Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1989, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1989, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989. 13 * ► > ► I I Lesendur Ríkissaksóknari í hreingerningum? Lögmaður skrifar: Oft hefur það verið rætt í hópi lög- manna að ýmis mál, sem lenda hjá ríkissaksóknara, séu stöðvuð þar og fari ekki áfram til dómstóla þótt full ástæða sé til. Sömuleiðis að mál séu svæfð og ekkert heyrist um þau meir. Ekki verður nánar farið út í þá sálma að sinni þótt gild ástæða væri til. Ýmsir hafa þó bent á að ríkissak- sóknari væri störfum hlaðinn og vegna þess drægist afgreiðsla mála úr hönilu. Ég heíi nú ekki verið þeirr- ar skoðunar fyrr en um daginn er það rann upp fyrir mér að svo kynni þó að vera. Fólk þar á bæ virðist vera önnum kafið í allt öðrum störf- um. Ég vissi það t.d. ekki fyrr að emb- ættið auglýsti að þangaö ætti að leita ef mann vantaði fólk til að stunda ræstingar úti í bæ. Ef þig vantar ein- hvern til hreingerninga þá hringdu til ríkissaksóknara í síma 25250, ef marka má auglýsingu i blaði nýlega. Síðasta þingsjá Ingimars: Blýantarevían af- burðaskemmtun Björg skrifar: Það verður að segjast eins og er að síðast er þáttaröðin Þingsjá var á skjánum veltist ég og heinúlisfólkið heima hjá mér um af hlátri. Þetta ver einhver besti sjónvarpsþáttur í inn- lendri dagskrárgerð sem gerður hef- ur verið. - Ingimar Ingimarsson á þakkir skildar fyrir hugkvæmnina og óborganlegt skopskyn. Það var ekki að sjá að þingmenn hefðu lært neitt af fyrri mistökum er þeir gengu í pontu hver á eftir öörum til að setja pfan í við þá sem á undan töluðu. - Ég spyr bara: Eru þingmenn ekki alveg sérstakur hóp- ur fólks sem misst hefur samband við umheiminn? - Eru þeir algjörlega lausir við húmor? Geta ummæli utanríkisráðherra um að blýantar séu nagaðir í Seðla- banka slegið þingheim slíkri og því- líkri bhndu að þingmenn verði aö athlægi hver um annan þveran frammi fyrir alþjóð? Og það alveg óvart. Enginn þeirra hefur ætlað að vera fyndinn. Þeir bara urðu það óafyitandi með eindæma hræsni í málflutningi og klunnahætti í fram- komu. Svona þætti má gera oftar og af nógu er að taka í sölum Alþingis. Það er ekki ofsögum sagt að þar er stærsta leikhús þjóðarinnar! A f i suna 27022 milli kl. 10 og 12 eða skrifid LAUGAVEGI 49, SÍMI 17742 49 Við ílyljum verslunina að Laugavegi opnum á laugardaginn, nýja og enn betri verslun. Velkomin á Lnugaveg 49. • é r m § Jafn hæfilegur hraði sparar bensín og minnkar slysahættu. Ekki rétt? yUMFERÐAR RÁÐ I » * » la sat á kvisti, böra og missti, eitt tvö þrjú.og það varst þú! Þú getur notað sömu tölurnar aftur og aftur - með því að kaupa tveggja, fimm, eða tíu vikna miða. >þt ý' “ ! Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511. SAMEINAÐA/SlA •' V :■? •'.■; . t■" I-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.