Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1989, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1989, Page 12
12 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1989, Enn um söngvakeppnina: Alvöruna vantar Söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva er lokið að þessu sinni. Útkoma okkar manna hefur tals- ven verið rædd undanfarna daga ! og sumir vilja einfaldlega gefast upp og hætta afskiptum af keppn- inni fyrir fullt og allt. Aðrir telja að rangt lag hafi veriö sent og mjög margir hafa látið í ljós opinberlega aö lagið Sóley. sem Björgvin Hall- dórsson söng, hafi átt erindi í þessa keppni. Björg\'in hefur tjórum sinnum tekið þátt í söng\rakeppni erlendis. Tvisvar hafnaði hann í öðru sæti. í stórri keppni á írlandi og í keppni sem haldin var í Bratislava í Tékkóslóvakíu. þá ásamt Jóhanni Helgasyni. Keppnin í Bratislava var send út í beinni útsendingu og þar lék sjötíu manna hljómsveit undir hjá söngvmrunum. Björgvin hefur því talsverða reynslu á þessu sviði. Þegar Björgvin var spurður um skoðanir sínar á Eurovision og af hverju lagið Sóley hefði ekki fengið fleiri stig færðist hann í fyrstu und- an því að svara. „Ég er auðvitað hlutdrægur í þessu sambandi en þó hef ég tekið eftir því að Sóley hefur heyrst mikið í útvarpi og nokkuð hefur verið skrifað um það. Sennilega er ástæðan sú að lagið hafi verið lengi að ná eyrum fólks. Einnig er hugsanlegt að þegar dóm- nefndirnar kváðu upp úrskurð sinn hafi höfundar hafi verið valdir fremur en lögin,'-' sagði Björgvin. „Mín skoðun er sú eftir að hafa fylgst með dómnefndunum í íjögur skipti að réttast væri að velja fag- fólk til aö meta lögin. Fólk sem starfar við tónlist og getur lagt fag- legt mat á hana." - Væri réttara að halda nöfnum höfunda leyndum? „Það gæti vel komið til greina og er oft gert í keppni. Valgeir hefur verið áberandi og mjög duglegar undanfarið. Hann hefur samið mörg mjög góð lög en þetta sigurlag var að mínu mati ekki besta lag hans. Reyndar kom það mér á óvart að lagið skyldi sigra og Valgeir var sjálfur undrandi á því.“ Björgvin telur rétt að vera áfram með í Eurovision en eins og margir aðrir telur hann fyrirkomulag keppninnar í ár ekki hafa skilað góðum árangri. „Hugsanlegt væri að einn maður væri fenginn til að semja nokkur lög fyrir þessa keppni sem fagfólk veldi síðan eitt lag úr eða gefa öllum kost á að vera með. Við eigum að taka þátt í Euro- vision heilshugar - ekki vera með tvískinnung. - segir Björgvin Halldórsson Björgvin Halldorsson segir að ef íslendingar ætli að vera með i Eurovision eigi þeir að vinna skipulega að undirbúningi og stefna á sigur. DV-mynd Brynjar Gauti Undirbúningur fyrir keppnina var ekki tekinn nógu alvarlega. Með því að velja aðeins fimm menn voru mörg lög útilokuð úr keppn- inni og jafnvel góðu lögin. Hins vegar fannst mér keppnin í Sviss óvenjuléleg og aðeins íjögur lög sem mér fannst eitthvað varið í, það sænska, austurríska, þýska og ítalska. Vinningslagið fannst mér ákaflega ódýrt. Að mínu mati er ekki nóg að senda lag í þessa keppni. Viss markaðssetning erlendis fyrir keppnina er nauðsynleg ef viö ætl- um að taka þátt í þessu. Keppnin skiptir okkur máli því búið er að eyða töluverðum peningum í hana og þá á að gera þetta almennilega. Lag, sem er vinsælt hér á landi, fellur kannski ekki að smekknum í öðrum löndum. Við eigum aö velja lag sem höfðar til dómnefnda ann- arra landa, við gefum ekki eigin lagi stig. Menn ættu að hafa heilt ár til að semja gott Eurovision- lag,“ sagði Björgvin sem segir að lagið hans Gunnars, Sóley, hafi haft alla burði til að ná langt í keppninni. Björgvin hefur tekið þátt í söngvakeppninni frá byrj un og seg- ist vel geta hugsað sér að syngja aftur, svo framarlega sem honum líki lagiö. „Ég myndi vel geta hugs- að mér að taka þátt í Eurovison, svo framarlega sem allir sem að henni stæðu hér heima gerðu það af fullri alvöru. Það er leiðinlegt að fá ekkert stig. Einnig skiptir miklu máli að senda fólk í þessa keppni sem hefur reynslu í sviðsframkomu. Það eru ekki margir hér á landi sem kunna að undirbúa t.d. söngvara fyrir keppni sem þessa,“ sagði hann. Björgvin varð poppstjarna fyrir tuttugu árum. Nokkur ár eru síðan hann geröi sönginn að aukavinnu og fór að starfa á öðrum vettvangi. Fyrst sem markaðsstjóri í Broad- way eða þangað til hann réð sig til útvarpsstöðvarinnar Stjörnunnar, sem framkvæmdastjóri. Björgvin hætti þar um áramótin og hefur síöan starfaö hjá íslensku auglýs- ingastofunni. Þar sinnir hann aðal- lega hljóðsetningum á útvarps- og sjónvarpsauglýsingum. Væntanleg er á markaðinn í sum- ar plata með HLH-flokknum sem samanstendur af Björgvin, Halla og Ladda. Auk þess er Björgvin að undirbúa sýningu þar sem farið veröur í gegnum feril hans í tutt- ugu ár. -ELA 910*22- Samkort Armula 3-108 Reykja vík - Sími 91-680988

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.