Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Side 20
20
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1989.
Kvikmyndir
Stéttarb ar átta
í Beverly Hills
Þegar flett er erlendum kvik-
myndatimaritum þessa dagana
virðast síður margra þeirra vera
undirlagðar undir stórmyndir
sumarsins, eins og Indiana Jones,
Star Trek og Ghostbusters, svo ein-
hveijar séu nefhdar. Þetta leiðir
hugann að því hve erfitt það hlýtur
að vera að koma mynd á framfæri
ef stóru kvikmyndaverin styðja
ekki við bakið á framleiðandanum
og veita fé til kynningar og mark-
aðsmála. En því miöur virðist vera
að myndast sú hefð aö kvikmynda-
verin leggi fram kynningarfé í réttu
hlutfalli við kostnaðinn við gerð
viðkomandi myndar. Þetta þýðir í
raun að myndir, sem eru gerðar
fyrir litla fjármuni, eiga litla sem
enga möguleika á því aö hljóta þá
kynningu og dreifingu sem þær
eiga oft á tíðum skilíð.
En það er annar flötur á þessu
máli. Þeim mun dýrari sem myndin
er þeim mun minni listræn yfirráð
hefur leikstjórinn hvað varðar gerð
hennar. Framleiðendur taka meiri
áhættu og vilja því að allir aðilar
feti troðnar slóðir og reyna að sjá
til þess að svo sé gert. Margir
þekktir leikstjórar, sem hafa rekið
sig á að hstrænt vald þeirra hefur
verið takmarkað til muna við gerð
stórmynda, hafa snúið sér aftur að
sjálfstæðri kvikmyndagerð.
Hér sést Bartel ásamt einni leikkonunni.
Góð lýsing
Eftirfarandi viðtal, sem haft var
við John Carpenter nýlega, lýsir
þessu ef til vill best. Carpenter kom
fyrst fram á sjónarsviðið með
frumlega og skemmtilega mynd
sem gerðist úti í geimnum og
nefndist Dark Star. Hann vakti
áhuga kvikmyndaveranna sem
leyfðu honum að spreyta sig á
Assault on Princent 13. Það var þó
með Hallowen sem Carpenter sló
reglulega í gegn og þá stóð ekki á
fjármunum. En því miður virðist
sem myndum hans haíl hrakað að
gæðum eftir því sem þær urðu
viðameiri og dýrari í framleiðslu,
eins og Christine, Starman og The
Retum of the Living Dead sýna.
En gefum Carpenter orðið.
„Staðan var orðin sú að ég var
farinn að gera dýrar myndir fyrir
stóru kvikmyndaverin. Einnig
fannst mér orðið erfitt að vinna í
Hollywood. Það er ekki sérstaklega
sjiennandi að reka viðskipti-þar.
Eg hef í sjálfu sér ekkert á móti því
að setja um tvo milljarða í gerð
kvikmyndar en þá veröur að mað-
ur að taka ákvarðanir varöandi
gerð hennar sem beinast miklu
meira að fjárhagshliöinni en hinni
listrænu vegna þess að sjá verður
til þess að þeir sem leggja pening-
ana fram fái þá aftur. Ég kann því
illa við aö eiga viðskipti við ófor-
skammað og oft á tíðum. tilfinn-
ingalaust fólk. Ég er einnig þeirrar
skoðunar að maður getur ekki sett
markið hátt sem leikstjóri ef hann
má ekki og viU ekki taka neina
áhættu. Ég var hreint og beint
hættur að hafa gaman af þessu svo
ég gerðist aftur sjálfstæður kvik-
mynflagerðarmaður. Ég var hepp-
inn að þurfa ekki að hafa fjár-
hagsáhyggjur svo mér tókst að ná
aftur þessari tilfinningu að það sé
gaman að gera kvikmyndir.“
Paul Bartel
En það eru fleiri en Carpenter
sem stunda sjálfstæða kvikmynda-
gerð. Einn þeirra er gamanmynda-
leiksljórinn Paul Bartel. Að vísu
er stórmunur á þeim Carpenter og
Bartel því sá síðarnefndi hefur
aldrei slegið í gegn svo neinu nemi
og hefur því aldrei kynnst öðru en
að gera myndir þar sem kostnaði
hefur verið haldið í lágmarki. Lít-
um t.d á nýjustu mynd Bartels sem
ber heitið Scenes from the Class
Struggle in Beverly Hills sem var
frumsýnd í Bandaríkjunum í byij-
un júní. Bartel vissi að hann myndi
móðga marga íbúa Beverly Hills
en lét það samt hafa lítil áhrif á
sig. Það tók hann þó heil tvö ár að
finna aðila sem vildu fjármagna
gerð myndarinnar. Svarið hjá
ráðamönnum Hollywood var alltaf
stutt og laggott. „Hugmyndin er
góð og handritið er gott en við get-
um því miöur ekki komið nálægt
gerð myndarinnar.“ Bartel hefur
viðurkennt að á tlmabili hafi hann
verið tilbúinn gegn sinni bestu
sannfæringu aö fella út sum atrið-
iðin sem talin voru umdeild.
Söguþráður
En um hvað er myndin’ ' Jare
(leikin af Jacqueline Bisset) er ný-
lega búin að missa eiginmann sinn
(leikinn af Paul Mazursky). Hann
lætur hana þó ekki í friði og birtist
henni í sífeÚu þar sem hann játar
henni eilífa ást sína. í næsta hús
er nýflutt tímabundið kona að
nafni Lisabeth (Mary Woronov)
ásamt dóttur sinni vegna þess að
meindýraeyðar eru að hreinsa
burtu síðustu minjamar um fyrr-
verandi eiginmann hennar. Mynd-
in fjallar síðan um ástarævintýri
sem þessar konu lenda í á Beverly
Hills. Þar koma ýmsir viö sögu eins
og leikritaskáldið, bróðir Lisabeth-
ar, tveir þjónar og svo'mætti lengi
telja. Hins vegar íjallar Bartel um
þetta efni á sinn gamalkunna geggj-
aða máta þannig að flestir skemmta
sér konunglega.
En það kunna þó ekki allir aö
meta mynd Bartels. Myndin var
kvikmynduð á aðeins 39 dögum sl.
sumar og vom sum atriðin skrifuö
jafnóðum og kvikmyndað var. „Við
vorum með svo margar söguper-
sónur að okkur fannst sjálfsagt aö
breyta til þegar þörf var á.“ Einn
af helstu kvikmyndagagnrýnend-
um New York Times gafst upp á
að horfa á myndina eftir einar 30
mínútur meðan aðrir klöppuðu
henni lof í lófa.
Hver er maðurinn?
Paul Bartel hefur gengið í gegn-
um margt sem leikstjóri. Hann hef-
ur getið sér gott orð sem sjálfstæð-
ur kvikmyndagerðarmaður sem
kann að gera þokkalegar myndir
fyrir lítið fé. Hann stundaði nám í
kvikmyndagerð og leiklist við UC-
LA háskólann. Eftir það ferðaðist
hann um tíma í SA-Asíu með leik-
flokk og gerði jafnframt kvikmynd
um ferð sína. Eftir að hann sneri
aftur til Bandaríkjanna fékk hann
Fulbright styrk til að stunda fram-
haldsnám í kvikmyndagerð á ítal-
íu, nánar tiltekið í Róm.
Segja má að Ítalía hafi haft mikil
áhrif á hvemig kvikmyndagerð
Bartels þróaðist, eins og best sást
á The Secret Cinema sem fjallaöi
um líf ungrar stúlku sem falin
kvikmyndatökuvél skráði með
góöri aöstoð vina og kunningja.
Myndin var um 30 mínútna löng
og var dreift í kvikmyndahús með
stuttri mynd eftir Brian De Palma
sem bar heitið Murder a la Mod.
Hasarmyndir
Meðan Bartel var í hernum vann
hann að gerö kennslumynda og síð-
an vann hann á vegum Upplýsinga-
þjónustu Bandaríkjanna í S-Amer-
íku að gerð heimildarmynda. Árið
1968 leikstýrði Bartel 12 mínútna
kynningarþætti um ólympíuleik-
ana í Mexíkóborg og tveimur árum
síðar gerði hann aðra stutta mynd
sem bar heitið Naugty Nurse og var
í gamansömum dúr eins og nafnið
gefur til kynna. Það var svo ekki
fyrr en 1972 að fyrsta mynd Bartels
í fullri lengd leit dagsins ljós en það
var hryllingsmyndin Private Parts.
Svo virðist sem framleiðendur
myndarinnar, MGM, hafi fengið
einhverja bakþanka þegar þeir sáu
myndina því þeir urðu hræddir um
að myndin gæti komið óorði á hiö
þekkta MGM merki. Þeir settu því
annað fyrirtæki sem framleiðanda
eða Premier Production sem notað
var þegar lík tilvik skutu upp koll-
inum.
Paul Bartel hefur síðan komið
víða við. Hann vann töluvert fyrir
Roger Corman og var meðal annars
aðstoðarleikstjóri Steve Carters viö
gerð Big Bad Mama. Árið 1975 lét
síðan Corman í hendumar á Bartel
Death Race 2000 vegna þess að
hann hafði fengið þá flugu í kollinn
að Bartel væri bílaáhugamaður.
Gamanmyndir
Bartel gekk erfiðlega að fá fé til
kvikmyndagerðar nema þar sem
bíllinn var í aðalhlutverki. Hann
hafði nú fengið orð á sig fyrir að
vera spennumyndaleikstjóri og því
hafði enginn áhuga á því að ráða
hann sem gamanmyndaleikstjóra.
Til að hafa í sig og á leikstýrði hann
Cannonball þar sem hann reyndi
að fá svolitla skemmtun út úr
myndinni með því að einbeita sér
aö öðrum þáttum í henni en sem
sneru beint aö bílum.
En ósk sína um gamanmynd fékk
Bartel síðan fljótlega uppfyllta. Það
var Eating Raoul sem má lýsa sem
ofbeldiskenndum gamanleik án
blóðsúthellinga. Þessi mynd festi
Bartel í sessi sem gamanmynda-
leikstjóra með mjög persónulegum
ærslafengnum stíl.
Tvær síðustu myndir Bartels
hafa þó verið hálfmisheppnaðar.
Það voru Not for Publication og
Lust in the Dust. Hins vegar má
búast við því að hann endurheimti
sess sinn sem gamanmyndaleik-
stjóri með Scenes from the Class
Struggle in Beverly Hills því mynd-
in hefur yfirleitt hlotið góða dóma
og verið íjallað um hana víða eins
og t.d. í Times. Hins vegar ræðst
það líklega af vinsældum hennar
vestanhafs hvort hún verður tekin
til almennra sýninga hérlendis eða
sýnd á kvikmyndahátíð.
B.H.
Helstu heimildir:
Films and Filming
Monthly Film Bulletin
Variety
Það eru þær Bisset og Woronov sem fara með aðalhlutverkin. Þaö er
Bartel sem er á innfelldu myndinni.