Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1989, Blaðsíða 8
Útlönd
FIMMTUDAGUR 5. JANUAR 1989.
Arásin á líbýsku MIG þotumar:
Gerð í sjálfsvörn
- segja Bandaríkjamenn
Hér sést hvar atvikiö átti sér stað í gær. Einnig sést hvar fyrirhuguð
efnavopnaverksmiðja Líbýumanna er talin vera.
Bandaríkin hafa lýst því yfir að þau
telji ekki frekari umræðu þörf um
atburði gærdagsins, þegar banda-
rískar F-14 þotur frá flugmóður-
skipinu John F. Kennedy skutu
niður tvær líbýskar MIG-23 þotur
yfir Miðjarðarhafi.
Segja bandarísk yfirvöld að at-
vikið hafi átt sér stað með þeim
hætti að líbýsku þoturnar hafi gert
sig líklegar til árása á bandarísku
þoturnar og því hafi bandarísku
þotumar skotið þær niður í sjálfs-
vörn.
Líbýumenn segja að bandarísku
þoturnar hafi gert árás á þær lí-
býsku aö ósekju, þar sem MIG þot-
urnar hafl engin vopn borið. Segj-
ast Líbýumenn ætla aö krefjast
þess aö Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna fjalli um málið. Einnig
hafa þeir hvatt aðildarríki Evrópu-
bandalagsins til að fordæma atvik-
ið.
í Bandaríkjunum lýstu leiðtogar
beggja stjórnmálaflokkanna á
þingi yfir fullum stuðningi við aö-
gerðir Bandaríkjanna á Miðjarðar-
hafi og sögöust sannfærðir um að
Líbýumenn hefðu átt upptökin.
Bretar samþykkja
skýringar Bandaríkjamanna
Bresk stjómvöld hafa samþykkt
skýringu Bandaríkjamanna um til-
drög atviksins.
Breskir hernaðarsérfræðingar
segja að ef Bandaríkin hefðu skipu-
lagt þessa árás fyrirfram hefði hún
aldrei verið gerð um hábjartan dag
vegna þess hve miklu erfiðara er
að athafna sig við slíkt verk í dags-
birtu.
Frank Carlucci, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði á
fréttamannafundi í gær að flug-
móðurskipið John F. Kennedy
hefði verið á alþjóðlegri siglinga-
leið á Miðjarðarhafi og F-14 þoturn-
ar verið í æfingaflugi þegar sést
hefði í radar hvar MIG þoturnar
fóru á loft og stefndu rakleitt á
bandarísku þoturnar. Þær banda-
rísku hafi reynt að forðast þær lí-
býsku með því að breyta um hæð
og stefnu en ekkert hafi gengið. Þá
hafi verið .ljóst að um ógnun hafi
verið að ræða og því hafi þær
bandarísku grandað líbýsku þot-
unum í sjálfsvörn.
Nýgögn um
efnavopnaverksmiöju
Að undanfórnu hafa Bandaríkja-
menn sakað Líbýumenn um að
vera að reisa efnavopnaverksmiðju
í Rabta sem er um áttatíu kílómetra
frá Trípolí. Líbýumenn hafa alfarið
neitað þeim ásökunum og sagt að
um lyfjaverksmiðju sé að ræða.
Starfsmenn við byggingu verk-
smiðjunnar hafa þó gefið upplýs-
ingar sem benda til þess að um eit-
urefnaverksmiðju sé að ræða.
í gær sagði einn helsti leiðtogi
stjórnarandstöðunnar í Líbýu, Abu
Abdullah, að hann heföi vissu fyrir
því að byggð hefði verið stór efna-
vopnaverksmiðja neðanjarðar við
Rabta. Sagði hann að einnig væri
verið að reisa sjúkrahús á sömu
slóðum og sennilega væri það ætl-
un líbýskra stjórnvalda að nota það
til að slá ryki í augu fólks.
Talsmaður breska utánríkis-
ráðuneytisins sagði í gær að bresk
stjórnvöld hefðu fengið upplýsing-
ar um að Líbýumenn væru að setja
upp efnavopnaverksmiðju.
Sovétmenn vara við
Bandarísk stjórnvöld lýstu því
yfir í gær að ekkert samband væri
milli efnavopnaverksmiðjunnar og
atviksins í gær enda hefði atvikið
í gær gerst um níu hundruð kíló-
metra frá Rabta. Reagan Banda-
ríkjaforseti hefur þó ekki útilokað
árás til að eyðileggja verksmiðjuna.
Sovétmenn, sem ekki vildu tjá sig
um atvikið í gær, vöruðu Banda-
ríkjamenn viö því að gera árás á
Líbýu. Sagði talsmaður sovéska
utanríkisráðuneytisins að slíkt
myndi spilla mjög fyrir batnandi
ástandi í alþjóðamálum.
Talið er mjög ólíklegt að Banda-
ríkin aðhafist nokkuð gegn Líbýu
fyrr en eftir helgi. Um helgina fer
fram í París alþjóðleg ráðstefna um
efnavopn og eru menn á því að
Bandaríkin muni bíða með aðgerð-
ir, alla vega þar til þeirri ráðstefnu
er lokiö.
Reuter
* I
Bandaríska flugmóðurskipið John F. Kennedy, sem stóð í ströngu á Miðjarðarhafi í gær, sést hér á fullri
ferð. Tvær F-14 þotur af skipinu lentu í návígi við tvær MIG-23 þotur líbýska flughersins og skutu þær niður.
Símamynd Reuter
Byrjendanámskeið hefjast 10. janúar
Þjálfari verður Michal Vachun,
landsliðsþjálfari frá Tékkóslóvakíu. 1®*
Æfingar verða í nýjum æfingasal félagsins í húsakynn-
um Sundlauga Reykjavíkur i Laugardal.
Innritun fer fram á staðnum milli kl. 17 og 1910. janúar.
Allar nánari upplýsingar verða veittar í síma 39414
og 31976.
JUDOFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Bush hækkar tekjur
án nýrra skatta
George Bush, veröandi forseti
Bandaríkjanna, er líklegur til að
reyna að auka tekjur ríkissjóðs án
þess að leggja á nýja skatta, að sögn
bandaríska stórblaðsins The New
York Times. Einkum er talið að
gjaldtaka fyrir þjónustu ríkisstofn-
ana verði hækkuð.
Blaðið fjallaði í morgun um stefnu
væntanlegs íjárlaga- og hagsýslu-
stjóra Bush, Richards Darmans. Seg-
ir að Bush muni reyna að fá leiðtoga
þingsins með sér í að setja á fót
tveggja ára áætlun um að minnka
fjárlagahalla Bandaríkjanna.
Bush mun áfram berjast gegn
hækkuðum sköttum en sagt er líklegt
að hann muni fella sig við hækkun
á ýmiss konar gjaldtöku á vegum rík-
isins, eins og fyrir skoðun á kjöti og
leigu á eignum ríkisins.
Einnig er tahð liklegt að Bush
muni sætta sig við niðurskurð á fjár-
lögum yfir hnuna ef honum og þing-
inu mistekst að ná samkomulagi.
Samkvæmt þessu ætlar Bush ekki
að standa sama vörð um útgjöld til
varnarmála og forveri hans.
í Bandaríkjunum eru í gildi lög sem
kveða á um að fjárlagahalli megi
ekki fara yfir eitt hundrað milljarða
dollara á næsta ári. Samkvæmt þeim
lögum verður að skera töluvert niður
í íjárlögum næsta árs.
I gær komu kjörmenn, sem kosnir
voru í kosningunum þann 8. nóv-
ember síöastliðinn, saman og kusu
George Bush og Dan Quayle form-
lega forseta og varaforseta Banda-
ríkjanna til næstu íjögurra ára. Bush
hringdi í Quayle í tilefni dagsins.
Reuter
Kjörmenn kusu í gær George Bush formlega í embætti forseta Bandaríkj-
anna til næstu fjögurra ára. Einnig var gengið frá kjöri Dans Quayle i
embætti varaforseta til sama tíma. Bush hringdi í Quayle og tjáöi honum
tiðindin. Simamynd Reuter