Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1989, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1989, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989. 5 Eins og sjá má fylgdust margir með og buðu í þegar fyrsta tölvusamtengda uppboðið hjá Fiskmarkaði Suðurnesja og Hafnarfjarðar fór fram. DV-mynd GVA í Hafnarfjörð að kaupa fisk á Suðurnesjum Fiskmarkaðirnir í Hafnarflrði og á Suðurnesjum hafa tekið upp sam- vinnu varðandi uppboð. Þeir hafa verið tölvutengdir á þann veg að við- skiptavinir Fiskmarkaðs Suðurnesja þurfa ekki að fara á uppboðin í Kefla- vík til að kaupa fisk. Þeir geta þess í stað farið síðdegis í hús Fiskmark- aðarins hf. í Hafnarfirði og fylgst með og boðið í fisk þaðan. Forráðamenn fiskmarkaðanna segja þetta vera fyrsta skrefið í auk- inni samvinnu þeirra. Möguleiki-sé á að þeir verði allir tölvusamtengdir í framtíðinni til hagræðis fyrir alla aðila. Fyrsta samtengda uppboðið fór fram á miðvikudag og voru fjölmarg- ir staddir í Hafnarfirði til að taka þátt í uppboðinu í Keflavík. -S.dór Læknafélagið vill enn fækka í lækna- deild Háskólans - um 300 íslenskir læknar starfa erlendis Árlega útskrifast 36 læknar frá læknadeild Háskóla íslands. Þórður Harðarson, forseti læknadeildar, segir að þrýstingur sé frá Læknafé- lagi íslands og aðalfundarsamþykkt þar um að fækka nemendum og að ekki verði útskrifaðir nema 22 lækn- ar á ári. Ályktunin og þrýstingurinn er til- kominn með tilliti til atvinnuhorfa, segir Þórður Harðarson í samtali við Vökublaðið. „Það er rétt að í bih eru atvinnu- horfur með þeim hætti hjá íslenskum læknum að sá fjöldi sem útskrifast árlega frá Háskólanum er tahnn vera of hár. Eins og stendur er ekki at- vinnuleysi hjá læknum hér á landi en í því sambandi má geta þess að um 300 íslenskir læknar eru við störf erlendis. Ef þeir kæmu cdlir heim, og þyrfti ekki aha til, er ég hræddur um að einhverjir læknar myndu mæla göturnar," sagði Sverrir Berg- mann, varaformaður Læknafélags íslands. Það eru ekki nema 3 ár síðan fjölda- takmarkanir voru teknar upp hjá læknadehd Háskólans. Sverrir benti á að árið áður en hún var tekin upp hefðu 78 læknar útskrifast frá deild- inni. Það er gjarnan kahaður „stóri árgangurinn“. Sverrir nefndi sem dæmi að þegar hann útskrifaðist fyr- ir 25 áram voru það aðeins átta lækn- ar sem útskrifuðust. „Ég er í sjálfu sér andvígur tak- mörkun nemenda en ég held að það sé rétt ályktaö hjá Læknafélagi ís- lands að takmarka enn frekar nem- endafjöldann um einhvern tíma með tilliti til atvinnumöguleika. Ég held að það geti verið heppilegt," sagði Sverrir. Þórður Harðarson segir í áður- nefndu viðtah að ekki séu uppi nein- ar hugmyndir í læknadeild að fækka nemendum frá því sem nú er. -S.dór Deila Eyfíröinga og Landssambands hestamanna: Léttismenn vslja í viðræður við landssambandið Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Ég geri fastlega ráð fyrir því að stjórn Landssambands hestamanna sé tilbúin til að koma til móts við okkur, en hvort samkomulag sem leiði til þess að við fóram aftur inn í LH muni takast verður bara að koma í ljós,“ segir Jón Ólafur Sigfús- son, formaður Hestamannafélagsins Léttis á Akureyri. Á aðaifundi Léttis var samþykkt tillaga þess efnis að stjórn félagsins hafi forgöngu um að stofnuð verði nefnd eyfirsku félaganna þriggja sem sögöu sig úr LH og þessi nefnd muni beita sér fyrir því að teknar verði upp viðræður við LH um lausn á deilu þessara aðila. „Það er alveg ljóst að menn hafa ekki talið það neina framtíðarlausn að standa fyrir utan LH,“ sagði Jón Ólafur. Málið fór í ákveðinn farveg á sínum tíma og nú hyggjumst við leita að nýjum farveg fyrir það. Við værum ekki að sýna vilja til þegs að leysa málið ef við hefðum ekki vhja á því.“ Kári Arnórsson, formaður Lands- sambands hestamanna, sagðist kannast viö samþykkt aðalfundar Léttis en hann vildi hins vegar ekki ræða það í fjölmiðlum. „Ég vil ahs ekki ræða þetta mál við DV eða aðra fjölmiðla. Þetta er mál okkar félaga sem við munum ræða við, en um- fjöllun DV um þetta mál á sínum tíma skaðaði máhð,“ sagði Kári. Fréttir Mesta yfirvinnan í fjármálaráðuneytinu Yfirvinna starfsmanna á aðalskrif- stofu flármálaráðuneytisms jók tekj- ur þeirra um 47 prósent að meðaltali á árinu 1987. Af þrettán ráðuneytum var ekkert ráðuneyti með jafnmikla yfirvinnu og sjálft fjármálaráðuneyt- ið. Þetta kemur meðal annars fram í sérstöku yfirliti Fjárlaga- og hag- sýslustofnunar um launagreiðslur ríkissjóðs á árinu 1987. Af aðalskrifstofum ráðuneytanna kemur sjávarútvegsráðuneytið næst á eftir fjármálaráðuneytinu. Þar bættust um 43 prósent að meðaltali ofan á fost laun starfsmanna vegna yfirvinnu. Starfsmenn iðnaðarráðu- neytisins fengu 39 prósent ofan á sín laun vegna yfirvinnu, starfsmenn landbúnaðar- og viðskiptaráðuneyt- anna 37 prósent og starfsmenn for- sætis- og utanríkisráðuneytanna 33 prósent. Starfsmenn samgönguráðu- neytisins fengu mmnstu yfirvinnu þeirra sem vinna á aðalskrifstofum ráöuneytanna eða um 18 prósent of- an á föst laun sín. Yfirvinnugreiöslur eru miklar hjá Yfirvinna hjá ráðuneytunum 50 40 30 ll I Meðaltal llii-- % 20 10 lllll </) U) Q) > U- £ (G > 'CG DVJRJ C/) c 3 C </) _3 </) </) ö) <0 X (0 *o <c c «o <f) «o (C «o <c c ~D c <c <2 15 </) n O 4-* ‘<c E </) E 'O G «o U) Q) X '<G E <c c c <D JC '<C E </) ö) jC '0 3 ö) C ••o ö) E <G cn Fjárlaga- og hagsýslustofnun sem þessari stofnun fengu starfsmenn aö gerir og hefur eftirlit meö fram- meöaltah um 40 prósent ofan á föst kvæmd allra áætlana hjá ríkinu. Hjá laun sín vegna yfirvinnu. -gse Vinnufatabúðin VINNUFATNAÐUR Axel Ó. SKÓR í ÚRVALI Pældu í því BARNAFATNAÐUR Braga Sport SPORTVÖRUR Gimm skartgripir SKARTGRIPIR J.J.Túrbó KULDAÚLPUR Viktoría TÍSKUFATNAÐUR Isl. Verslunarþjónustan GJAFAVÖRUR Endur og hendur BARNA- OG UNGLINGAFATNAÐUR Grattan vörulistinn FATNAÐUR O.FLI. M. Bergman SÆNGURVER o.m.fl. SÆNGUR <1 VERSLUNARMIÐSTOÐ VESTURBÆJAR, HRINGBRAUT 119-121 Opið frá 12-18.30. Laugardaga frá 10-16. Sími á markaðinum 11981. Es Stórkostlegt vöruúrval!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.