Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Page 28
40
LAUGARDAGUR 21. JANUAR 1989.
Handbolti unglinga
Iiði Keflavíkur vísað úr keppni
Aö sögn Þorsteins Jóhannessonar
hjá mótanefnd HSÍ var ákveöið á
fundi í síðustu viku að vísa liði Kefla-
víkur úr keppni í í 3. ílokki kvenna.
Liðið mætti ekki til keppni í tvo
fyrstu leiki sína í síðustu umferð sem
leikin var í Vestmannaejgum.
Á síðasta Ársþingi HSI var sam-
þykkt að mæti lið ekki til keppni í
tvo leiki verði viökomandi liði vísað
úr keppni. Hér er eingöngu verið að
framfylgja þessu ákvæði og verður
vonandi öðrum félögum víti til varn-
aðar. Það er mjög bagalegt þegar
svona hlutir eiga sér stað. Liðið hafði
alla burði til þess að spila í úrslita-
keppninni en nú er sá draumur að
engu orðinn.
Ekki náðist í forráðamenn Kefla-
víkur til að heyra þeirra álit á þessu
máli þar sem þeir voru á Akureyri
vegna keppni.
Aöeins var leikið í einum flokki í
íslandsmótinu um síðustu helgi en
það var 2. flokkur kvenna. Ein um-
ferð hafði farið fram í þessum flokki
fyrir áramót og var keppni þá mjög
hörð og skemmtileg.
Að Varmá í Mosfellsbæ fór fram
keppni í 1. deild og var fyrirfram
búist við að keppnin stæði milli Vík-
ings, Gróttu og Stjörnunnar og varð
sú raunin þar sem þessi lið virtust
hafa talsverða yfirburði að lokinni
umferðinni þó oft væri markamunur
liðanna lítill.
Víkingar
taplausir að Varmá
Strax í fyrstu umferðinni litu
óvænt úrslit dagsins ljós þar sem
heimamenn, UMFA, gerðu sér lítið
fyrir og gerðu jafntefli gegn Víkingi
eftir að hafa leitt leikinn frá upphafi.
Gera má ráð fyrir að leikmenn Vík-
ings hafi mætt of sigurvissir til leiks
þar sem UMFA kom upp úr 2. deild
eftir síðustu umferð.
Víkingar létu sér leikinn gegn
UMFA sér að kenningu verða því
þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu alla
aðra leiki sína í 1. deild og tryggðu
sér þar með eitt stig í úrslitin þrátt
fyrir að ein umferð sé eftir.
Víkingurr vann Gróttu í hörkuleik,
20-19, og var það án efa besti leikur
umferðarinnar. Einnig sigraði Vík-
ingur lið Stjörnunnar, 15-9, ÍBV,
17-14, og Fram, 18-14.
Eins og áður sagði vann Víkingur
sterkt liö Gróttu, 20-19, og var sá^leik-
ur úrslitaleikur deildarinnar þar
sem Gróttustúlkurnar unnu alla
aðra leiki sína nema gegn ÍBV, 16-16.
Leikmenn Víkings og Gróttu gerðu
sér grein fyrir hvað var í húfi og var
jafnt á flestum tölum og það var ekki
fyrr en á síðustu sekúndunni sem
Víkingar tryggöu sér sigur, 20-19, og
þar meö sigur í 1. deild.
Gróttustúlkurnar geta vel viö unað
þrátt fyrir.að þær verði að gera sér
annað sætið að góöu að þessu sinni.
Víkingar þurftu reglulega að hafa
fyrir sigri sínum í deildinni og er ljóst
að fátt getur komið i veg fyrir úrslita-
leik þessara tveggja lið í vor.
Leikur Stjörnunnar olli nokkrum
Þessir piltar voru valdir til æfinga með piltalandsliðinu sem nú er að hefja undirbúning sinn fyrir keppni sem fram
fer erlendis um páskana. Um næstu helgi verður nánar gerð grein fyrir verkefnum þessa landsliðs hér á unglinga-
síðunni og jafnvel tekin viðtöl við nokkra leikmenn.
Landslið pilta 18 ára og yngri
- til A-Þýskalands?
Nú er HSÍ að ganga frá samkomu-
lagi við A-Þýskaland um gagnkvæm
samskipti þessara þjóöa fyrir ungl-
ingalandsliðin. Að sögn Jóns Hjaltal-
íns Magnússonar er mál þetta á loka-
stigi. Reiknaði hann með að landslið
pilta, skipaö leikmönnum 18 ára og
yngri, færi til A-Þýskalands og færi
lokaundibúningur liðsins þar fram
fyrir Noröurlandamótið. Jón sagði
að næst yrði reynt að koma á sam-
vinnu við V-Þjóðverja og Spánverja.
Hér er á ferðinni mjög gott framtak
og er ljóst að HSÍ ætlar að halda vel
utan um unglingalandsliðin eftir
frekar dapurt starf í vetur enda eru
hér á ferðinni landsliösmenn fram-
tíðarinnar sem koma til með að veija
heiður íslands þegar HM fer hér fram
1995.
Sigrún Másdóttir, UMFA, skorar hér eitt marka sinna um helgina en hún
lék mjög vel fyrir lið sitt og átti mikinn þátt í því að UMFA hélt sæti sínu í
1. deild.
Drífa Þórarinsdóttir, ÍBV, lenti oft í svipuðum átökum á línunni eins og hér
á móti Gróttu og veitti ekki af að þrír af varnarmönnum andstæðinganna
kæmu til að stöðva hana er hún fékk boltann.
leik þar sem Framarar tryggðu sér
sigur, 17-15, eftir að hafa verið fimm
mörkum undir um miðjan fyrri hálf-
leik. Framarar töpuðu síðan fyrir
Vestamannaeyjaliðinu, 17-13, og
urðu að gera sér fall í 2. deild að góðu
með aðeins tveggja stiga mun.
UMFA og ÍBV börðust um að
sleppa við að fylgja Frömurum niður
um deild. Fyrir leik þessara liða haföi
UMFA gert jafntefli við Víkmg og
ÍBV gert jafntefli við Gróttu og sigr-
aði Fram eins og áður sagði. Leikur
UMFA og ÍBV var því úrslitaleikur
um fall í 2. deild og sigruðu heima-
menn í æsispennandi leik, 22-20. Vík-
ingar, Grótta, Stjarnan og UMFA
hafa því ásamt sigurliðum 2. deildar
tryggt sér sæti í A-úrslitum í vor.
Eittmark skildi
að þrjú efstu liðin
Keppni í 2. deild var æsispennandi
og börðust þrjú lið um sætin tvö í 1.
deild og þar með öruggt sæti í A-
úrslitum í vor.
Baráttan stóð á milli KR, UBK og
ÍR um sigur í 2. deild og er hægt að
fullyrða að aldrei hefur keppni verið
jafnspennandi. Draga þurfti fram
vasareikninn góða til að finna út
hvaða tvö hð færðust upp um deild
þar sem þessi þijú lið urðu efst og
jöfn með átta stig og öll unnu þau
einn leik í innbyrðisleikjum þessara
þriggja liða.
KR sigraði Breiðablik með sjö
marka mun, 22-15, en Breiðablik
gerði sér síðan lítið fyrir og sigraði
IR einnig með sjö mörkum, 13AS.
Markatala KR fyrir leikinn gegn ÍR
var því hagstæð um sjö mörk. Breið-
blik var með jafna markatölu en ÍR
varð að vinna KR með átta mörkum
til að komast upp fyrir Breiöabliks-
stúlkurnar.
ÍR tók strax leikinn gegn KR í sínar
hendur og náði góðri forustu en þrátt
fyrir mikinn darraðardans á síðustu
mínútunum tókst ÍR-ingum ekki að
vinna með átta marka mum og urðu
lokatölur leiksins, 15-9. ÍR-stúlkum-
ar verða því að gera sér að góðu að
leika enn í 2. deild þó að aðeins eitt
mark skildi að í lokin.
Haukar voru um miðja 2. deild,
sigruðu Val og FH með tveggja
marka mun en töpuðu fyrir topplið-
unum þremur. Valur varð í fimmta
sæti, sigraði FH, 19—10, en tapaði öðr-
um leikjum sínum.
FH var heillum horfíð í 2. deild aö
þessu sinni og náði ekki stigi í þess-
ari umferð.
vonbrigðum þar sem liðinu tókst
ekki að blanda sér af alvöru í barátt-
una um efsta sæti deildarinnar held-
ur sigldi lygnan sjó um miðja deild.
Stjarnan tapaði eins og áöur sagði
fyrir Víkingi og Gróttu en sigraöi
Fram, UMFA og ÍBV. Stjörnustúlk-
urnar sýndu þó hvað í þeim býr er
þær léku gegn Gróttu. Sá leikur var
jafn og spennandi allan tímann og
voru Stjörnustúlkurnar hársbreidd
frá því að leggja Gróttu að velli en
urðu að gera sér að góðu að tapa
honum með eins marks mun, 18-19.
Fram og ÍBV
féllu í 2. deild
Baráttan um fall í 2. deild stóð á
milli Fram, UMFA og ÍBV.
Framarar sigruðu UMFA í jöfnum
2. flokkur kvenna:
Sterkt Vík-
ingslið sigr-
aðií l.deild