Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1989, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 13. MAl 1989.
21
Vísnaþáttur
Vormorgunn fagur við mér hló
Og þótt vor fylgdi ávallt vetri finst
sumum biðin eftir því ærið löng.
Björg Sigurðardóttir á Geirastöðum
kvað:
Ég hélt að það væri að vora og
hlýna
og voninni fært yfir allt.
En þegar ég háttaði í holuna
mína
var helvítið ísjökulkalt.
En vonin um betri tíð með blóm í
haga vakir þó enn. Ingólfur Andrés-
son á Haugi í Miðfirði:
Vorið blaka vængjum fer
vetri hraka lætur.
Ég hef vakað eftir þér
ótal klakanætur.
ítök næðingsins ná stundum
lengra en sanngjarnt virðist. En Har-
aldur Zophoníasson frá Jaðri lifir í
voninni:
Er i vitund vissa dregin,
vorsins þyt í lofti finn.
Vetrarslitum verður feginn
veðurbitinn andi minn.
Vetrarlangt þráir Friðrik Hansen
sumarið:
Sendið hingað sólskin inn
sumardagar ljósir,
vetur gróf á gluggann minn
gráar hélurósir.
Hjörtur Gíslason á Akureyri lýsir
árstíðum og nefnir Haust og vor:
Dagsins köldu hríðarhögl
huldu blóma slakka,
kleip að stofni næmri nögl
nóttin fingrablakka.
Sá ég vorsins rauðu rós
rísa úr grænu flosi
meðan nóttin lokkaljós
lést í árdagsbrosi.
Stundum leikur lífið við mann.
Gunnar S. Hafdal lýsir því á þennan
hátt:
Að morgni í vorsins veldi
ég vaknaði sæll og hress.
Þá lagði mér ljóð á tungu
lífið og fegurð þess.
En allur er varinn góður. Sveinn
frá Elivogum:
Ef að týnist eigið traust
ekkert bjargað getur,
manni sýnist sólskinslaust
sumar bæði og vetur.
Hjá öðrum gætir meiri bjartsýni
eins og næsta vísa eftir ókunnan
höfund ber með sér:
Vakir lífið eilíft ungt
undir fargi vetra.
Liðið ár var þykkjuþungt.
Þetta verður betra.
STOKKSEYRI
Nýr umboðsmaður DV á Stokkseyri er:
Þórunn Jónsdóttir
Eyrarbraut 24
sími 31493
Innkaupastofnun ríkisins fyrir hönd Ríkisspítala óskar
eftir tilboðum í utanhússviðgerðir og -viðhald á
deildum 7-10 á Kópavogshæli.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgar-
túni 7, Reykjavík, gegn 15.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 26.
maí nk. kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 - SÍMI 26844
HEILSUVERNDARSTÖÐ
REYKJAVÍKUR
Barónsstíg 47
SÁLFRÆÐINGUR
óskast í 50% starf, sem ætlað er að þjóna barnadeild
heilsuverndarstöðvarinnar og heilsugæslustöðvum í
Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Hansen, yfirlæknir
barnadeildar, í síma 22400 alla virka daga.
Umsóknum ber að skila til skrifstofu Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur fyrir kl. 16.00 mánudaginn 22.
maí nk.
Vísnaþáttur
Torfi Jónsson
Jóhannes Jónsson frá Asparvík á
Ströndum lýsir vormorgni þar:
Allt er hjóm hjá árdagsróm
ölduhljómar þagna.
Döggvot blóm við dýraróm
dagsins ljóma fagna.
Vafinn þrótti vorbjört nótt
víkur ótta úr geði.
Allt er hljótt, en örþreytt drótt
unir rótt á beði.
Helga Jónsdóttir frá Saurbæ í
Vatnsdal lýsir vorkomunni á eftir-
farandi hátt:
Vormorgunn fagur við mér hló
á vanga mig sólin kyssti.
Ég var á gangi suður með sjó,
það var sumardagurinn fyrsti.
Og eitthvað svipað er Lárusi Sigur-
jónssyni í huga er hann kveður:
Gamlan vin að garði ber
- gesti fagnar harpa -
mér var orðið mál á þér
máríátla í varpa.
Tilhlökkun eftir sumri og sól er
augljós í vísu Stephans G. Stephans-
sonar:
Meðan ís í útlegð fer
og auðir rísa hjallar,
sólskinsvisu syngi þér
sumardísir allar.
Lilja Björnsdóttir þakkar fyrir það
sem hún kallar Sumarauka:
Ljósið skein á lífsins vegi,
lætur eftir sálafrið.
Þú bættir einum dýrðardegi,
drottinn minn, við sumarið.
En ekki rætast alíra vonir. Þor-
steinn Guðmundsson á Skálpastöð-
um:
Ég hef farið stað úr stað
og stöðugt fundið betur,
að sumarið getur synjað um það
sem mig dreymdi í vetur.
Þegar vorið er í nánd - Guðmundur
Friðjónsson:
Þegar brum á björkum springur
og börnin fara á kreik,
þá er víst að vorið syngur
. við þann undirleik
Torfi Jónsson
Hvar finnur þú
pappírinn?
C-TORK i
ptus 2 m '
C-TORK
T-TORK
NORMAt
:■ ;,v
VÖRURNAR
ÁLAGER
ÞJÓNUSTA
VELKOMINN TIL ASIACO
Þ JÓNUSTU MIÐSTÖÐ VAR
FYRIR TORK VÖRUR!
Asiaco hf, er alltaf reiðubúið að þjóna þeim sem á
þurfa að halda. Við státum af fuílkomnu úrvali af
nagkvæmum og þægilegum TORK-pappír og
skommturum fyrir allar atvinnugreinar og einstakl-
inga, ekki einungis fyrir núverandi viðskiptavini
okkar heldur einnig fyrir nýja sem vilja reyna
þjónustuna.
Vanti þig pappír og viljir prófa eitthvað nýtt leyfum
við okkur að segja að þjónustan kemur þér þægi-
lega á óvart. Við getum afgreitt allar geroir af
pappír: handþurrkur, í rúllum og samanbrotnar; wc-
pappír og aílar gerðir af iönaðarþurrkum. Nú er
tækifæri til að reyna hinn eina sanna TORK-pappír
frá Asiaco hf, þjónustumiðstöö TORK á Islandi.
!
Vesturgötu 2, Pósthólf 826, 121 Reykjavík.
Sími: 91-26733. Telex: 2164 ASIACO IS. Fax: 91-623696