Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Blaðsíða 10
10
LAUGARDAGUR 2J. JANÚAR 1989.
Breiðsíöan
DV
Jörundur og Magnús Ólafs:
Ætla að endur-
vekja grínið
„Markaöurinn fyrir skemmti-
krafta er alltaf aö minnka," segir
Magnús Ólafsson sem engu að síður
er aö leggja upp í nýja skemmtidag-
skrá ásamt Jörundi Guömundssyni.
Magnús sagöi að vegna þess hversu
veitingahúsin berjast í bökkum bjóöa
þau upp á eigin skemmtidagskrár og
bjóöa fyrirtækjum að halda árshátíð-
ir sínar á stööunum. „Þetta hefur
verið aö aukast sl. þrjú ár og maður
finnur greimlega fyrir þessu í jóla-
vertíöinni. íslensku jólabölhn eru
mjög á undanhaldi," sagöi Magnús.
Þeir Magnús og Jörundur hafa
undanfarnar vikur verið í óðaönn að
skipuleggja nýja skemmtidagskrá
þar sem þeir koma fram í tíu hlut-
verkum. „Stjórnmálamenn okkar
setja allnokkurn svip á dagskrána.
Eftirherman Jörundur mun setja sig
í búninga þeirra og munum viö fylgj-
ast meö pólitíkinni dag frá degi og
breyta dagskránni samfara því,“
sagöi Magnús. Margar nýjar persón-
ur munu líta dagsins ljós svo sem
Dóna Ingiríður, sem rekur kynlífs-
fræöslunámskeið í Hafnarfirði. „Hún
mun halda fyrirlestur og gefa kyn-
lífsráðleggingar. Dúddi Dalamaður,
sem margir þekkja úr þáttunum í
hjarta borgarinnar, mun koma fram
auk margra annarra."
Magnús sagöi að þeir félagar ætli
aö bjóöa upp á „local“ skemmtiatriði
starfsfólks fyrirtækja ef þess væri
óskað. „Menn vilja nú alltaf grínast
meö náungann. Viö höfum líka oft
orðiö varir við það í gegnum árin að
enginn vill taka að sér aö vera veislu-
stjóri. Á árshátíðum úti á landi getur
það verið í okkar höndum,“ sagði
Magnús og er ljóst að þeir félagar
ætla aö leggja mikið upp úr dagskrá
sinni og endurvekja grínið á böllun-
um.
Magnús Ólafsson er að halda upp
á tíu ára starfsafmæli sitt í skemmti-
bransanum en Jörundur hefur
skemmt landanum í tuttugu ár.
„Samanlagt höfum við þrjátíu ára
reynslu á þessu sviði,“ sagöi Magn-
ús, kannski best þekktur sem Þorlák-
ur þreytti og Bjössi bolla. Magnús
hefur einmitt ákveðið að dusta rykið
af þeim síðarnefnda fyrir sjónvarps-
þætti.
-ELA
Þú ert 2000
krónum ríkari!
Bömin í ísaksskóla kunnu sannar-
lega vel að meta snjóinn sem kyngdi
niður 1 vikunni. Sannarlega hraustir
og sniðugir krakkar. Sá sem liggur
fremstur með alla halarófuna á eftir
sér viröist ekki kippa sér upp við þó
runan ætli alveg yfir hann. Stráksi er
því verðlaunaður þessa vikuna og fær
hring um höfuö sér. Hann má vitja
peninganna á ritstjórn helgarblaðs
DV, Þverholti 11.
-ELA
Jörundur og Magnús Ólafs.