Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989.
Persónuleikapróf
Óttast þú
dauðann?
Sumir hafa dag hvern ahyggjur af dauðanum.
Allir menn eru dauðlegir. Dauðinn
er það eina sem menn geta gengið
að sem vísu í lífinu. Flestir eiga það
einnig sameiginlegt að óttast dauð-
ann þótt sá ótti sé mismikill. Ef til
vill er þetta ekki ótti við dauðann
heldur það óþekkta. eitthvað sem er
t vændum en enginn veit livaö er.
Sumir óttast líka erfitt dauðastríð.
Hér á eftir fylgja 30 fullyrðingar
um dauðann. Þeim er skipt í tvo
hluta. Fyrir fullyrðingar fra l til 11
eiga eftirfarandi möguleikar viö:
Aldrei = 1 stig
Sjaldan = 2 stig
Stundum = 3stig
Oft = 4 stig
Fyrir fullyrðingar frá 12 til 30 eiga
þessir möguleikar við:
Sammála = 1 stig
Að nokkru sammála = 2 stig
Að nokkru ósammála = 3 stig
Ósammála = 4stig
Færðu þau stig sem þú gefur þér inn
í reitina á eftir hverri fullyrðingu.
Fyrri hluti
1. Ég hugsa um minn eigin dauða.
(...)
2. Ég hugsa um dauða þeirra sem ég
þekki.
(...)
3. Ég hef hugsaö um það að deyja
ung(ur).
(...)
4. Ég hef hugsað um þann möguleika
að látast í bílálysi.
(...)
5. Ég læt oft hugann reika um minn
eigin dauða.
(...)
6. Ég hugsa aðeins um dauðann áður
en ég fer að sofa.
(...)
7. Ég hugsa urn viðbrögð ntín við
fréttum af dauðvona kunningja.
(...)
8. Ég hugsa um.hvernig ættingjar
mínir mundu bregöast við dauða
mínum.
(...)
9. Þegar ég veikist hugsa ég um dauð-
ann.
(...)
10. Ef ég lendi í illviðri hugsa ég um
þann möguleika að verða úti.
(...)
11. Þegar ég er í bíl hugsa ég um bíl-
slys.
(...)
Síðari hluti
12. Mér frnnst að fólk eigi ekki að
hugsa um dauðann fyrr en á gamals
aldri.
(...)
13. Ég hugsa meira um dauðann en
aðrir sem ég þekki.
(...)
14. Dauðinn veldur mér ekki áhyggj-
um.
(...)
15. Viðhorf mitt til lífsins er það já-
kvætt að dauðinn kemst þar ekki að.
(...)
16. Möguleikinn á að ég láti lífið vek-
ur með mér ótta.
(...)
17. Ég verð þunglynd(ur) af að hugsa
um dauöann.
(...)
18. Ég óttast að einhver mér nákom-
inn deyi.
(...)
19. Vissan um dauðann veldur mér
engum áhyggjum í daglegu lífi.
(...)
20. Ég ímynda mér að dauðinn sé
erfiður líkt og martröð.
(...)
21. Ég er hrædd(ur) við að deyja.
(...)
22. Ég hugsa um dauðann sem hræði-
legt ástand.
(...)
23. Það snertir mig ekkert að sjá opna
gröf.
(...)
24. Ég fyllist kvíða þegar ég hugsa til
þess hvað lífið er stutt.
(...)
25. Það er sóun á tíma að hugsa um
dauðann.
(...)
26. Það er enginn harmleikur þegar
gamalt fólk deyr.
(...)
27. Dauöinn gerir líf manna að merk-
ingarleysu.
(...)
28. Dauði einstaklinganna er nauð-
synlegur til að samfélag manna geti
þróast.
(...)
29. Ég lifi í þeirri trú að líf sé eftir
dauðann.
(...)
30. Það skiptir mig engu hvort líf er
eftir dauðann eða ekki.
(...)
Niðurstaða
Áður en þú leggur stigin saman verð-
ur þú að breyta stigunum fyrir eftir-
farandi spurningar: 13, 16, 17,18, 20,
21, 22, 24, 27, 29 Og 30.
Ef þú gafst þér 1 stig þá færðu 4
Ef þú gafst þér 2 stig þá færðu 3
Ef þú gafst þér 3 stig þá færðu 2
Ef þú gafst þér 4 stig þá færðu 1
Þegar þú hefur gert þessar breyting-
ar leggur þú öll stigin saman og berð
niðurstöðuna við greininguna hér á
eftir.
Greining
81 til 120 stig
Þér er heldur illa við að hugsa um
dauðann og líður illa þegar þú gerir
það. Líklegast er að þú hafi verið á
báðum áttum hvort þú ættir að taka
prófið vegna þess að þér er ekki sama
um viðfangsefnið.
Þetta kann að stafa af því að þér
hættir til að óttast allt sem þú þekkir
ekki og foröast að hugsa um það sem
kemur þér úr jafnvægi. Það er líklegt
að þú þurfir mikinn stuðning frá
öðrum ef þú lendir í áföllum.
68 til 80 stig
Það getur verið að þú óttist dauðann
vegna reynslu sem þú hefur sjálf(ur)
lent í. Samt bendir flest til að þú
hafir yílrhöfuð ekki miklar áhyggjur
af dauðanum. Það er vel líklegt að
þú hafir komið þér upp heimspeki-
legri afstöðu til dauðans án þess að
hann snerti þig sérstaklega. Þú eyðir
því ekki miklum tíma í að hugsa um
dauðann.
30 til 67 stig
Þú viðurkennir ekki að óttast dauö-
ann. Vel getur verið að þú sér sátt-
(ur) við dauðann eða að þú hafir ör-
ugga vissu um líf eftir dauðann. Það
getur líka verið að þú óttist dauðann
svo mikið að þú þorir alls ekki að
viðurkenna að þig varði nokkuð um
hann.
Ef til vill kemur það illa við þig að
vita að sumt í líft þínu færð þú ekk-
ert við ráðiö. Viðbrögð þín eru að
hugsa ekki um málið.
ERÞAÐ 1 EÐA X EÐA 2 36
A Sverrir Hermannsson gaf tveimur ráöherrum samheitiö
„rauðkembingar“. Heitið er annars notað um:
1: rauðhærða menn
X: illhveli
2: fyrrverandi kommúnista
B Grásleppukarlar á Breiðafirði hafa átt í útistöðum við yfir-
völd. Astæðan er að þeir:
1: gleymdu að draga upp netin
X: þola ekki sjávarútvegsráðherra
2: veiddu bara rauðmaga
C Alfreð Gíslason handboltamaður spretti úr spori um síð-
ustu helgi. Hverju náði hann?
1: boltanum
X: skemmdarvörgum
2: dómaranum
D
Félag nokkurt í Reykjavík notar þetta merki.
Það heitir:
1: Gufuskipafélag íslands
X: Sjóflutningafélag íslands
2: Eimskipafélag íslands
E Tveir flokksformenn halda tíða fundi um þessar mundir.
Fundaherferðin ber yfirskriftina:
1: Árekstur
X: Á rauðu ljósi
2: Rauðu ljósin
F Efsta liðið í fyrstu deild ensku knattspyrnunnar heitir:
1: Arsenal
X: Scunthorpe
2: Liverpool
G /jjjt Þessi náungi er oft brúnaþungur í teiknimynda-
sögu í DV. Hann heitir:
T-á jf 1: Venni vinur
\ A X: Mummi meinhorn
2: Finnur friðsami
H Málsháttur hljóðar svo. Sjaldan fellur eplið langt frá...
1: eikinni
X: eigandanum
2: ekkjunni
36
Sendandi ___________________________
Heimili _____________________________________________________
Rétt svar: A □ B □ C □ D □
E □ F □ G □ H □
Hér eru átta spurningar og hverri
þeirra fylgja þrír möguleikar á réttu
svari. Þó er aðeins eitt svar rétt við
hverri spurningu. Skráið réttar
lausnir og sendið okkur þær á svar-
seðlinum. Skilafrestur er 10 dagar.
Aðþeim
tímaliðnum
drögumvið
úrréttum
lausnumog
veitum ein
verðlaun.
Þaöereink-
ar handhægt ferðasj ónvarp af gerð-
inni BONDSTEC frá Opus á Snorra-
braut 29. Verðmæti þess er 8.900
krónur. Sjónvarpið er gert fyrir 220
volt, 12 volt og rafhlöður og kemur
því jafnt að notum í heimahúsum
sem fjarri mannabyggð.
Merkið umslagið 1 eða X eða 2,
c/o DV, pósthólf5380,125 Reykjavík.
Hér eftir verður aðeins einn vinn-
ingur veittur fyrir rétta lausn í get-
rauninni 1 eða X eða 2. Vinningshafi
í þrítugustu og górðu getraun
reyndistvera:
Þórný A. Baldursdóttir,
Lágholti 3,
340 Stykkishólmur.
Hún fær BONDSTEC sjónvarpið
frá Opus.
Vinningurinn verður sendur heim.
Rétt lausn var: l-X-X-1-1-2-1-2