Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Blaðsíða 45
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989. 57 Afmæli Einar Þór Þorsteinsson Einar Þór Þorsteinsson, prófastur aö Eiðum í Eiðahreppi, verður sex- tugurámorgun. Einar fæddist á Löndum í Stöðvar- firði og ólst þar upp í foreldrahús- um. Hann lauk stúdentsprófum í Reykjavík 1952 og embættisprófi í guðfræði við HÍ1956. Einar var settur sóknarprestur í Kirkjubæjarprestakalli 1956 og veittur Kirkjubær ári síðar. Hann hefur svo verið sóknarprestur í Eiöaptestakalli frá 1959 og er pró- fastur Múlaprófastsdæmis frá 1988. Hann hefur verið kennari við Al- þýðuskólann á Eiðum og síðan Menntaskólann frá 1956, en Einar hefur frá öndverðu setið að Eiðum. Einar sat í hreppsnefnd Eiða- hrepps í tólf ár. Hann hefur tvisvar verið formaður Prestafélags Aust- urlands og var formaður Kirkju- kórasambands Austurlands í tíu ár. Þá var hann formaður Félags áfengisvamanefnda á Austurlandi umalUangtskeið. Einar kvæntist 18.8.1956 Guðrúnu Sigríði húsmóöur, f. 15.2.1934, dótt- ur Zóphóníasar Zóphóníassonar, bifreiðarstjóra á Blönduósi, en hann er látinn, og konu hans, Guðrúnar Einarsdóttur, en þau bjuggu lengst afáBlönduósi. Einar og Sigríður eiga þrjú börn. Þau eru: Zóphónías, f. 29.10.1959, kennari á Hallormsstað, kvæntur Sif Vigfúsdóttur, kennara þar, en þau eiga tvö börn; Guðrún Áslaug, f. 15.9.1962, iðjuþjálfi íÁrósum í Danmörku, og Hildur Margrét, f. 10.2.1970, menntaskólanemi á Egils- stöðum. Einar átti fimm systkini og á nú tvö systkini á lífi. Látin eru: Kristj- án, útgerðarb. á Löndum; Þórhildur, húsfreyja á Odda við Fáskrúðsfjörð, og Jón, verkamaður. Á lífi eru: Gutt- ormur, b. á Löndum í Stöðvarfirði, og Guöleif, húsmóðir á Akranesi. Foreldrar Einars: Þorsteinn Kristjánsson, b. á Löndum, og kona hans, Guðlaug Guttormsdóttir hús- freyja. Þorsteinn var sonur Kristjáns, b. á Löndum, Þorsteinssonar, b. á Heyklif, Sigurðssonar. Móöir Þor- steins var Kristborg Erlendsdóttir, b. á Þorgrímsstöðum, Gunnlaugs- sonar. Móðir Erlends var Oddný Erlendsdóttir, b. á Ásunnarstöðum, Bjarnasonar, ættföður Ásunnar- staðaættarinnar. Móðir Kristjáns var Guðbjörg Jónsdóttir, b. á Keldu- skógi, Guðmundssonar, bróður Guðmundar, langafa Finns hstmál- ara og Ríkharðs myndskera Jóns- sona. Systir Jóns var Vilborg, lang- amma Halldóru, móður Ragnars Halldórssonar, stjórnarformanns ísals. Móðir Guðbjargar var Guðrún Guðmundsdóttir, prests í Berufirði, Skaftasonar, bróður Áma, langafa Magdalenu, ömmu Ellerts, ritstjóra DV. Móðir Þorsteins á Löndum var Margrét Höskuldsdóttir, b. á Þver- hamri í Breiðdal, Bjarnasonar, bróður Jóns, langafa Jóns, föður Eysteins, fv. ráðherra og Jakobs, prests og rithöfundar, Jónssona. Bjarni var sonur Stefáns, b. á Þver- hamri, Magnússonar, prests á Hall- ormsstaö, Guðmundssonar, föður Sigríðar, langömmu Benedikts, afa Þórbergs Þórðarsonar. Móðir Margrétar var Sigríður Jónsdóttir, b. á Skriðu í Breiðdal, Gunnlaugs- sonar, bróður Erlendar á Þorgríms- stöðum. Móðir Sigríðar varStein- unn Jónsdóttir, systir Páls, langafa Eysteins og Jakobs Jónssona. Móðursystir Einars var Guðríður, móðir Péturs, sýslumanns í Búðar- dal, Skúla námsstjóra, og Pálínu Þorsteinsdóttur, móður Bjöms Guð- mundssonar lagaprófessors. Guð- laug var dóttir Guttorms, prófasts á Stöð, bróður Páls, afa Hjörleifs Gutt- ormssonar alþingimans og Sigurðar Blöndals skógræktarstjóra. Annar bróðir Guttorms var Björgvin, afi Helga Þorlákssonar sagnfræðings. Guttormur var sonur Vigfúsar, prests á Ási, Guttormssonar. Móðir Vigfúsar var Margrét Vigfúsdóttir, systir Guttorms, langafa Maríu, ömmu Hrafns Gunnlaugssonar. Systir Margrétar var Ingunn, lang- amma Þorsteins, skálds og ritstjbra, föður Gylfa, fv. menntamálaráö- herra. Móðir Margrétar var Bergljót Þorsteinsdóttir, systir Hjörleifs, langafa Einars Kvarans. Bróðir Bergljótar var Guttormur, langafi Þórarins, föður Kristjáns Eldjárn. Móðir Guðlaugar var Þórhildur Sig- urðardóttir, b. á Harðbak á Sléttu, Einar Þór Þorsteinsson. Steinssonar, b. á Harðbak, Hákon- arsonar. Móðir Steins var Þórunn Stefánsdóttir, prests á Prestshólum, Scheving, bróður Jórunnar, ömmu Jónasar Hallgrímssonar. Til hamingju með afmælið 21. janúar 85 ára 50 ára Árni Lárusson, Haga, Skeggjastaðahreppi. Magnús J. Þórðarson, Hafharstræti 4, ísafirði. Guðmundur Sigurjónsson, Brekkubraut 18, Akranesi. 80 ára 40 ára Magnús ögmundsson, GaltafelU, Hrunamannahreppi. Geir Einarsson, Suöur-Fossi, MýrdalshreppL Sofifia Ásgeirsdóttir, Háalundi 7, Akureyri. HaUdóra Ólafsdóttir, Bólstað, Austur-Landeyjum. Auður Þorvaldsdóttir, Garöabraut 33, Akranesi. Eyþór Örn Óskarsson, Pólgötu 5, ísafiröi. Valdis Oddgeirsdóttir, 75 ára Jón Húnfjörð Jónasson, Fannafold 22, Reykjavík. Marga Guðmundsdóttir, Tjamarbóli 14, Seltjamamesi. Goðheimum 5, Reykjavik. Jóakim Tryggvi Andrésson, Austurvegi 33, SelfossL Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Hringbraut 37, Reykjavík. Tii hamingju með afmælið 22. janúar 85 ára 60 ára Líney Björnsdóttir, Héöinshöföa 1A, Tjörneshreppi. Guðmundur Magnússon, Holtavegi, Engjabæ, Reykjavík. Ármann Þórðarson, Ægisgötu 1, Ólafsfirði. 80 ára Jóhann Helgi Stefánsson, Lækjargötu 9A, Siglufírði. Hjörieifur Vilhjálmsson, TungufelU, Lundareykjadals- hreppi. 50 ára Hafsteinn Guðnason, Faxabraut 50, Keflavík. Aðalbjörg Ingvarsdóttir, Brekkubyggð 34, Blönduósi. 75 ára 40 ára Anna Guðjónsdóttir, TjamarbóU 14, Seltjarnamesi. Hún tekur á móti gestum á af- mælisdaginn hjá dóttur sinni og tengdasyni að Kaplaskjólsvegi 85, Reykjavík. Sigríður E. Bergmann, Vesturbergi 134, Reykjavík. Kristín Finnsdóttir, Týsgötu 1, Reykjavík. Guðrún Sigurðardóttir, Gilsbakka 1, BíldudalshreppL Benjamín Baldursson, Ytri-Tjömum 11, Öngulstaða- hreppi. 70 ára Karl Július Eiðsson, Laugavegi 159A, Reykjavík. Einar Sturluson, ÆsufelU 4, Reykjavík. Gunnlaugur Magnússon,. Sunnuvegi 8, HafnarfirðL Ólafur Björnsson, Krithóli 2, Lýtingsstaðahrep'pL Páll Scheving Páll Scheving, fyrrv. verksmiðju- stjóri og bæjarfulltrúi í Vestmanna- eyjum, til heimilis að Hraunbúðum, dvalarheimih aldraðra í Vest- mannaeyjum, er áttatíu og fimm ára ídag. PáU fæddist í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. Hann hóf nám í raf- virkjun og vélgæslu hjá Rafveitu Vestmannaeyja árið 1919 og lauk námi í báðum greinunum 1923. Að námi loknu starfaði hann m.a. hjá Vélsmiðjunni Héðni í Reykjavík og var síðar yfirverkstjóri í síldarverk- smiðju á Djúpuvík, auk þess sem hann vann við rafvirkjun á Siglu- firði. PáU stundaði útgerð á árunum 1930-36 og var síðan vélstjóri hjá ísfélagi Vestmannaeyja í sjö ár. Þá réðst hann fil Lifrarsamlags Vest- mannaeyja en þar var hann vél- stjóri og verksmiðjustjóri í þijátíu ár. PáU var afbragðs íþróttamaður og setti hann íslandsmet í langstökki og hástökki. Hann var einn af stofn- endum Týs, fyrsti ritari félagsins og er nú heiðursfélagi þess. Þá var hann meðal stofnenda Vélstjórafé- lags Vestmannaeyja og fyrsti for- maður þess. Hann var formaður Sjálfstæðisfélags Vestmannaeyja 1951-64. Hann átti sæti í bæjarstjóm Vestmannaeyja 1954-62 og í bæjar- ráðisíðustuárin. Kona Páls var Jónheiöur Stein- grímsdóttir Scheving, f. 24.7.1907, d. 25.12.1974, dóttir Steingríms Páls- sonar og Helgu Guðrúnar Einars- dóttur. Börn Páls og Jónheiðar: Helga Rósa Scheving, f. 15.12.1930, fulltrúi hjá borgarfógetaembættinu í Reykjavík, en hún á fimm börn; Sig- urgeir Scheving, f. 8.1.1935, leik- stjóri, en hann á þrjú börn; Margrét Scheving, húsmóðir, en hún á fjögur börn. Systkini Páls, sem upp komust, vom Guðjón Scheving, málara- meistari og kaupmaður í Vest- mannaeyjum, afi Hreins Loftssonar lögfræðings; Anna Scheving, hús- móðir í Reykjavík, og Sigurður Scheving, verslunarmaður og skrif- stofumaður. Faðir Páls var Sveinn Scheving, hreppstjóri í Vestmannaeyjum, Pálsson Scheving, formanns í Görð- um í Mýrdal, Vigfússonar Scheving, b. í Görðum, Vigfússonar, b. á Hellu í Mýrdal, Jónssonar, klausturhald- ara á Reynistað, Vigfússonar. Móðir Vigfúsar var Þórunn Hannesdóttir, sýslumanns Scheving, en seinni Páll Scheving. maður hennar var Jón Steingríms- son „eldklerkur". Systir Vigfúsar var Karitas, langamma Þorsteins, langafa Karitasar, móður Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra. Karitas var einnig formóðir Erlends Einarssonar, fyrrv. forstjóra SÍS, Hólmfríðar Karlsdóttur og Ingi- bjargar Rafnar, konu Þorsteins Pálssonar. Kona Sveins og móðir Páls var Kristólína Bergsteinsdóttir, b. á Fitjamýri undir Eyjafjöllum, Ein- arssonar. Móðir Bergsveins var Sig- ríður Auðunsdóttir, prests á Stóru- völlum, Jónssonar, bróður Arnórs, prófasts í Vatnsfirði, langafa Hannibals Valdimarssonar, föður Jóns Baldvins. Ófeigur Ófeigsson Ófeigur Ófeigsson, b. í Næfurholti í Rangárvallahreppi, varð sjötíu og fimmáraígær. Ófeigur fæddist í Næfurholti og ólst þar upp en þar hefur hann átt heima alla sína tíð, að undanskild- um sex árum á fjórða áratugnum er hann var á vertíð í Vestmanna- eyjum. Hann stundaði öll almenn sveitastörf sem unglingur og tók við búi foreldra sinna í Næfurholti ásamt Geir bróður sínum og Jónínu systur sinni 1944. Ófeigur átti fjögur systkini en yngsta systir hans er látin. Systkini Ófeigs: Guðrún Laufey, f. 11.2.1911, húsfreyja í Hólum í Rangárvalla- hreppi, gift Haraldi Runólfssyni, b. þar; Geir, f. 3.4.1916, b. í Næfur- holti; Jónína, f. 3.4.1916, búsett í Næfurholti, en sonur hennar er Ófeigur Ófeigsson, b. í Næfurholti, í sambýli við Halldóru Hauksdóttur og eiga þau einn son, og Ragnheið- ur, f. 1.5.1920, d. 17.4.1970, gift Kára Valssyni (Karel Vorovka), presti í Hrísey. Foreldrar Ófeigs voru Ófeigur Ófeigsson, f. 23.8.1877, d. 8.6.1924, b. í Næfurholti, og kona hans Elín Guöbrandsdóttir húsfreyja, f. 8.4. 1881, d. 24.4.1956. Föðurforeldrar Ófeigs voru Ófeig- ur Jónsson, b. í Næfurholti, og kona hans, Guðrún Jónsdóttir. Ófeigur var sonur Jóns, b. í Árbæ, Jónsson- ar, b. í Selsundi, Jónssonar, b. þar, Hannessonar, b. á Seljalandi í Fljótshverfi, Ásbjörnssonar, lög- réttumanns í Kerlingardal í Mýrdal, Jónssonar. Guðrún var dóttir Jóns, b. í Næfurholti, Jónssonar, b. í Sel- sundi, Jónssonar, bróður Jóns í Árbæ. Móðursystir Ófeigs var Rósa, móðir Hauks Morthens söngvara og Kristins Ustmálara, föður Bubba Morthens. Elín var dóttir Guð- brands, b. á Tjörvastöðum á Landi, bróður Sæmundar, afa Guðrúnar hæstaréttardómara og Sigríðar sagnfræðings Erlendsdætra. Systir Guðbrands var Guðrún, langamma Guðlaugs Tryggva hagfræðings. Ofeigur Ofeigsson. Önnur systir Guöbrands var Guö- rún yngri, langamma Halldórs Björns Runólfssonar hstfræðings. Þriðja systir Guðbrands var EUn, amma Kára Þóröarsonar, rafveitu- stjóra í Keflavík. Guðbrandur var sonur Sæmundar, b. á Lækjarbotn- um, Guðbrandssonar og konu hans, Katrínar Brynjólfsdóttur ljósmóð- ur, ættforeldra Lækjarbotnaættar- innar. Bróðir Sæmundar var Guð- brandur, langafi Guðmundar Daní- elssonar rithöfundar. V •

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.