Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989. Úflönd Ronald Reagan, fyrrum Bandarikjaforseti, óskar George Bush, forseta Bandaríkjanna, til hamingju meö nýja embættiö eftir að sá siðarnefndi sór embættiseið í gær. Á milli þeirra sést aftan á Barböru Bush forsetafrú. Símamynd Reuter Bush er tekinn við Steinunn Bodvarsdóttir, DV, Washington: „Eg óttast ekki hvaö framtíðin ber í skauti sér. Vandamál okkar eru stór en hjarta okkar er stærra. Verkefnin eru mikil en vilji okkar er þeim mun meiri.“ Á þennan hátt lauk George Herbért Walker Bush, 41. forseti Bandaríkjanna, ræöu sinni í gær er hann tók formlega viö forsetaemb- ættinu af Ronald Reagan. í ræöu sinni rétti Bush fram sátta- hönd til þingmanna löggjafarþings- ins og hvatti til samvinnu um aö leysa þau vandamál sem bíða banda- rísku þjóðarinnar. Hann lagöi áherslu á varanleika þess sem áunn- ist hefur síðastliöin átta ár og þakk- aði Reagan fyrir þjónustu sína við Peningamarkaöur INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 3-5 Vb.lb Sparireikningar 3jamán. uppsogn 2-6 Vb 6mán. uppsogn 2-7 Vb 12 mán. uppsogn 3,5-5 Lb. 18 mán. uppsogn 8 Ib Tékkareikningar. alm. 1 Allir Sértékkareiknmgar 1-6 Vb Innlán verötryggö Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1-2 Vb 6 r.ián uppsogn 2-3,5 Sp.Ab,- Vb.Bb Innlán með sérkjörum 3,5-11 Úb Innlán gengistryggð Bandarikjadalir 7,5-8,75 Ab Sterlingspund 11-12,25 Úb.Ab Vestur-þýsk mork 3,75-5 Ab Danskar krónur 6.75-8 Vb.Sb,- Ab ÚTLÁNSVEXTIR (%) íægst Útlán óverðtryggð Almennir vixlar(forv) 11-15 Vb Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 12-12,5 Vb Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir , Hlaupareikningar(yfirdr ) 14,5-17 Úb.Vb Utlan verötryggð , Skuldabréf 8-8,75 Vb Utlán til framleiðslu isl. krónur 12-12,5 Lb.Sb,- Bb.Úb SDR 9.5 Allir Bandaríkjadalir 11-11,5 Úb Sterlingspund 14,50- allir 14,75 nema Úb Vestur-þýskmórk 7,25-7.5 allir* nema Húsnæðislán 3.5 Úb Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 21,6 MEÐALVEXTIR överðtr.jan.89 12,2 Verðtr. jan. 89 8.1 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitalajan. 2279 stig Byggmgavisitalajan 399,5 stig Byggingavísitalajan. 125,4 stig Húsaleiguvísitala Engin hækkun Verð- stoðvun VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 3,442 Einingabréf 2 1.933 Einingabréf 3 2,237 Fjólþjóðabréf 1,268 Gengisbréf 1,586 Kjarabréf 3,442 Lífeyrisbréf 1.727 Skammtimabréf 1.197 Markbréf 1,828 Skyndibréf 1,053 Sjóðsbréf 1 1.644 Sjóðsbréf 2 1,381 Sjóðsbréf 3 1,168 Tekjubréf 1,557 HLUTABRÉF Soluverð að lokinni jofnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 130 kr. Eimskip 380 kr. Flugleiðir 288 kr. Hampiðjan -155 kr. Hlutabréfasjóður 151 kr. Iðnaðarbankinn 177 kr. Skagstrendingur hf. 200 kr. Útvegsbankinn hf. 134 kr. Verslunarbankinn 146 kr. Tollvörugeymslan hf. 126 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaupa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast í DV á fimmtudögum. bandarísku þjóðina. En hann lét jafn- framt í þaö skína aö breytinga væri þörf. Ræða Bush var jákvæö og full bjartsýni. Hann nefndi einnig mörg þau alvarlegu vandamál sem þarfn- ast úrlausnar: vanda þeirra sem minna mega sín, heimilislausra og fátækra, barna og hinna öldruðu. Lítið var um loforð í ræðu forsetans en hann hét því þó að uppræta og binda enda á hina stórauknu fíkni- efnaneyslu í Bandaríkjúnum. Samskipti stórveldanna bar á góma í ræðu hins nýja forseta eins og búist hafði verið við. Hann hét áfram- haldandi samvinnu þeirra á alþjóða- vettvangi en einnig áframhaldandi uppbyggingu hemaðarstyrks Banda- ríkjanna. Bush minntist líka á þau verkefni, sem fram undan eru í utan- ríkismálum, og gaf til kynna hertar aðgerðir í baráttunni fyrir auknu lýðræði í heiminum. Lýðræði og mannréttindi em að fá yfirhöndina, sagði forsetinn, tími einræðisherr- anna er liðinn. Vígsluhátíð Bush markar tímamót í sögu Bandaríkjanna. í ár eru tvö hundrað ár liðin frá því fyrsti forseti Steinunn Boðvaisdóttix, DV, Washington: í gær lét Ronald Wilson Reagan af embætti forseta Bandaríkjanna eftir átta ára valdatíð. Þegar á heildina er litið hefur forsetatíð hans þó verið góður tími fyrir Bandaríkin. Þegar Reagan tók við embætti hét hann ábyrgð í ríkisfjármálum og hallalausum fjárlögum. Þess í stað hafa þjóðarskuldirnar aukist um 170 prósent og fjárlagahalli þessa árs er áætlaður hundrað og sextíú milljónir dollara. Efnahagslífið í blóma Á móti kemur að efnahagurinn virðist nú standa traustum fótum. Árið 1981 og 1982 gekk yfir versti samdráttur í bandarísku efnahagslífi síðan á fjórða áratugnum. Harkaleg- ar efnahagsaðgerðir Reagans sneru dæminu við og hagvöxtur hefur nú staðiö í efnahagslífinu á sjöunda ár. Atvinnuleysi er nú 5,3 prósent, hið minnsta í fjórtán ár, og verðbólgan er innan viöráðanlegra marka, eöa 4,4 prósent. En „efnahagsundrið" -kostaði sitt. Félagslegar aðgerðir féllu í gleymsk- unnar dá og vandi fátækra og heimil- islausra hefur margfaidast. Fimmt- ungur barna í Bandaríkjunum lifir nú í fátækt og um tvær milljónir manna era heimilislausar á nóttu hverri. Fíkniefnavandinn er orðinn að einhverju alvarlegasta vandamáli sem Bandaríkin hafa þurft að glíma við og glæpum hefur fjölgað mjög. Stórsigrar í afvopnunarmálum Hápunktur ferils Reagans er undir- ritun afvopnunarsáttmála stórveld- anna í Washington í desember 1987. í þeim sáttmála er gert ráð fyrir, í fyrsta sinn í sögunni, eyðingu tveggja flokka kjarnorkuvopna. En sáttmáli þessi er einnig merkur fyrir aðrar sakir. Hann hefur lagt grundvöllinn að frekari afvopnun í framtíöinni og leitt til bættra samskipta Bandaríkj- anna og Sovétríkjanna, þjóðar sem forsetinn kallaði eitt sinn „heims- veldi hins fila“. Stór þáttur í utanríkisstefnu Reag- ans var efling herafla landsins. Hann stóð fyrir einhverri mestu uppbygg- ingu herafla lýöræðisríkis í manna þjóðarinnar, George Washington, sór embættiseið. Tfi að leggja áherslu á mikfivægi varanleika og lýðræðið, sem einkenni sögu landsins, var nú notuð sama Biblían og þegar Was- hington sór eiðinn árið 1789. Innsetningarathöfninni var sjón- varpað beint um gjörvöll Bandaríkin og sýnd á öllum stærstu sjónvarps- stöðvunum. Hátíðarhöldunum, sem minnum. En hann var einnig spar á aö nota herinn nema í örfáum tilfell- um. Eitt þessara tfifella var árás á höfuðstöðvar Gaddafis, leiðtoga Líbýu, í apríl 1986. Skin og skúrir Meginstefna Reagans í utanríkis- málum var að hindra útbreiðslu kommúnismans og efla lýð'ræði. Afg- anistan og Angola virðast ætla að reynast rós í hnappagat Reagans en margt annað hefur mistekist. í baráttunni gegn hryðjuverkum hefur Reaganstjórnin mátt þola bæði vonbrigði og velgengni. Fyrir þrem- ur áram lést tvö hundruð fjörutiu og einn bandarískur hermaður í Beirút og tvö hundrað fimmtíu og niu farþegar létust þegar farþegaþota bandaríska flugfélagsins Pan Am var á eftir fylgdu, var einnig sjónvarpað tfi að veita sem flestum íbúum þjóö- arinnar tækifæri tfi að taka þátt í þessari merku athöfn. Bandaríska þjóðin var í hátíðar- skapi í gær. Um eitt hundrað og fjörutíu þúsund manns fylgdust með þegar Bush og Dan Quayle varafor- seti sóru eiða sína fyrir framan lög- gjafarþing þjóðarinnar í Washing- sprengd í loft upp yfir Skotlandi í síðasta mánuði. I báðum tilvikum var um hryðjuverk aö ræða. En Bandaríkin hafa einnig unniö á í þessari baráttu. Vegna þrýstings Reaganstjórnarinnar hafa frelsis- samtök Palestínu afneitaö hryðju- verkum og sest að samningaborðinu til að freista þess að ná samkomulagi um frið í Mið-Austurlöndum. Einn vinsælasti forseti sögunnar Reagan yfirgaf Hvíta húsið með stuðning yfirgnæfandi meirhluta bandarísku þjóðarinnar á bak við sig. 65 prósent þjóðarinnar eru á- nægö með störf hans á forsetastóli og svipað hlutfall telur þjóðina mun betur á vegi stadda nú en áður en hann tók við embætti forseta. Enginn ton. Jafnvel veðurguðirnir voru samvinnuþýðir, veður var kalt en nokkuð stillt mestalla athöfnina. Borgin er skreytt í fánalitunum, rauöu, bláu og hvítu, og blóm og fán- ar skrýða göturnar. Þessa dagana ríkir bjartsýni í Bandaríkjunum. íbúar landsins líta framtíðina björtum augum með George Bush við stjómvölinn. forseti frá stríðslokum hefur verið jafnvinsæll við lok ferils síns og Re- agan. Hann átti stóran þátt í að repú- blikanar halda völdum í Hvíta hús- inu þriðja kjörtímabilið í röð og jafn- vel gagnrýnendur hans vlðurkenna áö hinn aldni forseti endurvakti traust almennings á forsetaembætt- inu. Það eitt er í sjálfu sér stórvirki. Ekki má gleyma því að þau álög hafa verið á Hvíta húsinu frá árinu 1840 að allir forsetar, sem kjörnir hafa verið á heilum tug, hafa dáið í embætti. Er skemmst að minnast þess að bæði Lincoln og Kennedy voru myrtir en þeir voru einmitt kjörnir í embætti 1860 og 1960. Reag- an er fyrstur þeirra sem kjörnir eru á heilum tug sem sleppur lifandi út úr Hvíta húsinu. Ronald Wilson Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseti, lítur yfir skrifborð sitt i forsetaskrifstofunni i Hvita húsinu í gær i siðasta sinn sem forseti, skömmu áður en hann hélt ásamt George Bush, eftirmanni sínum, til þinghússins i Washington þar sem sá síðarnefndi sór embættiseið sem forseti Bandaríkjanna. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.