Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1989, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 4. MARS 1989.
47
Afmæli
Guðjón Ingvi Stefánsson
Guðjón Ingvi Stefánsson fram-
kvæmdastjóri, Þórðargötu 26, Borg-
amesi, varð fmuntugur í gær. Guð-
jón Ingvi er fæddur í Hveragerði,
lauk fyrrihlutaprófi í verkfræði í
HÍ1965 og prófi í byggingarverk-
fræði í Danmarks Tekniske höjskole
í Kaupmannahöfn 1968. Guðjón
vann rannsóknarstörf í Sements-
verksmiðju ríkisins á Akranesi
1959-1961, vann hjá Breiðholti hf.
1968 og Hochtief A/G við hafnargerð
í Straumsvík 1968-1970. Hann var
framkvæmdastjóri Skáksambands
íslands sumarið 1972 þegar einvígi
aldarinnar milli Fischers og Spas-
skýs var háð og var verkfræðingur
hjá Rannsóknastofnun bygginga-
riðnaðarins 1970-1973. Guðjón hefur
verið framkvæmdastjóri Samtaka
sveitarfélaga í Vesturlandskjör-
dæmi frá 1973. Hann var formaður
Félags íslenskra stúdenta í Kaup-
mannahöfn 1967 og formaður félags-
ins Heyrnarhjálpar 1968. Guðjón
var í stjórn Skáksambands íslands
1970-1973, forseti Rótarýklúbbs
Borgarness 1977-1978, var í nefnd
sem samdi fj arskiptalög og nefnd
norrænna sveitarstjórnarmanna
um byggðamál. Guðjón kvæntist 12.
október 1963 Guðrúnu Broddadótt-
ur, f. 22. ágúst 1941, hjúkrunarfor-
stjóra. Foreldrar Guðrúnar eru
Broddi Jóhannesson, fyrrv. skóla-
stjóri Kennaraháskólans, og kona
hans, Guðrún Þorbjamardóttir.
Böm Guðjóns og Guðrúnar eru El-
ín, f. 7. janúar 1964, viðskiptafræði-
nemi, Þorbjörn, f. 7. mars 1965,
læknanemi og Stefán Broddi, f. 23.
júlí 1971, menntaskólanemi. Systk-
ini Guðjóns em Árni Geir, f. 3. nóv-
ember 1932, lektor við Kennarahá-
skóla íslands, kvæntur Aðalbjörgu
Árnadóttur hjúkrunarfræöingi;
Unnar, f. 20. apríl 1934, viðskipta-
fræðingur og ritstjóri tímaritsins
Sveitarstjórnarmál, kvæntur Maríu
Ólafsdóttur blaðamanni; systir, f.
1936, d. 1936; Guðmundur, f. 5. okt-
óber 1937, hljóðfærasmíðameistari í
Rvík, sambýliskona hans er Erla
Valdimarsdóttir sjúkraliði, og Ath
Þorsteinn, f. 11. desember 1942,
tæknifræðingur hjá Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen í Rvík.
Foreldrar Guðjóns eru Stefán J.
Guðmundsson, d. 29. október 1988,
húsasmíðameistari og hreppstjóri í
Hveragerði, og kona hans, Elín Guð-
jónsdóttir. Stefán var sonur Guð-
mundar, fræðimanns í Neskaup-
stað, Stefánssonar, bróður Stefaníu,
ömmu Armanns Snævarr hæsta-
réttardómara. Móðir Stefáns var
Valgerður, systir Kristínar, móður
Bjarna þjóðskjalavarðar og ömmu
Kristins Jóhannssonar, forseta bæj-
arstjórnar Neskaupstaðar. Bróðir
Valgerðar var Sveinn, faðir Ingólfs
geðlæknis. Valgerður var dóttir
Árna, b. á Grænanesi, Davíðssonar,
b. á Grænanesi, Jónssonar, bróður
Bjarna, afa Halldórs Halldórssonar
prófessors. Systir Davíðs var Þrúö-
ur, amma Ólafs Jóhanns Sigurðs-
sonar.
Faðir Elínar var Guðjón, bróðir
Markúsar, afa Harðar Ágústssonar
fornhúsafræðings og listmálara og
langafa Markúsar Arnar Antons-
sonar útvarpsstjóra. Annar bróðir
Guðjóns var Guðlaugur, afi Andrés-
ar Gestssonar nuddara, Óskars
Jónssonar fræðimanns og langafi
Víglundar Þorsteinssonar, form.
Félags íslenskraiðnrekenda. Guð-
jón var sonur Þorsteins, b. í Gröf í
Hrunamannahreppi, Jónssonar,
bróður Jóns, langafa Þorsteins Ein-
arssonar íþróttafulltrúa. Móðir
Guðjóns var Guðrún, systir Ingi-
bjargar, langömmu Eðvarðs Sig-
urðssonar alþingismanns. Guðrún
var dóttir Jóns, b. í Galtafelli,
Bjömssonar, b. í Vorsabæ, Högna-
sonar, lögréttumanns á Laugar-
vatni, Bjömssonar, bróður Sigríðar,
móður Finns Jónssonar biskups.
Móðir Jóns var Bryngerður Knúts-
dóttir, systir Sigríðar, ömmu Tóm-
asar Guðmundssonar skálds og
Hannesar þjóðskjalavarðar og Þor-
steins hagstofustjóra Þorsteinssona.
Móðir Guðrúnar var Guðrún, systir
Ragnhildar, langömmu Torfhildar,
langömmu Davíðs Oddssonar. Guð-
rún var dóttir Guðmundar, prests í
Hruna, Magnússonar, prests á Þing-
völlum, Sæmundssonar, prófasts í
Miklabæ, Magnússonar, b. í
Bræðratungu, Sigurðssonar. Móðir
Sæmundar var Þórdís Jónsdóttir,
biskups á Hólum, Vigfússonar
(Snæfríður íslandssól).
Móðir Elínar var Ingunn Guð-
mundsdóttir, járnsmiðs í Eimu á
Eyrarbakka, Þorsteinssonar, bróö-
ur Aldísar, langömmu Manfreðs
Guðjón Ingvi Stefánsson.
Vilhjálmssonararkitekts. Önnur
systir Guðmundar var Ingigerður,
langamma Þorgerðar Ingólfsdóttur
söngstjóra. Móðir Ingunnar var
Þórunn Þorvaldsdóttir, b. í Króki í
Grafningi, Ingjaldssonarog konu
hans, Þórunnar Þorleifsdóttur, b. á
Nesjavöllum í Grafningi, ættföður
Nesjavallaættarinnar, Guðmunds-
sonar, b. í Norðurkoti í Grímsnesi,
Brandssonar, b. á Krossi í Ölfusi,
Eysteinssonar, bróður Jóns, föður
Guðna í Reykjakoti, ættföður
Reykjakotsættarinnar. Guðjón tek-
ur á móti vinum og kunningjum á
heimili sínu í dag, laugardag.
Lárus Hermannsson
Lárus Hermannsson, Seljavegi 5,
Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í
dag.
Lárus fæddist á Hofsósi við Skaga-
fiörð en flutti á fyrsta árinu með
foreldrum sínum í Málmey á
Skagafirði þar sem þau bjuggu
næstu fiögur árin. Fjöldskyldan
flutti síöan 1918 að Ystamó í
Flókadal í Haganeshreppi þar sem
Lárus átti heima til fullorðinsára.
Hann flutti til Reykjavíkur 1942 og
hefur búið þar síðan. Lárus hefur
unnið ýmis störf til sjós og lands
en lengst af hefur hann verið
starfsmaöur hjá SÍS.
Lárus á fióra syni. Þeir eru Sig-
urður, f. 10.4. 1944, kaupmaður í
Hafnarfirði; Rúnar, f. 26.1. 1948,
byggingameistari í Mosfellsbæ;
Hermann, f. 2.9. 1949, verktaki í
Kópavogi, og Ólafur, f. 11.8. 1955,
framkvæmdastjóri hjá Bridgesam-
bandi íslands.
Systkini Lárusar: Halldóra, f.
1912; Níels, f. 1915; Rannveig, f. 1916,
en hún er látin; Hrefna, f. 1918;
Sæmundur, f. 1921; Haraldur, f.
1923; Georg, f. 1925, og Björn, f. 1928.
Foreldrar Lárusar: Hermann
Jónsson, verslunarmaður á Hofs-
ósi og síðar b. í Málmey og að Yst-
Lárus Hermannsson.
amó, og kona hans Elín Lárusdótt-
ir.
Ólafur Ámason
Ólafur Amason ljósmyndari, Vest-
urgötu 80, Akranesi, verður sjötug-
ura morgun.
Ólafur fæddist í Georgshúsi á
Akranesi og ólst upp í Asi á Vestur-
götu 78 á Akranesi. Hann hóf nám
í ljósmyndun hjáföður sínum, á af-
mælisdaginn er Ólafur varð tuttugu
og fimm ára, og á því jafnframt
fi örutíu og fimm ára starfsafmæli.
Ólafur starfrækti ljósmyndastofu
með föður sínum á Ákranesi til árs-
ins 1950 en hefur síðan rekið stofima
einn þar til nú síðustu árin er sonur
hans starfar þar með honum.
Kona Ólafs er Ingveldur Ás-
mundsdóttir, f. 19.7.1919, dóttir Ás-
mundar Jónssonar, rafvirkja á
Akranesi, og konu hans Sigurlaugar
Einarsdóttur. Bróðir Ingveldar er
Jón Óskar rithöfundur. Systir Ing-
veldar er Áslaug, móðir Ásmundar
Stefánssonar, formanns ASÍ.
Fóstursonur Ólafs og Ingveldar er
Guömundur Garðarsson ljósmynd-
ari, f. 13.6.1946, kvæntur Önnu
Björnsdóttur og eiga þau tvö syni.
Foreldrar Ólafs: Ámi Böðvarsson,
ljósmyndari og sparisjóðsstjóri, f.
15.9.1888, og kona hans Rannveig
Magnúsdóttirhúsmóðir, f. 15.9.1892.
Foreldrar Árna voru Böðvar Sig-
urðsson, póstur og b. í Vogatungu
Leirársveit, og kona hans Halla
Árnadóttir.
Foreldrar Rannveigar voru Magn-
ús Gunnlaugsson, b. að Iðunnar-
stöðum í Lundareykjadal, og kona
hans Elísabet Gísladóttir.
Ólafur tekur á móti gestum að
heimili sínu á afmælisdaginn eftir
klukkan 15:00.
afmælið 4. mars
85 ára
Yngvi Kristjánsson,
Silfurgötu 4, Stykkishólmi.
60 ára
Bragi Bjömsson,
Hofi, Geithellnahreppi
Lilja Sveinsdóttir,
Kambastíg 2, Sauðárkróki.
Sigurlaug Gunnalugsdóttir,
Austurgötu 10, Hafnarfirði
Elisabet G. Kemp,
Efri-Lækjardal, Engihlíðarhreppi.
Garðar Oskarsson,
Skarösbraut 19, Akranesi.
Jón Ragnar Pétursson,
Brekkustíg l, Reykjavík.
Klapparstíg 14, Hrísey.
Bragi Tómasson,
Keilufelli 6, Reykjavík.
Sveinn H. Jónsson,
Svarfaðarbraut 18, Dalvík.
Kristín Þorgeirsdóttir,
Bjarmastíg 8, Akureyri.
Kolbrún Olgeirsdóttir,
Blikahólum 2, Reykjavík.
40 ára
50 ára
Herdís Hjörleifsdóttir,
Hátúni 29, Kefiavík.
Þóra Angantýsdóttir,
Guðlaugur Ellertsson,
Smyrlahrauni 29, HafiiarfirðL
Anna Jóhannesdóttir,
Sunnubraut 4, Dalvík.
Sigurður Sigurðsson,
Fagrahjalla 14, Vopnafiarðar-
hreppi.
Arnþór Flosi Þörðarson,
Selbraut 42, Seltjarnamesi.
Steinunn Benediktsdóttir,
Hseðagarði 11, Nesjahreppi.
Gislína Lóa Kristinsdóttir,
Lambhaga 8, Selfossi.
Reynir Haraldsson,
Engjaseli 23 Reykjavík.
Bragi
Tómasson
Bragi Tómasson, Keilufelh 6,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Foreldrar Braga: Sigríður V.
Magnúsdóttir og Tómas M. Guð-
jónsson útgerðarmaður.
Bragi ólst upp í Vestmannaeyjum
og átti þar heima fram að gosi en
flutti þá til Reykjavíkur og hefur
búið þar síðan.
Hann tekur á móti gestum í
Menningarmiðstöðinni í Gerðu-
bergi í dág klukkan 15-18.
Bragi Tómasson
Tilmæli til afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því myndir og upp-
lýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi þremur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir.
afmælið 5. mars
80 ára
Unnur Þorleifsdóttir,
Hornbrekkuvegi 1, Ólafsfiröi.
75 ára
Rannveig Halldórsdóttir,
Torfnesi Hlíf, ísafirði.
Anna Magnúsdóttir,
Högnastig 10, Hrunamannahreppi.
70 ára
Margrét Hjördís Pálsdóttir,
Norðurtúni 9, Sigiufirði.
Óskar Þorgilsson,
Smáragötu 10, Vestmannaeyjum.
Ólafur Árnason,
Vesturgötu 80, Ákranesi.
60 ára
Hafsteinn Sæmundsson,
Melgerði 2, Kópavogi.
Arnheiður Klausen,
Lambeyrarbraut 7, Eskifiröi.
Guðbjörg Þorkelsdóttir,
Kópnesbraut 21, Hólmavfk.
50 ára
Guðmundur Matthiasson,
Grænagarði 10, Keflavík.
Marsibil Katrín Guðmundsdóttir,
Aratúni 16, Garðabæ.
Hanna S. Ólgeirsdóttir,
Grenihlíð 2, Sauðárkróki.