Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1989, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1989, Blaðsíða 11
0 11 MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1989. Utlönd Sevilla er fögur borg og margt að skoða þar. Undirbúnmg- ur heimssýn- ingar hafinn Sevilla var á timum Kólumbusar ein rikasta borg i heimi. Árið 1992 verður heimssýning haldin þar í annað skiptið og verður gífurlega mik- ið lagt í hana. Ekkert verður til sparað og meðal annars verða allar samgöngur í Andalúsiu færðar til nútimahorfs. Heimssýningin 1992 verður í Se- villa á Spáni. Þar eru menn þegar farnir að undirbúa viðburðinn og verður ekkert til sparað. Allt verð- ur gert til aö gestum líði sem allra best. Það á jafnvel að breyta veðr- áttunni. Borgin, sem eitt sinn var miðstöð viðskipta Spánar við nýja heiminn, býst við að taka á móti átján milljón gestum á sýninguna „Expo 92“ sem er haldin til að minnast ferðar Kri- stófers Kólumbusar til Ameríku árið 1492. Breyta loftslagi Til að forða gestum frá þrúgandi sumarhita, sem iðulega fer yfir fjörutíu gráður á Celsíus, ætla skipuleggjendur sýningarinnar að breyta loftslagi á eynni La Cartuja við austurbakka Guadalquivir, þar sem sýningin verður. Gróðursett verða fjögur hundruð þúsund tré sem eiga að veita skjól fyrir geislum sólarinnar og renn- andi vatn verður notað til kæhngar á andrúmsloftinu. Þetta kerfi ætti að geta gert La Cartuja allt að átta gráðum svalari en umhverfi hennar, að sögn þeirra. Hingað til hafa sjötíu og átta fyr- irtæki staöfest þátttöku sína í sýn- ingunni. Á síðustu heimssýningu í Osaka í Japan árið 1977 tóku sjötíu og sjö fyrirtæki þátt. Efasemdir um framgang verksins íbúar í Seviha eru ekki allir sann- færðir um að allt verði tilbúið á réttum tíma. Þeim stendur ekki á sama þegar þeir hta til Barcelona þar sem ólympíuleikar fara fram sama ár. Þar ganga hlutimir hrað- ar fyrir sig. „Það er ekkert hægt að sjá á La Cartqja enn,“ sagði einn íbúa. „Við erum að fara yfir um af að bíða.“ Nú, þegar rúmlega þrjú ár eru þar til sýningin verður opnuð, 20. apríl 1992, er hið tvö hundruð og fimmtán hektara sýningarsvæði fremur óárennilegt moldarsvað þar sem stórvirkar vinnuvélar fara þvers og kruss. Þeir sem hafa heimsótt svæðið telja að þar hggi miklir möguleikar en að til að þeir verði að raun- veruleika þurfi vinnuátak í anda egypsku faraóanna, að því er Jac- ques Sol-Rolland, formaður sam- taka um alþjóðlegar sýningar, sagði á fundi með væntanlegum sýnendum í desember. Skipuleggjendur segja að allt verði gert til að aðstaðan verði orð- in fuhkomin þegar sýningin hefst. Samgöngukerfi bylt Ríkisstjómin hefur ákveðið að verja tvö hundmð milljörðum ís- lenskra króna til að setja sam- göngukerfi Andalúsíu í nútímahorf til að gestir geti komist til og frá Sevilla. Hraðlest mun stytta þann tíma sem það tekur að komast með lest frá Madrid til Seviha úr sex stund- um í þrjár. Einnig munu hrað- brautir koma í stað tveggja akreina vega. Flugvöllurinn verður stækkaður og mun hann eftir breytingar geta annað þrjátíu og fimm þúsund far- þegum á dag. Gífurlegur metnaður Framkvæmdastjóri sýningarinn- ar, Manuel Olivencia, segir að aldr- ei fyrr hafi verið lagt í jafnstórt verkefni á Spáni. Mikið af veglegustu byggingum Seviha era einmitt th komnar vegna annarrar heimssýningar sem var haldin þar árið 1929. Byggingarnar, sem nú verða reistar, munu eftir sýninguna, sem stendur yfir í sex mánuði, verða teknar undir rannsóknarstarfsemi háskóla. Spánveijar telja að sýningin 1992 muni verða svo glæsileg að hægt verði að líkja henni saman við þann viðburð er Kólumbus sigldi til Vesturheims. Reuter FRÁ GRUNNSKÓLANUM í HVERAGERÐI Kennara eða fóstru vantar nú þegar til að kenna 6 ára nemendum til vors. Uppl. gefur Guðjón Sigurðs- son skólastjóri í síma 98-34195 eða 98-34472 og Pál- ína Snorradóttir yfirkennari í síma 98-34195 eða 98-34436. ^ GÆÐAFILMU Umboösaðilar m.a. Sauðárkrókur Selfoss Mosfellsbær Versl. Hrund M.M. búðin Álnabúöin Dalvik Þorlákshöfn Akranes Versl. Dröfn sf. Bóka- og gjafabúðin Bókaskemman Akureyri Garður Grundarfjörður Radiónaust Bensínstöð Essó Versl. Fell Neskaupstaður Keflavík Borgarnes Nesbær Frístund, Hólmgaröi 2 Versl. ísbjörninn Djúpivogur Njarðvik Stykkishólmur Versl. Húsið B.H. búðin Hella Videoleigan Fristund, Holtsgötu 26 Póstsendum HVERVANN? 901.856 kr. Vinningsröðin 2. janúar: 111-121 -X22-X12 12 réttir = 631.340 kr. Enginn var með tólf rétta-og því er tvöfaldur pottur núna. 11 réttir = 270.516 kr. 16vorumeð11 rétta-ogfærhverísinnhlutkr. 16.907,-.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.