Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989. Kvikmyndir Lawrence Kasdan hefur leikstýrt fjórum kvikmyndum á átta árum. Lawrence Kasdan veit hvað hann vill BOB HOSKINS hefur nú tekið þá áhættu að leikstýra, skrifa handrit og leika aöaMutverkið í nýjustu kvikmynd sinni The Raggedy Rawney. Kvikmyndin, sem tekin er upp í Tékkóslóvakíu, byggir á þjóðsögu um hermann sem fyliist hryllingi á stríðs- rekstriog geristliöhlaupi. Hann dulbýr sig sem sígauni og ferðast með flokknum í kvengervi. Hosk- ins leikur leiðtoga sígaunanna sem reynir að forða ungu mönn- unum í ílokknum frá her- mennsku. „Ég vil gera stríðsá- deilu. Stríð er engin hetjuleikur, heldur geðveiki," segir Hoskins ummyndsína. ★ ★★ ANDRZEJ WAJDA vinnur um þessar raundir að gera kvikmynd um Katyn fjöldamorðin sem eru einn óhugnanlegasti atburðurinn í seinni heimsstyrjöldinni. ÍKat- ynskógi í Sovétríkjunum er flöldagröf þar sem fundust 4321 lík pólskra hermanna sem voru handteknir 1939 af sovétmönn- um. Aldrei hafa fundist líkams- leifar 11000 annarra pólskra her- ■manna sem voru handteknir um samaleyti. Málþettahefurávailt venð viðkvæmt í samskiptum Rússa og Pólvetja. Rússar hafa alltaf haldið þvi fram að nasistar hafi tekið alia af lífi. Sagnfræð- ingar og aðr ir fræðimenn hafa margir komist að þeirri niöur- stöðu að r ússneska leynilögregl- an hafi liflátið pólsku hermenn- ina, en rikisstjórnir landanna hafa ávalit kveðiö niður orðr óm þess efnis. Wadja býst viö að ljúka myndinni síöar á þessu ári. MICHAEL CAINE á marga aödá- endur hér á landi sem annars staðar. Hann heftir valdiö aðdá- endura sínum vonbrigðum að undanfömu. Hefur leikið illa í röð af misheppnuðum kvikmynd- um. Aðdáendur hans geta nú andaö léttar því hann þykir fara á kostum í síðustu tveimur kvik- myndum sinum, sera báðar eru gamanmyndir, Without A Clue, þar sem hann leikur afdankaöan leikara sem uppdubbaður er sem Sherlock Holmes, og Dirty Rotten Scoundrels þar sem hann og Steve Martin leika tvo fasteigna- sala sera eru óvandir aö meðul- tnn. ★ ★ ★ MARLON BRANDO er kominn á fulla ferð aftur. Hann hafði varla lokið viö áö leika í Dry White Season þegar hann tók sér ferð tii Mexikó til að leika í Jericho. Leikur hann CLA mann sem kom- inn er á eftirlaun en er ney ddur til starfa aftur viö að koma upp um eiturlyfjaframleiöslu í Kólombíu. Brando skrifaði hand- ritið ásamt EUiott Kastner og Moshe Diamant. Leikstjóri er DonaldCammell. ★ ★★ ROLAND JOFFE, leiksljóri The Killing Fields og The Mission, er nú við gerð nýjustu kvikmyndar sinnar Fat Man & Little Boy og fara tökur fram í Mexíkó. Aðal- hlutverkin leika Paul Newman, ogJohnCusack. ★ *★ NORMAN BATES mun sennbirt- ast aftur á hvita tjaldinu í Psycho IV og aö sjálfsögðu er þaö Ant- hony Perkins er leikur Bates. Mynd þessi er fyrsta kvikmyndin sem gerð er i nýju kvikmynda- veri sem Universal hefur byggt í Orlando í Florida. Heppilegt fyrir Perkins því hann á eimitt heimili þar. Lawrence Kashdan hefur leikstýrt fjórum kvikmyndum, Body Heat, The Big Chill, SUverado og nú síð- ast The Accidental Tourist. Allar hafa þær fengið jákvæðar viðtökur hjá gagnrýnendum og með árunum hafa þær tvær fyrstnefndu komist nálægt því að kallast klassískar. Þrátt fyrir jákvæða umfjöllun hefur engin mynda hans slegið í gegn hjá almenningi. Á þessari stundu er ekki vitaö hvað sú síð- asta. The Accidental Tourist, gerir. Umfjöllun um hana hefur verið mikil og jákvæð. Þessar fjórar kvikmyndir hafa tekið átta ár af lífi hans. Áður hafði hann starfað fyrir George Lucas og Steven Spielberg sem handrits- höfúndur. Eftir hann liggja hand- ritin að Raiders Of The Lost Ark og endurskrifað handrit af The Empire Strikes Back. Kasdan á ekki að baki eina einustu kennslustund í kvikmyndagerð úr skóla. Hann útskrifaöist í ensku úr háskóla í Michigan og lét innritast í kvikmyndadeild háskóla í Kali- forniu, en þótt hann hafi ferðast til Los Angeles til að læra kvikmynd- un náði hann ekki að mæta í eina einustu kennslustund. Hann viðurkennir að andlegt ástand hans á þessum árum hafi gert það að verkum að ekkert þýddi fyrir hann aö fara í skóla. Hann skrifaði sitt fyrsta kvik- myndahandrit 1968. Fjallaði þaö um skólastrák sem neyðist til aö gerast einkaspæjari þegar faðir hans er myrtur. Ekki gat hann selt neinum handritið. Hann fór því að vinna á auglýs- ingastofu í Detroit og Los Angeles við textagerð. Hann skrifaði fimm önnur kvikmyndahandrit sem hann sendi kvikmyndafyrirtækj- unum og eitt þeirra, Continental Divide, var kvikmyndað 1981 með John Belushi í aðalhlutverki. Hann kynntist George Lucas og Steven Spielberg á sama tíma. Þeir voru orðnir risar og hjá þeim hefði hann getað verið og skrifaö í þeirra þágu og lifað kóngalífi, en innra með honum var alltaf löngunin að leikstýra sjálfur og því yfirgaf hann öryggið þegar Warner bræöur sam- þykktu að hann leikstýrði eigin handriti að Body Heat. Fjórar kvikmyndir á átta árum Body Heat vakti geysimikla at- hygli og geröi úr William Hurt og Kathleen Turner stórstjömur sem hafa skinið skært í Hollywood síð- an. Þótt ótrúlegt megi virðast náði Body Heat aldrei meiri aðsókn en svo að rétt smávægilegur gróði varð að henni. Næsta kvikmynd Kasdan, The Big Chill, hefur af mörgum verið talin besta úttekt á 68 kynslóðinni sem gerð hefur verið. Myndin lýsir á raunsæjan hátt hvemig æsku- draumar háskólaáranna verða að engu í ísköldum raunveruleikan- um. Ekki voru allir jafnhrifnir af myndinni. Hinn þekkti kvik- myndagagnrýnandi Pauline Kael sagði hana, þrátt fyrir marga kosti, ofhlaðna. Hún spáði einnig rétt tí.1 um að allir af 68 kynslóðinni sem Kvikmyndir Hilmar Karlsson tryðu því að sú kynslóð hefði verið uppreisnargjörn og róttæk myndu fyrirlíta myndina. Aðsókn varð því aldrei mikil að The Big Chill. Þrátt fyrir mikla auglýsingu um að Silverado væri fyrsti alvöru vestrinn í langan tíma kolféll hún, enda lakasta mynd Kasdans. Vestri þessi, sem er að mörgu leyti vel gerður, er allt of langdreginn. Gamlar klisjur ofnotaðar og Silv- erado er aðeins sönnun þess að erfitt verður aö endurlífga vestr- ana. Ekki var næsta verkefni Lawren- ce Kasdan burðugra. Hann er að vísu aðeins framleiðandi að Cross My Heart. Myndin sem er róman- tísk gamanmynd meö Martin Short og Annette O’Toole í aðalhlutverk- um var algjörlega mislukkuð og verður öllum gleymd eftir nokkur ár. The Accidental Tourist Misjafnt gengi er því nokkuð sem Lawrence Kasdan þekkir. Nýjasta kvikmynd hans, The Accidental Tourist, er honum því mjög mikil- væg. Handritið gerði hann eftir skáldsögu Anne Tyler. „Ég hef aldrei unniö eftir sögu og uppbyggingu eftir annan en sjálfan mig áður,“ segir Kasdan. „Ég hef aftur á móti mikið álit á bók Tylers. í skrifum sínum gerir Anne Tyler þaö sem mig langar að gera í kvikmyndum." Aðalpersóna myndarinnar er Macom Leary sem lifir á því að skrifa ferðabækur fyrir fólk sem ferðast en vill samt alltaf vera eins og heima hjá sér. Hann veit að hann getur ekki sannfært fólk og er því langt í frá ánægður með at- vinnu sína. Gjörbreyting verður á lífi hans þegar tólf ára sonur hans deyr. Stuttu eftir þaö yfirgefur eiginkon- an hann. Hann er ringlaður og sorgbitinn þegar hann hittir Muri- el, óútreiknanlega konu sem býður honum tækifæri til að byrja upp á nýtt. Macom Leary er leikinn af Will- iam Hurt. Er þetta í þriðja skiptiö sem þeir starfa saman. Leikur hans bæði í Body Heat og The Big Chiil er minnisstæður öllum er séð hafa. „Ég hafði aldrei heyrt á William Hurt minnst þegar ég hóf undir- búning að Body Heat, en þegar ég byrjaði lestur á The Accidental Tourist kom hann strax í huga minn. Hann var eini leikarinn sem ég talaði við út af þessu hlut- verki,“ segir Kasdan. „Persónan sem hann leikur er aðgerðalaus. Ég þurfti á einhveijum að halda sem gat farið í tveggja stunda ferða- lag en aðeins hreyft sig um nokkra sentimetra.” Það er ekki aðeins William Hurt sem endumýjar kynnin við Law- rence Kasdan. Kathleen Turner leikur eiginkonuna í The Accident- al Tourist. Gena Davis, er leikur Muriel, er aftur á móti nánast óþekkt leikkona. Kvikmyndagerð í Hollywood á niðurleið í framtíöinni er Kasdan ákveðinn að eiga ekki við annað en leikstýra og skrifa handrit. Hann var ekki hrifinn af framleiðendahlutverki sínu. Vegna samnings þarf hann að vera framleiðandi að einni mynd í viðbót, en þar á eftir eingöngu leikstjórn og skriftir. Kasdan er ekki hrifinn af því sem gert er í Hollywood í dag. „Einu sinni sagði ég alltaf að það væri að minnsta kosti eitt skot eða ein lína í öllum kvikmyndum sem vert væri að sjá. Nýlega erég samt far- inn að efast. Ég hef aldrei gengið út úr kvikmyndahúsi meðan á sýn- ingu stendur, en undanfarið hefur mig langað til þess. Þetta er ný reynsla fyrir mig og gerir mig óró- legan.“ Það er því allt eins líklegt að Law- rence Kasdan fylgi í fótspor Martin Scorsese, Francis Ford Coppola og Jonathan Demme og fleiri leik- stjóra sem em farnir að gera mynd- ir sínar annars staðar en í Holly- wood með mun minni tilkostnaði. „Ég tel að það hafi aðeins veriö tilviljun að í hvert skipti sem ég geri mynd hafi það verið innan geira Hollywood. Ég mun halda áfram að gera kvikmyndir á borö við þær sem ég geri. Ég vonast einnig eftir að gera kvikmyndir á öðrum stööum þar sem kostnaöur er minni og hægt er að gera hvað sem er. Ég er með handrit í bígerð sem einmitt væri tilvalið að gera annars staðar en í Hollywood." Tíminn verður að leiöa í ljós hvað Lawrence Kasdan tekur sér fyrir hendur næst og þaö mun sjálfsagt ráðast af því hver útkoman verður með The Accidental Tourist sem nýlega eru hafnar sýningar á. -HK Lauslega byggt á grein í American Film. William Hurt hefur leikið i þremur kvikmynda Kasdans. í The Accident- al Tourist leikur hann rithöfund er missir kjölfestu lífs sins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.