Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1988, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988.
Fréttir
Torfæraaksturskeppni Jeppaklúbbs Reykjavíkur:
Hrikalega erfið keppni
Sjaldan eöa aldrei hafa torfæru-
aksturskeppendur lent í eins erf-
iðri jeppakeppni og þeir lentu í sl.
laugardag þegar nýstofnaður
Jeppaklúbbur Reykjavíkur hélt
sína fyrstu torfæruaksturskeppni.
Fengu þeir Jeppaklúbbsmenn
einn reyndasta og harðasta jeppa-
karl landsins, Halldór Jóhannes-
son, til aö vera keppnisstjóra og
leggja brautirnar sem keppendurn-
ir þurftu að aka. Var greinilegt að
Halldór vissi upp á hár hvernig
þrautir eru jeppakörlum erfiðastar
og voru sumar brautir í keppninni
svo erfiðar að engum keppendanna
tókst að komast upp þær. Sumar
brautirnar voru jafnvel svo erfiðar
að engum heilvita manni hefði
dottið í hug að nokkurt faratæki á
hjólum kæmist upp þær. En kepp-
endurnir tóku áskorunum og
brekkum Halldórs með hugrekki
og réðust ótrauðir til atlögu við
þær. Var oft ótrúlegt hvað sumir
þeirra komust langt í brautunum
og þar vakti sérstaka athygli djarf-
ur og hressilegur akstur Haraldar
Ásgeirssonar, íslandsmeistarans í
ár, sem botnaði 350 kúbika Jeepst-
erinn sinn í ófærar brekkurnar og
tókst að komast ótrúlega langt upp
þær. En Halldór varð að láta sér
lynda annað sætið í flokki sérút-
búinna jeppa á eftir Guðbirni
Grímssyni sem ók 351 kúbika
Bronco. í þriðja sætinu varð svo
Hér hafa nokkrir jeppakarlar
stokkið á einn keppnisjeppann og
hangá utan honum til að koma í
veg fyrir að hann velti niður bratta
sandbrekku eftir að ökumaðurinn
hafði misst hann út á hlið í hennl.
Bergþór Guðjónsson á Willys með
B-20 Volvo vél.
Gunnar Hafdal, íslandsmeistar-
inn í flokki götujeppa, sigraði í
þeim flokki með miklum yfirburð-
um. Gunnar ók Willys með 401
kúbika AMC vél. Annar í götu-
jeppaflokki varð Einar Benedikts-
son á Willys en Hlynur Hjaltason
varð þriðji, einnig á Willys.
Jóhann A. Kristjánsson
Gunnar Hafdal, íslandsmeistari í
götujeppaflokki, sigraði í sínum
flokki í keppninni meö miklum yfir-
burðum.
íslandsmeistaranum í flokki sérútbúinna jeppa, Haraldi Ásgeirssyni, tókst ekki að sigra i þessari keppni
þrátt fyrir djarfan og hrikalegan akstur. Var Jeepsterinn hjá honum iðulega með annan hvorn endann á lofti
þegar Haraldur braust upp ófærar brekkur. Haraldur varð að láta sér annað sætið lynda.
Starfsménn keppninnar hlaupa hér að Wagoneer jeppa Sturlu Jónsson-
ar til að hjálpa honum út úr flaki jeppans eftir að hann hafði oltið í
þverhníptu malarbraði. Tveir jeppar ultu í keppninni og segir það sina
sögu um það hversu erfið hún var.
Guðbjörn Grimsson sigraði í flokki sérútbúinna jeppa en hann ók 351
cid. Bronco. Höfðu menn það á orði aö hann hefði einugnis tvær stilling-
ar á bensíngjöfinni hjá sér, hægaganginn og í botni.
í dag mælir Dagfari
Ogmundur og BSRB
Gífurleg fagnaðarlæti brutust út á
BSRB-þinginu þegar Ögmundur
Jónasson bar sigurorð af mót-
frambjóöendum sínum og náði
kjöri sem formaður samtakanna.
Myndir hafa birst, þar sem Ög-
mundur stendur sigri hrósandi og
veifar til manníjöldans eins og þeg-
ar afreksfólkið á ólympíuleikunum
hafði unnið til gullsins. Einnig hef-
ur mátt sjá kvennaskara upp um
hálsinn á Ögmundi og bendir þaö
ekki til annars en að kvenfólkið í
BSRB hafi upp til hópa verið himin-
lifandi þegar því tókst að foröa frá
því aö Guðrún Árnadóttir yrði
kjörin formaður. Það segir sína
sögu um kvenréttindabaráttuna í
landinu og ættu Kvennalistakonur
aö hengja þessar myndir upp í
húsakynnum sínum, til merkis úm
samstöðu íslenskra kvenna meö
kynsystrum sínum þegar á reynir.
Þar er hálsakotiö á Ögmundi meira
skjól fyrir þær heldur en Guðrún
öll og ætti þessi kosning að sanna
þaö í eitt skipti fyrir öll aö konur
eru konum verstar.
En þrátt fyrir öll fagnaöarlætin í
salnum, var þó einn maöur sem
ekki kættist Það var fyrrverandi
formaöur, Kristján Thorlacius.
Kristján hafði ákveðiö aö hætta
sem formaður, að minnsta kosti að
nafninu til, en hann var búinn að
dubba framkvæmdastjóra sam-
bandsins upp sem formann-
skandídat og lýsti yfir því að fram-
kvæmdastjórinn hefði eindreginn
stuðning sinn. Var það hald manna
að Kristján ætlaði þannig að
stjórna sambandinu áfram í gegn-
um framkvæmdastjórann, sem er
auðvitað ágæt aöferð þegar ekki er
annarra kosta völ. Þannig er hægt
að breyta breytinganna vegna, án
þess að breyta nokkrum sköpuðum
hlut.
En frambjóðandi Kristjáns fékk
aðeins fimmtíu atkvæöi á þinginu
og ástæöan er sögð sú að þingfull-
trúar höfðu ekki áhuga á að kjósa
framlengingu á Kristjáni Thorlac-
ius, jafnvel þótt hún væri í konu-
líki. Það var þvi ekki Guðrún frani-
kvæmdastjóri eða Örlygur vara-
formaður sem töpuðu kosningunni
heldur Kristján Thorlacius sem
alls ekki var í framboði. Þetta skildi
Guðrún Ámadóttir og sagöi aö
stuöningur Kristjáns hefði verið
bjarnargreiði viö sig og var fúlari
út í Kristján heldur en Ögmund
vegna ósigursins. Krisfján
Thorlacius er því næsta vinafár
þegar þessu þingi er lokið, þegar
opinberir starfsmenn kjósa Ög-
mund, sem var settur til höfuös
Kristjáni, og þegar framlenging-
amar á Kristjáni saka Kristján um
að hafa tapað kosningunni fyrir
sér.
Það er von að Kristján sé fúll og
lýsi yfir því að úrslitin séu ekki til
styrktar fyrir sambandið. Ög-
mundur ætlar að fara að tala viö
fólkið í BSRB. Hann ætlar að koma
á valddreifingu í BSRB, sem ekki
verður skilið öðmvísi en að engin
yalddreifing hafi verið þar fyrir.
Ögmundur ætlar líka aö virkja ein-
stök félög innan BSRB, sem heldur
verður ekki skilið öðruvísi en að
félögin hafi alls ekki verið notuð.
Sigur Ögmundar táknar £ví aö
hann ætlar að fara að tala við fé-
lagsmenn í BSRB, en það hefur
ekki tiðkast áður í samtökunum að
formaðurinn hafi fyrir því að tala
við óbreytta. Verður fróðlegt að
fylgjast með þeirri þróun. Þetta
verður ekki til styrktar fyrir BSRB,
segir fráfarandi formaður og ygglir
sig.
Kosning Ögmundar er sögð
marka tímamót vegna þess að eng-
inn stjórnmálaflokkur stendur að
baki honum. Ögmundur er flokks-
leysingi. En það er vegna þess aö
enginn flokkur er nægilega róttæk-
ur fyrir Ögmund. Hann er til
vinstri við þá alla. Þar að auki
þekkist það ekki á íslandi að flokk-
amir tali við kjósendur eins og
Ögmundur ætlar að tala við félags-
menn BSRB.
Einn kostur er þó við kosningu
Ögmundar. Við losnum við hann
af skerminum. Ögmundur em bú-
inn að plaga þjóðina, ýmist í út-
varpi eða sjónvarpi, þungbúinn á
svip. Nú hættir hann þeirri frétta-
mennsku. Nú þarf hann ekki leng-
ur að hafa áhyggjur af heimsmál-
unum og heimsfréttunum. Hann
ætlar að flytja áhyggjur sínar yfir
í BSRB og hefur ekki tíma fyrir
aðrar áhyggjur á meðan. Það verð-
ur léttir fyrir umheiminn, en það á
eftir að koma í ljós hvaða áhrif það
hefur á opinbera starfsmenn, hvor
hafl meiri áhyggjur af hinu, Ög-
mundur af BSRB eða BSRB af hon-
um.
Dagfari