Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989. 25 Hinhliðin Ámundi Ámundason, umboös- maður og fyrrum framkvæmda- stjóri styrktarfélags Vogs, hefur í nógu að snúast þessa dagana. Hann hefur skipulagt fundaherferð þeirra Jóns Baldvins og Ólafs Ragnars um landið. Færri hafa fengið þá kappa til sín en óskuðu eftir að sögn Ámunda. „Það er mik- ið starf í kringum fundina sem annars hafa gengið framar öllum vonum. Ég er viss um að þessi fundaherferð mun marka þáttaskil í íslenskum stjómmálum og vekur upp umræðu," sagði Ámimdi sem í dag sýnir á sér hina hhðina. Fuilt nafn: Ámundi Ámundason. Fæðingardagur og ár: 14. maí 1945. Maki: Enginn. Böm: Þau eru þrjú, Ámundi Stein- ar, Jónina og Sigríður Birna. Bifreið: BMW ’ 88. Starf: Umboðsmaður. Laun: Nokkuð góð. Áhugamál: Stjórnmál og íþróttir. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur í lottóinu? Ég hef aldrei spilað í því. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Mér finnst skemmtilegast að skapa eitthvað, fá hugmyndir og koma þeim á framfæri. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Skafa snjóinn af bílnum min- um. Uppáhaldsmatur: Góð fersk og ný ýsa. Uppáhaldsdrykkur: íslenska vatn- ið. Ég er alltaf að komast betur og betur að því hvað gosdrykkjaþamb er mikil vitleysa. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Jóhann Hjartarson. Uppáhaldstímarit: Manrúíf. Fallegasta kona sem þú hefur séð? Fyrrverandi alheimsdrottningin Hólmfríður Karlsdóttir. Hlynntur eða andvígur ríkisstjórn- inni: Ég er mjög hlynntur henni. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Jesse Jackson. Ég vildi gjarnan eiga fund með honum. Uppáhaldsleikari: Ég man ekki eft- ir neinum sérstökum sem höfðar sterkt til mín. Uppáhaldsleikkona: Tinna Gunn- laugsdóttir er rosalega góð leik- kona. Uppáhaldssöngvari: Mér finnst Kristján Jóhannsson mjög góður. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Jón Baldvin Hannibalsson. Hvaða hljómsveit fannst þér best fyrir tuttugu árum? Það voru Trú- brot og Náttúra. Ætli Sykurmol- amir komist ekki næst þeim í dag, mér fellur mjög vel það sem þeir eru að gera. Hlynntur eða andvígur bjórnum: Ég er andvígur bjórnum. Hlynntur eða andvígur veru varn- arliðsins hér á landi: Ég er hlynnt- ur veru varnarliðsins á íslandi. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? í dag finnst mér rás tvö best. Uppáhaldsútvarpsmaður: Ath Rúnar Halldórsson, fréttamaður ríkisútvarpsins. Hvort horfir þú meira á Stöð 2 eða Sjónvarpið: Eg horfi meira á Stöð 2 en er þó að reyna að minnka allt sjónvarpsgláp enda finnst mér dag- skránni hraka stöðugt. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ólína Þorvarðardóttir og Jón Óttar Ragn- arsson. Uppáhaldsskemmtistaöur: Hótel ísland, enginn vafi. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Fram og verður alltaf. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Já, aö skapa betri þjóðfélag og vera með í því að móta þaö. Ég ætla samt ekki í pólitík. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég fór til Bandaríkjanna til aö fylgjast með forsetakosningunum þar. Þáð var sérstök upplifun að kynnast því. Sjálfan kosningadaginn var ég í Washington og það var meiri hátt- ar. -ELA Ámundi Ámundason hefur i nógu að snúast þessa dagana við að skipuleggja fundaherterðina Á rauðu Ijósi. Vil skapa betra i • r x í - segir Ámundi Ámundason umboðsmaður Hitaveita Reykjavíkur auglýsir breytt símanúmer Aðalnúmer: 600100 Beinar línur: Innheimta:......................600101 Innlagnadeild:..................600102 Bilanaþjónusta:.................600265 Nætur- og helgidagavakt:.........27311 LYFSÖLULEYFI er forseti íslands veitir Lyfsöluleyfi Sauðárkróksumdæmis (Sauðárkróks Apótek) er auglýst laust til umsóknar. Fráfarandi lyfsala er heimilað að neyta ákvæða 11. gr. laga um lyfjadreifingu, nr. 76/1982, varðandi birgðir, áhöld og innréttingar. Verðandi lyfsali skal hefja rekstur lyfjabúðarinnar 1. júlí 1989. Umsóknir um ofangréint lyfsöluleyfi skulu hafa bor- ist ráðuneytinu fyrir 19. febrúar nk. 18. janúar 1989, Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. INNANHÚSS- ARKITEKTÚR í frítíma yðar með bréfaskriffcum Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota. Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti, lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr still, blóm, skipulagning, nýtísku eldhús, gólflagnir, vegg- klæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, hús- gagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o. fl. Ég óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ. Nafn........................... Heimilisfang..................................... Akademisk Brevskole Jyllandsvej 15 • Postboks‘234 2000 Frederiksberg • Kobenhavn # Danmark DV 01-21-89 C LANDSVIRKJUN SAMKEPPNI UM GERÐ ÚTILISTAVERKS VIÐ STJÓRNSTÖÐ LANDSVIRKJUNAR Landsvirkjun býður til samkeppni um gerð útilista- verks við stjórnstöð Landsvirkjunar, Bústaðavegi 7, Reykjavík. Allir íslenskir listamenn hafa heimild til þátttöku. Heildarverðlaunaupphæð er allt að kr. 500.000,00. Þar af verða 1. verðlaún ekki lægri en kr. 300.000,00 í dómnefnd eru: Dr. Jóhannes Nordal, stjórnarformaður Lands- virkjunar Guðmundur Kr. Kristinsson arkitekt Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar Halldór B. Runólfsson listfræðingur og Þór Vigfússon myndhöggvari. Keppnisgögn verða afhent af trúnaðarmönnum dóm- nefndar, Jóhönnu S. Einarsdóttur, framkvæmda- stjóra Sambands íslenskra myndlistarmanna, Ás- mundarsal, Freyjugötu 41, Reykjavík, alla virka daga kl. 12.00-15.00 og Ólafi Jenssyni, framkvæmda- stjóra Byggingaþjónustunnar, Hallveigarstíg 1, Reykjavík, frá og með mánudeginum 23. janúar 1989. Skilatrygging er kr. 1.000,00. Skila skal tillögum til annars hvors trúnaðarmanna fyrir kl. 16.00 þriðjudaginn 21. mars 1989. Reykjavík, 20. janúar 1989 Landsvirkjun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.