Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989. Fréttir Viðræður um sameiginlegt framboð smáflokkanna - fulltrúar flokkanna hópast að sjúkrabeði Stefáns Valgeirssonar „Ég tel aö það sé rétt að reyna að stilla kraftana saman frekar en að vera hver úti í sínu horni ef áherslu- atriði eru svipuð," sagði Stefán Val- geirsson, þingmaður Samtaka jafn- réttis og félagshyggju, en þreifmgar hafa verið í gangi aö undanförnu meðal fulltrúa Samtaka jafnréttis og félagshyggju, Þjóðarflokksins og Flokks mannsins um sameiginlegt framboð við næstu þingkosningar. Yrði það framboð þá í öllum kjör- dæmum landsins. Einnig er talið hugsanlegt að einhverjir úr Borgara- flokknum komi til hðs við þetta bandalag. Þessir þrír smáflokkar fengu samtals 4,1% atkvæða í síðustu kosningum. „Það er rétt að þessar þreifmgar hafa verið í gangi enda gæti þetta komið ágætlega út. Samtökin og Þjóðarflokkurinn eru sterk á lands- byggöinni og við erum sterkir í Reykjavík," sagði Pétur Guðjónsson, formaður Flokks mannsins. Hann sagðist hafa rætt óformlega við Al- bert Guðmundsson en hann heföi fundið mikinn áhuga innan Borgara- flokksins á þessu samstarfi. „Þetta er nú bara della,“ sagöi Al- bert Guömundsson þegar hann var spurður út í þetta. Albert sagðist hafá hitt Pétur tvisvar en ekki bæri að leggja neina merkingu í það. Stefán Valgeirsson sagði lúns veg- ar að hann hefði fundið mikinn Fulltrúar Þjóðarflokksins við sjúkrabeð Stefáns Valgeirssonar í gær. F.v.: Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Stefán Valgeirsson, Trausti Þorláksson, Gunnar Páll Ingólfsson, Gunnar Hilmarsson og Tómas Gunnarsson. DV-mynd GVA áhuga innan Borgaraflokksins fyrir sameiningu: „Það er engin launung á því að allavega hluti af Borgara- flokknum er inni í þeirri mynd og þar eru þingmenn meðtaldir. Hingað hafa komið til mín fleiri en einn og fleiri en tveir þingmenn Borgara- flokksins. - Og það vill nú svo tíl að það eru hvorki Aðalheiöur né Óli.“ Stefán, sem nú liggur á Landspít- alanum, hefur fengið margar heim- sóknir að sjúkrarúmi sínu. Þangað hafa komið fulltrúar Þjóðarflokks, Flokks mannsins, Borgaraflokks og svo hefur forsætisráðherra, Stein- grímur Hermannsson, litið inn. - En hvaða tímamörk setur Stefán á þessa sameiningu? „Það fer nú eftir því hvernig hlut- irnir gerast í sambandi við þessa rík- isstjóm - hvort Borgaraflokkurinn verður þar aðili. Ef ekki, held ég að það hljóti að styttast í kosningar. Verði kosningar verða hlutirnir að gerast skjótt." -SMJ Staurinn stendur eftir hauslaus. Þetta er annar götuvitaþjófnaðurinn í Reykjavík í þessari viku. DV-mynd S Götuvitum stolið Dagpeningarnir eru í haerra lagi - segir Ólaíur Ragnar Grímsson Fréttastofa Stjörnunnar lögð niður „Núna um mánaðamótin leggj- ast Stjörnufréttir niður af þeirri einföldu ástæðu aö stjóm þessa útvarps hefur ekki efni á því að reka minnstu, ódýrustu og virk- ustu fréttastofu á íslandi," sagöi Eiríkur Jónsson, fréttastjóri Stjömunnar, en ákveðiö hefur verið að leggja niður fréttastofu Stjömunnar. Endanleg ákvörðun var tekin á fimmtudag en þrír til fjórir fréttamenn hafa unniö á Stjömunni. Þeim hefur verið sagt upp. „Það má segja að með þessum kaflaskiptum á þessari stöð verða tímamót í íslenskri fjölmiðlasögu því að á meðan Stjömufréttir voru viö lýði voru þær eina frum- lega afkvæmiö sem hin svokall- aða fjölmiðlabylting gat af sér,“ sagöi Eiríkur. Hann sagði að ór- áðið væri hvað hann fæn að gera en hann mundi bytja á því að fara í frí. -SMJ " " .....'/......... Landsbankinn: Stefán og Björn ráðnir Bankaráð Landsbankans réð í gær lögfræðingana Stefán Pétursson og Björn Líndal sem aðstoðarbanka- stjóra. Aðstoðarbankastjórar bank- ans eru þar með orðnir fimm. Auk þess var starfsheití Barða Ámasonar breytt í „aðstoðarbankastjóri al- þjóðasviðs". Miklar umræður hafa verið um þessa ráðningu. í upphafi auglýstí bankaráðiö eina aðstoðarbanka- stjórastöðu til umsóknar. Bankaráð- ið gat hins vegar ekki gert upp á milli þeirra Stefáns og Bjöms og réð því þá báða sem aðstoðarbanka- stjóra. -JGH Götuvita á mótum Hjarðarhaga og Suðurgötu var stohð í fyrrinótt. Ljós- kerið var tekið af staumum og greinilegt að þeir sem vom að verki hafa verið sæmilega tækjum búnir. Aðfaranótt þriðjudags var götu- vita, á mótum Eiríksgötu og Baróns- stígs, stolið. Það mál er óupplýst sem og þjófnaðurinn í fyrrinótt. Haus á götuvita kostar um 25 þúsund krón- ur. -sme „Það er ljóst að ráðherrar og þing- menn hafa fleiri skyldum að gegna á erlendum vettvangi en aðrir embætt- ismenn. Það þarf að taka tillit til þess. Ég er persónulega þeirrar skoðunar að dagpeningar þessara manna séu í hærri lagi,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra. Undanfarna viku hefur komið fram í DV að ráðherrar, alþingismenn, bankastjórar ríkisbankanna, ráðu- neytisstjórar og fleiri fá mun hærri „Mér finnst þetta vægast sagt mjög undarlegar athugasemdir hjá Guð- rúnu Helgadóttur," sagði Ögmundur Jónasson, forseti Bandalags starfs- manna ríkis og bæjar, um ummæli Guðrúnar Helgadóttur, forseta sam- einaðs þings, í DV á fimmtudag. Þar varði Guðrún þá ráðstöfun aö alþingismenn fá helmingi hærri dag- peninga vegna ferða erlendis en aör- ir ríkisstarfsmenna. „Ég hef síður en svo á móti því að að vel sé búið að alþingismönnum," sagði Ögmundur. „En þeir eiga ekki að búa við betri kjör en aðrir og alls ekki við íburð. Hvort menn borða á pylsubörum eða annars staðar er komiö undir smekk hvers og eins, óháð því hvort þeir ferðast í eigin nafni eða á vegum margra. Það er ríkt í íslendingum að hafna hvers dagpeninga vegna ferða erlendis en aðrir starfsmenn ríkisins. „í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að skorinn verði niður kostnað- ur vegna ferðalaga, fundahalda og risnu um 250 milljónir. Það eru í vinnslu ákveðnar tillögur um hvern- ig þetta verður gert. Einn liður í því er að breyta reglum um ferðadag- peninga og lækka þær upphæðir sem greiddar hafa verið. kyns stéttaskiptingu en mér finnst þetta tal Guðrúnar benda til þess að sumir séu fínni en aðrir. Okkur, þessum „venjulegu kontóristum“, eins og Guðrún kýs að kalla okkur, finnst alþingismenn hvorki merki- legri né ómerkilegri en aðrir ein- staklingar. Þeir eiga að fá greitt fyrir sína vinnu sem ég efast ekki um að er mikil. En það eiga bara allir rétt á því. Mér er gersamlega fyrirmunað að skilja hvers vegna sumir fulltrúar íslendinga eiga að fá helmingi hærri laun en aðrir. Á erlendri grundu er- um við öfl fulltrúar íslensku þjóðar- innar og eigum að gæta sóma hennar í hvívetna hvort sem er á pylsubör- um eða lúxusbörum yfirstéttarinn- ar,“ sagði Ögmundur. -gse -gse Gætum sóma þjóðar- innar jafnt á pylsu- börum sem lúxusbörum - segir Ögmundur Jónasson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.