Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1988, Qupperneq 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988.
Fréttir
Bjöm Vilhjálmsson, formaður Alpaklúbbsins:
Þeir eru mjög
og góðir fjallgöngumenn
Alpaklúbbsins, í samtali viö DV í í Ölpunum og hafa einnig farið til klifu þeir 5 tinda þar sem lægsti ur, en ljóst væri aö eitthvað hefði
morgun. ' Perú. Þorsteinn hefur reyndar tvi- tindurinn var í um 5 þúsund metra komið upp á af mannlegum eða
BjörnsagðiþáÞorsteinogKristin svar farið til Suður-Ameríku þar hæö.“ öðrum ástæðum.
hafa verið virka í Alpaklúbbnum sem hann reyndi að klífa Acon- Kristinn hefur farið tvisvar til Kristinn Rúnarsson er tölvunar-
síðustu 8 ár og hafa eins og flestir cagua, hæsta fjali Ameríku, sem Himalaja og Þorsteinn þrisvar. fræðingur og Þorsteinn Guðjóns-
byrjað að ganga á háfjöllin og jökl- er tæpir 7 þúsund metrar á hæð. Hefur hvorugur náð á fjallstopp sonverkaraaður,báðir27áragaml-
ana hér heiraa og síöan hefði leiðin Hann náöi ekki lengra en í 6 þús- þar vegna utanaökomandi að- ir. Þeir eru úr Reykjavík og eiga
legið á vit ævintýra erlendis. und metra hæð þar sem skilyrði stæöna. Hvað gerst hefur í þessari báðir unnustur.
„Þeir hafa báðir klifrað talsvert voru ekki upp á það besta. í Perú ferð sagði Björn vera tómar getgát- -hlh
„Þaö sem Þorsteinn og Kristinn
voru að gera var í eðhlegu fram-
haldi af þeirra ferli sem fjallgöngu-
menn. Þeir eru mjög reyndir og
góðir fjallgöngumenn og þetta hef-
ur verið þeirra aðaláhugamál í
mörg ár. Þeir byrjuðu að klífa sam-
an þegar þeir voru strákar," sagði
Björn Vilþjálmsson, formaöur
Jón á sjúkrahúsi í París
Jón Geirsson, sem var í leiðangr-
inum með þeim Kristni Rúnar-
ssyni, Þorsteini Guöjónssyni og
Skotanum Stephen Aisthorpe í
Himalajafjöllum, liggur nú á
sjúkrahúsi eftir ferðina.
Rif losnaði í Jóni vegna mikils
álags á öndunarfærin þegar klifið
er í mikilli hæð. Þegar rifið losnaði
blæddi inn á lungað og ígerð komst
í sárið.
Jón hélt til byggða þann 15. okt-
óber og var hann 8 daga á-leiöinni.
Við komuna til Katmandu hélt
hann rakleiðis til Parísar. Þar er
hann nú á sjúkrahúsi undir lækn:
ishendi.
Skotinn Stephen Aisthorpe, sem
var fjórði maðurinn í þessum leið-
angri í Himalaja, hefur aldrei kom-
ið til íslands. Hann kynntist Þor-
steini Guðjónssyni í fyrra þegar
Þorsteinn var eini íslendingurinn
í breskum leiðangri sem kleif flallið
Ama Dablam í Himalajaijöllum.
Stephen hefur verið með í leitinni
að þeim Þorsteini og Kristni í sjö
daga.
-JGH
Frjálst,óháð dagblað
Askrifendur!
Léttið blaðberunum störfin og sparið þeim sporin.
Notið þjónustu DV og kortafyrirtækjanna.
Greiðið áskriftargjaldið með greiðslukorti.
VISA
Meðþessum
boðgreiðslum
vinnst margt:
# Þærlosaáskrifendur
viðónæðlvegnalnn-
OÞæreniþægllegur
grelðslumáti sem
. tiyggirskilvisar
grelðslurþráttfytir
annir eðafjarvistir.
# Þærléttablaðberan-
umstórtfnenhann
holdurþóóskertum
tekjum.
# Þæraukaóiyggi.
Blaðberarerutil
dæmlsoftmeðtölu-
verðar fjárhasðlr sem
getagtatast
Hafið samband
við afgreiðslu DV
kl. 9-20 virka daga,
laugardaga kl. 9-14
i sima 27022
eða við umboðsmenn okkar
ef óskað er nánari
upplýsinga.
Ferðamálaráðuneytið í Nepal:
Sex Tékkar
taldir af
Ferðamálaráðuneytið í Nepal hef-
ur tilkynnt að auk íslendinganna
tveggja, sem er saknað, séu sex tékk-
neskir fjallgöngumenn taldir af.
í frétt frá Reuter í morgun segir
aö þeir hafi verið í hópum, sem hugð-
ust klífa Himalajafjöll. Fjórir Tékk-
anna hurfu er þeir reyndu að klífa
Mount Everest tindinn, en íslending-
anna var saknað er þeir reyndu aö
ganga á fjallið Pumo Ri, sem er í
nágrenninu, eins og nánar er skýrt
frá annars staðar í blaðinu í dag.
Þá eru tveir Tékkar til viðbótar
sagðir látnir. Þeir voru í leiðangri
sem ætlaði að klífa fjallið Tilicho.
Everest-hópurinn ætlaði að klífa
hæsta tind veraldar og ætlaði að fara
upp hann suð-vestanmegin, sem hef-
ur aðeins lítillega verið reynt áður.
í tilkynningu ráðuneytisins sagði að
einn þeira, Jozef Just 33 ára, hefði
náð 3.348 metra hæð þann 17. október
sl. Hvassviðri neyddi hina ijóra til
að bíða með frekari tilraunir. Allir
fjórir, sem taldir eru látnir, voru frá
Bratislava. Hinir þrír hétu Dusan
Becik 34 ára, Peter Bozik 24 ára og
Jaroslav Jasko 26 ára.
í tilkynningu ráðuneytisins eru
nöfn íslendinganna tveggja, Þor-
steins Guöjónssonar og. Kristins
Rúnarssonar, sem báðir eru 27 ára,
frá Reykjavík. Þaö var félagi þéirra,
Stephen Aisthorpe frá Skotlandi,
sem tilkynnti um hvarf þeirra félaga.
Þeir hugöust ganga á fjallið Pumo
Ri, sem er 7.161 metri á hæð.
Tékkarnir tveir síðastnefndu létust
er þeir reyndu að klífa Tilicho og var
það þriðji maður í leiðangri þeirra
sem fann lík þeirra. Þeir hétu Peter
Gribek, 45 ára, og Leo Horka, 44 ára.
Fjárlög lögö fram 1 ríkisstjóm:
Hækkun tekju-
skatts ekki á
lágar teKjur
- segir Ólafur Ragnar Grímsson
„Tekjuskattshækkunin mun
ekki koma á lágar tekjur og miðl-
ungstekjur og hækkun vörugjalds
mun ekki leggjast jafnt á allar vör-
ur,“ sagöí Ólafur Ragnar Grímsson
ijármálaráðherra í morgun um
þær skattahækkanir sem fjárlaga-
frumvarp hans felur í sér.
Eftir fundi stjórnarflokkanna í
gær voru frumvarpsdrög lögð fyrir
ríkisstjórnina í morgun. í dag
verða síöan fundir fjármálaráð-
herra með einstökum ráðherrum
og búast má viö aö endanlega verði
gengið frá frumvarpinu í kvöld.
Það verður þó ekki lagt fram fyrr
en í næstu viku þar sem töluverðan
tíma tekur að prenta verkið.
í frumvarpinu er gert ráð fyrir
nýjum sköttum aö íjárhæð um 3,5
milljarðar króna. Það er um einum
milljarði meira en stjórnarflokk-
arnir samþykktu í stjómarmynd-
unarviöræðunum.
Tekjuskattur einstaklinga mun
hækka um 2 prósent en persónuaf-
sláttur og barnabætur hækka á
móti svo núverandi skattleysis-
mörk haldast. Tekjuskattur allra
þeirra sem eru fyrir ofan þessi
mörk mun hins vegar hækka. Þessi
hækkun mun gefa ríkissjóði um
einn milljarð í tekjur. Þá veröur
vörugjald hækkaö á ýmsum vör-
um. Tekjur ríkissjóös af þessari
hækkun munu veröa um 1 til 1,5
milljarðar. Hækkunin mun leiða til
verðhækkana þrátt fyrir verö-
stöövun.
Af fleiri skattahækkunum má
nefna skatt á fjármagnstekjur, fjár-
magnsfyrirtæki, bifreiðar og eign-
ir.
Reiknað er með að niðurskurður
á ríkisútgjöldum veröi um 1,5 millj-
aröar eins og að var stefnt í stjórn-
armyndunarviðræöunum. Þar má
nefna niðurskurð í heilbrigðiskerf-
inu, vegagerö og niöurfellingu elli-
lífeyris hjá þeim sem hafa háar
tekjur aörar. Enn á eftir að ná sam-
komulagi við viðkomandi fagráð-
herra um hluta af þeim niður-
skurði sem fjármálaráðherra legg-
ur til.
Að sögn Ólafs Ragnars er gert ráð
fyrir tekjuafgangi á fjárlögum
næstaárs. -gse