Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Blaðsíða 20
20
MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 1989.
Iþróttir
Frétta-
stúfar
[ ^ | Aldo Spinelli, forseti
I ív I *taúka knattspyrnu-
I /?«I liösins Genoa, sagði í
gær að sovéski lands-
liðsmaðurinn Sergei Aleinikov
hefði verið keyptur til félagsins
frá Dynamo Minsk. Genoa
vann sér rétt tii að leika í 1.
deild á næsta keppnistímabili í
ítölsku knattspymunni. Kaup-
verðið er talið nema um 85
miHjónum króna. Spinelli for-
seti hefur einnig áhuga á aö
kaupa Sovétmanninn Zavarov
frá Juventus og mun ræða viö
forráöamenn Juventus á næstu
dögum.
Göngumet í USA
Um helgina var sett
bandarískt met í 10
km göngu kvenna á
bandaríska meist-
£
aramótinu í ftjálsum íþróttum.
Metiö setti Lynn Weik og gekk
hún vegalengdina á 46:44,1 mín.
en eldra metið átti Maryanne
Torrellas og var það 47:23,8
mín., sett árið 1987.
„Brassi“ til Bologna
Geovani, brasilíski
landsliðsmaðurinn í
knattspyrnu,- hefur
verið seldur frá Vas-
co da Gama í Brasilíu til ítalska
1. deildar liðsins Bologna. Geo-
vani er 25 ára og sem stendur
er hann í Danmörku að leika
með landshði Brasilíu á af-
mælismóti danska knatt-
spymusambandsins. Hann
flýgur síðan beint til Ítalíu til
að kanna aðstæður hjá Bo-
logna. Samningur hans gildir
til þriggja ára og borgaöi ít-
alska liöið um 270 milljónir fyr-
ir samninginn.
Fækkað og fjölgað í
frönsku knattspyrnunni
'' ' Franska knatt-
|IS spyrnusambandið
/r» hefur ákveðið að
fækka 1. deildar lið-
unum þar í landi úr 20 í 18. Þá
ákvað franska sambandið að
leyfa liðum að kaupa þrjá er-
lenda leikmenn en lið hafa
liingað til mátt leika með tvo
erlenda leikmenn hverju sinni.
Þessar breytingar taka gildi
þegar keppnistímabiliö 1991-
1992 hefst.
Enn um Maradona
Enn eru fjölmiðlar í
Frakklandi og á ítal-
íu að velta sér upp
úr hugsanlegri sölu á
Maradona frá Napolí til Mar-
seille. Það virðist ekki duga að
Maradona segist ætla að leika
áfram meö Napolí en haim hef-
ur marglýst því yfir. Bemard
Tapie, forseti Marseille, sagði á
dögunum: „Málinu er lokið og
ég vil ekki heyra meira um
þetta. Ég hef ekki einu sinni
látið mig dreyma um að okkur
gæfist kostur á að fá Maradona
í okkar lið. Og ég hef aldrei
rætt þetta mál viö forráöamenn
Napolí. En ef Maradona óskar
einhvem tímann eftir fundi
með okkur þá verður honum
komiö á samstundis.
Öruggur sigur hjá
heimsmeistaranum
Tékkneski spjótkast-
arinn Jan Zelezny
vann ömggan sigur í
spjótkasti á alþjóð-
legu móti sem fram fór í Brat-
islava. Zelezny, sem er heims-
meistari í spjótkasti, kastaði
84,74 metra, sem er 12 cm
lengra en Islandsmet Einars
Vilhjálmssonar.
• Curtis Strange farinn að fagna sigri á US Open í gærkvöldi er hann gengur upp 18.
Open annað árið í röð en engum öðrum kylfingi hefur áður tekist það.
og síðustu brautina. Strange vann það ótrúlega afrek að vinna US
Simamynd/Reuter
n
89. US Open atvmnumannamótið í golíi:
Núna sigraði
ég fyrir mig“
- sagði Curtis Strange sem sigraði glæsilega
)L
„Eg spilaði mjög
traust golf og lengstum
með vomina að leiðar-
ljósi. í fyrra vann ég
þetta mót fyrir foöur minn sem dó
þegar ég var ungur en núna vann
ég þetta fyrir mig sjálfan. Mig
langaði heil ósköp til að vinna að
þessu sinni,“ sagði Bandaríkja-
maðurinn Curtis Strange eftir að
hann haföi tryggt sér nauman sig-
ur á US Open stórmótinu í golfi
en mótinu lauk í gærkvöldi.
Strange lék holurnar 72 á 278
höggum (71-64-73-70), tveimur
höggum undir pari vallarins og er
hann fyrsti kylfingurinn í sögu
þessa merka móts sem nær að
vinna sigur tvö ár í röð. Sigur
Strange hékk á bláþræði. í öðru
sæti á hæla hans komu þrír kylf-
ingar; Mark McCumber, Banda-
ríkjunum, Ian Woosnam, Wales,
og Chip Beck, allir á 279 höggum.
Brian Claar, Bandaríkjunum, kom
næstur á Bandaríkjunum, á 280
höggum. Fimmti varð Japaninn
Jumbo Ozaki á 281 höggi ásamt
Scott Simpson.
• Margir þekktustu kylfingarn-
ir voru aftarlega á merinni. Paul
Azinger varð 9. á 283 höggum, Tom
Kite, sem hafði eins höggs forystu
fyrir síðasta daginn, varð 11. á 283
höggum, Nick Faldo varð 18. á 285
höggum, Raymond Floyd varð 26.
á 287 höggurn, Greg Norman í 39.
sæti á 289 höggum, Severiano Bal-
lesteros 43. á 290 höggum, Jack
Nicklaus 45. á 290 höggum, Tom
Watson 51. á 292 höggum og Bern-
hard Langer 61. á 294 höggum.
Alls kepptu 70 kylfingar á mótinu.
-SK
Frétta-
stúfar
Frábær árangur náð-
I ist í mörgum grein-
1 um um helgina á
austur-þýska meist-
aramótlnu í sundi. Til aö
mynda synti Manuela
Stellmach 200 metra skriösund
á 58,66 sekúndum sem er besti
tími sem náðst hefur í greininni
í ár. Þá setti. Patrick Kuehlk
austur-þýskt met í 400 metra
fjórsundi, synti á 4:16,63 mínút-
um.
• Manehester United mun
mæta til leiks í 1. deild næsta
haust með f það minnsta tvo
nýja leikmenn. Félagið hefur
keypt þá Neil Webb og Michael
Phelan. Webb er enskur land-
liðsmaður og kemur frá Nott-
ingham Forest. Hann hefur
leikið 15 landsleiki fyrir Eng-
land. Phelan var fyrirliði Nor-
wich á síðasta keppnistímabili.
United borgaöi 750 þúsund
pund fyrir Phelan en ekki er
Ijóst enn hvert verðið veröur á
Webb.