa verður
gerð sú krafa til hans aö hann tefli
á ólympíumótinu við hlið Karpovs.
-SMJ
Jóhann Hjartarson stórmeistari.
„Ég held að það miegi telja að þetta
hafi verið fullnægjandi árangur á
mótinu og mér finnst ánægjulegt að
ég skyldi ná að tefla betur en á heims-
bikarmótinu í Frakklandi um dag-
inn,“ sagði Jóhann Hjartarson eftir
lokaumferðina á heimsbikarmótinu
í skák. Jóhann sagðist vera dálítið
þreyttur eftir átökin en hann stóð sig
með miklum ágætum á mótinu eftir
að hafa verið einstaklega óheppinn í
byrjun. Þá voru skákir' hans sérlega
skemmtilegar og vöktu ávallt mikla
athygli.
Jóhann reyndist einn V-Evrópubúa
geta ógnað veldi Sovétmanna á mót-
inu og kemur líklega til með að
hækka sig um 10 ELO-stig, upp í 2620
stig. Jóhann telst vera í 4. sæti ef
SB-stig eru reiknuð en verölaun fyrir
4. sæti erú 10.000 doUarar.
„Mér finnst að Beljavsky hefði
frekar átt si. írinn skilið en hann
teygði sig of i. ngt og tapaði," sagði
Jóhann þegar i nn var spurður um
úrsUtin. Næst á iöfinni hjá honum
er að sjálfsögðu ó. mpíumótiö í skák
sem fer fram í Gr, klandi nú í nóv-
ember. Vissulega L ida menn tölu-
veröar vonir við U6 ' sem stóð sig
frábærlega á síðasta i. iti og hafnaði
í 5. sæti. Sagði Jóhani, >ð raunhæft
vaeri að stefna að sama æti.
í desember teflir Jóha n síðan í
heimsúrvali sem mætir Sc étmönn-
um í Madrid. Jóhann sagðist ekki
vita mikið um framkvæmd mótsins
en þar yrðu tefldar stuttskákir með
hálfrar klukkustundar umhugsun-
artíma.
-SMJ
Boris Spassky:
„Ég er eins og hnefaleikari í 50. lotu“
„Mér finnst að sigurinn heföi átt
að falla Beljavsky í skaut. Hann er
sterkari persónuleiki en Kasparov
sem er hins vegar hæfileikaríkari,“
sagði Boris Spassky, fyrrverandi
heimsmeistari í skák, eftir lokaum-
ferðina. Hann hafð örlagarík áhrif á
heimsbikarmótið í skák því að með
því að sigra Alexander Beljavsky í
gærkvöldi færöi hann Kasparov sig-
urinn á silfurfati. Spassky sagðist
hafa boöið Beljavsky jafntefli því
hann hefði gert jafntefli við Kasparov
og hann hefði ekki viijaö eyðileggja
möguleika Beljavsky á að vinna eftir
góða frammistöðu. Beljavsky hefði
hins vegar hafnaö þvi enda mikiU
baráttumaður með nóg af hugrekki.
Spassky er reyndar töluvert gagn-
rýninn á Kasparov og sagði meðal
annars að heimsmeistarinn ungi ætti
ýmislegt eftir ólært en hann hefði þó
vissulega sýnt sálarstyrk með því aö
vinna mótið eftir slæma byrjun.
Um frammistöðu sýna vildi Spas-
sky ekki segja margt. „Þetta var erf-
itt fyrir mig enda er ég eins og hnefa-
leikari í 50. lotu.“
Nú í lok vikunar fer Spassky með
íslenska ólympíuUðið í skák í æfinga-
búðir. Sagðist hann hlakka til þess -
og yrði það vonandi lærdómsríkt fyr-
ir báða aðila. Sagðist hann fullviss
um aö íslenska liðið gæti náð langt.
- En klassísk spurning í lokin -
hefur þú heyrt eitthvað frá Bobby
Fischer nýlega?
„Já, ég hitti hann fyrir stuttu en
mér er óheinúlt að segja nokkuð frá
þeim fundi því Bobby kann ekki við
að vinir hans séu að ræða um einka-
hagi hans. Það var ánægjulegt að
hitta hann en við hittumst svona
einu sinni á ári en meira vfl ég ekki
segjaumþað." -SMJ