Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Síða 24
24 MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 1989. Iþróttir • Pétur Arnþórsson til hægri á myndinni og Halldor Askeisson berjast um knöttinn í leiknum í gærkvöldi. Báðir áttu þeir góðan leik með sínum félögum. DV-mynd Brynjar Gauti íslandsmótið 1 knattspymu - 1. deild: Vonandi komnir á sigurbrautina“ - segir Ásgeir Elíasson, þjáifari Fram, eftir sigurinn á Val, 1-0, í gærkvöldi „Þetta var mikilvægur sigur hjá okkur. Það var mun meiri vinnsla og barátta í liðinu í þessum leik en í undaníornum /r • leikjum. Ungu strákamir standa sig vel og framtíðin er björt. Ég vona það svo sannarlega að við séum komnir á sigur- göngu. Mótið á eftir verða jafnt og spennandi," sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram, kampakátur, í samtali við DV eftir sigurleik Fram á Vals- mönnum á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Við sigur Framara er kom- in spenna í mótið sem flestir áttu von á í upphafi íslandsmótsins. Leikur liðanna í gærkvöldi bar merki aðstæðna í Laugardalnum. Hávaða- rok var og úrhellisrigning. Leikmenn áttu því í hinum mestu erfiðleikum með að ná upp spili heldur var bar- áttan í fyrirrúmi eins og reyndar ávallt þegar þessir erkifjendur mæt- ast á knattspymuvellinum. Valur lék undan hvössum vindi í fyrri hálfleik en tókst ekki að skapa sér verulega hættuleg tækifæri. Framarar börð- ust af krafti enda leikurinn upp á líf og dauða fyrir þá. Valsmenn voru meira með knöttinn í fyrri hálfleik en veðurguðimir komu í veg fyrir að sóknarleikur þeirra bæri ein- hvem árangur. Síðari hálfleikurinn var öllu líflegri en sá fyrri, sérstaklega eftir því sem á hálfleikinn leið. Heimir Karlsson komst í ákjósanlegt tækifæri eftir hornspymu frá Siguijóni Krisljáns- syni en skot Heimis fór rétt framhjá markinu. Bæðin liðin reyndu hvað þau gátu til að byggja upp spil og tókst á köflum furðuvel þó hættan hafi ekki verið mikil uppi við mörk- in. Þegar fjórar mínútur vom til leiks- loka kom sigurmarkið í leiknum. Pétur Ormslev fékk knöttinn á miðju vallarins og gaf fallega sendingu á Guðmund Steinsson, sem lék knett- inum aðeins áfram og skaut síðan þmmuskoti rétt innan vítateigs, framhjá Bjama markverði og í netið. Bjarni kom út á móti en hafði ekki erindi sem erfiði. Guðmundur Steinsson lýsti þannig markinu í samtah við DV eftir leikinn: „Ég sá Bjama koma út úr markinu en sá þá strax möguleika á að koma knettinum framhjá honum hægra megin. Það var dásamleg tilfinning að sjá eftir knettinum fara í markið. Það var lítið um færi í leiknum og lítið að gerast enda aðstæður allar hinar verstu. Sigurinn gefur okkur byr undir báða vængi og um leið aukið sjálfstraust,“ sagði Guðmund- ur Steinsson. „Það var grátlegt að tapa þessum leik því við vomm sterkari aðilinn í leiknum en það dugði bara ekki. Okkur urðu á ein mistök og Framar- ar nýttu sér þau til fulls. Aðstæður voru engar til að leika knattspyrnu. Við erum á toppnum og hin félögin reyna hvað þau geta til að ná okkur. Þaö er mikiö eftir af mótinu og það á eftir að verða jafnt og spennandi,“ sagði Höröur Helgason, þjálfari Vals- manna, að leikslokum. Pétur Arnþórsson lék vel í Fram- hðinu en fór út af meiddur í síðari hálfleik. Pétur Ormslev barðist vel eins og reyndar allt liðið. Allt annað var að sjá til leik liðsins nú en í leikj- unum fyrr í mótinu. Valsmenn börð- ust sömuleiðis vel, eru með sterkt lið og líklegir th afreka í sumar. Halldór Áskelsson var bestur þeirra, sívinn- andi allan leikinn. • Maður leiksins: Guðmundur Steinsson. • Dómari:GuðmundurMaríasson* • Áhorfendur: 1500. -JKS & Brann vann góðan sigur á Kongsvinger í 1. deild norsku knattspyrnunnar í gær. Brann sigraði í leiknum, 0-1, sem fram fór á heimavelli Kongsvinger. Lilleström heldur sínu striki í deildinni og vann stórsigur á heimavelli gegn Start, 3-0. Úrslit í 1. deild í gær. Kongsvinger-Brann................0-1 Lilleström-Start................3-0 Mjölner-Moss.....................3-1 Molde-Válerengen.................5-0 Rosenborg-Viking.................1-0 Sogndal-Tromsö...................l-l Staða efstu hða er þessi: Lilleström........8 5 2 1 12-5 17 Rosenborg........8 5 12 18-12 16 Viking............8 4 2 2 16-9 14 Tromsö............8 4 2 2 11-7 14 Fimm leikirenduðu með markalausu jafntefli Aðeins tíu mörk voru skoruð í 1. deild ítölsku knattspyrn- unnar í gær en aðeins einni umferð er ólokið. Ekkert mark var skorað í fimm leikjum en AC Milan lék Ascoli sundur saman of sigr- aði, 5-1. Inter Milan, sem þegar hefur tryggt sér sigurinn í deildinni, tapaði á útvelli fyrir Torino. Úrsht í 1. deild urðu sem hér segir: AC Milan-Ascoh..................5-1 Fiorentina-Bologna...............0-0 Cesena-Como................... 1-0 Torino-Inter Milan...............2-0 Pescara-Juventus................0-0 Atalanta-Lecce..................0-0 Napoli-Pisa......................OÁ> Verona-Roma......................0-0 Lazio-Sampdoria.................1-0 Hacken gerði jafnlefli og er í þriðja sæti Hácken, hðið sem Gunnar Gíslason og Ágúst Már Jóns- son leika með í 1. deild í Sví- þjóð gerði jafntefh við Karls- krona, 1-1, á heimavelh í gær. Kalmar FF sem er í efsta sæti sigraði Mjallby, 1-2, á útivelli. Hácken er í þriðja sæti, tveimur stigum á eftir efsta hðinu. ísiandsmethjáÓla Hinn þekkti frjálsíþrótta- kappi, Olafur Unnsteinsson, setti í gærkvöldi íslandsmet í kringlukasti í flokki 50 ára og eldri. Ólafur náði mjög góðum árangri, kastaði 49,10 metra sem er meö þvi besta sem gerist í þessum aldursflokki í heiminum í dag. Olafur er í mjög góðri æfingu um þessar mtmdir og bætti í gær fimm ára gamalt met Erlings Jóhanns- sonar. Þess má geta að Ólafur hefur ekki kastað lengra í 25 ár. „Flo-Jo“farinað íhuga maraþonhlaupið Hin heimsþekkta hlaupakona, Florence Griffith Joyner, sem sló svo rækilega í gegn á síö- ustu ólympíuleikum er farin að spá í að hlaupa maraþonhlaup af krafti. „Það er rétt aö hún er farin að athuga þessi mál. Hún hefur keypt sér bækur um maraþonhlaup og uppbygg- ingu maraþonhlaupara. Hún hefur einn- ig rætt við menn sem lengi hafa lagt stund á þesa ertiðu íþróttagrein,“ sagði A1 Joyner, eiginmaður hennar í gær. l.deild / staðan / Staðan í 1. deild eftir leiki helgarinnar: Akranes-KA.......................2-0 Þór-FH...........................2-3 Fram-Valur FH Valur. Akranes KA Fram Þór Fylkir KR i ....................... 1-0 5 3 1 1 7-4 10 5 3 1 1 4-1 10 5 3 0 2 6-5 9 5 2 2 1 7-4 8 ...5 2 1 2 4-6 7 5 1 2 2 5-7 5 4 112 5-5 4 4 112 5-9 4 Keflavík............4 0 3 1 3-4 3 Víkingur............4 1 0 3 2-3 3 • Fimmtu umferð 1. deildar verður fram haldið í kvöld. Þá leika KR og Keflavík kl. 20 og á þriðjudagskvöld leika Víkingur og Fylkir kl. 20.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.