Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Blaðsíða 27
M'ÁNUDk'Gl/R 19. JÚNÍ 1989.
27
Þrír náðu
að bæta sig
Þrír íslenskir hlauparar
náöu sínum besta árangri á
mótum í Vestur-Þýskalandi í
vikunni. Jóhann Ingibergs-
son, FH, og Gunnlaugur
Skúlason, UMSS, kepptu í
Koblenz á miðvikudag og
Daníel Guðmundsson, USAH,
í Essen á mánudag.
Jóhann og Gunnlaugur
hlupu báðir 5000 metra í
fyrsta skipti undir 15 mínút-
um. Jóhann fékk tímann
14:52,37 mínútur og Gunn-
lauguf 14:57,53. Daníel hljóp
hins vegar 1500 metra í fyrsta
skipti undir 4 mínútum, fékk
tímann 3:59,2 mínútur.
-VS
Harðnandi
samkeppni
um skóna
Kristján Bemb., DV, Belgíu:
Þýsku stórfyrirtækin Adid-
as og Puma, sem hafa verið
allsráðandi á skómarkaði
knattspyrnumanna undan-
farin ár, hafa fengið verðugan
andstæðing að glíma við - ít-
alska fyrirtækið Diadora sem
hefur notið vaxandi velgengni
upp á síðkastið.
Arið 1978 seldi Diadora að-
eins 28 þúsund pör af skóm
en árið 1982 fékk fyrirtækið
vind í seglin þegar það gerði
samning við brasilísku stjörn-
una Zico. Það ár fór salan í
300 þúsund pör og síðan hefur
hún vaxið jafnt og þétt.
Á síðasta ári seldu ítalirnir
900 þúsund pör og gert er ráð
fyrir því að milljóninni verði
náð í ár. Enda er Diadora
komið með marga af sterk-
ustu leikmönnum Evrópu á
samning.
Adidas og Puma líta keppi-
nautinn hornauga og berjast
nú fyrir því með kjafti og
klóm að halda sínum mark-
aði. Það verður þó sífellt erf-
iðara með hverju árinu sem
líður.
íþróttir
• Óli Ólsen leiðir Josef Hickersberger til sætis síns á varamannabekk
Austurríkis. DV-mynd EJ
Þjálfarinn rekinn
aftur á bekkinn
- var að mótmæla legghlífaleysi Ásgeirs
Það vakti nokkra athygli snemma
í landsleik íslands og Austurríkis á
miðvikudaginn var að Óli Ólsen, sem
gegndi stöðu eftirlitsmanns, þurfti
að beita handafli til að koma þjálfara
Austurríkis, Josef Hickersberger, á
sinn stað á varamannabékknum.
Hickersberger rauk að hliðarlín-
unni og var greinUega mikið niðri
fyrir. Ástæðan fyrir upphlaupi hans
var sú að hann var að vekja athygh
á því að Ásgeir Sigurvinsson væri
ekki með legghlífar, en það er nú
skylt í leikjum á vegum Alþjóða
knattspyrnusambandsins.
Eftir að ÓU hafði komið þeim aust-
urríska á sinn stað þurfti Ásgeir að
setja upp legghlífar. Hins vegar kom
það í ljós eftir leikinn að nokkrir leik-
manna Austurríkis léku hann á enda
án legghlífa!
-VS
• Séð yfir hluta iþróttavallarins og framkvæmdir við hlaupabrautina.
DV-mynd Arni
Vallarframkvæmdir í Ólafsvík
Ámi E. Aibenssati, DV, Ólafevík
Miklar framkvæmdir eru nú í
gangi við íþróttavölhmi í Ólafsvík,
Verið er að útbúa hlaupabraut í
kringum haxm, en fram til þessa
hefur ekki verið fullgild 400 metra
braut í kringura hann,
Þurfti að skipta um jarðveg undir
brautinni, þar sem jarövegur þar
var leirkenndur og þornaöi seint á
vorin. Jafnframt er verið að snyrta
bakkann fyiir neðan kirkjuna, en
hann liggur að íþróttaveUinum.
Þar hefur frá því þessi vöUur var
tekinn í notkun verið hálfgert rofa-
barð, en nú er búið að slétta það
út og brött og slétt brekka bíður
þess að vera þakin torfi.
Iþróttakennarar
Iþróttakennara vantar til starfa víð Vopnafjarðarskóla
næsta skólaár. Kennt er í nýju og fullkomnu íþrótta-
húsi. Húsnæðisfríðindi í boði fyrir réttindakennara.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 97-31218 eða
yfirkennari í síma 97-31108.
Skólanefnd
HEILSUVERNDARSTÖÐ
REYKJAVÍKUR
BARÓNSSTÍG 47
HEILBRIGÐISRÁÐ REYKJAVÍKUR óskar eftir að ráða
eftirtalið starfsfólk:
LÆKNARITARA við atvinnusjúkdómadeild Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur, 100% starf.
BÓKASAFNSFRÆÐING við bókasafn Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur, 50% starf.
MEINATÆKNI við Heilsugæslustöð Hlíðasvæðis,
50% starf.
Ofangreind störf eru laus frá og með 1. júlí 1989.
Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu framkvæmda-
stjóra heilsugæslustöðva, sími 22400.
Umsóknum skal skila til skrifstofu Heilsuverndar-
stöðvarinnarfyrir kl. 16.00 mánudaginn 26. júní nk.
ALL MER vörur, veiðiflotjakkar, vöðlur,
Verslunin, Laugavegi 130, flotjakkar o fl-
v/Hlemm, sími 23208
Opið kl. 12-18 alla daga nema laugard.
Síðumúla 33
símar 681722 og 38125