Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Side 13
MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 1989. 13 RITSTJÓRI Á SKRIFSTOFU FORSÆTISNEFNDAR NORÐURLANDARÁÐS Forsætisnefnd Norðurlandaráðs auglýsir lausa til umsóknar stöðu ritstjóra við upplýsingadeild skrifstofu sinnar í Stokkhólmi. Norðurla.idarað er samstarfsvettvangur þjóðþinga og ríkisstjórna Norðurlanda. Milli þinga Norðurlandaráðs, sem að jafnaði eru haldin árlega, stýrir forsætisnefndin daglegum störfum þess og nýtur við það aðstoðar skrifstofu sinnar í Stokkhólmi. Á skrifstof- unni, sem hefur stöðu alþjóðlegrar stofnunar, starfa 30 manns og sex þeirra við upplýsingadeildina. Starfið á skrifstofunni fer fram á dönsku, norsku og sænsku. Starfsmaður sá, sem auglýst er eftir, á að hafa umsjón með ann- arri útgáfustarfsemi skrifsstofunnar en útgáfu tímaritsins Nordisk Kontakt. hann á meðal annars að sjá um samninga um útgáfu og prentun þingtíðinda Norðurlandaráðs, skýrslna og upplýs- ingaþæklinga. Ritstjórinn tekur þátt í öðrum störfum upplýsinga- deildarinnar eftir því sem tími gefst til. Starfið krefst háskólamenntunar og reynslu af útgáfustarfsemi og tölvuvinnu, enda er þróun og aukin tölvuvæðing útgáfustarfsem- innar fyrirhuguð. Viðkomandi þarf að geta tjáð sig vel munnlega og skriflega, hafa reynslu af samningum, hafa góða tungumála- kunnáttu og eiga auðvelt með hópvinnu. Mánaðarlaun eru 21.200 sænskar krónur auk skattfrjálsrar upp- bótar, sem greiðist öllu starfsfólki skrifstofunnar, og staðarupp- bótar, sem greiðist þeim, sem eru ekki sænskir ríkisborgarar og flytjast til Svíþjóðar til að taka við störfum við skrifstofuna. Um þessi og önnur kjör gilda sérstakar norrænar reglur. Leitast er við að ráða konur jafnt sem karla til starfa við skrifstofuna. Samningstíminn er fjögur ár og æskilegt er að nýr starfsmaður taki við starfinu í haust. Ríkisstarfsmenn eiga rétt á leyfi frá störf- um meðan á samningstímanum stendur. Nánari upplýsingar veita Bitte Bagerstam upplýsingastjóri og Ingegerd Wahrgren, settur ritstjóri, í síma 9046 8 143420 og Snjólaug Ólafsdóttir, skrifstofustjóri íslandsdeildar Norðurlandar- áðs í síma Alþingis 91 11 560. Formaður starfsmannafélags skrifstofunnar er Marianne Anders- son. Umsóknum skal beina til forsætisnefndar Norðurlandaráðs (Nor- diska rádets presidium) og skulu þær sendar til skrifstofu forsætis- nefndar Norðurlandaráðs (Nordisk rádets presidiesekreteriat), Tyrgatan 7, (Box 19506), 10432 Stockholm og hafa borist þang- að eigi síðar en 17. júlí nk. Punktarnir á íslandskortinu merkja Edduhótelin sextán. Viljir þú þægilega gistingu velur þú Edduhótel. Verðlag er þar sanngjarnt og andrúmsloftið notalegt. Það er ef til vill besti punkturinn. Edduhótelin eru á þessum stöðum: Vjfb FERÐASKRIFSTOFA ÍSLANDS ► Skógarhlíð 18 • 101 Reykjavík Icdand Td. 354<9> 1-2SH55 Tdcx - 2049 Tcldax: 354 (9>l-625895 1 Laugarvatni ML s: 98-61118 2 Laugarvatni HSL s: 98-61154 3 Reykholti s: 93-51260 4 Laugum Dalasýslu s: 93-41265 5 Reykjum Hrútafirði s: 95-10004 6 Laugarbakka V-Hún s: 95-12904 7 Húnavöllum A-Hún s: 95-24370 8 Akureyri s: 96-24055 9 Hrafnagili s: 96-31136 10 Stórutjörnum s: 96-43221 11 Eiðum s: 97-13803 12 Hallormsstað s: 97-11705 13 Nesjaskóla s: 97-81470 14 Kirkjubæjarklaustri s: 98-74799 15 Skógum s: 98-78870 16 Hvolsvelli s: 98-78187 • LJÓSMYIMDASAMKEPPIMI KODAK EXPRESS GÆÐAFRAMKÖLLUNAR OG VIKUNNAR • LATTU OKKUR FRAMKALLA SUMARBROSIÐI Allir geta tekið þátt í Sumarbrosiriu, hinum einfalda sumarleik. Hann felst einfaldlega í því að skila inn myndum af sumarbrosi (fólki eða dýrum) eða broslegri mynd. í hverjum mánuði verða birtar fjórar athyglisverðustu myndirnar og besta mynd sumarsins verður valin í september úr öllum innsendum myndum. Vegleg verðlaun eru í boði: utanlandsferð, 17 myndavélar o.fl. Eina skilyrðið er að notuð sé Kodak filma og framkallað hjá Kodak Express Gæðaframköllun. Hún er á eftirtöldum • Verslanir Hans Petersen, Bankastræti, Glæsibæ, Austurveri, Kringlunni og Lynghálsi • Ljósmyndaþjónustan, Laugavegi 178 • Kaupstaður, Mjódd • Veda, Hamraborg,-Kópavogi • Filmur og Framköllun, Strandgötu, Hafnarfirði • Ljósmyndahúsið, Dalshrauni 13, Hafnarfirði • Hjjómval, Keflavík • Bókaverslun Andrésar IMÍelssonar, Akranesi • Bókaverslun Jónasar Tómássonar, ísafirði • Pedrómyndir, Hafnarstræti og Hofsbót, Akureyri • Nýja Filmuhúsið, Hafnarstræti, Akureyri • Bókabúð Brynjars, Sauðárkróki • Vöruhús KÁ, Selfossi. Lesið nánar um Sumarbrosið í Vikunni! vis tínovauAN BB % . yy H2-168 vis/xnv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.