Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Qupperneq 19
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989.
81
19
Vísnaþáttur
Þeir sem eiga á þingi sess
„Mörgum stjórnmálamanninum finnst þaö
liggja í augum uppi aö enginn geti átt rétt á
frelsi nema hann hafi aöstööu til aö hagnýta
sér það. Slík lífsregla gæti verið fundin upp
af kjánanum sem ákvaö aö fara ekki út í vatn
fyrr en hann heföi lært að synda."
Höfundur þessara oröa er Th. B. Macaulay,
enskur sagnfræöingur og stjórnmálamaður,
sem var uppi á síðustu öld (1800-1859). Ég er
ekki frá því að þau geti átt viö enn í dag og
það jafnvel um okkar háttvirtu alþingismenn
sem margir hverjir virðast líta svo á aö þeir
einir búi yfir þeirri þekkingu og þeim vitsmun-
um sem dugi til að leysa úr aðsteðjandi vanda-
málum sem virðast æöimörg á þessum síðustu
og verstu tímum.
Fyrir 20 árum orti Guðmundur Sigurðsson á
eftirfarandi hátt um horfurnar þá:
Að lofa sér og öðrum yfirbót
á öllu því sem farið hefur miður
er siður vor um sérhver áramót
og síst af öllu má hann leggjast niður.
En syndin að oss sækir furðu hljótt
og sumum gefst þá lítill fyrirvari
þó göfug áform gleymist jafnan fljótt
þau gefa mynd af réttu hugarfari.
En það var allnokkru áður, eða á árinu 1957,
að mikil mannaskipti urðu á Alþingi. Vegna
forfalla tóku fjórir varamenn þar sæti: séra
Gunnar Gíslason í stað Jóns á Reynistað, Ólaf-
ur Jóhannesson prófessor í stað Steingríms
Steinþórssonar, dr. Gunnlaugur Þórðarson í
stað Guðmundar í. Guðmundssonar og Bragi
Sigurjónsson í stað Péturs Péturssonar. Af til-
efni þessara mannaskipta kvað eitt skáld
þingsins, Karl Kristjánsson:
Nýir þingmenn æða inn,
(ekki nóg með það í haust).
Aðrir fara út um sinn -
Alþingi er hurðarlaust.
En hve vorið bjart og blítt
breytir mörgu í skauti jarðar.
Sumt er orðið alveg nýtt
eins og þingmenn Skagaijarðar.
Vísnaþáttur
Torfi Jónsson
Halldóra B. Björnsson var lengi starfsmaður
Alþingis. Þar var hagmælskan til húsa og oft
kveðist á. Þegar stjórnarkreppan var 1947 kvað
Halldóra:
Átt hef ég árum saman
á því bjargfasta trú,
að Ólafur gæfist illa
en upp - ekki fyrr en nú.
En svo bætti hún við:
Góður er sérhver genginn
geti hann legið kyrr.
En Ólafur afturgenginn
er Ólafur verri en fyrr.
Andrés í Síðumúla, síðar alþingismaður, sem
þá var skjalavörður Alþingis, svaraði:
Góð er að vonum þín vísa
en vanhugsað niðurlag.
Ólafur upp mun rísa
aftur - jafnvel í dag.
Eiríki Einarssyni alþingismanni frá Hæli
hefur fundist mikið til Ölafs Thors koma. For-
mannsvísa er fyrirsögn þessarar stöku hans:
Ólafur Thór er staupastór.
Streymir um óragáttir
hornasjór og brenndur bjór,
brimar í fjórar áttir.
Trúlega hefur kveðið mikið að Ólafi í þing-
veislum en að líkindum hefur eitthvað sterkara
verið á borðum en næsta vísa gefur til kynna.
Hún mun hafa verið kveðin í einni slíkri veislu:
Gleðin öll til ijandans fer,
friðurinn trúi eg sjatni,
ef gestir þurfa að gæða sér
á Gvendarbrunnavatni.
En varla hefur það verið eftir þá veislu sem
Eiríkur Einarsson alþingismaður kvað:
Veisla þessi og vinahót
verða ei nema prettir
eftir skammvinnt skálamót
skyrpa þeir eins og kettir.
Þegar Sverrir Hermannsson barðist hvað
harðast á Alþingi gegn afnámi setunnar en
beið því miður lægri hlut orti Gestur Guð-
fmnsson, þá blaðamaður við Alþýðublaðið, eft-
irfarandi ljóð:
Loksins er gamalt lýti af málinu sniðið
og langt er síðan ég heyrði jafn kærkomna
frétt
en grátið og þrútið situr setuliðið
og syrgir þann staf sem enginn gat skrifað
rétt.
Þungur kross og kvöl var mér ætíð setan
af kynnum við þvílíkan staf er sál mín
þreytt
ég kunni ekki fremur en Magnús Torfi að
metann
og mér er í nöp við stafrófið yfirleitt.
En svo eru þeir sem talið hafa ástæðu til að
kvarta undan þingmönnum. Hjörtur Krist-
mundsson skólastjóri orti til Jóns Pálmasonar,
alþingismanns á Ákri:
Hættu Jón að hrella mann,
hvað sem öðru liður.
Gerðu það fyrir guð, og þann
gamla ekki síður.
Iðnaðarmaður, sem á árum áöur átti erindi
í Alþingishúsið og kom í flokksherbergi Al-
þýðuflokksins, fann þar bók sem nefndist
Lærebog for Tjenere. Þá orti hann:
Löngum kratar lesa í
Lærebog for Tjenere.
Greyin ætla að græða á því.
Gud benaade dem senere.
Þegar Gils Guðmundsson komst á þing'í
fyrsta sinn orti Kankvís í Alþýðublaðið:
Það gladdi mig gífurlega
þegar Gils komst í þingsal inn.
En hver á þig nú eiginlega
elsku kúturinn minn.
Guömundur Sigurðsson. skáld og gaman-
vísnahöfundur, sem átti fyrsta ljóðið í þessum
þætti, á einnig lokaorð hans:
Það telst ekki frétt þó úfar með ýmsum rísi
og annað slagið heimti menn reikningsskil
því heimurinn virðist örlítið öðruvísi
en óskir manna og hugsjónir stóðu til.
Og ennþá er margur á alvöru lifsins gleyminn
og áhugalaus um vandamál forn og ný.
Þó við séum yfirleitt fædd til að frelsa heiminn
við finnum oss annað til dundurs og gleymum
því.
Torfi Jónsson
George Bush er sá fjórði á mörgum sviðum.
Allt sem þú þarft
ekki að vita um Bush
George Bush, forseti Bandaríkj-
anna, er fjórði elsti maðurinn sem
hefur gegnt því embætti. Hann er
líka sá fjórði hæsti og sá fjóröi af
forsetunum sem er örvhentur. Hann
er sá fjórði þeirra sem er fæddur í
Massachusetts og sá fjórði sem er
kjörinn forseti meðan hann gegnir
embætti varaforseta. Vegna þessara
tilviljana er vestra farið að halla
hann George fjórða.
Þessar upplýsingar koma fram í
miklum doðrant sem gefinn var út í
tilefni af embættistöku Bush. Þar
koma fram allar mögulegar og
ómögulegar upplýsingar um forset-
ann og þar á meðal mikið af útreikn-
ingum sem engu máli skipta.
Bush er nú 64 ára gamall og hafa
aðeins þrír eldri menn orðið til að
setjast í embætti Bandaríkjaforseta.
Það eru þeir Ronald Reagan, sem var
69 ára, William Henry Harrisson,
sem var 68 ára, og James Buehanan
sem var 65 ára þegar hann settist að
í Hvíta húsinú.
Bush er 188 sentímetrar á hæð og
því hærri er aðrir forsetar nema
Abraham Lincoln, sem var 193, Lyn-
don Johnson, sem var 190,5, og
Thomas Jefferson sem var 189 sm á
hæð.
Bush er örvhentur eins og Gerald
Ford, Harry Truman og James Gar-
field. Þá er hann fæddur í Massa-
chusetts eins og John Adams, John
Quincy Adams og John F. Kennedy.
Bush er fæddur 12. júní árið 1924.
Aðrir forsetar hafa ekki fæðst i þeim
mánuði. Hann er því í tvíburamerk-
inu eins og John F. Kennedy sem var
fæddur 29. maí árið 1917.
í morgunverð vill Bush fá jógúrt
og ávexti. Nafni hans, George Was-
hington, fyrsti forseti Bandaríkj-
anna, hafði annan smekk. Á morgn-
ana vissi hann ekkert betra en
pönnukökur syndandi í sírópi og
smjöri. Þetta atriði þykir undirstrika
að fátt er líkt með þessum tveim
mönnum.
Þeir eiga það þó sameiginlegt að
vera lítið sólgnir í grænmeti. Bush
reynir eftir bestu geta að forðast slík-
an mat og Washington vissi ekkert
verra en grænmeti. Bush er mjög
sólginn í kartöfluflögur með beikon-
bragði en Washington þekkti ekkert
slíkt. Hann maulaði þess í stað hnet-
ur á milli mála.
Ertu í vandræðum með aukakílóin?
Hefur þú fengið nóg af óspennandi megrunarkúrum,
útreikningi á hitaeiningum og þess háttar amstri?
REYNÐU ÞÁ BIO-MEGRUNARKÚRINN
14 ljúffengar bragðtegundir, drykkir og súpur sem innihalda öll
þau vítamín og steinefni sem þarf til að grennast á heilbrigðan
hátt. Kærkomin leið til að losna við hin illræmdu aukakíló án
þess að tapa þreki eða vellíðan.
12 síðna leiðbeiningabæklingur fylgir.
Fæst í apótekum og
helstu heilsubúðum
um land allt.
HÖLL HF., heildverslun
Kolgerði 21
600 Akureyri
Sími 96-26611