Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1989, Page 34
46
LAUGÁ'RDAGUR 21. JANÚAR 1989.
Lífsstfll
Þátttakendur fá afhent þátttökuspjald fyrir hverja ferð og þeir sem fara oftast fá sérstaka viðurkenningu félagsins í haust.
Miðar á opna
bandaríska meistaramótið
'9* *
Landnámsgangan hófst með fyrstu ferðinni síðastliðinn sunnudag, 15. januar, og var byrjað i Grófinni eins og i
fyrra en nú var gengið í gagnstæða átt. I þessa fyrstu ferð mættu 60 manns.
- ■■■■■■■■ ÆwSílj
Ferðafélagiö Utivist tók upp þá
nýjung í ferðastarfsemi sinni á síð-
asta ári er nefnd var ferðasyrpur.
Veigamest og langvinsælust var
„strandganga í landnámi Ingólfs".
Með henni var efnt til gönguferða
meðfram ströndinni frá Reykjavík
suður og austur um Reykjanesskaga
að Ölfusárósum. Alls voru farnar 22
ferðir og tóku þátt í þeim á níunda
hundrað manns. Margir komu oft í
þessar ferðir og einn þátttakenda
náði því takmarki að fara í þær allar.
Sá hlaut að launum frítt í allar ferð-
ir í „landnámsgöngu Útivistar 1989“
en það nafn verður notað á framhald
„strandgöngunnar" því nú er ætlun-
in að ganga ekki aðeins með strönd-
inni heldur verður mörkum land-
námsins einnig fylgt inni í landi.
Landnámsgangan hófst með fyrstu
ferðinni síðastliðinn sunnudag, 15.
janúar, og var byrjað í Grófmni eins
og í fyrra en nú var gengið í gagn-
stæða átt. í þessa fyrstu ferð mættu
60 manns og var gengið fyrsta spöl-
inn meö Páli Líndal er fræddi um
sögu bygginga við Hafnarstræti og
nágrenni Arnarhóls. Gengið var um
Arnarhólstraöir en síðan haldið með
Sætúni út í Laugarnes og þaðan með
Sundahöfn út í Elliðavog að svoköll-
uðum Árkjafti. Þaðan flutti rúta hóp-
inn til baka niður í Grófina. Þátt-
tökugjald var ekkert í þessari fyrstu
ferð.
í nýútkominni ferðaáætlun Útivist-
ar er skrá yfir allar ferðirnar í land-
námsgöngunni sem eru alls 21.
Næsta ferð er nú á sunnudaginn, 22.
janúar, kl. 13 og þá er brottfor frá
BSÍ, bensínsölu, sem er hinn hefð-
bundni brottfararstaður í Útivistar-
ferðum. Ekið verður að Elliðaár-
brúm og gengið um Ártúnshöfða yfir
Gullinbrú og út í Gufunes. Þaðan er
gengið um fallega leið um Eiðsvík út
í Blikastaðakró. Blikastaðakróin er
þekkt fyrir fjölbreytt lífríki. Eftir
sunnudagsferðina verður haldið
áfram í 9 ferðum upp í Brynjudalsvog
í Hvalfirði og er næsta ferð tungl-
skinsganga mánudagskvöldið 20. fe-
brúar út að Víðinesi. Úr Brynjudals-
vogi er gengið inn Brynjudal og yfir
gömlu þjóðleiðina Leggjabrjót til
Ferðir
Þingvalla. Þá veröur farið meðfram
Þingvallavatni og Sogi og að lokum
er Ölfusá fylgt eins og kostur er að
Ölfusárósum og landnámshringnum
lokað. Frá Brynjudalsvogi að Ölfus-
árósum verða farnar 9 gönguferðir,
en „landnámsgöngunni“ lýkur þann
8. okt. í haust.
Þátttakendur fá afhent þátttöku-
spjald fyrir hverja ferð og þeir sem
fara oftast fá sérstaka viðurkenningu
félagsins í haust. Þessar gönguferðir
sem aðrar á vegum Útivistar eru
sniðnar við allra hæfi en betra er
fyrir óvana að byrja á ferðum sem
hefjast kl. 13, en nokkrar hefjast
einnig kl. 10.30. Allir eru velkomnir
í Útivistarferðir og börn fá frítt í
dagsferðir í fylgd foreldra sinna. Fé-
lagsmenn fá afslátt í allar ferðir sem
eru lengri en einn dagur. Útivist vill
hvetja sem flesta til að vera með og
minnir á að gönguferð er mjög góð
heilsubót og ekki er verra að lögð
verður áhersla á fræðslu um nátt-
úrufar og sögu í „landnáms-
göngunni“.
Vestur 1 Bandaríkjunum undirbúa menn
nú af kappi opna bandaríska meistaramótið
í golfi en það verður haldið 15.-18. júní í
Oak Hill Country Club í Rochester.
Fyrir þá sem hafa áhuga er enn hægt að
fá miða. Miði á sjálft mótið kostar 150 doll-
ara en vilji golfáhugamenn einnig fylgjast
með æfmgadögunum þremur fyrir aðal-
mótið borga þeir 200 dollara. Innifalið í því
verði er aðgangur að klúbbi fyrir keppend-
ur og áhorfendur svo og stæði fyrir bílinn.
Einnig er hægt að kaupa dagsmiða sem
gilda fyrir einn af æfmgadögunum þremur,
slíkir miðar kosta á bilinu 20-25 dollara en
ekki er hægt að kaupa dagsmiða á sjálft
mótið.
Fyrir þá, sem hafa áhuga á að kynna sér
málið nánar, er hægt að hafa samband við
Post Office Box 1989, Rocheser N.Y. 14610;
716-248-6736.
Mótshaldarar taka einnig að sér að ganga
frá hótelpöntunum fyrir gesti og til að
ganga frá þeim málum er best að hafa sam-
band við Rochester Convention and Visit-
ors Bureau, 126 Andrew Street, Rochester,
N.Y. 14604; 716-546-3070. -J.Mar
Curtis Strange ætlar sér stóra hluti á opna
bandariska meistaramótinu.
Hoppaðámillilanda
Flugfélögin Arnarílug og Flug-
leiðir bjóða bæði svokallaða hopp-
miða á milli landa fyrir fólk á aldr-
inum 2-26 ára. Ekki er hægt að
bóka hopp-miðana nema með sól-
arhringsfýrirvara og einungis aðra
leiðina í einu og getur því verið
undir hæhnn lagt hvort viðkom-
andi kemst út eða heim aftur á
þeim degi sem hann hafði hugsað
sér.
Hopp-miöar geta hins vegar verið
góð lausn fyrir fólk sem ætlar sér
í lengri ferðalög erlendis eða ef þaö
ætlar að dvelja í lengri tíma.
Hoppfargjald tíl Kaupmanna-
hafnar kostar 10.130 krónur en al-
mennt sérfargjald aðra leiðina er á
20.245. Að hoppa til Frankfurt kost-
ar 8.760 en almennt sérfargjald
aðra leiðina 21.955.
Að fara til Gautaborgar kosta þaö
sama og farið Kaupmannahafnar.
Það er heldur ódýrara að fara til
Osló en þangað kostar hoppið 9.710
en almenna sérfargjaldið 19.825.
Sams konar fargjöld til Lúxem-
borgar kosta 12.070 á móti 20.935
krónum.
Ef farið er til Stokkhólms kostar
það 12.140 en almenna sérfargjaldið
24.970.
Arnarflug býður upp á hopp-
fargjöld til Amsterdam og eru skil-
málarnir þeir sömu og hjá Flugleið-
um. Miðinn þangað kostar 12.070.
Þetta er einungis einn af þeim
ferðamöguleikum sem bjóöast. Þó
að þessi fargjöld hafi margt til síns
ágætis og geti komið sér vel í mörg-
um tilvikum er þó yflrleitt mun
hagstæðara aö kaupa Apex-miða,
enda ferðast á milli 70-80% allra
farþega á slíkum fargjöldum. En
þeir ókostir fylgja þeim að fólk
verður að panta þá og borga með
ákveðnum fyrirvara og þegar búið
er að kaupa miðann er engu hægt
að breyta.
-J.Mar