Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1989, Blaðsíða 17
16
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1989.
MTÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1989.
17
íþróttir
íþróttir
Islandsmótiö í handknattleik:
Fjórir leikir í
1. deild í kvöld
Skotland:
Rangers
skellti
Celtic
á Ibrox
Glasgow Rangers jók forystu
sína í skosku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í gærkvöldi er liðið
sigraöi nágranna sína í Glasgow
Celtic, 4-1. Leikurinn fór fram á
heimavelii Rangers, Ibrox, að við-
stöddum 40 þúsund áhorfendum.
Celtic fékk óskabyrjun því eftir
aðeins 45 sekúndur lá knötturinn
í marki Rangers. Chris Morris,
varnarleikmaður Celtic, skoraði
með hörkuskoti af 20 metra færi.
Leikmenn Rangers tvielfldust við
mótlætið og áður en fyrri hálf-
leikm: var allur voru þeir búnir
aö ná forystu, 3-1, með mörkum
frá Terry Butcher, Mark Walters
og Ian Ferguson.
Tiu mínútum fyrir leikslok var
Mark Walters aftur á ferðinni er
hann skoráöi íjórða mark Rang-
ers. Þetta var þriðja viðureign hð-
anna á keppnistímabilinu og hef-
ur Rangers sigraö i tveimur
þeirra en Celtic í einni.
Dundee United, sem er í öðru
sæti, varð að sætta sig við jafn-
tefh á heimavelh gegn Aberdeen,
hvort höið skoraði eitt mark.
Mark Aberdeen skoraði Charhe
Nicholas sem lengst af sínum
knattspyrnuferh hefur leikið með
Arsenal.
Úrslit
Rangers - Celtic........ 4-1
SL Mirren - Ðundee.....1-1
Dundee. Utd. - Aberdeen.1-1
Hamilton - Motherwell..0-2
Staöa
Rangers ...22 15 3 4 35-15 33
D.Utd...22 11 8 3 29-12 30
Aberdeen.22 8 12 2 27-20 28
Celtic..22 12 2 8 46-31 26
Hibs....21 8 7 6 22-17 23
-JKS
Keppni í 1. deild íslandsmótsins í
handknattleik hefst að nýju í kvöld
eftir þriggja vikna hlé. Fjórir leikir
eru á dagskrá og hefjast allir kl. 20,
nema leikur KA og FH kl. 20.30.' Þeim
fimmta, viðureign Gróttu og Breiða-
bliks, hefur verið frestað fram í apríl
þar sem nýja íþróttahúsið á Seltjarn-
arnesi er ekki tilbúið.
Stórleikur kvöldsins er viðureign
Stjörnunnar og KR i Digranesi. KR
er í öðru sæti og vann átta af níu
leikjum sínum í fyrri umferðinni en
Stjarnan er í þriöja sæti og vann sex
síðustu leiki sína fyrir áramót eftir
aö hafa tapað þremur fyrstu leikjun-
um.
KA og FH hafa verið á svipuðu reki
í deildinni og mætast á Akureyri. KA
kom mjög á óvart með því að leggja
FH-inga að velli í Hafnarfirðinum í
fyrri umferðinni en síðan hefur Ak-
ureyrarliðiö verið heldur mistækt,
eins og reyndar einnig FH-ingarnir.
Fram og Valur leika í Laugardals-
Tveir liðsmenn íslenska landsliðsins
í alpagreinum taka þátt í heims-
meistaramótinu í alpagreinum sem
Guðrún Kristjánsdóttir.
höllinni og miðað við gengi liðanna
fyrir áramót ættu Valsmenn ekki að
eiga í teljandi erfiðleikum þar. Loks
eigast ÍBV og Víkingur við í Eyjum
og þar er bitist um mikhvæg stig í
fahbaráttunni.
Staðan í deildinni fyrir leikina í
kvöld er þannig:
Valur..........9 9 0 0 243-179 18
KR.............9 8 0 1 233-201 16
Stjarnan.......9 6 0 3 201-184 12
FH.............9 5 0 4 232-216 10
KA.............9 4 0 5 202-202 8
Grótta.........9 3 1 5 187-202 7
Víkingur.......9 3 1 5 232-248 7
Fram...........9 1 3 5 192-223 5
ÍBV..........9 1 2 6 184-214 4
UBK..........9 1 1 7 191-228 3
í 2. deild karla mætast Ármann og
Haukar í Laugardalshöhinni kl. 19 í
kvöld og kl. 20 hefjast tveir leikir í
1. deild kvenna. Valur og Víkingur
mætast á Hlíðarenda og Haukar og
FH í Hafnarflrði. - VS
fram fer í Vail í Colarado í Bandaríkj-
unum dagana 29. janúar til 12. febrú-
ar. Þau sem fara til Colorado eru
Guðrún Kristjánsdóttir og Örnólfur
Valdimarsson.
Guörún Kristjánsdóttir keppir í
svigi 6. febr. og í stórsvigi 11. febr.
Örnólfur Valdimarsson keppir í risa-
svigi 7. febr., stórsvigi 9. febr. og í
svigi 12. febr. Fararstjóri keppenda
verður Siguröur Einarsson, lands-
liðsþjálfari Helmut Maier og aðstoð-
.arþjálfari Bjarni Þórðarson.
Keppendur veröa við æíingar í
Aspen í Colorado frá 25. janúar en
þar eru aðstæður líkar því sem eru
í Vail. í byrjun ferbrúar fer hópurinn
til VaU og undirbýr sig endanlega
fyrir keppnina.
-JKS
Örnólfur og Guðrún
keppa á HM á skíðum
- fara á HM í alpagreinum í Colorado^
Fram varð Reykjavíkurmeistari í innanhússknattspyrnu í karlaflokki í gærkvöldi. Liðið vann þá ÍR, 7-3, í hreinum
úrslitaleik þar sem hinn efnilegi leikmaður, Anton Markússon, fór hamförum í liði Fram. Á myndinni fagna dreng-
irnir úr Safamýri sigri sínum á mótinu en fyrirkomulag var með nokkuð nýjum hætti. Leikið var á stærri mörk en
áður og tefldi hvert lið fram markverði og fjórum sóknarmönnum.
Lið meistaranna var skipað þeim Guðmundi Steinssyni, Kristjáni Jónssyni, Viðari Þorkelssyni, Steini Guðjóns-
syni, Antoni Markússyni, Pétri Arnþórssyni, Ólafi Ólafssyni, Pétri Ormslev, Birki Kristinssyni og Ómari Torfasyni.
Á myndinni er einnig Ásgeir Elíasson þjálfari og Vilhjálmur Hjörleifsson liðstjóri.
I. * DV-mynd HH/JÖG
■
llfÍÍllt
■ '
.
:
'i/'
' >'
Eddy Edwards fagnar hér persónulegum sigri á ólympiuleikum en þar náði hann því markmiði sinu að komast klakklaust
fram af pallinum. Nú er kappinn meiddur og má sætta sig við að keppa ekki næstu dagana.
Símamynd Reuter
Sirkustilþrif
á Suðurnesjum
- er bikarmeistarar ísraels unnu íslenska landsliöiö, 68-96
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Það er mjög gott fyrir strákana að
spila gegn þessu sterka hði en þetta er
án efa eitt besta félagslið í Evrópu. Það
sýndi góðan leik gegn okkur, liðsmenn
sýndu hvers þeir voru megnugir. Allir
leikmenn mínir gátu hins vegar meira
en báru of mikla virðingu fyrir stjörnun-
um. Ég vil nota tækifærið og hvetja
áhorfendur til að sjá þessa kappa leika
en þetta er merkisviðburður í íslenskum
körfuknattleiksheimi."
Þetta sagði Lazlo Nemeth landsliðs-
þjálfari í gærkvöldi en íslenska liðið beið
þá lægri hlut fyrir ísraelsku bikarmeist-
urunum, Hapoel Galil Elyon, 68-96
(34-52).
ísraelsmenn fengu rokbyrjun í leikn-
um í gærkvöldi sem fór fram fyrir þétt-
skipuðu húsi í Grindavik. Á upphafs-
kaflanum yfirspiluðu þeir' íslenska liðið
og var bilið orðið nokkurt eftir aðeins
sex mínútur eða 6-21.
Þá bar mikið á Or Goren, ísraels-
manni, en hann geröi 4 þriggja stiga
körfur á þessum mínútum en 15 stig alls.
Eftir þetta fór íslenska hðið að sýna
sitt rétt andlit og svaraöi með 9 stigum
gegn tveimur.
Fram að leihléi höföu síðan ísraels-
mennirnir ráðin og sýndu gríðarlegar
sirkuskúnstir og virtust okkar menn
stundum agndofa á sama hátt og áhorf-
endur.
Það sama var síðan uppi á teningnum
í seinni hálfleiknum nema hvað ísraels-
mennirnir hvíldu þá sína bestu menn
og leyfðu varamönnum að spreyta sig.
Þá virtust íslensku leikmennirnir hrein-
lega spila undir getu, voru klaufar og
báru bersýnilega of mikla virðingu fyrir
þessum þekktu og snjöllu andstæðing-
um. Bæði voru ísraelsmennirnir í liðinu
gríðarlega flinkir og tveir Bandaríkja-
menn hreinlega frábærir.
í íslenska liöinu voru þeir Guðmundur
Bragason og Valur Ingimundarson mest
áberandi ásamt Jóni Kr. Gíslasyni sem
átti ágæta spretti.
Þá var Guðjón Skúlason hittinn í síð-
ari hálfleiknum.
Stig íslands: Guðmundur Bragason 15,
Jóhannes Kristbjörnsson 12, Magnús
Guðfinnsson 10, Valur Ingimundarson
10, Guðjón Skúlason 8, Matthías Matthí-
asson 4, Jón Kr. Gíslason 4, Henning
Henningsson 3, Birgir Mikaeísson 2.
12 menn léku fyrir íslands hönd og
fengu allir að spreyta sig.
Stigahæstir í liði ísraelsmanna voru
Or Goren, sem gerði 27 stig, Terry Mart-
in, sem gerði 22 stig, Wayne Freeman,
sem gerði 18, og Brad Leaf sem gerði 14
stig.
Dómarar voru Tékkinn Ljublomir
Kotleba, sem talinn er einn besti dómari
heims, og íslendingurinn Kristinn Al-
bertsson. Dæmdu báðir mjög vel.
Tveir dómarar
„strikaðir út“
- hafnað af dómaranefnd FIFA, segir heimildarmaður DV
Aðildarþjóðir alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins, FIFA, mega
samkvæmt reglu tilnefna tíu
milhríkjadómara árlega. íslend-
ingar tilnefndu sex að þessu sirmi
og voru það þeir Sveinn Sveins-
son. Þorvarður Björnsson, Frið-
geir Hallgrímsson, Guömundur
Haraldsson, Óli Ólsen og Eyjólfur
Ólafsson.
Eftir því sem áreiðanlegar
heimildir DV herma hlutu þeir
Friðgeir og Þorvarður ekki náð
fyrir augum dómaranefndar
FIFA en hún metur hvort til-
nefndir aðilar séu hæfir.
Eftir því sem tíðindamaður
blaðsins segir stóðstFriðgeir ekki
þolpróf en átti möguleika á að
taka það aftur en gerði ekki.
í samtah við DV í gærkvöldi
sagðist Friðgeir hafa fallið á þol-
prófinu vegna meiðsla sem hann
væri nú loks að ná sér af. Að
öðru leyti kvaðst hann ekkert
þekkja til þessa máls.
Hvað Þorvarð áhærir sagði
heimildarmaður DV dóraara-
nefndarmenn hafa skoöað ein-
kunnir hans. Sagði tíðindamað-
urinn að Þorvarður hefði átt tvo
slæma leiki og þótt hann hefði átt
aðra góða þá vægju hinir slöku
þyngra þegar litið væri á heild-
ina.
-JÖG
Fiðurlausi öminn
tók slæma kollsteypu
- Eddy Edwards meiddist í skíöastökki
Hinn vinsæh breski skíðastökkv-
ari, Eddie „Örn“ Edwards, varð fyrir
slæmum meiðslum í æfingastökki í
austurrísku borginni Innsbruck í
gær. Hann var fluttur á sjúkrahús
með brotið viðbein, heilahristing og
fleiri áverka. Horfur eru á að þátt-
töku hans í skíðastökkmótum vetr-
arins sé þar með lokið.
Eddie Édwards sló í gegn á vetrar-
ólympíuleikunum í Calgary fyrir
tæpu ári. Hann naut gífurlegrar hylh
áhorfenda þrátt fyrir að stökkva
mun skemmra en aðrir keppendur.
Edwards stökk um 50 metra í gær
en besta æfmgastökkiö átti Finninn
Ari-Pekka Nikkola sem sveif 110
metra.
-VS
Liverpool
vann Villa
Liverpool sigraði Aston Villa,
1-0, á Anfield Road í gærkvöldi í
1. deild ensku knattspymunnar,
Ronnie Whelan geröi markið. Við
sigurinn er Liverpool í 4. sæti
deíldarinnar með 31 stig en sem
fyrr er Vhla í neðri hlutanum.
-JKS
l
i
í
|
I
Hoddle
bestur
Franska knattspyrnutíma-
ritið France Football útnefndi
í gær Glenn Hoddle besta er-
lenda knattspymumanninn
sem leikur með frönsku liði.
Þetta er í fyrsta skipti í 20 ára
sögu þessa kjörs að heiðurinn
fellur breskum leikmanni í
skaut.
Hoddle gekk til liðs við
Monaco fyrir hálfu öðru ári
og átti drjúgan þátti í vel-
gengni liðsins sl. vetur er það
varö franskur meistari. Þá
var hann valinn knattspyrnu-
maður ársins í landinu. Það
sem af er þessu tímabili hefur
hann skorað 10 mörk fyrir
félagið.
Næstir á eftir honum í kjör-
inu urðu Vestur-Þjóðverjinn
Karl-Heinz Förster, sem leik-
ur með Marseilles, og Júgó-
slavinn Mehmed Bazdarevic
sem leikur með Sochaux.
Stephane Paille frá Sochaux
var við sama tækifæri vahnn
besti franski leikmaðurinn í
1. deildinni.
-VS
Karfa í kvöld
ísraelska körfuboltahðið
Hapoel Galh Elyon leikur í
kvöld klukkan 20 við ÍBK í
íþróttahúsinu í Keflavík.
Leikurinn er fjáröflunarleik-
ur fyrir nýtt íþróttahús sem
er í byggingu í bænum.
Garðbæingar og aðrir stuðningsmenn
Stjörnunnar. Nú mætum við öll og hvetjum
Stjörnuna til sigurs.
Stjórnin
Fyrsti stórleikur ársins
í kvöld kl. 20.00
í Digranesi.
STJARNAN - KR
KR í 2. sæti deildar-
innar og Stjarnan er
1 3. sæti.
Hvað gerir hið létt-
leikandi Stjörnulið
á móti KR-veldinu?
1
7 í