Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989. Heimildarmynd um þróun tónlistar á íslandi: Fornmenn syngja í kvikmynd ..Við sýnum ef til vill ekki ná- kvæmlega fram á hvernig fornmenn sungu en reynum aö komast eins nærri því og hægt er." segir Njáll Sigurðsson tónfræðingur. sent und- anfarið hefur aðstoðað Pál Stein- grímsson við gerð heimildarmyndar um tónlist á Islandi frá upphafi og til okkar daga. Þegar er búiö að taka upp um einn þriðja af mvndinní og Páll gerir ráð fyrir að ljúka öll'u verk- inu fyrir lok þessa árs. ..Þegar heimildir hrökkva til þá reynum við að flétta þá tónlist inn í myndina." segir Njáll. ..Það elsta sent varðveitt er hér eru kaþólskir frá því seint á miðöldum. Þegar komiö er fram á prentöld er hægt að styðjast við nótur úr prentuðum bókum. Viö tjöllum einnig um rímnakveðskap. gömlu danshefðina og þau lög sem henni tengjast. Viö segjum einnig frá fyrstu menntuðu tónlistarmönnun- um og þróuninni fram á okkar daga." Kristinn Sigmundsson óperusöngvari veröur sögumaöur í myndinni. Fiöluleikur í Byggðasafninu á Skógum. Njáll Sigurðsson, Sigurður Jónsson, öðru nafni Diddi fiðla, og Þórður Tómasson safnvörður. DV-myndir Ragnar S. Upptökur í mörgum löndum Myndin er tekin upp víða á íslandi og einnig í nálægum löndum. Þegar er búið að taka upp hluta sem gerist á Grænlandi og í Færeyjum og trú- lega verður farið víðar á þessu ári. Fvrir skömmu var tekinn upp leikur á langspil og íslenska flðlu í byggða- safninu á Skógum undir Eyjafjöllum þar sem Þórður Tómasson safnvörð- ur varðveitir langspil. ..Njáll Sigurðsson er sérfróður um forna norræna og íslenska tónlist." sagði Páll Steingrímsson í samtali við DV. „Hann leggur okkur línurnar enda manna fróðastur um forna tón- list og hefur ákveðnar hugmyndir um þróun hennar. í myndinni reyn- um við að færa sönnur á þessa þró- un." Galdrasöngur á Grænlandi „Þetta er leikin heimildarmynd og við setjum þekkta atburði úr sögunni á svið. Það er Lárus Ýmir Óskarsson sem leikstýrir þeim atriðum. Við sækjum allt í þekktar heimildir og notum þekktar sögupersónur. f Grænlandi létum við Guðríði Þor- bjarnardóttur, kvenhetjuna í Eiríks Diddi fiðla og Þórður Tómasson rifja spilið hefur Þórður smiðað. sögu rauða. kveða varlokur við Hvalseyjarkirkju. Þetta er galdra- söngur sem sagt er frá í Eiríks sögu. í myndinni er sögumaður sem fylg- ir henni allt í gegn. Það er Kristinn Sigmundsson óperusöngvari sem fer með það hlutverk og auk þess syngur hann ákveðin hlutverk." Allsherjargoðinn flyturVöluspá „Við sviðsettum Völuspá við stytt- una af Bárði Snæfellsás á Snæfells- nesi. Þar kvað Sveinbjörn Beinteins- son allsherjargoði fyrir okkur. Þjóð- dansafélagið dansar einnig fyrir okk- ur eldgamla dansa. Við reynum einn- ig að rekja áhrifin frá Þýskalandi og í gegnum Skandinavíu og jafnvel frá írlandi hingað." Myndin er gerð fyrir styrk úr kvik- myndasjóði og höfundar myndarinn- ar leggja á móti töluverðan hluta af vinnu sinni. Myndin er unnin hjá kvikmyndagerðinni Þumli. Hugmyndin að myndinni er komin frá Páli. „Ég var lengi búinn að ganga með þetta í maganum og ræða við tónskáld hér heima um hvort hægt væri að gera þetta,“ segir Páll. „Njáll kom fljótt til sögunnar sem helsti sérfræðingur í efninu. Ég ímynda mér að þetta veröi 45 til 50 mínútna löng mynd. Það hefur einnig komið til greina að gera úr efninu fjóra styttri þætti sem nota mætti sem kennslugögn. Annars en upp hvernig leikið er á langspil. Lang myndin í lengri útgáfunni hugsuð fyrir sjónvarp enda leggjum við mik- ið upp úr að myndskreyta öll atriði vel til að fólki leiðist ekki að horfa á þótt það hafi ekki brennandi áhuga á þróun tónlistar.“ Fiðlungurinn Diddi fiðla „Sigurður Jónsson, Diddi fiðla, er sérfræðingur okkar í að spila á göm- ul hljóðfæri. Hann getur spilað á allt sem gefur tón. Þegar við vorum að taka upp á Skógum þá kom raki á rúðuna og hann tók upp á því af strák sínum að spila lag á rúðuna meö fingrunum. Hann einn hefur lagt sig eftir að spila og gömlu íslensku fiðl- una og spilar einnig á langspil. En þetta er ekki bara gömul tónlist sem við segjum frá. Við ætlum að setja á svið á ný fyrstu tónleikana sem haldnir voru hér. Það var á Langalofti í Menntaskólanum í Reykjavík seint á síðustu öld. Viö endum myndina á íslenskri nútíma- tónlist sem byggir á gamalli hefð og ef við getum ætlum við að narra gamla Þursaflokkinn til að leika. Málið er að ná samfellu fram að deg- inu í dag,“ sagði Páll Steingrímsson. -GK Dana Crawford húsmóðir: Nei, ég veit ekkert um það land. Fransisco Villa blómaskreytinga- maður: ísland! Hvaða fyrirbrigði er nú það? Guido Somes verkamaður: Landið er kalt og þar er þétt byggö snjóhúsa. Amy Weisman, selur tölvur: ísland er norður af meginlandi Evr- Ólafur Gunnars heitir ungur ís- lendingur sem fór til Kaliforníu og hélt þar jól svona til tilbreytingar. Milli jóla og nýárs brá hann sér í blaðamannaleik í kvikmyndaborg- inni Hollywood og spurði staðar- menn, eins og íslendinga er siður, hvað þeir vissu um ísland. Spurt í kvikmyndaborginni Holly- wood í Kaliforníu þann 28. desember 1988. Getur þú sagt mér eina til tvær staðreyndir um ísland? - Dave Sanders tryggingasölumaður: Ég veit bara að landið er einhvers staðar norðvestur af Svíþjóð. ópu. Liggur það ekki nálægt Græn- landi? Mér skilst að þar sé mjög kalt og heilmikið af snjó og ég hugsa að þar sé prýðisfólk. Kevin Baker háskólanemi: Landið er norðvestur af írlandi úti á reginhafi. Ég veit að höfuðborgin heitir Reykjavík og ég mundi giska á að íbúarnir væru um átta milljónir. Texti og myndir: Ólafur Gunnars Þétt byggð snjóhúsa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.