Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Side 10
10
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1989.
Breiðsíðan
„Ferðin gekk mjög vel og var í alla
staði mjög ánægjuleg," sagði Halldór
Pálsson hjólreiðagarpur í samtali við
Breiðsíðuna. Hann gerði sér lítið fyr-
ir og fór af stað á hjólinu sínu fyrir
skömmu og var ferðinni heitið í
kringum landið. Hjólaði hann um
Suður-, Austur- og Norðurlandið en
er hann var á Blönduósi brotnaði
öxull af hjóhnu og varð hann að taka
rútu þaðan til Reykjavíkur. Ferðin
tók 18 daga.
„Ég er staðráðinn í að klára hring-
veginn í ágúst. Fara þá SnæfeUsnes-
ið, til Stykkishólms og taka flóabát-
inn þaðan til Bijánslækjar og hjóla
um Vestfirðina," segir Halldór.
Segir hann einna skemmtilegast
hafa verið að hjóla yfir HeUisheiðina
sem er á leiðinni frá Egilsstöðum til
Vopnafjarðar. En um er að ræða einn
hæsta íjallveg á landinu.
„Það var aUt á kafi í snjó þarna á
heiðinni og var hún ófær venjulegum
fólksbílum. Ég sökk á hjólinu ofan í
snjóinn en veðrið var stórkostlegt og
átti ég þama einstakan 17. júní. Ég
var heppinn með veður mestaila
ferðina, sérstaklega var það gott þeg-
ar ég var fyrir austan. Mótvindur
gerði mér þó stundum erfitt fyrir.
Þetta er mjög sérstakur ferðamáti.
Maður kynnist landinu betur og
öðruvísi heldur en ef ferðast er á bU.
Snertingin er svo mikil við náttúr-
una. Ég er mjög ánægður með hve
ökumenn voru tUlitssamir og hvet
ég fleiri til að nota þennan ferða-
máta.“
Sá hjól í búðarglugga
Halldór segist hafa verið að ganga
framhjá reiðhjólaverslun í fyrra-
sumar þegar hann rak augun í svo-
nefnd fjallahjól. Þá datt honum í hug
að gaman gæti verið að ferðast um
landið á hjóU. Því skeUti hann sér á
eitt slíkt hjól og hjólaði í fyrrasumar
til Sauðárkróks. Eftir þá ferð var
hann ákveðinn í að hjóla hringveg-
inn nú í sumar.
„Ég var búinn að undirbúa mig vel
fyrir ferðina. Ég hjólaði fram og aftur
til Keflavíkur, Þingvalla, Selfoss og
fleiri staða. Einnig hljóp ég mikið og
var í þrekæflngum. Var ég því nokk-
uð vel á mig kominn er ég fór af stað.
Ég fór dáhtið geyst af stað í byijun
en svo gat ég hjólað lengra og lengra
á hverjum degi. Fötin mín hafði ég á
bögglabera en gisti hjá ferðaþjónustu
bænda, á hótelum og hjá vinum og
kunningjum."
Halldór er svo sem ekki vanur að
setja hlutina fyrir sig. í tvö sumur
var hann markvörður Þróttar í Nes-
kaupstað þótt hann byggi og ynni í
Reykjavík. Flaug hann bara á milli
þegar leikir voru en hann fékk aö
æfa með KR.
Halldór segir líðan síðan mjög góða
eftir þessa miklu hjólaferð og að átta
kíló hafi hrunið af sér, orðið eftir
einhvers staðar úti á vegum. Hann
starfar sem aðalféhirðir í Iðnaðar-
bankanum í Lækjargötu og segir
hann samstarfsfólkið hafa fylgst vel
með sér á ferðinni.
„Ég hringdi reglulega í bílstjóra
bankans og sagði honum hvar ég
væri og hvernig gengi. Hann flutti
svo fréttir af mér á mUli starfsfólks-
ins. Það var mjög hvetjandi að vita
af því að það fylgdist með mér.
- Og hvert á svo að fara næsta sum-
ar?
„Mér var að detta í hug að fljúga
tfl Lúxemborgar og hjóla þaðan eitt-
hvað um Evrópu. Ef til viU væri snið-
ugt að hjóla suður til Ítalíu og bregða
sér á heimsmeistaramótið í knatt-
spymu...“
-RóG.
Hjólagarpurinn Halldór Pálsson er
hér kominn til Sauðárkróks. Hann
gerði sér lítið fyrir í sumarfríinu og
hjólaði mestallan hringveginn.
Þú ert 2000 krónum ríkari!
~^
■
K ■
■• •-
*¥ &:í
Þessir frísku krakkar nutu góöa veðursins i vikunni og léku sér í Hljómskálagaröinum í „snú snú“. Af mikilli einbeitni hoppaði hún í gegnum bandið þessi unga stúlka. Hún fær verðlaun
frá DV fyrir frammistööuna. Stúlkan er 2000 krónum ríkari og getur vitjað peninganna á ritstjórn DV, Þverholti 11. -RóG./DV-mynd JAK