Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Side 22
22
MÁNUfDÁGUR 519! JÖNÍ Í989:
IþróttLr
Evrópumótið í hestaíþróttum:
Meistarar
þurfa ekki
í úrtökuna
Senn líður að því að Evrópumót í hestaíþróttum verði hald-
ið í Danmörku. Evrópumót í hestaíþróttum eru sem kunn-
ugt er haldin annað hvert ár og verður næsta mót haldið
í hestamiðstöðinni Vilhelmsborg nálægt Árósum í Dan-
mörku dagana 16. til 20. ágúst í sumar.
Síðasta Evrópumót var haldiö í
Weistrach í Austurríki áriö 1987 og
þá urðu heimsmeistarar í hesta-
íþróttum á íslenskum hestum þeir
Sigurbjörn Bárðarson á Brjáni í
töltkeppninni og Reynir Aðal-
steinsson í 250 metra skeiði, gæð-
ingaskeiði og fimmgangsgreinun-
um.
Töluveröur áhugi er fyrir hendi
hjá knöpum að komast út með
.hesta sína og eins virðist áhugafólk
um hestaíþróttir vera virkt í um-
ræðum um Evrópumótið. Margir
knapar og hestar hafa verið tíndir
til og taldir líklegir til afreka en
einungis sjö hestar verða sendir frá
íslandi. Úrtaka fyrir Evrópumótið
fer fram í Mosfellsbæ dagana 7. og
8. júlí næstkomandi.
• Einungis sjö íslenskir hestar
verða sendir í keppnina til Dan-
merkur en níu knapar eiga rétt á
því að keppa á Evrópumótinu.
Þannig háttar til, í fyrsta skipti, aö
sigurvegarar í einstökum greinum
á síðasta Evrópumóti svo og sam-
eiginlegir meistarar mega nú
keppa á næsta Evrópumóti, á sama
hesti, í sömu grein og sigurinn
vannst. Það þýðir að Reynir Aðal-
steinsson má keppa á Spóa í fimm-
gangsgreinunum og Sigurbjörn
Bárðarson á Bijáni í töltinu. ís-
lenskir keppendur gætu því orðið
níu alls.
Flestir fremstu knaparnir
mæta í úrtökuna
Flestir fremstu knapar landsins
eru taldir hklegir til að mæta í úr-
tökuna fyrir Evrópumótið. Það
liggur ljóst fyrir að Sigurbjörn
Bárðarson fer í Evrópuúrtökuna
meö tvo hesta, þá Skjanna í fimm-
gangsgreinarnar og Skelmi í fjór-
gangsgreinarnar. Báöir eru þeir
rauðblesóttir. Reynir Aöalsteins-
son var að gæla við þá hugmynd
að koma fram með rauða hestinn
Tvist, sem hann sýndi i Reiðhöll-
inni í vor, en hann ætlar að geyma
hann fyrir landsmótið næsta sum-
ar. Reynir kemur sennilega með
brúnan klár, Neptúnus, í úrtökuna,
ef hann fær ekki Spóa á Evrópu-
mótinu.
• Baldvin Guðlaugsson kemur
frá Akureyri með rauða fjórgang-
arann Trygg, sem hann sýndi í
Reiðhöllinni í vor, Sigvaldi Ægis-
son kemur með brúna alhliða klár-
inn sinn, Tinna, Atli Guðmundsson
verður með Fjalar, þann jarpa sem
sigraði í A-flokki hjá Fáki, Hinrik
Bragason kemur á ljósa skeiðhest-
inum Vafa og Einar Öder Magnús-
son kemur með gráa alhliöa stóð-
hestinn Fjalar frá Hafsteinsstöðum
sem bandaríski auðjöfurinn Don
Slott hefur keypt. Aöalsteinn Aðal-
steinsson kemur með Snjall frá
Gerðum sem verður að teljast sig-
urstranglegur í fjórgangsgreinun-
um. Hafliði Halldórsson kemur
með rauðblesóttan klár, Flosa,
Guðni Jónsson kemur sennilega
með alhliða hestinn Atlas en þeir
félagar sigruðu í flmmgangi á
Reykjavíkurmeistaramótinu í vor.
Sveinn Ragnarsson kemur með
■
• : - .
• Reynir Aðalsteinsson gæti keppt á Evrópumótinu í Danmörku á Spóa,
rauða alhliða klárinn sinn, Högna,
Þórður Þorgeirsson kemur með
rauða klárhestinn sinn, Börk, og
Erling Sigurðsson kemur með
brúna klárinn Fleyg, sem hefur
staðið, sig vel á skeiðbrautinni.
Hann ætti að vera vanur keppnis-
brautinni í Mosfellsbæ.
• Annar frægur skeiðhestur,
sem nefndur hefur verið til sög-
unnar, er rauðblesótti klárinn
Glaumur, sem Jón Pétur Ólafsson
hefur setið og mun sitja í úrtök-
unni. Ef hann kemst á Evrópumót-
ið mun Árni Jóhannsson, eigandi
hans og stórsöngvari, taka nokkrar
aríur í Danmörku.
• Vissulega munu fleiri knapar
mæta með jóa sína í úrtökuna því
að það þykir mikill heiður að keppa
á Evrópumóti. Benedikt Þorbjörns-
son er með ljósan klár, sem hann
ætlaði með í úrtökuna, en honum
hefur verið boðið að þjálfa danska
landsliðið fyrir Evrópumótið og er
því frekar ólíklegt að hann verði
með. -EJ
• Jens Einarsson varð sigursæll á hestamóti Hornfirðinga. Hann situr
Glym, sigurvegara i töltkeppninni.
• Sigurvegarar í A-flokki gæðinga.
Hornfirðingar tilbúnir
á fjórðungsmótið
Hestamenn í Hornflrð-
ingi völdu fjórðungs-
mótsgæðinga sína á fé-
lags- og úrtökumóti á
Fornustekksvelli dagana 10. og
11. júní. Ef það er satt, sem Gunn-
ar Bjarnason, fyrrverandi
hrossaræktarráðunautur, segir,
að hestar og hestamenn sæki
skaplyndi í landslagið, þá hefðu
Hornfirðingar átt að vera úrigir
á þessu móti en svo var ekki því
að mótið fór vel fram.
Jens Einarsson, ritstjóri Hests-
ins okkar, varð sigursæll. Hann
á og sat Glym, efsta hest í tölt-
keppninni, og var sá jafnframt í
öðru sæti í B-flokki gæðinga.
Eins sat hann Ófeig, sem hafnaði
í öðru sæti í A-flokki.
• Úrslit í A-flokki gæðinga fór
þannig að efstur stóð Jörfi
Ágústar Ólafssonar með ein-
kunnina 8,11. Knapi var Trausti
Þór Guðmundsson. Ófeigur,
Ómars Antonssonar varð annar
með 7,95. Knapi var Jens Einars-
/
son. Vindur, Sigrúnar Her-
mannsdóttur, varð þriðji með
7,80. Knapi var Hannie Heiler.
Fjórði varð Frosti með 7,65.
Knapi og eigandi er Stefán Stein-
arsspn.
• í B flokki stóð efstur Þytur,
Jóns Þorsteinssonar með 8,11 í
einkunn. Knapi var Hannie Heil-
er. Glymur varð annar með 8,00.
Knapi og eigandi var Jens Ein-
arsson. Neisti, Guðjóns Þor-
steinssonar varð þriðji með 8,02
í einkunn. Knapi var Jón Finnur
Hansson. í fjórða sæti varð Óða-
Brúna með 8,04. Knapi var
Trausti Þór Guðmundsson.
• í barnaflokki stóð efst Guð-
björg I. Ágústsdóttir á Blakki
með einkunnina 8,02. Árnína Ó.
Eiríksdóttir varð önnur á
Drottningu með 7,98 og Skúli F.
Brynjólfsson þriðji á Hvin með
7,96 í einkunn.
• í unglingaflokki sigraði
Kristján Baldursson á Blakki
með 7,99 í einkunn. Eva Ó. Ei-
ríksdóttir varð önnur með 7,62
og Sigrún Ólafsdóttir þriðja á
Reyk með 7,38 í einkunn.
• Þokkalegir tímar náðust í
hlaupagreinunum en enginn
hestur náði að renna 250 metra
skeiðsprett á undir 26,00 sekúnd-
um. í 150 metra skeiði náði Tvist-
ur Friðriks Reynissonar ágætum
tíma, 15,3 sek.
• í 800 metra stökki sigraði
Sindri Eyþórs Ragnarssonar á
1:05,00 sek., í 350 metra stökki
sigraði Feykir Ómars Antons-
sonar á 26,7 sek. og í 250 metra
folahlaupi sigraði Stekkur Jens
Einarssonar á 20,06 sek. í 300
metra brokki sigraði Tvífari á
46,5 sek.
• Keppt var í tölti. Ekki voru
gefnar einkunnir heldur valdir
bestu knaparnir úr og þeim rað-
aö í sæti. Efstur stóð Jens Einars-
son á Glym, þá Eyjólfur Kris-
tjónsson á Glámu, Árni Björn á
Gammi, Björn Jónsson á Stássu
og loks Hannie Hailer á Þyt.
-EJ