Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Qupperneq 18
18 MÁNUDAGUR 19. JÚNl 1989. TIL SÖLU RENAULT TRAFIC 1985, húsbíll, 4x4, rauður, ekinn 41.000, klæddur hjá Ragnari Vals, eldunaraðstaða, svefnaðstaða fyrir 3. Verð 1.150.000. ATH. skipti Opið mánud.-föstud. kl. 10-19, laugard. kl. 10-17. HUSI FRAMTIÐAR - FAXAFENI 10 SÍMI 686611 ÁRSRIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS ÍSLANDS 1989 ER KOMIÐ ÚT Fæst í bókaverslunum, blaðsölustöð- um og hjá kvenfélögum um land allt. Kvenréttindafélag íslands Fréttir Ökuleiknin af stað á ný Þrír efstu menn í keppni fjölmiðlamanna. Sigurvegarinn, Árni Bjarnason frá Timanum, er fyrir miðju. Til vinstri á myndinni er Valur Jónasson af Morgunblaðinu sem varð númer tvö og til hægri er Jóhann A. Kristjánsson af DV, sem varð þriðji í hjóireiðakeppninni. DV-mynd JAK Bindindisfélag ökumanna og DV eru að fara af stað með hina árlegu ökuleikni. Þetta er 12. sumarið sem þessi vinsæla keppni er haldin. í sumar verður keppt á 35 stöðum víðs vegar um landið og verður keppnin bæði fyrir bílstjóra og hjólreiða- menn. Keppnin er öllum opin. Keppt verður í fyrsta sinn í þremur rioium, karla- og kvennariðli, eins og fyrr, og síðan bætist við riðill fyr- ir 17 ára ökumenn. Verðlaunin í keppninni eru vegleg. Auk verðlaunapeninga í hverri keppni fara sigurvegarar í úrslita- keppni sem haldin verður í haust. Verðlaunin í henni eru glæsileg ut- anlaridsferðir frá Samvinnuferðum- Landsýn, svo og Mazda bifreið fyrir þann sem tekst að fara villulaust í gegnum þrautaplanið í úrshtunum. Reiðhjólakeppninni er skipt í tvo riðla, 9-11 ára og 12 ára og eldri. Keppendur þar fara ekki í úrslit eins og í ökuleikninni. Þess í stað fá þeir happdrættismiða og í haust mun veröa dregið um tvö gullfalleg reið- hjól sem Fálkinn hf. mun gefa til keppninnar. Keppninni var hrundið af stað síð- astliðið miðvikudagskvöld. Fulltrúar fjölmiðlanna öttu kappi í ökuleikni og hjólreiðakeppni. Arni Bjarnason frá Tímanum sigraði í báðum riðlum. Valur Jónasson frá Morgunblaðinu varð annar í báðum riðlum. Jónas Tryggvason frá Ríkissjónvarpinu varð þriðji í ökuleikninni. í þriðja sæti í reiðhjólakeppninni varð Jó- hann A. Kristjánsson frá DV. Egilsstaðir: Glæsibflar á sýnimju Sigrún Björgvmsdóttir, DV, Egilsstöðum: Glæsileg bílasýning var haldin í og við íþróttahúsið á Egilsstöðum 10.—11. júní. í íþróttasalnum var hveijum glæsivagninum eftir annan raðað upp. En utandyra voru fulltrúar eldri árgerða sem sumir komu kunnug- lega fyrir sjónir en aldursforseti þeirra skrautfylkingar var Ford A árgerð 1929. Sá á nú heima í Nes- kaupstað en er kominn í endurhæf- ingu upp á Hérað. Þetta er sá bíll sem fyrst var ekið syðri leiðina milli Reykjavíkur og Austíjarða. Sú ferð mun hafa verið farin milli 1930 og '35. Og hann hefur líka orðið svo frægur að leika í kvikmynd, nánar tiltekið í myndinni Börn í stríði. Þessi gamli Fordbíll varð að láta sér lynda að vera dreginn á sýningar- svæðið. Þama var líka Willys '42 en hann komst á staðinn fyrir eigin vél- arafli. Það var íþróttafélagið Höttur Elsti bíllinn og framkvæmdastjóri sýningarinnar Emil Björnsson. DV-mynd Sigrún sem stóð fyrir þessari bílasýningu á hennar var Emil Björnsson, íþrótta- Egilsstöðum. Framkvæmdastjóri kennari á staðnum. Selfoss: Minna um kartöflurækt Regina Thoiarensen, DV, SeHossi: Þaö hefur verið venja flestra hjóna á Selfossi að setja niður kartöflur í smáhom á húslóðum sínum og oft hefur fengist góð uppskera. Auðvitað finnst fólki alltaf þær kartöflur best- ar sem það ræktar sjálft þó útsæðið sé það sama. Nú heyrist mér á fólki að þó nokk- uð margir álykti að sumarið verði kalt og því sé til lítils að vera setja niður kartöflur nú. Þaö verður því minna um það hér en oftast áður. Hins vegar eru allir búnir að slá túnblettina en almennt eru sumar- blóm ekki farin að sjást í görðum. Tré og fjölær blóm skreyta þá. Mundu efdr Ferðagetraun rm Ef þú ert ekki þegar búinn að svara Ferðagetraun DV I viljum við minna á að skilafrestur er til laugardagsins 24. júní. Ferðagetraunin birtist í Akureyrar- blaði DV miðvikudaginn 14. júní. FYLGSTU MEÐ Misstu ekki af glæstum vinningi. ítilefni 5ára afmælissínsætlarFramköllunsf., Lækjargötu 2 og Armúla 30, að gefa 15 vinningshöfum ferðagetraunar I Wizensa alsjálfvirka 35 mm myndavél að verðgildi 3.500 kr. Framköllun sf. hefur einnig í tilefni afmælis- ins tekið upp nýja þjónustu: Stækkanir á litfilmum í plakatstærð á 6 mínútum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.