Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1989, Blaðsíða 26
26
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1989.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði . .
Ronald Reagan
ætlar ekki að setjast í helgan stein
eftir aö hann lætur af embætti
forseta Bandaríkjanna. Ronny
hefur farið þess á leit við umboðs-
mann sinn að hann hafi auga með
þvi hvort hann finni ekki heppi-
legt kvikmyndahlutverk fyrir sig
á næstu mánuðum. Nýlega lét
hann hafa það eftir sér að fyrst
Burt Lancaster fengi enn kvik-
myndahlutverk ætti sér ekki að
verða skotaskuld úr þvi. Svo er
bara aö vona að honum hafl farið
eitthvað fram sem leikara á þeim
tíma sem hann hefur gegnt emb-
ætti forseta.
Veronica
Hamel
- leikkonan fallega sem við þekkj-
um úr sjónvarpsþáttunum Verðir
laganna - sagði nýlega kærastan-
um sínum, honum Ashok Am-
ritraj, að taka pokann sinn.
Ástæðan var sú að þau voru ekki
sammála um hvort þau ættu að
ganga í þaö heilaga eður ei. Ver-
onica vill víst gjarnan eignast
barn en því neitaði Ashok nema
þau létu pússa sig saman fyrst.
Taldi hann að leikkonan ætti að
velja milli sín og frama á leiklist-
arsviðinu. „Vertu blessaður, As-
hok,“ var það eina sem hin 44 ára
Hamel sagði. Svo vísast er hún á
lausu núna.
Cybill
Shepherd
gerði allt sem í hennar vaidi stóð
til að fyrsti afmælisdagur tvíbu-
ranna hennar mætti verða sem
eftirminnilegastur. Hún pantaði
heljarinnar stóra súkkulaðiköku,
svo stóra að menn mundu ekki
eftir að hafa séð annað eins. Með-
al gesta í afmælisveislunni var
lítil stúlka sem langaði afskap-
lega til að bragða á kökunni. Ekki
tókst betur til en svo, þegar sú
stutta var komin upp á borð og
ætlaði að fara að gæða sér á her-
legheitunum, að hún hrasaði og
datt ofan á kökuna. Veislugestir
höfðu snör handtök við að bjarga
þeirri stuttu úr kökunni en fáir
höfðu vist lyst á að leggja sér
hana til munns eftir þetta slys.
Og eins og í öllum góðum veislum tóku gestir lagið. DV-myndir gk
Starfslið hússins gerði allt sem i þess valdi stóð til að kvöldið mætti verða
sem eftirminnilegast.
Nýju ári fagnað
í Sjallanum
Sjallanum var skálað fyrir nýju ári.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Það var mikið um dýrðir er nýju
ári var fagnaö í Sjallanum á Akur-
eyri að kvöldi 1. janúar. Öllu því
besta sem völ var á var tjaldað, ekk-
ert til sparað og útkoman varð ekki
slorleg.
Strax við innganginn fengu gest-
irnir forsmekkinn af því sem í vænd-
um var. Þar var tekið á móti fólki
með bláum ljúffengum drykk og
blásarasveit lék létta tónlist með til-
þrifum.
Matreiðslumeistari hússins var
greinilega í góða skapinu og mat-
reiddi glæsilegan kvöldverð sem
samanstór af humarsúpu, ljúffengri
nautasteik og ávöxtum. Nammi
namm. Lítið var um að menn leifðu
þetta kvöldiö.
Meðal atriða, sem boðið var upp á
til skemmtunar, voru atriði úr sýn-
ingunni Rokkskór og bitlahár en hún
sló eftirminnilega í gegn á síðasta
ári.
Af skemmtiatriðum, sem voru
mörg þetta kvöld, má nefna sýning-
una Rokkskór og bítlahár en þessi
sýning hefur slegið 1 gegn bæði
nyrðra og í Reykjavík og það ekki
aö ástæðulausu.
Kate O'Mara:
Liflr lífinu
Leikonan Kate O’Mara nálgast
hálfrar aldar aldurinn óðfluga.
Þrátt fyrir það er hún óþreytandi
að stunda hið ljúfa líf. Yfirleitt er
hún alltaf í fylgd með ungum herr-
um og raunar segist hún ekki viþa
hafa þá mikiö yfir tvítugt.
„Kynlífið heldur mér ungri. Ég
er stolt af líkama mínum og legg
mikið á mig við að líta sem best
út," segir Kate enda sést daman
víst aldrei á ferli utandyra nema
með stríösmálningu, gerviaugna-
hár og í háum hælum. Hún á að
baki fjögur mislukkuö hjónabönd
og segist vera búin aö fá nóg af
slíku. „Ég á það fyllilega skiliö aö
skvetta úr klaufunum mér til
ánægju," segir O’Mara brosandi.
Kate O’Mara ber aldurinn óneitanlega með ágætum.
Björn Borg og Loredana með samfléttaða fingur.
Bjöm Borg:
Yfir sig
ástfanginn
Björn Borg kvað vera svo ástfang-
inn af nýjustu konunni í lífi sínu, ít-
alska popstirninu Loredana, að hann
getur vart sleppt af henni hendinni.
Nýlega voru þau skötuhjú á ferð í
heimalandi Björns, Svíþjóð. Tilgang-
urinn með veru þeirra þar var að
kynna nýjustu fatalínuna frá Birni.
Ljósmyndarar og blaðamenn voru
boðaðir á heljarinnar mikla tisku-
sýningu þar sem til stóð að kynna
fatnaðinn. Hins vegar fór lítið fyrir
myndatökum af flíkunum þar sem
Björn og kvinna hans gátu ekki hætt
að kyssa hvort annað. Það voru því
þau sem urðu aðalskotmark ljós-
myndaranna en ekki tískusýningar-
fólkið sem sprangaði um, íklætt fatn-
aði frá fyrirtæki Bjamar.
Því er svo við að bæta að enn hafa
þau skötuhjú ekki tilkynnt hvort þau
hyggjast gifta sig á næstunni. Þau
segjast að vísu hafa þekkst í mörg
ár eða síðan á síðasta áratug. Þau
kynntust víst fyrst í einhverju sam-
kvæmi en ekkert varð um nánari
kynni þar sem Loredana var að slá
sér upp með tennisstjörnunni Pan-
attas. Það var hins vegar ekki fyrr
en nú í sumar, er þau hittust á Ibiza,
að þau fóru að slá sér upp og síöan
hafa þau ekki getað sleppt hendinni
hvort af öðru.