Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Page 7
MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 1989.
7
Nú er Renault 19
kominn til Islands
Tímamótabíll.
Áriö 1984 byrjaði hönnunin á þessum
tímamótabíl, Renault 19. Bíllinn er
árangur þrotlausra tilrauna og rannsókna viö
margskonar ékilyröi. Renault 19 kom fyrst á
markaöinn í Frakklandi áriö 1988, en nú er
hann loksins Táanlegur hérlendis.
Gæðin ofar öllu.
Strax í upphafi var markmiöiö aö framleiöa
bíl í hæsta gæðaflokki fólksbíla. Hönnun og
þróun bílsins var ein sú umfangsmesta og
dýrasta í frönskum bílaiðnaði, enda hvergi til
sparað.
Tæknilegur tímamótabíll.
Renault 19 GTS, er meö nýja 80 hestafla
„Energy” vél, meö 2ja hólfa blöndungi. Vélin
er 1390cc, 4ra strokka og smíðuð til aö
standast ströngustu kröfur um mengunar-
varnir T Evrópu og Bandaríkjunum. Spar-
neytnin er ótrúleg, bensíneyðslan er milli 5
og 6 lítrar á hundrað kílómetrum. Hámarks-
hraöi er 173 km/klst. Fjöðrunin er sér-
staklega styrkt og gefur þaö bílnum mjög
skemmtilega aksturseiginleika. Gírkassinn er
5 gíra og er gírskiptingin eins og best gerist í
dýrari bílum. Gírkassi og drif hafa sérstakt
smurolíukerfi sem aldrei þarf aö bæta á eöa
skipta um olíu.
Nýjung á íslandi, 30 daga
skilaréttur á Renault 19.
Þaö hefur sjaldan veriö eins auövelt aö
eignast nýjan bíl, því nú getur þú valiö um
þau kjör sem henta þér best og aö auki
fengið bílinn á 30 daga skilrétti. Þessi
skilaréttur gefur þér góöan tíma til aö
kynnast bílnum og meta hvert smáatriði.
Nánari upplýsingar um skilaréttinn á Renault
19 færöu hjá sölumönnum.
Viö getum líka tekiö notaöa bíla í góöu
ástandi sem greiðslu upp í nýjan Renault 19.
Sýningin.
Nú stendur yfir sýning á Renault 19 GTS, 5
dyra og 3ja dyra, í sýningarsal okkar aö
Krókhálsi 1 í Reykjavík. Þar gefst þér
tækifæri til aö reynsluaka þessum
tímamótabíl.
Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 8
til 18 og laugardaga frá kl. 13 til 17.
Óskir þú eftir heimsendum upplýsingum
um Renault 19, skaltu hafa samband í
sfma 686633.
Sérstaða á markaðnum.
Renault 19 er sniðinn aö þörfum mark-
aöarins aö öllu leyti, og því ákjósanlegasti
kostur. Renault 19 er um margt ólíkur
öörum frönskum bílum, bæöi í ytra útliti,
hönnun og frágangi. Renault 19 er nýr bíll
frá grunni meö sportlegt yfirbragö.
Fjöldi nýjunga.
Þaö er margt sem gerir Renault 19
áhugaverðan. Hann er þaö rennilegur, aö
loftmótstaöan er sú minnsta hjá bílum í
þessum flokki. Rými fyrir ökumann, farþega
og farangur er meira en almennt í þessum
stæröarflokki. Huröir halda fullri hæö til
þæginda fyrir alla farþega. Afturhuröin
opnast mjög hátt. Hliðarspeglarnir og
stuðararnir eru endurbættir til aö bæta enn
frekar öryggiö. Öryggisbelti eru meö sjálf-
virkri hæðarstillingu. Renault 19 á íslands-
markaöi er hlaðinn aukahlutum og
sjálfsögöum þægindum eins og rafstýröum
rúöum og samlæstum fjarstýröum
huröalæsingum.
Bílaumboðiö hf
Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 686633
Renault 19, GTS
Kostar frá
fyrir utan
Renault 19 er meö 6 ára ryðvarnarábyrgð.