Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1989, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1989,
Fréttir
Breytingamar á eignarskattinum:
Það getur borgað sig
að flytja innstæður
í kjölfar þeirra breytinga á eignar-
skatti, sem samþykktar voru á Al-
þingi, hafa menn velt því fyrir sér
hvort ekki geti borgað sig að flytja
innstæður á milli bankastofnana og
breyta um ávöxtunarform. Hefur
sérstaklega verið rætt um að fólk
muni hugsanlega færa fjárfestingu
sína frá skuldabréfum í fjárfestinga-
sjóðum yfir í ríkisskuldabréf sem eru
ekki eignarskattsskyld. Enginn
þeirra sem DV hafði samband við
kannaðist viö að slíkar tilfæringar
en menn könnuðust þó við að undir
ákveðnum kringumstæðum borgaði
sig að flytja fé á milh og setja það inn
á venjulega bankareikninga eða í rík-
isskuldabréf. Það hefði þó þurft að
vera búið að gera það fyrir árslok til
að sleppa við eignarskatt 1989.
Skattlagning á innstæðum ræðst
af skuldum viðkomandi skattaaðila.
Ef tekið er mið af einstaklingum þá
eru skuldlausar eignir á bihnu
2.500.000 til 7.000.000 krónur skatt-
lagðar upp á 1,2%. Eignir yfir
7.000.000 eru hins vegar skattlagðar
upp á 2,7%. Af fyrstu 2.500.000 greið-
ist hins vegar enginn skattur. Eignir
hjóna eru taldar sameiginlega fram
í skattframtah en þau eru þó skatt-
lögð sem um einstaklinga væri að
ræða. Því myndu hjón sem ættu
skuldlausa eign upp á 14 milljónir
sleppa við efsta skattþrepið því að
þau eru, hvort um sig, skattlögö sem
einstaklingur með 7 milljóna skuld-
lausa eign.
Undanþágur
Inneignir í bönkum og sparisjóðum
og slíkum stofnunum (almennar
sparisj óðsbækur, ávísanareikningar
og skiptikjarareikningar) eru ekki
eignarskattsskyldar, þ.e.a.s. sá hluti
af þeim sem er umfram skuldir hjá
viðkomandi skattaaðila.
Eins er með hlutabréf en þó er
ákveðið hámark á því. Það hámark
er 900.000 krónur hjá einstaklingi og
helmingi hærri upphæð hjá hjónum.
A sama hátt er arður, sem fer ekki
upp fyrir 10% af þessum fjárhæðum,
ekki skattskyldur til tekna eða 90.000
krónur hjá einstaklingi.
Öll skuldabréf ríkissjóðs eru und-
anþegin skatti.
Skuldabréf eru hins vegar eignar-
skattsskyld í öllum tilvikum. Skatt-
skylda af þeim fer að sjálfsögðu eftir
heildartekjum manna. Sama á við
um skuldabréf verðbréfasjóða.
-SMJ
Nemandi í saumum lærir rétt handbragð hjá Unni Breiðfjörð handmennta-
kennara til hægri. DV-mynd Róbert
Kvöldnám í Stykkishólmi:
Þakklátir nemendur
sem stunda það nám
Róberl Jörgensen, DV, Stykkishólmi:
Námsflokkar Stykkishólms hafa
verið starfandi hér undanfarin ár.
Auk þess að vera með almenna
námsflokka hafa Námsflokkar
Stykkishólms einnig haft umsjón
með öllu framhaldsnámi íbúanna í
bænum, bæöi með beinni þátttöku
og með stuöningi.
í hinum almennu námsflokkum er
kennt á tveimur önnum yfir veturinn
en kennsla liggur niðri yfir sumar-
tímann. Boðið er upp á þrjú tungu-
mál auk íslensku, tölvunám, mynd-
list, sauma, bókfærslu auk nám-
skeiðs í stærðfræði fyrir foreldra 6-9
ára barna. Á nýja árinu verður einn-
ig boðið upp á matreiðslunámskeið
þar sem fólki verður kennt að mat-
reiða austurlenska smárétti.
Það er samdóma álit kennara
Námsflokka Stykkishólms að það
séu þakklátir nemendur sem stundi
þetta nám. Fólkið veit hvað það vill
og gerir kröfur, bæði til sín og kenn-
aranna. Umsjónarmaður Náms-
flokka Stykkishólms er Róbert Jörg-
ensen.
Símasamband rofhar 1 Vogum á Vatnsleysuströnd:
Getur verið
mjög bagalegt
- segir Ása Ámadóttir stöövarstjóri
„Þetta getur verið mjög bagalegt.
Þetta kemur fyrir af og til. Þetta er
ný stöð en hún hefur ekkert varaafl.
Sem betur fer hefur aldrei neitt kom-
ið fyrir þegar sambandið hefur rofn-
að,“ sagði Ása Ámadóttir, stöðvar-
stjóri Pósts og síma í Vogum.
Símasamband við Voga og Vatns-
leysuströnd hefur rofnað af og til
undanfarið. Síðast var símasam-
bandslaust í rúmlega hálfan sólar-
hring - frá þriðjudagskvöldi 27. des-
ember og til næsta morguns. Ekki
var sambandslaust við öll hús í
byggðarlaginu. Það hefur komið fyr-
ir oftar en einu sinni að allt símasam-
band hefur rofnað við Voga og Vatns-
leysuströnd.
„Það eru margir farsímar hér og
eins er töluvert um talstöðvar. Við
erum líka stutt frá Keflavík þannig
að við eigum ekki langt að fara ef
eitthvað kemur upp á. Það breytir
því þó ekki að þetta er bagalegt,"
sagði Ása Árnadóttir.
-sme
Gjaldþrot í Garði:
Utvegsbankinn tapaði
40 milljónum króna
Útvegsbankinn tapaði um 40
milljónum króna er fiskvinnslufyr-
irtækið Ásgeir h/f í Garði var tekiö
til gjaldþrotaskipta. Útvegsbank-
inn hafði áöur keypt mest af eign-
um þrotabúsins á uppboði. Með því
tókst bankanum að tryggja hluta
af því sem bankinn átti hjá hinu
gjaldþrota fyrirtæki. Að þeim
kaupum loknum átti bankinn eftir
ógreiddar kröfur að upphæð um 40
milljónir sem sama og ekkert fæst
upp í. AJls voru lýstar kröfur í
þrotabúið um 60 milljónir króna.
Til skipta komu aðeins 150 þúsund
krónur.
Skiptameðferö á þrotabúi Ásgeirs
h/f lauk 27. október síðasthðinn.
Forgangskröfur námu tæpum
tveimur milljónum króna. Af þeim
greiddust aðeins 150 þúsund krón-
ur. Aörar kröfur, sem geröar voru,
námu tæpum 59 milljónum króna.
Ekkert fékkst greitt upp í þær kröf-
ur.
-sme
FuUyrðingar BHMR um Þjóðhagsstofnun:
Rakalausar fullyrðingar
- segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar
„Ég er ekki hörundssár maður en
þegar það er fullyrt að við fórum vís-
vitandi með rangt mál í okkar þjóð-
hagsspám hlýtur maður aö mót-
mæla. Ég fullyrði aö allt starfsfólk
Þjóðhagsstofnunar vinnur vel og
samviskusamlega og á heiðarlegan
hátt. Enda tel ég að þær fullyrðing-
ar, sem koma fram í Kjarabréfi
Bandalags háskólamanna hjá ríkinu,
séu með öllu rakalausar,“ sagði
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar, í samtali við DV.
Eins og fram hefur komið í DV er
Þjóðhagsstofnun borin þeim sökum
í síðasta Kjarabréfi BHMR að gera
þjóðhagsspár sem henti sitjandi rík-
isstjóm hverju sinni. Þar er því hald-
ið fram að spár Þjóðhagsstofnunar
séu fullar svartsýni fyrir gerð kjara-
samninga en verði bjartari strax að
þeim loknum.
Þórður benti á að menn gætu haft
mismunandi skoöanir á hvaöa for-
sendur væru lagðar til grandvallar
svona spám og hvernig menn reikn-
uðu sig út frá þeim. Hitt væri aftur
á móti af og frá að starfsfólk Þjóð-
hagsstofnunar léti einhverja utan
stofnunarinnar hafa áhrif á niður-
stöður sínar.
Varðandi þá fullyrðingp að spár
Þjóðhagsstofnunar væru verri fyrir
kjarasamninga en eftir sagðist Þórö-
ur vilja benda á þjóðhagsspá í upp-
hafi árs 1988. Þá var spáö að lands-
framleiðsla ykist um 0,2 prósent.
Niðurstaöan varö hins vegar sú aö
landsframleiðslan dróst saman um
1,5 til 2,0 prósent á árinu. Einnig var
spáð minni samdrætti í upphafi árs-
ins en raun varð á.
„Mér sýnist þetta sanna, ef menn
skoða spárnar sem við gerðum á síð-
asta ári, að kenning þeirra BHMR-
manna fmni þar engan rökstuðn-
ing,“ sagði Þórður Friðjónsson.
Loks sagðist hann vilja benda á að
BHMR gerði hagvaxtarspá í þessu
Kjarabréfi. Þar væri ekki um spá að
ræða heldur væri notað hermilíkan
sem virkaði aftur fyrir sig. Þar væri
því veriö að spá um fortíðina en ekki
framtíðina og þyrfti ekki mikla
meistara til aö gera slíkt. Það væri
því út í hött að bera saman það sem
þeir kalla spá og er byggð á þekktum
stærðum og þjóðhagsspá sem ævin-
lega er byggð á óþekktum stærðum.
-S.dór
Sandkom dv
Athyglis-
sjúklingur
Atliyglissjúkl-
ingurerný-
yrði. Það full-
yrtiBubbi
Morthensí
samnúi við DV.
Bubbisagðist
vera.ásamt
: mörgumöðr*
. um,haldinn
: þessumsiúk-
dómi. Bubbi
sagðiaðhann
vildi halda aftur af þessari veiki sinni
og víldi ektó segja eitt einasta orð um
brúðkaupið. Bubþi sagði það vera
aifariö mál sin og sinnar konu og þ ví
varðaði aöra ekkert um það. En
Bubbi gifti sig í Selfosskirkju ájóla-
dag. Kona Bubba heitir Brynja Gunn-
arsdóttir og er frá Selfossi. Brúð-
hjónin urðu að fresta veislunni þar
til á annan í jólum. Veisluföngjn og
hluti veislugesta komust ekki yfir
Hellisheiði á jóladag sökum vonsku-
veðurs.
Þrisvar
á Hrauninu
RúnarÞórPét-
urssön poppári
ertekinntalií
Bæjarins besta
áísafirðLÞar
segirKúnarað
hannhafi
þrisvarverið
dæmdurtil
fangelsisvistar.
Kúnar iýsir
einu afbrot-
anna á þessa
leið: „Mig minnti að partíið hefði átt
að vera á þriðju hæð. Ég fór þar inn
- þar sem íbúöin var ólæst. Þar var
engjnn svo að égfór í eldhúsið og
fann mér þar eggjabakka. Ég spældi
öll eggin, tók brennivínsflösku sem
égfann þarna og fór með þetta inn í
hjónarúmið. Hellti mér í glas, átegg-
inogfóraðsofa.“
Löggan líka og
alltvitlaust
Rúnarheidur
áframaðlýsa
afhrotinu.
liann segir:: :
„Þegarég
vaknaði vora:
hjóninkomin,
lögganlíkabg
alltvitIaust.Eg
sagðisthafá:
vorið boðinn i
partíenvár:
sagtaðégværi
aðljúga. „Viö þekkj um hann, þenn-
an, hann eralltaffullur,“ sagði lögg-
an. Á leiðinni niður staðfesti fóik
niðri að ég hefði sagt satt en partíið
hafði verið á habinni fyrir neðan,
Þá sögðust hjónin ekki vilja kæra
mig. En lögreglan sagðist kæra þvi
að þeir þekktu mig. Fyrir þetta og
öl vun viö akstur fékk ég sex mánaða
dóm en slapp út eftir þijá vegna góðr-
ar hegöunar."
Timburmenn ekki
lengurtil
ÍLögbírtinga-
blaðinuertil-
kynningþess
efhisaðTimb-
urmenn.séu
hættirstörfum.
læirsemvel
þekkjatiltímb-
urmannaættú
saintekki að
gleðjastúrhófi
fram.Þanniger
aðTimbur-
menn var fyrirtæki sem hætt hefur
störfum - en litlar vonir eru til að
hinir eínu og sönnu timburmenn láti
þessa ákvörðun sig nokkru skipta
Annars vokur athygli að í Lögbirt-
ingablaðinu er mikill fjöldi tilkynn-
inga um ný fyrirtæki. Það virðist því
vera til flöldi fólks sera ekki tekur
mark á umræðunni um þjóðargjald-
þrot og samdrátt en virðist þess í staö
tilbúið að freista þess að græða á tá
og fingri. Engin hætta er á að þessi
nýju fyrirtæki fai ektó húsaskjól -
því ekkert lát viröist vera á bygging-
arframkvæmdum - alla vega í
Reykjavík og nágrannasveitarfélög-
um.
Umsjón: Sigurjón Egilsson