Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1989, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989.
Fréttir______________________________________________
Framhaldsskólarnir bregðast misjafelega við eftir verkfall:
Nemendur og rektor MR
deila hart um skólaslit
- engin próf í Verslimarskólanum
Guðni Guðmundsson, rektor Menntaskólans í Reykjavík, umkringdur 6.
bekkjar nemendum sem vildu sveigja einarða afstöðu hans gagnvart skóla-
DV-mynd KAE
Mikill hiti var í nemendum
Menntaskólans í Reykjavík í allan
gærdag vegna tillagna kennara og
rektors um hvemig staðið yrði að
skólaslitum í vor. í gærkvöldi var
enn óljóst hver niðurstaðan yrði en
þá fundaöi Guðni Guðmundsson
rektor með stúdentsefnum þar sem
leitað var málamiðlunar.
í fyrstu tillögum rektors var gert
ráð fyrir að nemendur þyrftu að
þreyta próf í öllum fögum eins og
tíðkast hefur. Nemendur komu hins
vegar með tvenns konar móttilboð.
Annars vegar að námsmat kennara
og jólapróf yrðu látin gilda. Ef þessar
einkunnir næðu ekki ákveðnu lág-
marki yrðu nemendur að þreyta próf
í viðkomandi fögum. Hins vegar að
námsmat yrði látið gilda í öllum fög-
um nema meginfögum; það er eðlis-
fræði og skyldar greinar á eðlis-
fræðibraut og tungumál í máladeild.
Þegar fundur rektors með nemend-
um haföi staðið í rúman klukkutíma
benti margt til þess að einhvers kon-
ar málamiðlun yrði fyrir valinu.
Nemendur skyldu þreyta fimm próf
í stað tíu til tólf. Með þessum hætti
gætu skólaslit orðið um 15. júní.
slitum.
Þaö er nokkuð misjafnt eftir skól-
um hvemig staðið verður að skóla-
slitum í vor. Meginreglan er sú að
nemendur geta valið um hvort þeir
þreyta próf nú í vor eða geyma það
til haustsins. Það er hins vegar mis-
jafnt milli skóla hvort nemendur geti
sleppt prófum og látið námsmat eða
einkunnir í jólaprófum gilda sem
lokaeinkunn.
1 Verslunarskólanum þurfa fæstir
nemendur að taka próf. Stúdentsefni
hafa þegar tekið þrjú stúdentspróf.
Einkunnir úr jólaprófum og náms-
mat kennara verður látið gilda sem
lokaeinkunn. Þeim nemendum sem
vilja freista þess að bæta þessar ein-
kunnir mun síðan hugsanlega verða
boðið upp á að taka próf í haust.
í Menntaskólanum við Sund verö-
ur notuð svipuð aöferð og í Verslun-
arskólanum. Ef nemendur ná hins
vegar ekki 5 í einkunn úr jólaprófum
og námsmati kennara verða þeir að
taka próf i viðkomandi grein. Þeir
mega velja hvort þeir þreyta prófin
í vor/eða haust.
í flestum íjölbrautaskólunum
veröa próf þreytt í vor. í þessum skól-
um eru nemendur einungis prófaöir
úr námsefni vorannar. Flestir skól-
amir munu reyna að ljúka prófum
3. júni og útskrifa nemendur daginn
eftir. Á meðan á prófum stendur mun
nemendum verða boöið upp á stuðn-
ingskennslu.
Kennarar munu hafa góð laun á
meðan á prófunum stendur. Frá því
að þeir mættu til vinnu í morgun og
fram til 25. maí munu þeir fá greidd
eftirvinnulaun fyrir alla vinnu. Eftir
25. maí munu þeir síðan fá greidda
dagvinnu til viðbótar við eftirvinnu-
launin. Þeir munu þá fá greidda átta
tíma að lágmarki fyrir hvern hafinn
vinnudag. Þeir munu fá sömu kjör
fyrir stuðningskennslu og yfirsetu í
prófum í haust.
-gse
Deila milli deilda Alþingis um vaxtabreytingar:
Sfjórnarliðar köstuðu
frumvarpinu á milli sín
- semja þurfti viö stjómarandstöðuna til að fá meirihluta
Frumvarp stjómarinnar um breyt-
ingu á vaxtalögum varð að miklu
ágreiningsmáli á milli deilda Al-
þingis og þurfti því að koma til kasta
sameinaðs þings í gærkvöldi til að
afgreiða málið. Þá vakti ekki síður
athygli að þaö virtust vera þing-
flokksformenn tveggja sljórnar-
flokka sem deildu þama.
Frumvarpið var lagt fram í neðri
deild og þar var gert ráð fyrir að taka
út orðalagið...á óréttmætan hátt“
sem fyrir var í vaxtalögunum. Þetta
orðalag átti að vera til áréttingar þar
sem flallaö er um ólöglega hagnýt-
ingu á fólki í fjárþröng. Mörgum þótti
þetta vera óþarfa árétting en þegar
frumvarpiö kom til efri deildar var
þessu bætt inn aftur og var það með-
al annars að frumkvæði Eiðs Guðna-
sonar, þingflokksformanns Alþýðu-
flokksins og formanns fjárhags- og
viöskiptanefndar efri deildar. Var
breytingin rökstudd með því að dóm-
stólamir þyrftu að hafa þetta ákvæði
inni til að geta dæmt eftir frum-
varpinu. Hefur reyndar aldrei veriö
dæmt eftir því.
Vegna breytingarinnar fór málið
aftur til neðri deildar. Þar var þessu
orðalagi kippt út eftir meðferð í fjár-
hags- og viðskiptanefnd en þar er
þingflokksformaður framsóknar-
manna, Páll Pétursson, formaður.
Nú haföi málið fengið 8 umræður
og greinilegt að ágreiningur var á
milli deilda Alþingis. Samkvæmt
þingsköpum fór málið til sameinaðs
þings en þar verður fmmvarpið að
fá 2/3 hluta atkvæða til að hljóta sam-
þykki. Breytingartillögur eru hins
vegar felldar eða samþykktar á ein-
földum mkrihluta.
Fyrir sameinað þing kom breyting-
artillaga frá Kristínu Halldórsdóttur
og Stefáni Valgeirssyni um að fram-
angreint orðalag yrði fellt brott.
Nýtt frumvarp samið
en dregið til baka
Vegna óvissu um það hvort tækist
að semja við stjómarandstöðuna,
sem var nauðsynlegt, ákváðu stjóm-
arhðar að semja nýtt fmmvarp og
leggja það fram. Var þar hinu um-
deilda orðalagi sleppt og var fmm-
varpið lagt fyrir efri deild.
Áður en umræða hófst um málið
var það dregið til baka enda haföi
þá tekist samkomulag við Sjálfstæð-
isflokkinn um stuðning við málið.
Var því búist viö að frumvarpið yrði
samþykkt án hins umdeilda oröa-
lags.
-SMJ
Alþingi slitið í dag:
Umhverfis-
ráðuneytið
fékk grænt Ijós
Alþingi verður slitið í dag kl. 14 fmmvarp um Þjóðarbókhlöðu,
en í gær vom fjölmörg mál afgreidd frumvarp um rannsóknir í þágu
sem lög frá Alþingi. Reyndar þarf atvinnuvega, frumvarp um tekju-
að funda í dag tál að Ijúka nokkrum og eignarskatt, frumvarp um
málum sem stjómin leggur áherslu námslán og námsstyrki.
á. Þá var samiö við stjómarand-
Meðal þeirra mála, sem urðu að stöðuna um aö afgreiöa frumvarp
lögum í gær, má nefna fmmvarp um umhverfisráðuneyti gegn því
forsætisráðherra um launavísitölu að milliþinganefnd yrði skipuö í
og húsbréfafrumvarp félagsmála- sumar. Verður þetta nýja ráðu-
ráðherra. Einnig varð frumvarp neyti tekið inn á fjárlög næsta vet-
um aðskilnaö dómsvalds og um- ur. Nokkurrar óánægju gætti með-
boðsvalds aö lögum. Þá má nefna al stjómarandstööunnar með að
frumvörp um mál eins og; verka- ákveðiö var á síöustu stundu að
skiptingu ríkis og sveitarfélaga, afgreiða þetta nýja ráöuneyti.
frumvarp um almannatryggingar, -SMJ
„Eg bað fyrir kveðju“
- segir Helena Albertsdóttir
„Þetta bar nú þannig til að eg bað
Ásgeir Hannes að senda kveðju mína
til fólksins á fundinum. Það var allt
og sumt sem ég gerði. Það var Ásgeir
sem hringdi í mig enda tölum við
reglulega saman. Það virðist hafa
komið upp einhver misskilningur á
því hvemig þetta var túlkað úr því
að þetta varð að svo miklu máli,“
sagði Helena Albertsdóttir en á fundi
Borgaraflokksins í Þórskaffl á
fimmtudagskvöldiö var lesin upp
yfirlýsing frá Helenu sem tekin var
sem stuöningsyfirlýsing. Undmöust
það margir því þar með heföi Helena
tekiö afstöðu gegn fjölskyldu sinni
sem styður Frjálslynda hægrimenn.
Helena sagðist ekki hafa tekið af-
stöðu í þessari deilu sem komið heföi
upp í Borgaraflokknum. „Það væri
ákaflega erfitt fyrir mig því annars
vegar em bræður mínir og hins veg-
ar er margt fólk sem ég hef þekkt að
góðu einu í fjölmörg ár.“ Helena seg-
ist reyndar ekki ætla aö taka afstöðu
í þessari deilu enda sé hún ekki á
heimleið í bráö.
Helena hringdi
Ásgeir Hannes Eríksson, varaþing-
maður Borgaraflokksins, hefur sent
frá sér yfirlýsingu þar sem hann seg-
ir að þaö hafi verið Helena sem
hringdi í Þórskaffi og lét kalla hann
í símann. Segist Ásgeir hafa tekið þar
niður kveöju frá Helenu til fundar-
gesta og hafi Jón Gunnarsson, fram-
kvæmdarstjóri flokksins, hlustað á
samtaliö og rætt nokkur orð við He-
lenu. Síðan segir Ásgeir að hann
hafi lesið kveðju sem hljómaði svo:
„Þó ég sé nú fjarri góðu gamni í
kvöld þá er ég með ykkur í anda.
Mér er ekki rótt nema kveðjur mínar
berist á þennan fund. Borgaraflokks-
fólk mun harðna við hverja raun.
Kveöja, Helena Albertsdóttir."
-SMJ
Framkvæmda-
stjóri Hreyfils
rekinn
Stjórn bifreiðastöövarinnar
Hreyfils rak Einar Geir Þor-
steinsson framkvæmdastjóra í
gærmorgun. Hann lét síðan af
störftun siðdegis.
„Það er rétt að mér var sagt upp
en ég vil ekkert tjá mig um það
frekar,“ sagði Einar Geir í gær-
kvöldi.
Uppsögn Einars kemur í kjölfar
deilna milli stjómar og fram-
kvæmdasfjóra Hreyfils en fyrir-
tækið haföi bága afkomu í fyrra.
Eins og fram kom í DV fyrir
skömmu stóðu deilumar meðal
annars um hvort selja ætti hluta
af húseign Hreyfils við Grensás-
veg. Það var tillaga Einars Geirs
en stjórnin lagðist gegn henni.
-gse
Eftirgjöf gjalda:
Fjármálaráðu-
neyti skortir
heimild
Ríkisendurskoöun segir aö fjár-
málaráðuneyti skorti heimild til
að fella niöur opinber gjöld ein-
staklinga og fyrirtækja.
I skýrslu Ríkisendurskoðunar
til alþingismanna kemur fram að
frá ársbyrjun 1987 hafi fjármála-
ráöuneytið fellt niður opinber
gjöld fyrir alls um 35 milfjónir
króna. 33 einstaklingar áttu um 5
miHjónir af þeirri upphæð og 28
fyrirtæki um 30 milljónir kránie
Akranes:
Hjálmurinn í
gegnum rúðuna
Slys varö á Akran^si í gæ^er
ungur .naður á vélhjoli ók í veg
fyrir fólksbíl á mótum Sunnu-
brautar ogMerkigerðis. Vélhjóla-
maöurinn slasaöist og var fluttur
á sjúkrahúsið á AkranesL Hann
er ekki talinn vera alvarlega slas-
aður.
Maðurinn var með hjálm á
höföinu og hefur hann ömgglega
forðað manninum fr á alvarlegum
meiðslum þar sem höfuð manns-
ins skall á rúðu í bílnum. -sme
Jón Baklvin
skammar Banda-
rikjamenn
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra kaUaöi sendi-
herra Bandaríkjanna hér á landi
á sinn fund í gærmorgun. Ræddi
Jón Baldvin þar ræðu Erics A.
McVadon flotaforingja þegar
hann lét af embætti um síöustu
helgi. Vakti Jón Baldvin athygh
á því að varnarliðsmönnum væri
óheimilt aö hafa nokkur afskipti
af íslenskum stjórnmálum. Sagði
utanríkisráöherra að viss um-
mæU flotaforingjans yröu ekki
túlkuö öðmvísi en sem íhlutun í
íslensk stjómmál. Mótmælti ut-
anríkisráðherra því fyrir hönd
íslensku stjórnarinnar. -SMJ
EfHriýstur
bílþjófur
Lögreglan í Rangárvallasýslu
lýsir eftir bUþjófi. Aðfaranótt
laugardagsins 13. maí var grárri
Fiat Pöndu stoUö á HeUu. Bílnum
var stoUð á núlU klukkan tvö og
fimm um nóttina. BÍUinn fannst
mikið skemmdur, ef ekki ónýtur,
á Suöurlandsvegi viö Ásmundar-
staði.
Lögreglan viU biöja þá sem
urðu varir við ferðir bílsins á
þessum slóðum eða hugsanlega
tóku upp farþega aö hafa sam-
band við lögregluna í Rangár-
vallasýslu. Simi lögreglunar er
98-78434.