Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Side 6
6
LAUGARDA'GIJR 1. JOLÍ 1989.
Útlönd
Jaruzelski ekki í framboð
Wojciech Jaruzelski hershöföingi,
sem verið hefur leiötogi Póllands síö-
an 1981, tilkynnti í gær að hann
myndi ekki gefa kost á sér sem for-
setaframbjóðandi Kommúnista-
flokksins. Mælti hann með Czeslaw
Kiszczak innanríkisráðherra í hiö
valdamikla embætti.
Miðstjórn pólska kommúnista-
flokksins kom saman í gær til þess
að velja frambjóðanda í hið nýja
embætti. Heimildarmenn innan
flokksins segja að þegar fundurinn
hafi verið hálfnaður hafi verið stung-
ið upp á Kiszczak. Stuðningsmenn
Jaruzelskis höfðu hins vegar við
upphaf fundarins verið vissir um að
þeirra maður hlyti skjótt útnefningu.
Kiszczak hefur verið innanríkis-
ráðherra frá því 1981. Jaruzelski
mælti með honum sem góðum samn-
ingamanni með tilfinningu fyrir
þörfum Póllands. í yfirlýsingu Jaruz-
elskis sagði að þreytt þjóðfélag hefði
rétt til að spyija hvenær sólin myndi
skína aftur yfir Póllandi og þykir
augljóst að átt hafi verið við erfið-
leika Jaruzelskis við stjórn Póllands
Jaruzelski við upphaf fundar mið-
stjórn ar pólska kommúnistaflokks-
ins í gær. Símamynd Reuter
undanfarin átta ár.
Þegar fundur miðstjómarinnar
hófst efndu stjómarandstæðingar til
hópgöngu í Varsjá, Katowice og Kiel-
ce til að mótmæla framboði Jaruz-
elskis. í Varsjá köstuðu mótmælend-
ur bensínsprengjum og dósum með
rauðri málningu að óeirðalögreglu.
Með því að sprauta úr vatnsþrýsti-
byssum tókst lögreglunni að dreifa'
mannfjöldanum nálægt byggingu
þeirri sem miðstjómin fundaði í.
Harðlínumenn meðal kommúnista
hafa einnig verið óánægðir með
Jaruzelski vegna þeirra pólitísku
umbóta sem hann hefur boðað.
Þingið á að kjósa forseta í næstu
viku. Forsetinn mun hafa vald til að
útnefna forsætisráðherra, rjúfa þing
og lýsa yfir herlögum og neyðar-
ástandi.
Kiszczak hefur verið hægri hönd
Jaruzelskis á þessum áratug. Árið
1981 undirritaði Kiszczak sem innan-
ríkisráðherra skipun Jaruzelskis um
fangelsun Lech Walesa, leiðtoga
Samstöðu, þegar Jaruzelski setti á
herlög til að brjóta Samstöðu á bak
aftur. En fyrr á þessu ári var Kiszc-
zak aðalsamningamaður stjórnar-
innar í viðræðunum við Samstöðu
sem leiddu til þess að samtökin voru
lögleidd og fijálsar kosningar boðað-
ar.
í kosningunum unnu frambjóðend-
ur Samstöðu yfirgnæfandi sigur á
frambjóðendum Kommúnistaflokks-
ins. Hafa Samstöðumenn nú 46 pró-
sent af 560 sætum í þinginu.
Heimildarmenn innan Samstöðu
sögðu í gær að Lech Walesa væri á
leiöinni til Varsjár til viðræðna við
embættismenn kommúnista um það
hvort Samstaða myndi samþykkja
framboð Kiszczaks.
Miklar verðhækkanir í Póllandi að
undanfórnu hafa kynt undir óróleik-
anum í stjómmálum og í vikunni
sakaði Samstaða stjómvöld um brot
á samkomulagi því sem gert var í
apríl og kveður á um efnahagslegar
og'póhtískar umbætur. Verðhækk-
animar hafa leitt til mikillar
óánægju almennings.
Reuter
Herinn í Súdan tók völdin í Kharto-
um í gær og steypti af stóh stjórn
Sadeqs al-Mahdi forsætisráðherra.
Það var htt þekktur hðsforingi, Omar
Hassam Ahmed al-Bashir, sem th-
kynnti um stjómarbyltinguna í rík-
isútvarpinu. Kvaðst hann vera for-
seti nýs byltingarráðs og lýsti yfir
neyðarástandi í landinu.
Vopnaðir menn sáust fylgja Mahdi
og nokkrum ráðherrum hans í bíla-
lest sem brunaði í átt að Kobar fang-
elsinu sem er aðalfangelsið í Kharto-
um. í norðurhluta borgarinnar
þyrptist fólk út á götumar tíl að lýsa
yfir stuðningi við valdatökumenn.
Ekki virðist sem þeim hafi verið veitt
meiriháttar viðnám í höfuðborginni.
Undanfama mánuði hafa herinn
og stjómin deht um hvemig binda
ætti enda á borgarastríðið í suður-
hluta landsins og hvemig leysa ætti
efnahagskreppuna í landinu.
Yfirvöld í Súdan kváðust fyrir tólf
dögum hafa komiö upp um samsæri
th að koma aftur til valda Jaafar
Nimeiri, fyirum forseta. Samkvæmt
yfirvöldum var áætlað að gera árás
á þingið þegar Mahdi ávarpaði það.
Fjórtán hðsforingjar og nær fimmtíu
óbreyttir borgarar vom sagðir hafa
verið handteknir vegna samsærisá-
ætlananna. Nimeiri, sem er í útlegð
Sadek al-Mahdi, forsætisráðherra
Súdan, sem steypt var af stóli í gær.
Simamynd Reuter
í Egyptafandi, neitaði öllum sakar-
giftum um samsæri.
í febrúar síðasthðnum settu liðs-
foringjar Mahdi forsætisráðherra
úrshtakosti. Kröfðust þeir póhtískra
umbóta og að annaðhvort yrði endi
bundinn á styijöldina í suðurhluta
landsins eða hernum fengin fleiri
vopn th að beijast gegn skæruhðum.
Undanfama mánuði hefur stjómar-
herinn beðiö lægri hlut fyrir skæm-
höum og misst yfir tíu borgir í þeirra
hendur. Hemaðarsérfræðingar telja
í Súdan
að hvomgur aöihnn geti unnið í
þessu stríði.
Bashir sakaði stjórnina og stjórn-
málaflokkana í landinu um að hafa
stuðlað að óeiningu og ekki stutt
herinn í stríðinu sem staöiö hefur í
sex ár. Kenndi hann Mahdi um bæði
stjórnmála- og efnahagskreppuna í
Súdan sem er eitt af fátækustu lönd-
um Afríku. Norðurhluti og miðhluti
Súdans er arabískt menningarsvæði
þar sem flestir em múhameðstrúar
en í suðri eru margir andatrúar eða
kristnir.
Tahð er að tvö hundruð og fimmtíu
þúsund manns í suðurhluta Súdans
hafi dáið úr hungri síðasthðið ár og
er styrjöldinni þar aðahega kennt
um. Mihjónir flóttamanna hafa flúið
norður á bóginn og hefur koma
þeirra valdið frekari efnahagsörðug-
leikum. Sameinuðu þjóðimar áætla
að um hundrað þúsund manns geti
látist úr hungri á þessu ári.
Mahdi forsætisráðherra tók við
völdum 1986 og var hann fyrsti kjörni
leiðtogi Súdans í sautján ár. Hann
varð fyrst forsætisráðherra 1966 þrí-
tugur að aldri en varð að fara frá tíu
mánuðum síðar. Eftir að Nimeiri
hershöfðingi tók völdin 1969 var
Mahdi handtekinn og sendur í útlegð
1970. Við komu sína th Súdan 1972
Tvö hundruð og fimmtiu þúsund
manns létust úr hungri í Súdan á
síðasta ári. Talið er að hundrað
þúsund geti dáið hungurdauða á
þessu ári.
var hann tekinn höndum og aftur
sendur í útlegð. Ekki gafst hann upp
og enn einu sinni, árið 1983, var
handtekinn fyrir að setja sig upp á
móti lögum múhameðstrúarmanna.
Nimeiri, sem nú er í útlegð í Egypta-
landi, var steypt af stóli 1985.
Súdan var undir ensk-egypskri
stjórn frá 1898 til 1953 þegar landið
fékk heimastjóm 1953. Þremur árum
síðar varð $údan sjálfstætt ríki.
Reuter
KR-völlur sunnudag kl. 20.00
KR-FRAM
í Islandsmótinu - Hörpudeild
Hornaflokkur Kópavogs leikur frá
kl. 19.30 í boði söluturnsins Stansið
v/Kaplaskj óls veg.
í hálfleik verður ferðaleikur Útsýnar og KR.
Ferðavinningar að verðmæti
60.000 kr.
tJTSÝN
Tölvupappír
ílll FORMPRENT
Hvcrfisqofu /B simar 7b9b0 ?‘jbbb
í Frakklandi, þangaö sem Mik-
hail Gorbatsjov, forseti Sovétríkj-
anna, er væntanlegur í heimsókn
í næstu viku, hefur nú giipið um
sig sama Gorbatsjovæöið og greip
V-Þjóðverja þegar liann var þar
á ferð.
Tveir af hverjum þremur
Frökkum eru svo hrifnir af Gor-
batsjov að þeir treysta honura
næstura því jafnvel og sjálfura
Frakklandsforseta, Francois Mit-
terrand. Það sýna þrjár skoðana-
kannanir sem hafa verið gerðar
fyrir heimsókn Gorbatsjovs á
þriðjudag og miðvikudag í næstu
viku.
Þeir sem em hrifhastir af Gor-
batsjov eru karlmenn, fyrst og
fremst þeir sem komnir em á eft-
irlaun, en einnig háttsettir emþ
ættismenn, læknar og lögfræð-
ingar. Og Gorbatsjov nýtur meira
fylps meðal hægri manna og sós-
íalista en meðal kommúnista.
TT
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlánóverðtryggð
Sparisjóðsbaekurób. 14-18 Úb
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 15-20 Vb,Úb
6mán. uppsögn 16-22 Vb
12mán.uppsögn 18-20 Úb
18mán. uppsögn 32 lb
Tékkareikningar, alm. 3-9 Ab.Sp
Sértékkareikningar 4-17 Vb.Ab
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Vb
6mán. uppsögn 2,5-3 Allir
Innlán meðsérkjörum 27-35 nema Sp Ab
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 8-8,75 Ab
Sterlingspund 11,75-13 Lb.Bb,-
Ib.Vb,- Sb
Vestur-þýskmörk 5,25-6 Sb.Ab
Danskarkrónur 7,75-8,25 Lb.lb,-
ÚTLÁNSVEXTIR (%) Vb.Sp lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 30,5-34,5 Sb
Viöskiptavíxlar(forv-) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 33-37,25 Sb
Viðskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 34,5-39 Lb
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 7,25-8,75 Lb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 27.5-37 Úb
SDR 10-10,5 Lb
Bandaríkjadalir 11-11.25 Allir
Sterlingspund 15,75-16 nema Úb Allir
Vestur-þýsk mörk 8,25-8,5 nema Úb Úb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 42,8
MEÐALVEXTIR
överðtr. júlí 89 34,2
Verötr. júlí 89 7,9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitalajúlí 2540 stig
Byggingavísitalajúlí 461,5stig
Byggingavísitala júlí 144,3 stig
Húsaleiguvísitala 5% haekkun 1. júli
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa veröbréfasjóöa
Einingabréf 1 3,997
Einingabréf 2 2.218
Einingabréf 3 2,609
Skammtímabréf 1.-377
Lífeyrisbréf 2.010
Gengisbréf 1.783
Kjarabréf 3,959
Markbréf 2,097
Tekjubréf 1,752
Skyndibréf 1,205
Fjölþjóðabréf 1,268
Sjóösbréf 1 1,918
Sjóösbréf 2 1,534
Sjóðsbréf 3 1,355
Sjóösbréf 4 1,219
Vaxtasjóðsbréf 1,3555
HLUTABREF
Söluverö að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 300 kr.
Eimskip 360 kr.
Flugleiðir 175 kr.
Hampiðjan 164 kr.
Hlutabréfasjóður 128 kr.
Iðnaðarbankinn 157 kr.
Skagstrendingur hf. 212 kr.
Útvegsbankinn hf. 135 kr.
Verslunarbankinn 145 kr.
Tollvörugeymslan hf. 108 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum
og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af
þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb=lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaö-
inn birlast í DV á fimmtudögum.