Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1989, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989.
25
Lífsstm
Af þeim bjórtegundum sem seldar
eru í verslunum ÁTVR eru aðeins
íslensku tegundirnar og ameríski
Budweiser bjórinn án aukefna. Það
þýðir að við framleiðsluna eru ein-
ungis notuð grunnhráefnin: vatn,
ölger, humlar og malt.
Þetta eru þau lögmál sem bjór hef-
ur verið bruggaður eftir um aldir í
Evrópu og er stuðst við þýsk lög frá
árinu 1518 sem heita Reinheitsgebot-
en og eru stundum kölluð elstu neyt-
endalög í heimi.
Bjór sem bruggaður er samkvæmt
þessum lögum hefur geymsluþol í
um 6-8 mánuði og ætti það í flestum
tilfellum að vera nægilegt. Algeng-
ustu aukefni sem sett eru í bjór eru
til þess að vama oxun og auka
geymsluþol en með notkun algengra
aukefna má auka geymsluþolið í allt
að tvö ár eða meira.
í erlendu bjóranum Kaiser og Tu-
borg eru notuð aukefnin E-222 og
E-300. E-222 er brennisteinsnitrít
(sodium hydrogen sulphite). Efnið er
mikið notaö sem rotvarnarefni í
mörgum matvælategundum öðrum
en bjór. Á undanfornum árum hafa
komið upp tilfelli í Ameríku þar sem
efninu hafði verið úðað ómælt á
ferskt grænmeti til þess að auka
geymsluþol þess. Það varð síðan til
þess að framkalla ofnæmisviðbrögð
hjá asthmasjúklingum sem í átta
skráðum tOfellum frá 1982 leiddu til
dauða. Hámarksneysla er 0,7 mg á
móti hverju kílói líkamsþyngdar
neytandans.
E-300 er askorbínsýra eða c-vítam-
ín sem á undanfórnum árum hefur
rutt sér mjög til rúms sem rotvarnar-
efni í fjölda matvæla. í bjór hindrar
það oxun og eykur geymsluþol. C-
vítamín er hverjum manni nauösyn-
legt í ákveðnu magni og er ekki vitað
um neinar hhðarverkanir af mikilli
neyslu. Ekki hefur verið sett neitt
hámark á neyslu þess.
Budweiser dósir stærri
í samtali við Magnús Jónasson,
framkvæmdastjóra 3-K Trading sem
flytur inn Budweiser bjór, kom fram
að vegna stærðarmunar á dósunum
er um það bii 2 dósum meira í hverj-
um kassa af Budweiser en af öðrum
bjór. Innlendu og evrópsku bjórarnir
eru 24x33 cl hver kassi, eða 7,92 lítr-
ar. í kassa af Budweiser eru 24x35,51
eða 8,52 ltr. Munurinn er 7%.
-Pá
■: « f l
Aðeins innlendu bjórarnir og hinn ameríski Budweiser eru lausir við aukefni.
Tyggjó í stað tóbaks
- ekki mikið ódýrara
síst minni útgjöld en tóbaksneysla.
Síðastliðið ár barst reykingamönn-
um hjálp úr óvæntri átt þegar sett
var á markaðinn tyggjó sem inni-
heldur nikótín og er ætlað til þess
að hjálpa mönnum að hætta að
reykja. Tyggjóiö er einungis selt í
apótekum gegn lyfseðli og er gert ráð
fyrir að tóbaksþrælar grípi til þess
þegar löngunin í nikótín verður
óviðráðanleg.
í lyfjabúðinni Iðunni fengust þær
upplýsingar að sala á niktóníntyggjói
hefði verið jöfn og stöðug síðan það
kom fyrst á markaðinn.
Ekki er gert ráð fyrir að tyggjóið
sé notað lengur en fyrstu 2-3 mánuð-
ina eftir að viðkomandi hættir að
reykja.
Verðið á þessum bjarghring
reykingamanna hækkaði 1. apríl. í
dag kostar pakki með 105 stykkjum,
sem innihalda 2 mg af nikótíni, krón-
ur 1.399 en tyggjó með 4 mg kostar
2.134 krónur hver 105 stykki. Sá sem
notar sex stykki á dag af sterkari
tegundinni borgar þá um 11 þúsund
krónur fyrir þriggja mánaða notkun.
Hefði sá sami haldið áfram að reykja
pakka á dag af algengum sígarettum
hefði það kostað 15.000 krónur fyrir
sama tíma.
Þriggja mánaða notkun á veikari
tegundinni af tyggjói hefði hins vegar
kostað rúmar 7.000 krónur eða um
helmingi minna en að reykja pakka
á dag.
-Pá
Hvenær stelur maöur skrifborði voru geröir og þegar greiðabíllinn
oghvenærstélurmaðurekkiskrif- kom á staðinn og hugðist taka
borði? Þessi spurning leitaði á huga skrifborðiö greip hann í tómt.
konunnar sem hafði samband við í millitíðinni höfðu tveir menn
neytendasíðuna og sagði farir sínar komiö heim til seljanda skriíborðs-
ekki sléttar. ins og tjáð honum að þeir væru
Kona þessi sá auglýst í smáaug- komnir samkvæmt umtali að ná í
lýsingum DV skrifborð sem hún skrifborðið. Þeir greiddu fyrir
taldi að gæti hentaö sér. Eftir tvö borðið og höfðu það brott með sér.
símtöl við seljanda skrifborðsins Konunni, sem sent hafði greiðabíl-
var samið um kaup og ákveðið að inn, finnst menn þessir hafa gert
kaupandi sendi greiðabíl eftir henni ljótan grikk og telur þá hafa
gripnum og átti bílstjórinn að gera með sviksamlegum hætti komist
upp kaupin. Kaupanda láðist að yfir grip sem hún taldi sig í raun
gefa upp nafn sitt þegar samningar eiga. -Pá
ENDURSKINSMERKI
auka verulega öryggí í umferðínni.
Dökkklæddur vegfarandi sést en með rétt staðsett
ekki fyrr en í 20-30 m fjarlægð endurskinsmerki í 120-130 m
frá lágljósum bifreiðar, fjarlægð.
Vlnnttm saman
t amfeeOinni
UMFERÐAR
RÁD
Hættuleg
efnií
heimahúsum
Fjöldi slysa verður árlega þegar
smábörn komast í og gleypa hættuleg
efni sem er að fmna á hverju heim-
ili. Stærsti áhættuhópurinn í þess-
um efnum er börn yngri en þriggja
ára.
Á venjulegu heimili finnst íjöldi
efna sem geta valdið lífshættulegum
eitrunum og er þar einkum um að
ræða algeng lyf, ræstiefni og snyrti-
vörur af ýmsum toga. Margir gæta
þess ekki sem skyldi aö geyma
hættuleg efni í læstum hirslum og
auk þess eru því miður mörg dæmi
um að hættuleg efni séu geymd í
röngum ílátum.
Ef hinn minnsti grunur leikur á að
um eitrun sé að ræða ber að hafa
samband við lækni þegar í stað. Þurfi
að fara með barn á sjúkrahús er
mjög áríðandi að hafa meðferðis
<-* X
X. )■' \
'
lÉSlllSifiiSli
Svona á ekki að geyma hættuleg efni í heimahúsum. Slíkt býður hættunni
heim.
umbúðirnar eða ílátið undan því sem
talið er hafa valdið eitruninni.
Fyrstu viðbrögð eru ekki síður
mikilvæg. Sé sjúklingurinn með met-
vitund er óhætt í flestum tilfellum
að framkalla uppköst. Slíkt má þó
ekki hafi eitrunin valdið meðvitund-
arleysi. Sé sjúklingurinn með með-
vitund má gefa honum vatn að
drekka, sérstaklega ef um ætandi
efni er að ræða. En fyrst og fremst á
þó að hafa samband við lækni og
reyna að koma barninu undir lækn-
ishendur eins fljótt og auðið er.
En í þessum efnum er rétt að reyna
að byrgja brunninn áöur en barnið
fellur í hann. Hver og einn þarf að
líta í eigin barm og meta hvort ein-
hver hættuleg efni séu geymd á
glámbekk á hans heimih. Hættuleg
efni á helst að geyma í læstum skáp
ef því verður við komið. Það næst- j
besta er að koma þeim fyrir utan
seilingar smáhama einhvers staðar
hátt uppi eða í læstu herbergi.
-Pá