Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR. 21, JANÚAR. 1989.
Fréttir
Lestur Passíusákna:
Sofnaði frá
lestrinum er
ég var ung
- segir Guðrún Ægisdóttir
„Ég heyrði Passíusálmana lesna í
útvarpi þegar ég var ung og minnist
þess að ég sofnaði oft frá lestrinum,"
segir Guðrún Ægisdóttir, kennari í
Laugaiandsskóla í Holtum.
Árviss undanfari páskanna er lest-
ur Passíusálmanna í útvarpi. Guð-
rún les sálmana hans Hallgríms Pét-
urssonar í ár ,og verður sá fyrsti af
50 fluttur i útvarpinu þann 23. jan-
úar.
„Þetta kom þannig til að Gunnar
Stefánsson hjá útvarpinu hringdi í
mig og bað mig um að lesa sálmana.
Ég sló til enda hef ég dálæti á Hall-
grími Péturssyni," segir Guðrún.
Guðrún var fyrir nokkrum árum í
viðtalsþætti með Hirti Pálssyni þar
sem Hjörtur fjallaði um Hallgrím
Pétursson. „Ég hafði nokkru áður
þýtt og flutt útvarpssögu, Frídag frú
Larsen, og í spjalli við Hjört barst
Hallgrímur í tal. Eldmóður og trúar-
hiti Hallgríms eru þættir í fari hans
sem ég tek aðallega eftir. í Passíu-
sálmunum eru það helst sjálfsásak-
anir Hallgríms sem eru eftirtektar-
verðar. Hann gerir sig mun verri en
hann í raun var en á vissan hátt tek-
ur Hallgrímur sjálfan sig sem sam-
nefnara mannkynsins," segir Guð-
Hún segir upptökur á lestrinum
hafa gengið vel. Þó fannst Guðrúnu
hún lesa of hægt. „Tæknimennirnir
fullvissuðu mig að svo væri ekki
enda engin ástæða til aö flytja Pass-
íusálmana á rapp-hraða."
-pv
Árekstur loönubátanna:
Sjópróf verða
líka í Keflavík
Sjóprófi vegna áreksturs loðnubát-
anna Jóns Kjartanssonar og Alberts
fyrr í vikunni verður framhaldið í
Keflavík næstu daga. Fyrir sjópróf á
Eskifirði mætti einungis áhöfn Jóns
Kjartanssonar en áhöfn Alberts er
farin til síns heima - Grindavíkur.
Sigurður Eiríksson, sýslumaður á
Eskifirði, segir að sjóprófiö, sem
hann hélt, hafi verið fyrir luktum
dyrum og því geti hann ekki gefið
upplýsingar um hvaö kom fram. Það
verður ekki gert fyrr en áhöfn Al-
berts hefur mætt í sjópróf.
Grétar Rögnvarsson, skipstjóri á
Jóni Kjartanssyni, vill taka fram að
rangt hafi verið eftir sér haft að al-
gengt væri að loðnubátar færu í
nætur hver annars. Grétar segir að
það komi fyrir - en sé alls ekki al-
Sólberg SH í brotsjó:
Siglingatæki
eyðilögðust
„Við fengum á okkur brotsjó
stjórnborðsmegin um hádegisbil í
fyrradag. Hurðin í brúnni eyðilagðist
og brúin fylltist af sjó. Sjórinn fór
niður í íbúðir og vélarúm. Við vorum
þrír á bátnum en enginn okkar slas-
aðist og við náðum að sigla sjálfir
heim þótt tækin væru ónýt,“ segir
Sævar Magnússon, stýrimaður á Sól-
berginu SH, 50 tonna stálbáti frá
Grundarfirði, við DV.
Sólbergið var að veiðum á miðjum
vestanverðum Breiðafirði, um 27
mílur frá Búlandshöfða, þegar þetta
gerðist. Þegar að landi var komið
hófust strax viögerðir á bátnum. Öll
tæki til viðgerðar voru send að sunn-
an og smíði nýrrar hurðar í brúna
var hafin. Sjór komst í ljósavélina
sem ekki gefur nægilegt rafmagn
þótt hún gangi.
-hlh
OPIÐ HUS • OPIÐ HUS • OPIÐ HUS • OPIÐ HUS • OPIÐ HUS • OPIÐ HUS • OPIÐ HUS
HJA TOLVUFRÆÐSLUNNI
SUNNUDAG 22. JAN.
13 - 17
Tölvufræðslan kynnir í clag starfsemi
sína með skemmtilegri og
fjölbreyttri dagskrá fyrir alla
fjölskylduna.
Verið velkomin og þiggið hjá okkur
kaffisopa og léttar veitingar um leið og
þið kynnist þeim margháttuðum nám-
skeiðum sem Tölvufræðslan býður
upp á.
-M.
ö
Takið þátt í stuttu,
^ skemmtilegu og ókeypis
p tölvunámskeiði.
Kynning á námskeiðum
Tölvufræðslunnar.
Tölvuleikir
verða
í tölvunum.
Sýning á glæsilegum
íslenskum
tölvubókum.
Friðrik Skúlason
kynnir bráð-
skemmtilegt
ættfræðiforrit.
„Frið
♦
Kaffi, gos og léttar
veitingar.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28, s. 68 75 90 & 68 67 90
OPIÐ HUS • OPIÐ HUS • OPIÐ HUS • OPIÐ HUS • OPIÐ HUS • OPIÐ HUS • OPIÐ HUS •
„Gefðu mér eina góða ástæðu
til að fljúga með Arnarflugi
til Schiphol í Amsterdamý
Leyfðu mér að gefa þér þrjár“
^sterdamai
I fyrsta lagi lendir Arnarflugs-
vélin á hádegi þannig að þú átt kost
á fjölmörgum tengiflugum með KLM.
í öðru lagi er allt undir einu þaki á
Schiphol og því mjög auðvelt og fljótlegt
að fara á milli véla.
Síðast en ekki síst, meðan þú bíður
eftir tengifluginu getur þú gert
góð kaup í stærstu og ódýr-
ustu fríhöfn Evrópu. Við
köllum það 100.001 tollfrjálst
tilboð.
Traust flugfélag KJLIVI
Royal Dutch Airlines