Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1989, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1989, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989. Veiðivon Ármenn boðuðu til almenns fé- lagsfundar um fiskverndunarmál síðastliðinn núðvikudag í félags- heimili sínu, Árósum, og var fundurinn fróðlegur og fjöriegur. Á fundinum kynnti Árni ísaks- son veiðimálastjóri reglugerð um fiskeldi og svaraði fyrirspumum um fiskvemdunarmál. En fyrir skömmu ályktaði stjóm Ármanna um þessi mál og á fundinum gefst tækifæri til að ræða þá ályktun, en hún er þessi: „Stjóm Ármanna lýsir yfir ein- arðri afstöðu sinni til vemdar náttúrulegumfiskistofnum. Sér- staklega er fordæmd fyrirhuguð dreifing norskra laxaseiða til strandeldisstöðva. Minnt er á samþykkt landsfundar Lands- sambands stangaveiðifélaga 1986, og samþykkt Landverndar frá 1987, og þess krafist að þessar samþykktir verði í hávegum hafðar. Umsjón: Gunnar Bender Vakin er athygh á því að öll meðferð utanaðkomandi fiski- stofna hefur í för með sér hættu á náttúruslysum sem aldrei verða bætt. Fyrirhuguð dreifing norskra laxaseiða er því hið mesta glapræði með tilliti til þeirraráhættu. Stjórn Ármanna vill hvetja aila félagsmenn til þess að leggja hönd á plóginn til vemdar okkar nátt- úrulegu fiskistofnum. Jafnframt er hvatt til þess að menn leiti sér þekkingar um þessi málefni og útbreiði til annarra í þjóðfélag- inu. Verum minnugir þess aö lands- ins gæði eru í umsjá okkar og fengin aö láni frá bömum okk- ar.“ „Þetta var hörkufundur og mál- in voru rædd fram á nótt, mörg- um finnst máhð vera orðið svo alvarlegt að eitthvað verði að gera strax,“ sagði einn af félögum í Ármönnum sem mættu á fund- inn. Fjörið er að byrja í Hvammsvík i Kjós þessa dagana og á myndinni sést Ásgeir Heiðar með feiknaveiði fyrir nokkrum dögum, 9, 10 og 12 punda regnbogasilunga á flugu. DV-mynd SK Stjóm Armanna: Dreifing norskra laxaseiða hið Fjörið að byrjaí Hvammsvíkinni Heimilishundurinn í Hvammsvík í Kjós nær sér í einn silung sem veiði- maður hafði skömmu áður veitt en varð að skila honum aftur. DV-mynd G.Bender Líf og fjör er nú farið að færast í veiðina í Hvammsvík í Kjós en þar verður opið um helgar núna í maí og svo alla daga fram á haust. „Ætli það séu ekki um 10 þúsund fiskar í vatninu eins og er, svo munum við bæta við fisk- um eftir því sem þarf,“ sagði Ólaf- ur Skúlason í vikunni, en veiði- menn eru farnir að fá hann í Hvammsvíkinni. „í dorgveiðinni í vetur hafa veiðst um 2200 fiskar og hún gekk vonum framar. Það htur vel út með veiðina í sumar og þetta verður örugglega feikna- gott veiðisumar," sagði Ólafur ennfremur. G.Bender HÓTEL LOFTLEIÐUM ER GJALDEYRIS- AFGREIÐSLA OPIN Á ÖTRÚLEGU STU TÍMUM Já, það er ekki ofsögum sagt af þjónustu Landsbankans við erlenda jafnt sem innlenda ferðamenn. Gjaldeyrisafgreiðslan á Hótel Loftleiðum er opin sem hér segir: Mánudaga - föstudaga kl. 8:15-16:00 og 17:00-19:15. Laugardaga og sunnudaga kl. 8:15-19:15. Á sama tíma eru afgreiddar ferðatryggingar. Að öðru leyti er almenn afgreiðsla opin á venjulegum tímum: Mánudaga-föstudaga kl. 9:15-16:00 og fimmtudaga, síðdegis kl. 17:00-18:00. Verið velkomin, - hvenær sem er. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.