Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Side 48
R _ yy
WLmmm ■ ■
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstiórn - Auglýstrtgar - Áskrlft- Dreifing: Stmi 27022
Frjálst, óháð dagblað
MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 1989.
Fæddist
í loftinu
^Sextán marka drengur fæddist í
' Uögur þúsund feta hæð rétt fyrir
klukkan átta í gærmorgun. Sjúkra-
flugvél frá Arnarflugi fór til Rifs á
Snæfellsnesi til að sækja konu sem
var að fæðingu komin. Með kon-
unni, Þuríði Helgadóttur, var ljós-
móöir, Hildur Sæmundsdóttir, og
faðirinn, Sigurður Kristófersson.
Þegar aðeins tólf mínútur voru í
lendingu gat sá litli ekki beðið lengur
eftir að komast í heiminn. Fæðingin
gekk fljótt og vel og heilsast bæði
móöur og syni vel. Flugstjórinn, Þó-
rólfur Magnússon, reyndi að hraða
fluginu þegar hann sá hvað verða
vildi. Aöstoðarmaður flugstjórans,
Sveinbjöm Ámason, sem einnig var
J ferðinni, sagði í samtah við DV að
-■ petta hefði verið furðuleg reynsla en
ánægjuleg. Það má því segja með
sanni að sá litli hafi fæðst í loftinu.
Kannski það eigi eftir að hafa áhrif
á framtíðarstarf hans.
-ELA
Akranes:
íbúð ónýt
Æftir eldsvoða
Eldur kom upp í íbúð að Suðurgötu
108 á Akranesi um hálfþijú aöfara-
nótt laugardagsins. íbúðin er í
þriggja hæða steinhúsi og búa tvær
fjölskyldur í húsinu. Enginn var
heima er eldurinn kom upp. Slökkvi-
liðinu á Akranesi gekk greiðlega að
slökkva eldinn en íbúðin á fyrstu
hæð, þar sem eldurinn kom upp, er
talin ónýt.
Mikill eldur var í íbúðinni þegar
slökkvilið og lögregla komu á staðinn
og munu eldsupptök þau að gleymst
hafði að slökkva á eldavél áður en
húsráðendur fóru út. -ELA
Henry A. Hálfdansson:
Tíáði í biiaða tarillu
með einum manni
Henry A. Hálfdansson, björgunar-
skip Slysavarnafélags íslands, sótti í
nótt bilaða trillu og dró hana til
Reykjavíkur. Trilian, sem heitir
Smári RE 155, fór Rifi í gærkvöld á
leið til Reykjavíkur. Trillan fékk á
sig sjó sem varð til þess að rafall bil-
aði. Eftir það var erfitt að dæla sjó
úr triilunni. Einn maður var um borð
- hann sakaði ekki.
Björgunarbáturinn kom að Smára,
um 30 sjómílur frá Gróttu, um klukk-
an þrjú í nótt. Þeir komu til Reykja-
víkur um klukkan tíu í morgun.
Heimsiglingin gekk vel en fara varð
rólega þar sem siglt var á móti tals-
verðum sjó. -sme
LOKI
Draumur fánaberans
virðist hafa breyst í
martröð!
Alvarlegt hnífstungumál á Akranesi:
Stakk bróður sinn lífs
hættulega með hnvf
kona einnig stórslösuð
Maöur um þrítugt liggur þungt
haldinn á sjúkrahúsinu á Akranesi
eftir hnífstungu sem hann fékk að
morgni laugardagsins. Kona um
fertugt fékk Ijótan skurð á háls og
andlit eftir sama árásarmann. Þaö
var bróðir mannsins, á svipuöum
aldri, sem veittist aö þeim meö
hníf í bijálæðiskasti. Maðurinn
fékk hnífinn í gegnum brjóst og
lungu auk þess sem hann var meö
sár á hálsi. Hann var í lífshættu er
hann kom alblóðugur inn á lög-
reglustööina í fyrramorgun og
sagði frá árásinni. Tahð er að það
hafi bjargað manninum hversu
tljótt hann komst undir læknis-
hendur.
Málsatvik voru þau aö bræðumir
voru gestkomandi hjá konunni, en
allt er fólkið úr Reykjavík, þegar
annar bróðirinn byijaði slagsmál
og réðst að hinum tveimur með
hníf. Slasaði bróðirinn gat forðað
sér út eitir að hann hafði fengið
hnífinn í gegnum sig og tókst að
komast á lögreglustöðina. Lögregl-
an fór strax á staðinn og fann þá
konuna alblóöuga og árásarmann-
inn sem þóttist sofa. Allt var fólkið
undir áhrifum áfengis og lyíja.
Konan var flutt á sjúkrahús þar
sem gert var að sárum hennar og
árásarmaðurinn tekinn í vörslu
lögreglunnar. Búið var að yfir-
heyra allt fóMö í gær en ekkert
hefur komið í Ijós sem gefur tii
kynna hvers vegna árásarmaður-
inn framdi verknaðinn. Krafist hef-
ur verið sólarhringsvaröhalds yfir
manninum á meðan yfirheyrslur
standa yfir en búist er við að hann
verði síðan fluttur í Síðumúlafang-
elsiö. Rannsóknarlögreglan á
Akranesi vinnur nú að rannsókn
málsins.
-ELA
Fánaþjófar
á þjóðhátíð
Hvalbátarnir Hvalur 8 og Hvalur 9 héldu til veiða í gær og hófust með því formlega hvalveiðar Islendinga á þessu
sumri. Hvalbátarnir eru enn á siglingu til veiðisvæða suðvestur af Reykjanesi og verða ekki komnir á veiðislóð fyrr
en í kvöld. DV-mynd S
Byggingarvlsitala:
25,5 prósent verðbólga
Vísitala byggingarkostnaðar
hækkar um 1,9 prósent um næstu
mánaðamót. Þessi hækkun jafn-
gildir um 25,5 prósent hækkun á
einu ári.
Hækkun síðustu þijá mánuði
jafngildir um 26,3 prósent hækkun
en á undanfórnum tólf mánuðum
hefur vísitalan hækkað um 19 pró-
sent.
Samkvæmt hækkun vísitölu
frai uærslukostnaðar og bygginga-
kostnaðar var hraði verðbólgunn-
ar milli maí- og júnímánaðar 36,1
prósent miðað við grunn gömlu
lánskj araví sitölunnar.
Byggingavísitalan fyrir júlímán-
uö er 144,3 stig. -gse
Hraði í Keflavik
Veðrið á morgun:
Skin og
skúrir
Á morgun verður sunnan- og suð-
vestankaldi eða stinningskaldi á
vestanverðu landinu með tilheyr-
andi rigningu. Austanlands verður
vindur hægari og sums staðar létt-
skýjað. Hiti verður á bihnu 10 til
16 stig, mestu hlýindin á Noröaust-
urlandi eins og undanfarna daga.
NYJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
GOÐIR BILAR
ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR
4
Bandarískir hermenn:
Þrír bandarískir hermenn skaru
niður og stálu sautján íslenskum fán-
um, einum austur-þýskum, einum
tékkneskum, einum kínverskum og
auk þess fánum Garðabæjar, Hafnar-
fjarðar og Vélsmiðjunnar Héðins,
þjóðhátíðardag íslendinga, 17. júní.
Lögreglan í Hafnarfirði handtók
hermennina á Reykjanesbraut - fán-
arnir fundust í bíl þeirra. Hermenn-
irnir eru allir grunaðir um að hafa
verið ölvaðir er þeir skáru fánana
niður.
Bandaríska sendiráðiö hefur beðið
íslensk stjórnvöld afsökunar á fram-
ferði hermannanna. Eins hafa sendi-
ráð hinna ríkjanna þriggja fengið
afsökunarbeiðni frá bandarískum
stjórnvöldum. Steingrímur Her-
mannsson forsætisráöherra og Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra hafa um helgina látið í ljós
andúð sína á framferði hermann-
anna þriggja.
Samkvæmt lögum um íslenska
þjóðfánann er hámarksrefsing fyrir
að vanvirða hann eins árs fangelsi.
Sautján ára ökumaður var tekinn
á 176 kílómetra hraða á Reykjanes-
braut aðfaranótt sunnudags. Ánnar
ökumaður var tekinn fyrir að aka á
112 kílómetra hraða á Hafnargötunni
í Keflavík. Þeir hafa báðir misst bíl-
prófið. -sme
\4
4
4
4
4
4
4