Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1989. 17 Gildran - Gildran: Tíu ár eru langur tími í sðgu íslenskra hljómsvelta. Fæstar ná þær svo háum aldri. Og alia jafna breytist liöskipanin að meira eöa minna leyti ef þær ná að lifa áratuginn. Undantekning- arnar eru Mezzoforte, sem náöi tiu ára aldrinum fyrir nokkru, og Gildran sem fagnar sínu fyrsta stóraf- mæli í ár. Tíu árum. Til hátíðarbrigða hafa þremenningamir í Gild- runni sent frá sér plötu. Sína þriöju á ferlinum. Hin- ar tvær, Hugarfóstur og Huldumenn, komu ut í fyrra og hittifyrra. Sú nýja heitir einfaidlega Gildran. Hún ætti eiginlega að teljast fyrsta plata hljómsveitar- innar. Flest lög plötunnar voru tekin upp áður en tvær þær fyrri komu út Þaö var nefnilega engin tilviJjun aö fyrsta plata Gild- runnar, Huldumenn, hljóm- aði eins og á henni iékju al- vanir menn og hagvanir í hijóöritum. Þremenning- arnir hófu alisnemma að varðveita lagasmíðar sínar. Kölluðu sig þá Pass og jafn- vel öðrum nöfnum. í tilefni tíu ára afmælisins var ákveðið að leyfa al- menningi að nióta gömlu hijóðritananna eða að minnsta kosti sýnishoms af þeim. Þyngsta efnið frá því í gamla daga verður að bíða betri tíma. Á plötunni má glöggt heyra hve stórstígum fram- forum Gildran hefur tekið á liðnum áram. Nýju lögin tvö, Hvað sem er og Tvistum tvö, bera af hinum. Þá er á nýju plötunni að finna iagiö Good Balance sem enskt hijómplötufyrirtæki ætlaði að gefa ut en gerði ein- hverra hluta vegna ekki, Good Balanee sker sig nokk- uö úr. Mun meiri danstakt- ur er í laginu en öðra Gildrurokki án þess þó að það verði nokkru sinni taliö til diskós! Ótrúiega langan tíma tók aö taka úpp þetta eina lag. Svo langan aö Gildran leikur sér að því aö hljóðrita fullvaxna breið- sltífu á styttri tíma nú orðiö. Vegna þess hversu mis- gömul lögin á nýju Gildru- plötunni era virkar hún dá- lítiö sundurlaus. Það kemur þó ekki að sök. Hún er í raun lykiijinn að hinum tveimur og sýnir okkur að nokkra leyti þá leið sem þeir Birgir Haraldsson, Þórhallur Ámason og Kari Tómasson fóra til að verða þéttasta og jafnframt ein skemmtileg- asta rokkhijómsveit lands- ins. - Til hamingju með af- mælið. Ásgeir Tómasson Nýjarplötur Andrew RoacMord - RoacMord Tilfinninga- ríkt rokk Breskir blökkumenn era sífellt að láta meira að sér kveða í breskri popp- og rokktónlist. Og þó að þeir spih sama poppið og rokkið og aðrir breskir popparar má samt merkja mun á því hvernig þeir túlka verk sín og leggja öðruvísi áherslur á út- færslur en ef um hvíta poppara væri að ræða. Þannig þarf ekki annað en að heyra hvemig Andrew Roachford með- höndlar tiltölulega einfalda rokktón- list til að skynja að þarna er ekki hvítur maöur á ferð. Kannski er það soul blöndunin sem gerir það að verkum að blökkumannseinkennin skína í gegn en ég held að fleira komi tíl. Til að mynda í rokklagi eins og Cuddly Toy, sem þar fyrir utan er með betri rokklögum sem heyrst hafa á síðari árum, geislar lagið af sérstökum krafti og tilfinningu sem maður finnur ekki hjá hvítum rokk- uram. Söngurinn hefur líka sitt að segja, Roachford nær því sem svo fáir rokksöngvarar ná, það er að segja að nota röddina sem eitt hljóð- færið í hljómsveitinni. í viðbót við allt þetta er Roachford afbragðs lagasmiður og þessi plata hans þvi virkilega eigulegur gripur. -SþS- rrm floaci'íí'Tíí U\r af * ' x'rs2* •.Í>Kpi Iwrvl ttUa í! Kto W t» M* Tnantv u\ Jmti í'avu'juii iw* ravíat M Úr. V*n «;s 6rws, PrfW* aud rwmw w 'úr Spsr-í Tk»4s ;c & " fw ú* m«8ta< i S&iiit ÍV -ttm ^hBU' . ’A wv «t O'rtw' iv «» rV,, shv»u- tucr!*í Af»o tfc«M io Jart *»! T*m> ; UuaSiíí*8 m> öoiC £& öwfivi, fflrtn ot Afcrt aníío'- ‘v'“' '■*" feisÍHaiiIncMw.ftt^íír. fc« « rtwfcosteBt, SWMí awawwíi Paula Abdul - Forever Your Girl Gleymist sem fyrst Á meðan fjöldinn allur af fram- bærilegum tónhstarmönnum remb- ist eins og ijúpan við staurinn við að koma sér á framfæri, án árang- urs, dubbar hljómplötuiðnaðurinn upp alls kyns fólk sem ekki virðist hafa minnstu hæfiieika tíl að bera. Þetta er hið mesta óréttlæti en pen- ingamir stjóma og ef drashð selst betur en gæðavaran er draslinu otað að kaupendum. Paula Abdul er nýstirni á poppsvið- inu og eftir að hafa hlýtt á þessa fyrstu plötu hennar um nokkurt skeið er ég ekki í vafa um að hún flokkast með þeim hæfileikasnauðu sem hafa fátt annað til að bera en að vera snoppufríðir og taka sig vel út á myndum. Á þessari plötu er ekkert sem getur tahst frumlegt eða skapandi. Lögin eftir hina og þessa kújóna og öliu steypt í sama diskómótið. Textar era innihaidslaust bull og kjaftæði og rödd „söngkonunnar" margkeyrð í gegnum þartilgerð tól og tæki sem lagfæra ýmsa vankanta á röddum misgóðra söngvara en gera það að verkum um leið að engu líkara er en að maskínan sjálf hafi tekið yfir og syngi í staöinn. Það sorglega við svona augljós pen- ingadæmi er að dæmið gengur upp hjá útgefendunum og fólk gleypir við þess moði. Oj bara. -SþS' Freiheit - Fantasy Þrátt fýrir að Bítlamir hafi hætt bítiar gerst svo bfræfnir i nokkrum störfum sem iftjómsveit fyrir næst- tilvikum aö fa heilu lögin eftir um 20 árum era enn i dag til tónlist- Lennon og McCartney svo til lánuö armenn sem ekki hafa neitt frum- og setja svo nöfnin sín undir án legra fram að fara en nákvæmar þess að blikna. eftirílkingar á þvi sem fjórmenn- Hinu er þó ekki aö leyna að þrátt ingarnir frá Liverpool voru aö gera fyrir ófrumiegheitin era á þessari fyrir um 20 árum. piötu nokkrar býsna laglegar laga- Vissulega er það ekki leiöum að smíðar sem jafiivel hefðu sómt sér líkjast aö iíkjast Bítlunum en eins á alvöru Bítlaplötu. En fyrirþá sem og þýska hljómsveitin Freiheit fet- eiga plötur Bítlanna er þessi plata ar í Bítlafótsporin verður útkoman óþörf. Þeir geta gefið þessum frí- næstum því pínleg. herram fri. Auk þess aö stæia útsetningar, -SþS- söng og annað hafa þessir þýsku þjóðanna á árum áður. Annar gestur og vel þekktur tekur lagið á Listinni að lifa. Leikarinn, rithöfundurinn og spaugarinn góðkunni, Flosi Ólafs- son, syngur eigin brag um Friðrik bátsmann og Bimu sprett sem kalla ekki allt ömmu sína þegar skemmt- anahald er annars vegar. í aðalhlutverkum á nýju plötunni eru Jakob Magnússon, Egill Ólafs- son, Þórður Arnason, Ragnhhdur Gísladóttir, Tómas Tómasson og Ás- geir Óskarsson. Það var Gunnar Þórðarson sem stýrði upptökum plötunnar. Á litlu hrauni Listin að lifa verður rækilega kynnt í sjónvarpsþættí á Stöð tvö annað kvöld. Þá áforma Stuömenn að fara í hljómleikaferð um landið þvert og endilangt í júh og fram í ágúst. Eða eins og kemur fram í fréttabréfi í tilefni af útkomu plöt- unnar þá hefst ferðin „á kletti við Sundin blá í júnílok og lýkur á htlu hrauni við Eyrarbakka um miðjan ágúst“. Stuðmenn hafa á undanfómum árum gert það gott á verslunar- mannahelgarhátíðum, sér í lagi í Atlavík. Þeir verjast hiins vegar ahra frétta af því hvar þeir verði um mestu gleðihelgi ársins að þessu sinni. Segja það koma í ljós í fyllingu tímans. -ÁT- Valgeir í aukahlutverki Athygli vekur að Valgeir Guðjóns- son syngur hvorki né leikur á nýju plötunni. Hann á hins vegar hlut í sex lögum hennar af tólf. Hins vegar er fyrram hðsmaður hljómsveitar- innar mættur til leiks aö nýju og syngur eigið lag og texta. Hann er Stuömennirnir sem standa að Listinni að lifa. Hún er níunda plata hljómsveitarinnar. DV-mynd JAK Listin að lifa Ferð um landið er fyrirhuguð í júlí og ágúst Þessa stundina era starfsmenn plötuverslana í óðaönn að raða ein- tökum nýjustu Stuðmannaplötunnar í hillur sínar. Opinber útgáfudagur er reyndar ekki fyrr en á morgun, laugardag. Hörðustu aðdáendumir ættu þó að geta krækt sér í eintak af Listinni að lifa strax í dag. Listin að lifa er niunda plata Stuð- manna séu tvær stuttar sem komu út fyrir fimmtán áram ekki taldar með. Sú síðasta, Á gæsaveiðum, kom út fyrir tveimur árum. Á fjölmiðla- fundi á mánudaginn var, þar sem platan var kynnt, lofaði Tómas Tóm- asson bassaleikari næstu Stuð- mannaplötu innan tólf ára! Sigurður Bjóla Garðarsson sem best var þekktur sem hðsmaður Spilverks

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.