Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1989, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1989, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1989. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÚNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr. Verð í lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr. Gengið fellt Ríkisstjórnin hefur fellt gengið um íjögur prósent. Er það í annað sinn sem núverandi stjórn fellir gengið en vegna lækkunar dollars að undanförnu gerir íjögur prósent gengisfelling ekki meira heldur en að færa geng- isskráningu dollars í sama far og síðast. Jafnframt er þess getið að Seðlabankinn fái heimild til að ákveða daglega gengisskráningu innan 1 til 2% marka vegna ófyrirséðra breytinga á alþjóðagjaldeyrismörkuðum. Þessar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar koma ekki á óvart. íslenska krónan hefur verið of hátt skráð og eins og jafnan áður, þegar gengisskráningin fer svo rækilega úr böndum, hefst spákaupmennska og útstreymi úr bönkum, sem bregðast verður við. Stjórnmálamenn hafa heldur ekki farið dult með þá skoðun sína að geng- ið væri of hátt og sú umræða hefur einnig kynt undir. Spurningin undir það síðasta var ekki sú hvort geng- ið yrði fellt heldur hversu mikið. Satt að segja hafa menn búist við stærra stökki, ef ríkisstjórnin gripi til aðgerða á annað borð. Forsætisráðherra hefur boðað víðtækar efnahagsaðgerðir eftir áramótin og það hafa aðrir ráðherrar gert. Þannig voru þeir búnir að kalla yfir sig spákaupmennsku strax og bankar yrðu opnaðir eftir áramót. Úr því þeir hreyfa nú við genginu er undar- legt að gengisfellingin skuli ekki vera meiri, nema þá að þetta sé forsmekkurinn, nokkurs konar varnarað- gerð meðan ráðrúm gefst til stærri verka. Alþingi kemur saman í dag til að ganga frá fjárlögum. Ætla má að þar verði efnahagsmálin rædd. Skýrist þá væntanlega hvort hér sé um biðleik að ræða af hálfu ríkisstjórnarinnar. Stjórnarandstaðan hlýtur að gera þá kröfu að ríkisstjórnin skýri frá fyrirætlunum sínum og jafnframt er sú krafa eðlileg að alþingi verði ekki sent heim í janúar. Það er ástæðulaust að láta ríkis- stjórnina fá ráðrúm til að setja bráðabirgðalög í þing- hléi og stilla þannig alþingi upp frammi fyrir gerðum hlut. Þetta er sagt í ljósi þess að ríkisstjórnin hefur ekki meirihluta á þingi og meðan hún hefur ekki aukinn þingstyrk mundi það enn auka á óvissuna ef róttækar efnahagsaðsgerðir eru í undirbúningi án þess að fyrir hggi hvort þær hafa stuðning á alþingi. Stjórnmálamenn hafa almennt verið sammála um að gengið væri rangt skráð. Atvinnurekendur sömuleiðis og þeir telja að gengisfellingin í gær skipti litlu sem engu, ef annað og meira á ekki að koma til. Vandséð er hvernig ríkisstjórnin ætlast til að hjól atvinnulífsins fari að snúast eðlilega þótt gengið sé leiðrétt til þess sem það var við síðustu gengisfellingu. Það verður þess vegna að líta svo á að meira sé í vændum af efnahagsað- gerðum, þar sem fiktað verður við gengið eða gengis- áhrifin. Ríkisstjórnin hefur strax boðað að hún muni beita sér gegn því að gengislækkunin hafi áhrif á vext- ina. Bensín hefur hækkað um fimm krónur lítrinn. Ýmsar aðrar vörur hækkuðu einnig um áramótin vegna vöru- gjaldsins. Skattahækkanir fara út í verðlagið. Gengis- fellingin mun sjálfkrafa leiða til verðhækkana. Innan tíðar rennur verðstöðvunin út. Allt bendir til almennra verðhækkana og verðbólgu ef ekki verður gripið í taum- ana. Ríkisstjórnin segist hafa fleiri ráð uppi í erminni og sjálfsagt er að gefa henni tækifæri til að sýna sig. En heldur eru þetta óburðugar aðgerðir sem birtast í máttlausri gengislækkun. Þær bera vott um skipulagðan flótta frekar en markvissa sókn. Þær auka enn á óviss- una og óttann. Ellert B. Schram „Aðgangur fiskeldisfyrirtækja að fjármagni [... jhefur verið mjög ófullnægjandi hérlendis", segir m.a. í grein- argerð með frumvarpi til laga um Tryggingasjóð fiskeldislána. Tryggingasjóður fiskeldislána I október sl. skipaði landbúnað- arráðherra nefnd til þess að fjalla um rekstrarfjárvanda fiskeldis og afurðalánakerfi greinarinnar. í nefndinni áttu sæti auk undir- ritaðs Össur Skarphéðinsson fisk- eldisfræðingur og Guðmundur Sig- þórsson, skrifstofustjóri í land- búnaðarráðúneytinu, sem jafn- framt var formaður. Árangur af starfi nefndarinnar er sá að nú hefur veriö lagt fyrir Alþingi frumvarp til laga um Tryggingasjóð fiskeldislána. í greinargerð með frumvarpinu segir meðal annars: „Frá því á sl. vori hefur verið mikil umræða um stöðu fiskeldis hér á landi, annars vegar varðandi þau starfsskilyrði sem greininni eru búin með hliðsjón af öðrum gjaldeyrisskapandi atvinnugrein- um og hins vegar um þau starfs- skilyrði sem fiskeldið býr hér viö, samanborið við erlenda samkeppn- isaðila. Af þeim gögnum, sem unn- in hafa verið, má ráða að fjár- hagsleg aðstaöa við stofnun fisk- eldisfyrirtækja hér á landi hafi ver- iö viðunandi þegar frá er talinn tímabundinn skattur á erlendar lántökur til framkvæmda og stimp- ilgjöld af lánum. Hins vegar má benda á að í samkeppnislöndum okkar er fyrir hendi opinbert styrkjakerfi við stofnun fiskeld- isfyrirtækja, hærra lánshlutfall sem hvert fyrirtæki á kost á af stofnkostnaði og að vextir vegna stofnkostnaðar eru niðurgreiddir af hálfu hins opinbera. Hér er í langflestum tilvikum um að ræða lið í byggða- og þróunarmálum viö- komandi lands. Á hinn bóginn hafa allar athug- anir leitt í ljós að aögangur fiskeld- isfyrirtækja að fjármagni þegar að rekstri kemur hefur verið mjög ófullnægjandi hérlendis, hvort sem litið er til möguleika samkeppnis- aðila erlendis eða til annarra út- flutningsatvinnugreina hér á landi.“ Tillögur nefndarinnar í megindráttum voru tillögur nefndarinnar sem hér segir: 1. Byggt veröi upp samræmt af- urðalánakerfi viðskiptabank- anna er geri fiskeldisfyrirtækj- um kleift að haga rekstri sínum á sem hagkvæmastan hátt og komast hjá ótímabærri fórgun á eldisfiski vegna lausafjárskorts eins og nú er í dag. 2. Rekstrar- og afurðalán til fisk- eldis verði hhðstæð því sem er í sjávarútvegi og hefðbundnum landbúnaði. Það leiöir til þess aö lán út á birgðir gætu numið allt að 75% af heildarverðmæti þeirra þar til skil á söluandvirði KjaUajinn Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn fara fram. Til að leysa úr bráðum rekstrar- vanda fiskeldisfyrirtækja beiti stjórnvöld sér fyrir eftirfarandi aðgerðum: 1. Stofnuð verði tryggingadeild fiskeldislána við Ríkisábyrgða- sjóð er geti veitt bönkum og öðr- um lánastofnunum greiðslu- tryggingu, þannig að rekstrar- og afurðalán þeirra til fiskeldis gætu numið allt að 75% af verð- mæti birgða. 2. Greiðslutrygging verði því að- eins veitt að viðkomandi fyrir- tæki hafi tryggt afurðir sínar með svonefndri umframskaða- tryggingu er nái a.m.k. 50% af tryggingaverðmætum afurða og að fyrirtækið hafi afurðalán frá lánastofnun í eðhlegu hlutfalli við þaö sem tryggt er. Skal þaö hlutfall afurðalánsins vera utan greiðslutryggingar deildarinn- ar. Ekki verði gripið til greiðslu- tryggingarinnar nema tjónabæt- ur dugi ekki th greiðslu á afurða- láni og fyrirtækið geti ekki greitt það með öðrum hætti. 3. Fiskeldisfyrirtækin greiði trygg- ingadeildinni ákveðinn hundr- aðshluta tryggingarinnar sem þóknun. 4. Sérstök matsnefnd verði skipuð er ákveði m.a. hvaða fyrirtæki verði tahn tryggingahæf um- fram það sem takmarkast af 2. tölul. Á sama hátt geri nefndin tillögur til fjármálaráðherra um frávik frá þeim takmörkunum sem 2. tölul. setur, þó eingöngu í tilvikum þar sem ónóg reynsla hamlar því aö komið' verði á skipulögðu afurðalánakerfi, svo sem vegna hafbeitar. 5. Verði sett lög um tryggingadeild fiskeldisiána samkvæmt fram- ansögðu komi þau til endur- skoðunar eigi síðar en fyrir lok ársins 1991. í millitíðinni vérði úr því skorið hvort unnt reynist að bankar og lánastofnanir geti veitt fiskeldinu það afurðalána- hlutfall, miðað viö verðmæti birgða, sem áður er nefnt, án endurgreiðslutryggingar, eða hvort hagkvæmara sé tahð að stofna sérstakt greiðslutrygg- ingafélag meðal hagsmunaaðila, svo sem Landssambands haf- beitar- og fiskeldisstöðva, við- skiptabanka, sparisjóða, stofn- sjóða og tryggingarfélaga, er yfirtæki verkefni dehdarinnar eða aðrar hagkvæmari lausnir fyndust. Stjórnarfrumvarp Eftir nokkra umfjöllun ákvað ríkisstjórnin hins vegar að leggja frumvarpið fram þannig að sjóður- inn tengist ekki ríkisábyrgðasjóði heldur skuli lúta stjórn landbúnað- arráðherra og vera í vörslu og umsjón Stofnlánadeildar land- búnaðarins. Hámark skuldbindinga sjóðsins má á hverjum tíma nema samtals 1800 m.kr. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt (SDR). Verði frumvarpið að lögum ætti að vera unnt að koma á afurðalána- kerfi fyrir fiskeldi sem væri sam- bærilegt við aðrar útflutnings- greinar. Jafnframt er hér valin leið, sem öll samkeppnislönd okkar hafa val- ið í einhverju formi, þ.e. ábyrgð ríkis aö hluta. Samkvæmt frumvarpinu er þó ábyrgð ríkis mjög takmörkuð eins og fram kemur í tillögum nefndar- innar. Frumvarpið er raunverulega grunnurinn að því að fiskeldi geti vaxið sem atvinnugrein á íslandi. Guðmundur G. Þórarinsson „Verði frumvarpið að lögum ætti að vera unnt að koma á afurðalánakerfi fyrir fiskeldi sem væri sambærilegt við aðrar útflutningsgreinar.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.