Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1989, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1989.
Utlönd
Reagan í skurðaðgerð
Reagan, forseti BandaríKjanna,
mun á laugardag gangast undir
skurðaögerð vegna herpingar 1
vinstra baugfingri. Læknar segja
aö ef ekkert verði gert geti farið svo
að Reagan hafi lítil not af hendinni.
Viö þessa aðgerð þarf aðeins stáð-
deyfingu og að sögn einkalæknis
forsetans verður hann að öllum lík-
indum kominn aftur til starfa á
sunnudag.
Reagan verður lagður inn á Walt-
er Reed hersjúkrahúsið á fóstudag
til að undirbúa aðgerðina.
Aðgeröin mun taka tvær til þrjár
klukkustundir.
Svona herping í fingrum er al-
geng meðal eldri karla og allt að
20 prósent karla yfir sextugt þjást
af herpingum í fingrum.
Aðgerðin er ekki með öllu hættulaus því að höndin getur skaddast ef
hnífur læknisins lendir á taug eða æð.
Reagan Bandarikjaforseti fer i
skurðaðgerð á laugardag. Eins og
sjá má er baugfingur hans á vinstri
hendi orðinn nokkuð herptur.
Símamynd Reuler
Spies kaupir Tjæreborg
Stærsta ferðaskrifstofa Danmerk-
ur, Spies ferðaskrifstofan, tilkynnti í
gær að hún hefði tekið yfir aðal-
keppinaut sinn, Tjæreborg ferða-
skrifstofuna. Sérfræðingar segja að
með þessu hafi Spies náð yfir 80 pró-
sentum af dönsku ferðaþjónustunni.
Eftir yfirtökuna mun hið nýja fyr-
irtæki hafa veltu upp á nærri fjöru-
tíu milljarða íslenskra króna á ári.
Starfsmenn þess verða um þrjú þús-
und og viðskiptavinir um þrettán
hundruð þúsund á ári.
Innifaldar í yfirtökunni eru skrif-
stofur Tjæreborg í Noregi, Svíþjóð,
Finnlandi og á Spáni.
Spies ferðaskrífstofan, sem hefur
höfuðstöðvar sínar í Kaupmanna-
höfn, vildi ekki gefa upp hve hátt
kaupverðið var. Tjæreborg var
helmingi minna fyrirtæki en Spies
en þrátt fyrir það aðalkeppinautur
Spies. Báðar ferðaskrifstofurnar
hafa sérhæft sig í ódýrum pakka-
ferðum til Miðjarðarhafslanda, eink-
um Spánar.
Tjæreborg ferðaskrifstofan var
stofnuð í samnefndu þorpi á Vestur-
Jótlandi á sjötta áratugnum. Það var
sóknarpresturinn í bænum, Eilif
Krogager, sem fór í hræódýrar ferðir
meö sóknarbömin með járnbrautar-
lest til Spánar. Síðar fór hann út í
að leigja flugvélar undir ferðir sínar.
Krogager, sem í gær varð sjötíu og
átta ára, hefur þurft að horfa upp á
hnignun fyrirtækis síns á undan-
förnum árum vegna samkeppninnar
við Spies. Á síðasta ári seldi hann
leiguflugfélag sitt, Sterling, til
dansk-sænsks fyrirtækis fyrir upp-
hæð sem ekki hefur verið gefin upp.
Spies ferðaskrifstofan var stofnuð
af kaupsýslu- og útvarpsmanninum
Símoni Spies til að keppa við Tjære-
borg. Spies varð fljótlega stærri á
markaðinum en fyrirtæki prestsins.
í gær veltu sérfræðingar því fyrir
sér hvort SAS muni síðan á næst-
unni taka yfir hina nýju ferðaskrif-
stofu. Vitað er að SÁS hefur sýnt
áhuga á að eignast bæði fyrirtækin.
Talið er að Janni Spies, ekkja Símon-
ar Spies, sem nú á fyrirtækið, geti
vel hugsað sér að selja. Sumir töldu
jafnvel að hún hefði þegar ákveðið
að selja SAS ferðaskrifstofuna og
yfirtaka Spies á Tjæreborg væri hluti
af því samkomulagi.
NTB/Reuter
Kontraskæruliðar drepa þrjá
Kontraskæruliöar drápu .þrjá óbreytta borgara og særðu þrjá til við-
bótar í norðurhluta Nicaragua í fyrstu árás þeirra á nýju ári að sögn
vamarmálaráðuneytis iandsins í gær.
Ráðuneytið sagði að á mánudag hefðu skæruliöarnir gert árás á þorpið
La Maranosa og orðið þremur óbreyttum borgurum aö bana. Þriggja ára
stúlka var meðai hinna látnu að sögn ráðuneytisins.
Vopnahlé hefur verið i gildi frá því í mars á síðasta ári. Ásakanir hafa
þó gengið á vixi um brot á vopnahléinu.
Jorge Rosales, talsmaður kontraskæruliöanna í Miami á Flórída, sagði
í gær að hánn hefði engar fregnir fengiö af árás sem þessari en bætti við
að sandinistar sökuðu skæruliða oft um dráp. Slikt væri hður í ófræging-
arherferð þeirra gegn skæruliðum. Hann sagði að skæruliðamir hefðu
ströng fyrirmæli um að virða vopnahiéið.
Daniei Ortega, forseti Nicaragua, sagði í ræðu á nýársdag að ekki kæmi
til greina að ræða við forystu skæruliða að svo stöddu. Hann sagðist
vera að vinna að friðartillögum sem verða lagðar fyrir stjóm Bush, vænt-
aniegs forseta Bandarikjanna.
Abrams viðurkennir mistök
Elhott Abrams, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær
að Bandaríkjamönnum hefðu orðið á mistök varðandi stefiiu sína í málefn-
um rómönsku Ameríku. Hann lagöi hins vegar mikla áherslu á að hjálpa
þyrfti kontraskæruliðum í Nicaragua. Abrams hefur verið stefnt fyrir
rétt sem vitni í réttarhöldunum yfir Oliver North.
Abrams sagði að það hefðu veriö mistök að aðstoða skæruliðana með
leynilegum aðgerðum frá árinum 1981. Hann sagði að þessi aðstoð hefði
átt aö vera algerlega opinber.
Abrams sagði að stjórnvöld hefðu átt að ganga fram fyrir skjöldu og
lýsa því yfir að þau ætluðu ekki að láta það viðgangast aö til yrði önnur
Kúba í bakgarði Bandaríkjanna og að öilum ráðum yrði beitt fil aö stöðva
kommúnismann í Nicaragua.
Abrams sagðist telja að Sovétríkin væru að endurskoða hug sinn gagn-
vart litlum einræðisríkjum í þriðja heiminum og Nicaragua væri eitt
þeirra.
Schliiier fær verðlaun
Poul Schltiter, forsætisráðherra Danmerkur, hlaut í gær verðlaun, sem
námu tæplega fjögur hundruð þúsxmd íslenskum krónum, frá dagblaðinu
Berhnske Tidende, sem er eista dagblað Danmerkur. Verölaunin hlýtur
hann fyrir að hafa verið góður forsætisráðherra.
Berlinske Tidende, sem er íhaldssamt, afhendir verðlaim einu sinni á
ári, á afmæli sínu. Það var stofnað fyrir tvö hundruð og fjörutíu árum
og telur sig vera elsta blaö Evrópu.
Schlúter, sem er fimmtíu og níu ára að aldri, er ieiötogi íhaldsflokksins
og stjóm hans er minnihlutastjóm hægra megin við miðju. Hann hefur
verið forsætisráðherra frá þvi í september 1982.
Kerlmgin
reis upp frá dauðum
Það kom ættingjum hinnar eitt hundraö ára gömlu Kalenben Balabhai
ekki mikið á óvart þegar hún gaf upp öndina á mánudag.
Sú gamla var þó ekki dauð úr öllum æðum og átti eftir að koma ættingj-
um sínum mjög á óvart
Ættingjamir fóm með hana og lögðu hana á bálköst sem síðan átti að
bera eld að.
Þegar ættingjamir ætluðu að bera eld aö kestinum, eins og venja er
samkvæmt siö hindúa, reis sú gamla upp og kraföist þess aö fá að fara
heim.
Ortega eini þjóðhöfðinginn
á byHingarafmæli
Daniel Ortega, forseti Nicaragua, kom til Havana á Kúbu í gær. Hann
er eini þjóðhöfðinginn sem verður viðstaddur hátíöarhöld vegna þrjátiu
ára byltingarafmæhsins á Kúbu. Hann lýsti því yfir við komuna aö land
hans heföi staöist árásir Bandaríkjamia.
Ortega sagði að þetta væri ekki einungis afmæli Kúbu heldur allra
þriðja heims ríkja. Ortega hefur verið með annan fótixm á Kúbu frá þvi
hann komst til valda árið 1979.
Reuter
Hér sjást þeir Jan Carlzon, forstjóri SAS, og Eilif Krogager, fyrrum forstjóri og eigandi Tjæreborg ferðaskrifstofunn-
ar. Margir telja að nú sé stutt í að SAS eignist Tjæreborg ásamt Spies.
Sprengief ni fannst við
Stokkhólmsflugvöll
Sænsk yfirvöld fundu vopnabirgð-
ir í námunda við flugvöllinn í Stokk-
hólmi í júlí síðastliðnum. Töluvert
var um sams konar sprengiefni og
tahð er að hafi verið notuð til að
granda Pan Am þotunni yfir Skot-
landi í síðasta mánuði, að sögn yfir-
valda.
Flugmálayfirvöld sögðu í gær að
nokkur kíló af Semtex, plastsprengi-
efni, hefðu fundist á þessum felustað.
Einnig heíðu fundist sovéskir Kalas-
hnikov rifflar.
Þessar upplýsingar koma fram nú
þegar SAS flugfélagið stendur fyrir
mestu öryggisráðstöfunum í sögu fé-
lagsins í kjölfar þriggja sprengjuhót-
ana á dögunum.
Fólk var flutt í burtu frá Kallax
flugvelh utan við bæinn Lulea í gær
eftir að borist hafði sprengjuhótun
símleiðis. Flugvallaryfirvöld segja að
engin merki hafi fundist um
skemmdarverk.
Bengt Davidsson, talsmaður
sænsku öryggislögreglunnar, vildi í
gær ekki staðfesta að fundist hefði
Semtex sprengiefni í júlí síðastliðn-
um. Hann vildi heldur ekki tjá sig
um það hvort einhver tengsl gætu
verið á milli sprengingarinnar í Pan
Am þotunni og vopnafundarins.
Breskir rannsóknaraðilar hafa
komist að þeirri niðurstöðu að Pan
Am þotunni hafi verið grandað með
plastsprengiefni en ekki hafa þeir
viljað nefna eina ákveðna tegund
sprengiefnis. Sérfræðingar telja þó
að Semtex sé líklegasta efnið.
Davidsson sagði að sænska lögregl-
an teldi að vopnin hefðu verið í eigu
Khadar Samir Mohammed, sem er
Palestínumaður og grunaður um að
vera meðlimur í samtökum Abu Nid-
al.
Samtök Nidal hafa haldið fram að
Mohammed hafi dáið fyrir þremur
árum. Reuter
Gífurlegar öryggisráöstafanir eru nú gerðar á flugvöllum um allan heim vegna hótana hryðjuverkamanna um
skemmdarverk. SAS flugfélagið hefur oröið einna verst úti og fengið þrjár alvarlegar hótanir. Simamynd Reuter