Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1989, Blaðsíða 17
16
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1989.
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1989.
17
íþróttir
Frétta-
stúfar
Öruggt hjá Napolí
Napoli, án Diego
Maradona, sem var
ráðlögö hvíld vegna
bákmeiðsla, vann ör-
uggan sigur á Ascoli, 3-0, í fyrri
leik liðanna í 8 liða úrslitum ít-
ölsku bikarkeppninnar í gær.
Sampdoria malaöi Fiorentina,
3-0, Verona vann Pisa, 2-1, og
Atalanta sigraði Lazio, 2-0. Síöarí
meiðsli Maradona eru ekki alvar-
leg og hann leikur væntanlega
með Napoh gegn Torino á sunnu-
daginn.
Baltatsja má spila
Enska knattspymusambandið
gaf í gær sovéska landsliösmann-
inum Sergej Baltatsja leyfi til að
ganga til liðs við 2. deildar lið
Ipswich og veröa þar með fyrsti
Sovétmaðurinn sem spilar með
ensku félagi. Hann getur þó ekki
leikið með liðinu gegn Notting-
ham Forest í bikarkeppninni á
laugardaginn þar sem sérstakar
reglur um bikarkeppnina kveða
á um að nýr leikmaður megi ekki
spila í henni fyrr en sjö dagar eru
liðnir frá samningsgerð.
Baltatsjaer þrítugur aö aldri, á
40 landsleiki að baki og kemur frá
Dynamo Kiev. Samningur hans
við Ipswich gildir í sex mánuöi
með möguleika á framlengingu.
McAvennie brotinn
r^Tj Skoski landsliðsmið-
IJ5 ji hetjinn Frank Mc-
1 . y°!- Avennie, sem leikur
með Celtic, hand-
leggsbrotnaði í leik hðsins við
Rangers í fyrrakvöld og þarf af
þeim sökum að taka sér fjögurra
vikna hvíld frá knattspymunni.
Hann brotnaði er hann rakst á
Terry Butcher, fyrirhða Rangers.
Einar jafnaði drengjamet
Einar Þór Einarsson úr Armanni
jafnaði drengjametið í 50 metra
hlaupi innanhúss á innanfélags-
móti Ármanns sem haldið var í
Baldurshaga 30. desember sl. Ein-
ar Þór, sem er 18 ára, hljóp vega-
lengdina á 5,8 sekúndum. Sigurð-
ur Sigurðsson setti metið fyrir 13
árum og Guðni Tómasson jafnaði
þaö fyrir átta árum.
Geirlaug byrjuð aftur
Á sama móti keppti
Geirlaug B. Geir-
laugsdóttir í fyrsta
skipti í nokkur ár.
Hún er nú 21 árs en á öll íslands-
metin í yngri flokkunum. Hún
varð fyrir slæmum meiðslum fyr-
ir nokkrum árum og varð að
hætta keppni. Geirlaug hljóp 50
metra á 6,7 sekúndum sem lofar
góðu. Súsanna Helgadóttir úr FH
vann hlaupiö á 6,5 sekúndum og
hún sigraöi einnig í langstökki,
stökk 5,52 metra sem er athyglis-
veröur árangur á þessum árs-
tíma.
Ingrid stefnir hátt
Norska hlaupadrottningin Ingrid
Kristiansen er ekkert á því að
gefa eftir þó að hún sé orðin 32
ára gömul. Hún lýsti því yfir í gær
að þau tvö takmörk sem hún setti
sér væru að bæta eigin heims-
met, bæði í maraþonhlaupi og 10
km hlaupi. Ingrid ætlar sér tun
leið að verða fyrsta konan sem
hleypur maraþon á skemmri
tíma en 2 klukkustundum og 20
mínútum og sú fyrsta sem er inn-
an við 30 mínútur að hlaupa 10
kílómetra. Hún vonast eftir því
að mæta heims- og ólympíumeist-
aranum Rosu Motu frá Portúgal
og hinni bandarísku Joan Beno-
it-Samuelson í Boston-maraþon-
inu í sumar og telur að þaö auki
líkumar á aö hún nái settu
marki.
íslandsmótið í handknattleik:
Þjófnaður
í jólaleik
- sagði þjálfari FH eftir 33-31 sigur á KA
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þetta var algjör þjófnaður, þeir
voru með unninn leik í þessum leik
sem var ekki góður og sannkallaður
jólaleikur,“ sagði Viggó Sigurðsson
eftir að FH sigraði KA, 33-31, í 1.
deildinni á Akureyri i gærkvöldi.
Og það voru orö aö sönnu. KA-
menn voru með yfirburöastöðu þeg-
ar 7 mín. voru liðnar af síðari hálf-
leik, 21-14, og höfðu þá breytt stöð-
unni úr 16-14 í hálfleik. Þá brugðu
FH-ingar á það ráð að taka þá Jakob
Jónsson og Erling Kristjánsson úr
umferð, auk þess sem þriðji FH-
ingurinn lék mjög framarlega. KA-
menn kunnu ekkert ráð við þessari
vörn og glopruðu boltanum hvað eft-
ir annað í hendur FH-inga sem brun-
uðu upp og skoruðu.
FH-ingar skoruðu hvert markiö af
öðru og á 8 mínútum tókst þeim að
vinna upp 7 marka forskot KA og
jafna, 23-23, og síðan komust þeir
yfir, 29-27. KA komst yfir með þrem-
ur næstu mörkum. Þegar 1.15 mín.
voru eftir var jafnt, 31-31. Skömmu
síðar skoraði Guðjón Árnason, 31-32,
KA klúðraði sinni síðusti sókn og
FH-ingar bættu síðasta markinu viö
um leið og leiktíminn rann út.
Maður leiksins var Guðjón Árna-
son sem stjórnaði spili FH og skoraði
sjálfur 12 mörk úr ekki miklu fleiri
skotum. Honum geta FH-ingar þakk-
að sigurinn öðrum fremur. Héðinn
var afar lengi í gang en fann fjölina
er á leikinn leið en aðrir leikmenn
FH voru ekkert sérstakir. Hjá KA var
Jakob Jónsson yfirburðamaður í
sókninni en í vörninni voru þeir
sterkir, Erlingur Kristjánsson og
Guðmundur Guðmundsson. Leikur-
inn í heild var ekki vel leikinn en
spennan bætti það upp og vel það.
Mörk FH: Guðjón Arnason 12(1),
Héðinn Gilsson 7, Gunnar Bejnteins-
son 5, Þorgils Ottar 4, Óskar Ár-
mannsson 3, Óskar Helgason og Hálf-
dán Þórðarson 1 hvor.
Mörk KA: Jakob Jónsson 10, Sigur-
páll Aðalsteinsson 7(4), Erlingur
Kristjánsson 5(2), Pétur Bjarnason
3, Þorleifur Ananíasson 3, Ólafur
Hilmarsson 2, Guðmundur Guð-
mundsson 1.
Dómarar Gunnar Kjartansson og
Erling Rögnvaldsson og dæmdu erf-
iöan leik mjög vel.
Pétur enn meiddur
- lék ekki með San Antonio í fyrrinótt
Pétur Guðmundsson gat ekki leikiö með liði sínu, San Antonio
Spurs, er þaö sigraði Denver Nuggets, 129-105, í bandarísku atvinnu-
deildinni i körfuknattleik í fyrrinótt. Pétur er ekki búinn aö ná sér
eftir að hafa gengist undir uppskurö á hné í nóvember og hefur tekið
sér hvíld aö nýju eftir að hafa leikiö nokkra leiki í lok desember.
„Það kom í ljós áð ég byrjaði of snemma en það var hart lagt að
mér vegna þess aö liðinu gekk illa og fleiri voru meiddir. Nú ætla ég
að einbeita mér að því að styrkja hnéð og ná mér fyllilega áður en
ég byrja aftur. Ég set mér engin tímamörk, batinn ræður ferðinni,"
sagöi Pétur í samtali við DV í gær.
San Antonio vann þama aöeins sinn annan sigur í síðustu 14 leikjun-
um og liöiö stendur illa að vígi í deildinni. Það er í.fimmta sæti af sex
hðum í sínum riðli og þarf að taka sig verulega á til að komast í 16
hða úrshtin í vor. „En það er of snemmt að gefast upp, enn eru 54
leikir eftir!“ sagði Pétur.
Tilbúinn að leika með landsliðinu
Eins og áður hefur koiniö fram eru góðar líkur á aö leikmenn úr at-
vinnudeildinni bandansku veröi gjaldgengir með landsliöum þjóða
sinna frá og með 7. apríl en þá heldur Alþjóða körfuknattleikssam-
bandið fund um máhð. „Ég hef sagt landshðsþjálfaranum að ef ég
verð löglegur, heill heilsu og fæ leyfi frá mínu félagi spili ég með ís-
lenska landshðinu,“ sagði Pétur.
Ef San Antonio kemst ekki í úrshtin lýkur tímabilinu hjá félaginu
um 20. apríl. Þá ætti Pétur möguleika á aö leika með landsliðinu í
Evrópukeppninni í mai og síðan í midankeppni heimsmeistaramótsins
í september. Að sögn hans yrði síðamefnda keppnin honum sérlega
hentug öl undirbúnings fyrir næsta tímabil í Bandaríkjunum.
-VS
Stefán og Ólaf ur
dæma á Baltic
Handknattleiksdómararnir Stefán Arnaldsson og Ólafur Haraldsson frá
Akureyri munu dæma á alþjóðlegu handknattleiksmóti, Baltic Cup, sem fram
fer um miðjan þennan mánuð. Um er að ræða mjög mikilvægt verkefni fyr-
ir þá félaga þar sem þeir munu þreyta próf í leiðinni og standist þeir það
verða þeir útnefndir alþjóðlegir dómarar í handknattleik. Þeir Stefán og Ólaf-
ur hafa lengi verið í fremstu röð dómara hér á landi og vonandi standaast
þeirprófiðáBalticCup. -SK
Skúli Gunnsteinsson hefur hér snúið á Alfreð Gíslason og er í þann veginn að hrista
Jóhannes Stefánsson af sér. Skúli átti góðan leik með Stjörnunni er hún vann KR, 28-23.
„ DV-mynd Brynjar Gauti
Islandsmótið í handknattleik:
Stjarnan er enn
á sigurgöngunni
- sjöundi sigur liðsins 1 röð er KR var lagt að velii, 28-23
„Eg er að vonum mjög ánægður með
sigurinn í leiknum. Við lögðum mikiö
upp úr þessu leik. Við töpuöum fyrri
leiknum á mótinu - mjög ósanngjarnt
að okkar mati - og því vorum við stað-
ráðnir í að hefna fyrir okkur og vinna
þennan leik. Það var greinilega mun
meiri stemning í okkar herbúðum fyrir
leiknum en hjá KR-ingum og það gerði
gæfumuninn." Þetta sagði Gunnar Ein-
arsson, þjálfari Stjörnunnar, í kjölfar
glæsilegs sigurs á KR-ingum, 28-23, í
íþróttahúsinu í Digranesi í gærkvöldi.
Hiö unga og efnilega lið Stjörnunnar
hefur leikið geysilega vel á mótinu lengst
Jafnt í
Höllinni
Haukar gerðu jafntefli viö Ár-
mann í 2. deild karla í gær, 17-17.
Ármann virtist hafa leikiim í hendi
sér en ágætur endasprettur Hauka
réö úrslitum.
-JÖG
af en sigurinn í gærkvöldi var sjöundi
sigur liðsins í röð eftir þrjú töp í fyrstu
leikjunum. Stjarnan var yfir allan leik-
inn og kom verulega á óvart hvað KR-
ingar veittu litla mótspyrnu, hðið náði
sér aldrei á strik. Hinu má þó ekki
gleyma að Stjarnan sýndi oft á köflum
góðan leik. Leikmenn liðsins börðust af
krafti og uppskáru samkvæmt því.
Mestur munur á liðunum í fyrri hálf-
leik var sex mörk, 13-7, en undir lok
fyrri hálfleiksins tókst KR-ingum aö
minnka muninn niður í íjögur mörk,
14-10. Ef heppnin hefði verið með báðum
liðum hefði þeim tekist að skora enn
fleiri mörk í hálfleiknum. Að minnsta
kosti tíu skot hittu stangirnar. Einnig
vörðu markmenn beggja liða mjög, þeir
Brynjar Kvaran, Stjörnunni, og Leifur
Dagfinnsson hjá KR-ingum.
Sami munur hélst á liðunum fram
undir miðjan síðari hálfleik. Þegar stað-
an var 21-15 meiddist Sigurður Bjarna-
son, leikstjórnandi Stjörnunnar, og í of-
análag tóku KR-ingar til bragðs að taka
tvo útileikmenn úr umferð. Um tíma
riðlaðist leikur Stjörnunnar nokkuð og
KR-ingar minnkuðu muninn í þrjú
mörk. En lengra komust þeir ekki og
Stjarnan vann öruggan og sanngjarnan
sigur.
Leikmenn Stjömunnar eiga hrós skilið
fyrir þennan leik og ef þeir halda áfram
á sömu braut eiga þeir alla möguleika á
aö tryggja sér Evrópusæti þegar upp
verður staöið í mótslok. Brynjar Kvaran
var sem klettur í markinu, varði 15 skot.
Keyrt var nánast á sömu leikmönnunum
allan leikinn og stóðu þeir sig allir með
mikilli prýði.
KR-ingar sýnast ekki eins sterkir og
þeir voru framan af mótinu. Alfreð
Gíslason er sá eini sem stendur virkilega
upp úr. Ennfremur stendur Leifur Dag-
finnsson markvörður sig alltaf vel. En
þaö dugar ekki að örfáir leikmenn standi
sig heldur verður liðsheildin einnig að
koma til svo árangur eigi að nást.
Óli Olsen og Gunnlaugur Hjálmarsson
dæmdu leikinn svo til óaðfinnanlega.
Mörk Stjörnunnar: Gylfi Birgisson 8/2,
Hafsteinn Bragason 4,' Hilmar Hjaltason
4, Skúli Gunnsteinsson 4, Sigurður
Bjarnason 3, Axel Björnsson 1.
Mörk KR: Alfreð Gíslason 5/1, Páll
Ólafsson 5, Stefán Kristjánsson 5, Sig-
urður Sveinsson 5, Guðmundur Alberts-
son 1, Jóhannes Stefánsson 1, Guðmund-
ur Pálmason 1.
-JKS
Skýrslubrot flokkstjóra FRÍ frá OL 1 Seoul:
Grundvallarreglur
ÍSÍ um ferðalög
voru lítt virtar
- aðfinnsluvert að titia formann HSÍ blaðafulltrúa ólympíunefndar
„Það sem helst var aðfinnsluvert
var sú ráðstöfun að titla formann
HSÍ blaðafulltrúa ólympíunefndar,
að þvi er séð veröur í þeim eina til-
gangi að létta ferðakostnaði hans af
HSÍ.
Einnig það aö enginn úr aðalfarar-
stjórn skyldi búa í ólympíuþorpinu
meðan á leikunum stóð. Svo það að
grundvallarreglur ÍSÍ um ferðalög
voru lítt virtar og það látið átölu-
laust af formanni.“(Þ.e. formanni
ólympíunefndar. Innskot blaða-
manns.)
Þetta er í skýrslubroti Jóns M.
ívarssonar, flokkstjóra FRÍ í Seoul.
Að sögn Jóns er skýrslubrotið opin-
bert skjal sem hefur meðal annars
borist til sambandsaðila FRÍ.
í samtali viö DV í gærkvöldi kvað
hann ágrip þetta aðeins örstutta
greinargerð af sinni hálfu, eins stutta
og unnt heföi verið að gera „þar sem
aðeins var drepið á málum. í þessu
broti er aðeins bent á þá þætti sem
mér þóttu jákvæðir og neikvæðir
varðandi leikana," sagði Jón.
í samtalinu kvaö Jón ennfremur
alla flokksstjóra eiga aö skila endan-
legri skýrslu fljótlega til ólympíu-
nefndar „en sú skýrsla verður miklu
ítarlegri," sagði hann. „Þar kryfja
menn málin enn frekar."
„Ég vil ekki skýra orð mín í þessu
skýrslubroti frekar núna en hins
vegar nánar síöar í sjálfri skýrsl-
unni,“ svaraði Jón, aðspurður hvort
hann gæti skýrt frekar þessi orö sín
í ágripinu. JÖG/VS
Guöni Bergsson 1 beinni sjónvarpsútsendingu á laugardag:
Atvinnuleyfið í höfn
- Guðni fær atvinnuleyfið í dag eða eftir helgina
„Það eru allar líkur á því að varan-
legt atvinnuleyfi fáist og það jafnvel
í dag. Ef ekki í dag þá í síðasta lagi
strax eftir helgina. Peter Barnes, rit-
ari Tottenham, tjáöi þetta í dag. Ég
er mjög ánægður með að atvinnu-
leyfið er í höfn,“ sagði Guðni Bergs-
son hjá Tottenham í samtali við DV.
„Ég var alltaf bjartsýnn á að at-
vinnuleyfiö fengist fyrr eða síðar.
Það eina sem gat komið í veg fyrir
það var að tveir útlendingar eru á
samningi hjá félaginu. En á þessu
atriði hefur oft strandað hjá erlend-
um leikmönnum sem eru að reyna
að komast á samning hjá félögum í
Englandi.
Núna erum viö að undirbúa okkur
fyrir bikarleikinn gegn Bradford á
laugardaginn. Þaö verður erfiöur
leikur en Bradford sló Everton út úr
keppninni í síðustu umferð. Ég er
annars mjög ánægöur meö dvölina
frá því að ég kom til félagsins. Ég hef
fengið góða dóma í blöðum og einnig
frá framkvæmdastjóranum, Terry
Venables. Ég vona að ég verði í byrj-
unarliðinu gegn Bradford en ég var
aö frétta að leiknum veröur sjón-
varpað beint til íslands. Þannig að
það verður þeim mun meiri ástæða
að standa sig vel,“ sagði Guðni
Bergsson. -JKS
íþróttir
Körfiiknattleikur:
Keflvíkingar
kjöldregnir
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum:
ísraelska körfuknattleiksliðið
Hapoel Galil sigraði Keflvíkinga
í fjáröflunarleik sem fór fram i
Keflavík í gærkvöldi. Lokatölur
urðu 71-118 og voru yfirburöir
ísraelsmannanna miklir en stað-
an í hléi var 23-61. Keflvikingar
héldui við mótherjana fyrstu sex
mínútumar en síðan ekki söguna
meir í fyrri hálfleiknum. Hapole
vann síðan síöari hálfleikinn með
níu stigum.
Stigahæstu menn ÍBK voru
Guðjón Skúlason 23, Jón Kr.
Gíslason 19 og Siguröur Ingi-
mundarson 12.
Brad Leaf skoraði 38 stig og fór
hreinlega á kostum.
* 1. deild
/ Stada /
Valur......10 10 0 0 266-197 20
KR .10 8 0 2 256-229 16
Stjarnan.. .10 7 0 3 229-207 14
FH .10 6 0 4 265-247 12
KA .10 4 0 6 232-235 8
Grótta .9 3 1 5 187-202 7
Víkingur. .9 3 1 5 232-248 7
Fram .10 1 3 6 210-246 5
ÍBV .9 1 2 6 184-214 4
UBK .9 1 1 7 191-228 3
Valur-Fram.......... 18-23
KA-FH.................31-33
Stjarnan - KR.........28-23
í kvöld
í kvöld mæta Víkingar liði Eyja-
manna þar úti ef flugfært verður.
Leikurinn hefst klukkan 20.
Valur gerði sex
mörk gegn tólf
- í síðari hálfleik en vann samt Fram, 18-23
Riðlar í
íslands-
mótinu
Dregið hefur verið í riðla í
þremur efstu deildunum í
meistaraflokki karla á ís-
landsmótinu í innanhúss-
knattspymu og líta þeir þann-
ig út:
1. deild:
1. riðill: KR, Grótta, KA og ÍK.
2. riðill: Víkingur, IA, Haukar
og Selfoss. 3. riðill: Fram, KS,
ÍBK og Grindavík. 4. riðill:
Fylkir, Víðir, Þróttur R. og
HSÞ. b
2. deild:
1. riðill: Leiftur, Þór A„ Ár-
mann og Bolungarvík. 2. riö-
ill: ÍR, Breiðablik, Einheiji og
Hveragerði. 3. riöill: Valur,
Stjarnan, Leiknir R. og Þrótt-
ur N. 4. riöill: ÍBV, FH, Skalla-
grímur og Augnablik.
3. deiid:
1. riðill: Höttur, Njarðvík,
Reynir Á. og Skotfélag
Reykjavíkur. 2. riöill: Reynir
S„ Sindri, Árvakur og Léttir.
3. riðill: Hvöt, Grundaríjörð-
ur, Austri og BÍ. 4. riðill: Vík-
verji, Valur Rf., Hafnir og
Vorboöinn.
Keppt verður í 2. og 3. deild
dagana 13.-15. janúar en í 1.
og 4. deiid 27.-29. janúar. Nú
eru nýjar reglur í gildi, leikið
á stærri mörk og með mark-
vörðum.
-VS
Valur sigraði Fram í fyrstu deild-
inni í hándknattleik í gærkvöldi,
18-23. Leikurinn, sem fór fram í
Laugardalshöll, var heldur spennu-
rýr framan af en Valsmenn höfðu
þá tögl og hagldir. Þeir keyrðu yfir
Safamýrarliðið á vel útfærðum
hraðaupphlaupum og var munurinn
fljótlega orðinn óvinnandi.
Tölur eins og 1-6, 4-8, 6-15 sáust á
ljósatöflunni og í hléinu var bilið enn
meira eða 6-17.
Valsmenn ætluðu bersýnilega að
Valur vann dýrmætan sigur á Vík-
ingi að Hlíöarenda í gærkvöldi. Bæði
liðin spiluðu fasta vörn og var leikur-
inn jafn og spennandi allan tímann.
Víkingur leiddi í hálfleik, 9-8, en með
seiglu náðu Valsstúlkurnar yfir-
höndinni og sigruðu, 17-15.
Mörk Vals: Erna 8, Katrín og Una
3 hvor, Guðrún 2, Kristín Anna 1
mark.
síðari hálíleikurinn yrði hreint
formsatriði og varð sú raunin þótt
leikmenn Fram tækju á og breyttu
stööunni til muna. Framarar unnu
síðari hálfleikinn með helmings
mun, 12-6, og börðust vel á sama tíma
og íslandsmeistararnir hengdu haus.
Bestir í liði Fram voru Júlíus
Gunnarsson og Birgir Sigurðsson en
í hði Vals bar mest á þeim Jakob
Sigurðssyni, Einari Þorvarðarsyni
og Júlíusi Jónassyni.
Mörk Fram: Birgir Sigurðsson 6/1,
Mörk Víkings: Inga Lára 6, Svava
og Valdís 3 hvor, Halla 2, Heiða 1
mark.
FH - Haukar
FH bætti tveimur stigum í safnið er
stúlkurnar báru sigurorð af ná-
grönnum sínum í Haukum. FH hafði
ávallt yfirhöndina í leiknum sem ein-
kenndist af mikilli baráttu. Leiknum
lauk með fimm marka sigri FH,
Júlíus Gunnarsson 4, Agnar Sigurðs-
son 4, Hermann Bjömsson 2/1,
Tryggvi Tryggvason 1, Egill Jó-
hannsson 1. - Jens Einarsson varði
7 skot en Þór Björnsson 4.
Mörk Vals: Júlíus Jónasson 7/1,
Sigurður Sveinsson 6/2, Jakob Sig-
urðsson 5, Valdimar Grímsson 3, Jón
Kristjánsson 2. - Einar Þorvarðarson
varði 15 skot og átti eitt sláarskot.
-JÖG
18-13, eftir að FH hafði leitt í hálf-
leik, 10-7.
Mörk FH: Björg 4, Kristín og Berg-
lind 3, Eva, Rut og Arndís 2 hver,
Ingibjörg og María 1 hvor.
Mörk Hauka: Margrét og Ragn-
heiður 3 hvor, Steinunn, Hrafnhildur
og Þórunn 2 hver, Brynhildur H. 1
mark.
EL/ÁS
Óvæntur sigur Vals-
kvenna á Víkingi
- FH lagöi nágranna sína úr Haukum